Morgunblaðið - 27.03.1980, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1980
Verðlækkun í Bandaríkjunum:
•- 1 " • *................
Sama verðlækkun tók gildi
á sama tíma hjá Coldwater
og Iceland Seafood
„Mér er ekki kunnugt um
annað en að þessi verðlækkun
hafi komið til samtimis hjá
báðum fyrirtækjunum,“ sagði
Guðfinnur Einarsson, stjórn-
arformaður Coldwater, er Mbl.
ieitaði i gær álits hans á þeim
ummælum Gunnars Thorodd-
sens forsætisráðherra á Alþingi
i fyrradag, að það væri kunn-
ugt varðandi verðlækkun
Coldwaters á nokkrum fiskteg-
undum á Bandarikjamarkaði,
m.a. þorskblokkinni. „að ekki
hafði verið haft samráð við
annan aðalsöluaðilann á fryst-
um fiski þar af íslendinga hálfu
né að því er virðist við ýmsa
aðra, sem eiga þar mikilla
hagsmuna að gæta á þessum
markaði“. „Menn geta svo dreg-
ið sínar ályktanir af þvi að
verðlækkun kom til samtímis
hjá báðum, en hins vegar skil
ég ekki í fljótu bragði hvað
forsætisráðherra á við með
þessum öðrum aðila,“ sagði
Guðfinnur. Guðjón B. Ólafsson
framkvæmdastjóri Iceland Sea-
food í Bandaríkjunum staðfesti
í samtali við Mbl., að hjá þeim
hefði orðið sama verðlækkun og
hjá Coldwater og á sama tíma.
Að öðru leyti kvaðst hann ekki
vilja ræða þetta mál opinber-
lega að svo stöddu. Þess skal
getið að í Bandarikjunum eru i
gildi ströng lög gegn hringa-
myndunum og samráðum fyrir-
tækja um verðmyndun á vöru
og fellur starfsemi Coldwater
og Iceland Seafood undir þau
lög.
Mbl. spurði Guðfinn Einars-
son, hvort hann teldi rétt, að
verðlækkunin í Bandaríkjunum
hefði haft skaðleg áhrif á samn-
inga okkar í Sovétríkjunum, en í
ræðu sinni sagði forsætisráð-
herra, að það væri fullyrt „af
þeim sem stóðu að þeim samn-
ingum“, að verðlækkunin í
Bandaríkjunum á þessum tíma
hefði haft „skaðleg áhrif fyrir
okkur á þá samninga".
„Það er alltaf eitthvert sam-
band milli markaða, ef um
sambærilega vöru er að ræða,“
sagði Guðfinnur. „En til Sov-
étríkjanna voru seldar aðrar
fisktegundir en um var að ræða í
Bandaríkjunum og í samningun-
um í Sovétríkjunum fékkst
hærra verð en áður var.“
Mbl. spurði Guðfinn, hvort
ekki hefði komið til greina að
draga verðlækkunina á Banda-
ríkjamarkaði.
„Það var búið aða draga hana
í lengstu lög,“ svaraði Guðfinn-
ur. „Við ráðum ekki markaðs-
verði á blokk í Bandaríkjunum
og ég vil benda á að við höfum
verið að greiða hærra verð fyrir
blokk frá Islandi en er á blokk
frá Kanada.
Þá finnst mér rétt að það komi
fram, að blokkin er aðeins lítill
hluti af Bandaríkjamarkaðnum
og þorskur í öðrum pakkningum
miklu stærri hluti en blokkin og
að verð þorsks í öðrum pakkn-
ingum hélzt óbreytt.“
„Forsætisráðherra getur eng-
in slík ummæli haft frá mér,“
sagði Árni Finnbjörnsson, sölu-
stjóri Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna, er Mbl. spurði
hann, hvort hann hefði sagt það
sína skoðun að verðlækkun í
Bandaríkjunum hefði haft skað-
leg áhrif á samninga í Moskvu,
sem Árni tók þátt í.
