Morgunblaðið - 27.03.1980, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1980
17
Verði heimilað
að selja vörur
á raunvirði
Eftirfarandi ályktun var
samþykkt á aðalfundi kaup-
mannasamtaka íslands:
Fundurinn vekur athygli á höf-
uðskyldu stjórnvalda þeirri að
tryggja atvinnuvegum lands-
manna starfsskilyrði þannig að
blómlegra þjóðlíf fái þrifist í
landinu.
í verðbólgu undanfarinna ára
hefur eigið fé fyrirtækja brunnið
upp, og verðgildi vörubirgða stór-
lega rýrnað, vegna óeðlilegra opin-
berra afskipta.
Fundurinn gerir því kröfu til
þess að nú þegar verði fyrirtækj-
um heimilað að selja vörur sínar á
raunvirði.
A sl. ári hafa stjórnvöld stefnt
að því að útlánsvextir verði í
samræmi við verðbólgustig. Kaup-
mannasamtök íslands telja eðli-
legt að þessari stefnu sé fylgt, en
jafnframt verði tekið hæfilegt
tillit til þess, þegar smásöluálagn-
ing er ákveðin, og að fyrirtækjum
sé ekki mismunað í þessu tilliti.
Kaupmannasamtök Islands
telja brýnt að komið verði á, hér á
landi, stéttarlegu jafnvægi og að
atvinnurekendur í landinu sam-
einist í baráttunni gegn verðbólg-
unni, svo komið verði í veg fyrir
óheillavænleg áhrif einstakra
stétta á efnahagsmál þjóðarinnar.
Kaupmannasamtökin benda' á
að þær ásakanir, sem hafa verið
hafðar uppi í garð smásöluverzl-
unarinnar, um að hún sé valdur að
hækkandi verðlagi í landinu, hafa
ekki við rök að styðjast, þar sem
að hlutur smásöluverzlunarinnar í
vöruverði hefur farið síminnkandi
á síðustu árum.
Kaupmannasamtök íslands
telja það höfuðnauðsyn að nú
verði stjórnmálalegur flokkakryt-
ur lagður til hliðar, en Alþingi
sameinist um að ná tökum á
höfuðmeini íslenzks efnahagslífs,
sem er verðbólgan.
Fundurinn bendir sérstaklega á
vanda dreifbýlisverzlunarinnar,
og að hér verður ekki haldið uppi
menningarþjóðfélagi nema því að-
eins að verzluninni sé gert fært að
inna af höndum þá þjónustu, sem
lífsnauðsynleg er fyrir hinar
dreifðu byggðir landsins.
Aðalfundur Kaupmannasam-
taka íslands, haldinn að Hótel
Sögu, 20. marz 1980, vekur athygli
á því að gildandi lög og reglur um
tolla, vörugjald og sölugjald af
frysti og kælibúnaði fyrir mat-
vöruverzlanir hindra eðlilega end-
urnýjun, þessara tækja, sem aðal-
lega eru notuð við sölu landbúnað-
arvara.
Óeðlileg skattheimta ríkisins
vegna innflutnings þessara tækja
eikur tilkostnað við öflun þeirra
um 108% miðað við cif verð. Ekki
er ólíklegt að vegna þessarar
óraunsæju skattheimtu þurfi rík-
issjóður að inna af hendi hærri
greiðslur vegna útflutnings land-
búnaðarvara en ella væri.
Því er hér með farið fram á
niðurfellingu tolla, vörugjalds, og
sölugjalds af umræddum verzl-
anabúnaði.
Ný barnastúka stofn-
uð í Reykjavík
NÝ barnastúka var stofnuð í
Reykjavík fimmtudaginn 6. mars.
Hún hlaut nafnið Örkin og verður
númer 171. Heimili hennar er á
Bústöðum, félagsheimili borgarinnar
í kjallara Bústaðakirkju.
Gissur Pálsson þinggæslumaður
hafði undirbúið stúkustofnunina.
