Morgunblaðið - 27.03.1980, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
73. tbl. 67. árg.
FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Krabbinn kom-
inn í miltað
Kaíró. 26. marz. AP.
ANNALAÐUR bandarískur
skurðlæknir, dr. Michael Debak-
ey, er kominn til Kaíró til að
sinna Reza Pahlavi, fyrrum
íranskeisara, en krabbameinið,
sem hann þjáist af, mun nú hafa
borizt í miltað.
Er haft eftir áreiðanlegum
heimildum að miltað þurfi að
fjarlægja án tafar, svo forða megi
keisaranum frá bráðum bana.
Um 700 heittrúaðir múslimar
efndu til mótmælaaðgerða við
Kaíróháskóla í dag til að láta í ljós
andúð sína á því að Sadat Egypta-
landsforseti hefur skotið skjóls-
húsi yfir keisarann, en þangað
kom hinn sjúki útlagi í fyrradag.
Sadat forseti lét svo um mælt, að
mótmælafólkið mætti hans vegna
öskra til dómsdags. Með því að
veita keisaranum hæli sýndu
Egyptar að þeir héldu í heiðri
kenningar Múhammeðs spá-
manns.
Gullverðlækkaði
London, 26. marz. AP.
VERÐ á gulli lækkaði verulega
á evrópskum gullmörkuðum í
dag, en gengi Bandaríkjadoll-
ars breyttist lítið.
Venjulega hækkar gengi doll-
ars með lækkandi gullverði, en
haft er eftir gullkaupmönnum að
sigur Edwards Kennedys í for-
kosningunum í New York og
Connecticut í gær hafi komið í
veg fyrir umtalsverða gengis-
hækkun.
Kúbumenn láta að sér
kveða í E1 Salvador
San Salvador, 26. marz. AP.
AF HÁLFU kirkjunnar i E1 Salva-
dor og Bandaríkjastjórnar er sagt
að morðingi Romero erkibiskups
hafi að líkindum verið hægri sinn-
aður útlagi frá Kúbu og hafi sá
ekki verið viðvaningur i meðferð
skotvopna.
Morðið á biskupnum hefur hvar-
vetna vakið mikla andúð, en ekki er
Ijóst hvaða áhrif það hefur á hið
ótrygga stjórnmálaástand í E1
Salvador.
Bandaríkjastjórn telur sig hafa
öruggar sannanir fyrir því að Kúbu-
menn styrki vinstri sinnaða upp-
reisnarmenn í E1 Salvador með
ráðum og dáð og fái þeir bæði vopn
og liðsstyrk hjá Fidel Castro.
Sir Geoffrey Howe með fjárlagatöskuna, sem komin er til ára sinna.
(AP-simamynd).
Flúðu til að losna
við „vináttuleik“
Sjö menn úr afganska landslið-
inu í knattspyrnu flúðu land til
að komast hjá því að leika
„vináttuleik" i Sovétríkjunum,
að því er fyrirliði þeirra sagði í
Frankfurt í dag. Knattspyrnu-
mennirnir flúðu til Pakistan og
þaðan til V-Þýzkalands þar
sem þeir hafa leitað hælis sem
pólitískir flóttamenn.
Að sögn yfirvalda í Frank-
furt eru um þúsund flóttamenn
frá Afganistan komnir til
borgarinnar, og hafa þeir beðið
um þólitískt hæli. Myndin var
tekin af fjórum knattspyrnu-
mannanna í gistihúsi i Frank-
furt í gær, en vika er síðan þeir
komu þangað. (AP-símamynd)
frumvarpið: Niðurskurður ríkis-
útgjalda og hærri skattar á
olíidiagnað, tóbak og áíengi
Lundúnum, 26. marz. AP.
ÞINGMENN Neðri mál-
stofunnar yfirgnæfðu fjár-
málaráðherrann, Sir Geoff-
rey Howe, hvað eftir annað
með ópum og háreysti þegar
hann gerði grein fyrir fjár-
lagafrumvarpi stjórnar sinn-
ar í dag. í frumvarpinu boðar
stjórn lhaldsflokksins áfram-
haldandi niðurskurð á út-
gjöldum ríkisins, stórfellda
hækkun álagna á áfengi. tó-
bak og bensín, auk þess sem
skattar á hagnað olíufélaga
af olíuvinnslu í Norðursjó eru
hækkaðir úr 52% í ■ 70%.
Stjórnin ætlar að hækka
framlög til varnarmála og
löggæzlu. Eftirlaun verða
hækkuð verulega og sömu-
leiðis barnabætur, en í frum-
varpinu er ekki gert ráð fyrir
þeirri lækkun tekjuskatts,
sem almennt var búizt við. að
öðru leyti en því að láglauna-
fólk fær skattaívilnanir.
Megintilgangur stjórnar
Ihaldsflokksins er að draga úr
halla á utanríkisviðskiptum,
en þannig vonast stjórnin til
að veita megi viðnám gegn
verðbólgunni. Dregið er veru-
lega úr ríkisútgjöldum og
sagði Howe að áframhald yrði
á því á næstu árum. Frum-
varpið þykir minna á hlið-
stæðar ráðstafanir Garters
Bandaríkjaforseta til að
stemma stigu við verðbólgu,
en sparnaður brezku stjórnar-
innar í ríkisútgjöldum hefur
fyrst og fremst beinzt að því
að draga úr styrkjum við
þjóðnýtt fyrirtæki og félags-
lega þjónustu.
Þetta var fyrsta fjárlaga-
ræða Howes og þótti ráðherr-
anum mælast skörulega, þótt
undirtektir væru misjafnar
eftir því hvar menn standa í
flokki. Hækkun skatta á olíu-
gróðann olli miklu fjaðrafoki í
deildinni og var greinilegt að
fáir höfðu búizt við því að hún
yrði svo mikil á einu bretti.
Finnland:
Landbúnaðar-
afurðir hækka
um 10%
Helsinki, 26. marz. Frá Harry GranberK.
fréttaritara MorgunblaÓsins.
FINNSKA stjórnin hefur kom-
ið sér saman um tíu prósent
hækkun á landbúnaðarvörum
og kemur þessi ráðstöfun til
framkvæmdá um næstu mán-
aðamót.
Vegna þessara verðhækkana
hafa verið samþykktar niður-
greiðslur að jafnvirði u.þ.b. 115
milljarðar íslenzkra króna, en
því sem ekki jafnast út þegar í
stað vegna verðhækkananna
verður varið til endurbóta á
orlofskerfi bænda. Nýmæli á
þeim vettvangi er að eftirleiðis
munu bændur eiga þess kost að
verða leystir af um helgar.