Mbl. spurði Árna þá, hver
væri hans skoðun á þessu atriði:
„Ég tel ekki neitt beint samband
þarna á milli og ekki kom neitt
slíkt fram hjá Rússunum. Við
vorum að selja allt annan fisk í
Sovétríkjunum en þorskblokk.
Og við fengum verðhækkun.
Mbl. tókst ekki í fyrrakvöld né
í gær að ná sambandi við Sigurð
Markússon framkvæmdastjóra
sjávarafurðadeildar SÍS, sem
ásamt Árna Finnbjörnssyni
annaðist samningagerðina í
Moskvu.
Við opnun tilboða i Hjúkrunarheimili DAS í Ilafnarfirði: Pétur Sigurðsson formaður Sjómannadagsráðs
fyrir miðju, en aðrir á myndinni eru aðrir stjórnarmenn, hönnuðir og þeir sem i verkið buðu.
Tilboð opnuð í Hjúkrunarheim-
ili Hrafnistu í Hafnarfirði
ÞRIÐJUDAGINN 26. marz
voru opnuð í fundarsal Sjó-
mannadagsráðs að Hrafn-
istu í Reykjavík tilboð í þá
jarðvegsvinnu sem ólokið
er við hjúkrunardeild
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Fimm tilboð bárust og
voru opnuð að viðstaddri
stjórn Sjómannadagsráðs,
hönnuðum og tilbjóðend-
um.
Lægsta tilboð sem barst
var frá Sveinbirni Run-
ólfssyni að upphæð kr.
43.675.000.- og næst lægsta
frá Hlaðbæ h/f, kr.
46.544.500.- Allri jarðvegs-
vinnu á að vera lokið þann
16. maí n.k. og verður þá
fljótlega hafist handa um
fyrirhugaðar byggingar-
framkvæmdir þessa árs.
Fjalakötturinn:
Mynd um uppvöxt
Stephen Dedalus
í KVÖLD, fimmtudag, kl. 21, á
laugardaginn ki. 17 og á sunnudag-
inn kl. 17, 19.30 og 22 sýnir
Fjalakötturinn i Tjarnarbíói kvik-
myndina „A Portrait of the Artist
as a Young Man“ (Nærmynd af
listamanninum á yngri árum) eftir
Joseph Strick.
Mynd þessi er gerð eftir sam-
nefndri sögu James Joyce. Hún
fjailar um uppvöxt Stephen Dedal-
us í Dublin rétt fyrir síðustu
aldamót og þau áhrif sem hann
verður fyrir vegna vaxandi sjálf-
stæðisbaráttu Ira
Aðalhlutverkin í myndinni leika Atriði úr myndinni „A Portrait
Bosco Hogan og Sir John Gielgud. of the Artist as a Young Man“.
Gyða Björk Atladóttir og Brynjar Eymundsson, eigendur Sæluhúss-
ins, ásamt bakaranum Marinó Birgissyni.
Nýtt kaffihús
OPNAÐ hefur verið nýtt kaffihús
í Bankastræti 11 í Reykjavík,
Sæluhúsið. Verður þar borið fram
heitt kaffi, bakkelsi og brauð auk
þess sem heitur matur verður
framreiddur í hádeginu. Fyrst um
sinn verður Sæluhúsið opið kl. 8.30
til 19 alla daga nema sunnudaga.
í Reykjavík
En með vorinu verður kaffihúsið
opið til kl. 23.30 alla daga vikunn-
ar.
Eigendur og umsjónarmenn
Sæluhússins eru hjónin Gyða
Björk Atladóttir og Brynjar Ey-
mundsson. Bakari er Marinó Birg-
isson.
Lög Skúla Halldórssonar tónskálds:
Gefin út á hljóm-
plötu í Finnlandi
Hinn 13. marz s.l. undirritaði
Skúli Halldórsson samning við
finnskt plötuútgáfufyrirtæki og
nótnaútgáfufyrirtæki um útgáfu
verka sinna á LP-plötu og nótur i
Finnlandi. Þessi útgáfufyrirtæki
hafa þar með öðlast réttindi á 20
verkum Skúla til útgáfu hvar
sem er i heiminum að íslandi
undanskildu.