Fyrsti gæslumaður er séra Kolbeinn
Þorleifsson en annar gæslumaður
Guðjón B. Eggertsson. Stúkan Verð-
andi er verndarstúka hinnar nýju
barnastúku.
Nokkrir félagar úr ungtemplara-
félaginu Trölla gerðust stofnfélagar i
Örkinni og er mjög treyst á fulltingi
þeirra við félagsstarfið. Stofnfélagar
voru alls um 80. Viðstaddir stofnun
stúkunnar voru nokkrir eldri templ-
arar. Úr stjórn unglingareglunnar
voru þeir Hilmar Jónsson stórgæslu-
maður og Sigrún Sturludóttir. Auk
Hilmars voru þarna úr
framkvæmdanefnd stórstúkunnar
stórvaratemplar og stórritari og að-
stoðuðu þessi öll við stofnunina.
Þingstúka Reykjavíkur stefnir nú
að því að barnastúkur starfi í
'oorgarhverfum. í samræmi við það
voru nokkrir félagar úr barnastúk-
unni Æskan stofnfélagar þessarar
stúku, þeir sem heima eiga í
Bústaðasókn.
Benidorm
Brottfarardagar
sumarið 1980:
3. aprfl
18. aprfl
9. maí
23. maf
30. maf
13. júní
20. júní
4. júlí
11. júlf
25. júlí
1. ágúst
15. ágúst
22. ágúst
5. september
12. september
3. október
SELJUM FARSEÐLA UM ALLAN
HEIM Á HAGSTÆÐASTA VERÐI
lm Ferðamiðstöðin hf.
J Aðalstræti 9 - Símar 11255 - 12940
Störfallegt
hljómflutningatæki
é ainataklega góðu varöi
SM-2850
Stereo-samstæðan
Verö ca. Verö ca. kr. 374.300.
Allt í elnu tækl:
Stereo-útvarp, Cassettusegulband, plötu-
spilarí og 2 stórlr hátalarar.
Magnarlnn er 44 wött. Tvelr hátalarar eru í
hvorum kassa. Stór renndur 30 sm plötu-
xtlskur. Útvarpló er meö langbylgju. mlö-
bytgju og FM stereo. RcO selktor.
Komiö og skoölö þetta stórfallega tækl og
sannfærist um SM 2850.
Toshiba-tæklö er ekkl aöelns afburöa
stílhreint í útliti heldur líka hljómgott. SM
2850 gefur yður mest fyrlr penlngana.
S-laga armur
Magnetísk hljóödós
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaðas*ræti 10 A
Simi 1-69-95 — Reykjavik
Útsölustaöir:
Akranes: Bjarg hf.
Borgarnes: Kaupf. Borgf.
Bolungarvík: Verzl. E.Q.
ísafjörður: Straumur s.f.
Hvammstangi: Verzl. S.P.
Blönduós: Kaupf. Húnvetninga
Sauöárkrókur: Kaupf. Skagflrðínga
Akureyrl: Vöruhús KEA
Hljómver h.f.
Húsavík: Kaupf. Þingeylnga
Egllsstaölr: Kaupf. Héraösbúa
Ólafsfjöröur: Verzl. Valberg
Siglufjöröur: Gestur Fanndal
Hornafjöröur: KASK
Hvolsvöllur: Kaupf. Rangælnga
Vestmannaeyjar: Kjarni h.f.
Keflavík: Duus.
ÍPRÓTTABLADID
komið út
íþróttablaðið — vettvangur ÍSÍ og málgagn 70 þúsund meðlima
íþrótta og ungmennafélaganna um allt land. Eina íþróttablaöið á
íslandi. Flytur lifandi frásagnir af íþróttum. —
Nýtt blað fjallar um Val í úrslitum Evrópukeppninnar — matarræði
íþróttamanna — badmintonkennslu ásamt fjölbreyttu öðru efni.
Askriftarsímar 82300 og 82302.
FRJALST FRAMTAK HF.
• ‘v«aj
m