Finnska tónskáldið Rauno Leht-
inen og kona hans Anja eru
eigendur þessara tveggja útgáfu-
fyrirtækja, sem Skúli samdi við.
Rauno Lehtinen er heimsþekktur
fyrir lagið sitt „Jenka“, sem allir
þekkja. Einnig er hann þekktur
fyrir kvikmynda-tónlist og létta
tónlist.
Síðast liðið sumar var Skúli á
fundum norrænu stefianna, sem
haldnir voru í Noregi. Þarna
hittust þeir Rauno og Skúli. Eftir
að Rauno hafði heyrt Skúla spila
nokkur af lögum sínum ákvað
hann að gefa þessa tónlist út bæði
á plötum og nótum, og gera
fljótlega samninga þar um. Skúli
hófst því handa s.l. sumar að
umskrifa lög sín fyrir píanósóló.
Að því verki loknu spilaði hann 20
lög sín á band í sterió að tíma-
lengd 40 mínútur.
Sólóplata Skúla er væntanleg
fljótlega á þessu ári, og verður
hún til sölu um alla Skandinavíu
og víðar.
Prófessor Alan Boucher hefur
þýtt 19 ljóð við lög Skúla á ensku.
Verða þær þýðingar notaðar við
nótnaútgáfuna.
Ráðstefna um atvinnumál
og endurhæfingu blindra
SAMTÖK blindra og sjónskertra
á íslandi efna til ráðstefnu um
endurhæfingu og atvinnumál
blindra á laugardaginn, þann 29.
mars, í húsakynnum sínum að
Hamrahlíð 17 í Reykjavik.
Á ráðstefnunni verða flutt er-
indi um reglugerð um öryrkja-
vinnu, endurhæfingu, atvinnumál,
skipulagningu umhverfis og fleira.
Ráðstefnan hefst klukkan hálf tíu
árdegis og lýkur væntanlega um
fjögurleytið. Öllum er heimill að-
gangur en þátttöku ber að til-
kynna til Blindrafélagsins fyrir
hádegi á föstudag, á morgun.
I frétt fra ráðstefnuboðendum
segir, að nú sé ástandið þannig í
endurhæfingarmálum blindra hér
á landi, að alla þá, sem missi sjón,
verði að senda utan til endurhæf-
ingar. En vegna skorts á leiðbein-
endum hér á landi nýtist sú
endurhæfing ekki að fullu þegar
komið er heim á ný. Ekki sé til
dæmis gagn að því fyrir blindan
Reykvíking að læra inn á járn-
brautastöðvar í Ósló eða Lundún-
um, og einnig sé oft um að ræða
tungumálaerfiðleika.
Tónleikar á Akur-
eyri og í Reykjavik
Akureyri 26. mars 1980.
JONATHAN Bager flautuleikari og
Philip Jenkins píanóleikari halda
fjölbreytta tónieika á Akureyri og í
Reykjavik á næstunni. Tónleikarnir
á Akureyri verða i Borgarbiói í
kvöld, fimmtudagskvöld. og hefjast
klukkan 19.15 en i Reykjavik leika
þeir á Kjarvalsstöðum sunnudaginn
30. mars klukkan 20.30.
Á efnisskránni eru sónötur eftir Le
Claire, Poulenc og Prokofiev og einnig
ballaða eftir Frank Martin. Jonathan
Bager lauk einleikaraprófi frá Royal
Academy of Music í London á síðasta
ári, og starfar nú sem kennari í
flautuleik við Tónlistarskólann á Ak-
ureyri. Þessir tónleikar hans verða
fyrstu sjálfstæðu tónleikar hans hér
á landi. Jenkins hefur leikið á mörg-
um tónleikum hérlendis og erlendis,
svo sem með Sinfóníuhljómsveit
íslands og inn á hljómplötur. Hann er
prófessor í píanóleik við Royal Aca-
demy of Music í London, en er nú í
vetrarleyfi og kennir við Tónlistar-
skólann á Akureyri.
- SvP.