Morgunblaðið - 27.03.1980, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1980
Athugasemd frá Áfengismálaráði:
Fjöldi dreifingarstaða áfengis veld
ur aukinni drykkju og meira tjóni
Blaðinu hefur borizt eftirfarandi
athugasemd frá Áfengisvarna-
ráði:
Vegna upplýsinga sem hafðar
eru eftir forseta bæjarstjórnar
Seltjarnarness í Morgunblaðinu
14. þ.m. vill Áfengisvarnaráð taka
fram eftirfarandi:
Þrátt fyrir það sem fram kemur
í rannsóknum Tómasar Helgason-
ar og samstarfsmanna hans, að
ekki séu tengsl á milli fjölda
þeirra, sem áfengis neyta á þétt-
býlisstöðum og þess hvort þar sé
áfengisútsala eða ekki, sýna rann-
sóknirnar að í Reykjavík, þar sem
flestir dreifingarstaðirnir eru, er
drukkið oftar og þar eru fleiri
stórdrykkjumenn og fleiri, sem
eiga við áfengisvandamál að
stríða.
Rannsóknirnar sýna m.a. að í
Reykjavík og nágrenni, þar sem
flestar eru dreifingarstöðvarnar,
neyta 48% karla áfengis tvisvar í
mánuði eða oftar en í þéttbýli, þar
sem ekki er áfengisútsala, 32%.
I Reykjavík og nágrenni eru
hlutfallslega helmingi fleiri karl-
ar stórdrykkjumenn en á þeftbýl-
isstöðum þar sem engin áfengis-
útsala er.
í Reykjavík neyta 13% fólks á
aldrinum 20—49 ára ekki áfengis,
en 20% á öðrum þéttbýlisstöðum
og 29% í sveitum.
Tölur þessar eru miðaðar við
1972 og 1974, þar eð niðurstöður
rannsókna, sem framkvæmdar
voru á árinu 1979, hafa enn ekki
verið birtar.
í ritgerðinni: Rannsóknir á
áfengisneysluvenjum íslendinga,
sem birtist í 1. tbl. Geðverndar
1977, ritar Tómas Helgason:
Tafla 6
Áfengisneyslan sem persónulegt
vandamál eftir búsetu.
(í prósentum af þeim, sem neyta
áfengis)
Karlar Konur
Reykajvík og nágrenni 12,5 1,8
Þéttbýli með áfengisútsölu 12,5 0,0
Þéttbýli án áfengisútsðlu 8,3 2.4
Dreifbýli 8,4 0,6
Landið allt 11.3 1.4
Tafla 6 sýnir, hve margir telji
áfengisneyslu sína persónulegt
vandamál, eftir því hvar þeir eru
búsettir. Þarna kemur í ljós, að
það eru hlutfallslega fleiri karlar
á svæðum með áfengisútsölu, sem
telja áfengisneyslu sína persónu-
legt vandamál heldur en á svæð-
um þar sem engin áfengisútsala
er. Hins vegar eru konurnar svo
fáar, að ekki verður lagt upp úr
þeim tölum, sem þær varða.
Tafla 7
Þeir, sem drekka áfram daginn
eftir mikla drykkju í prósentum
af fjölda þeirra, sem neyta áfeng-
is eftir búsetu.
Karlar Konur
Reykajvík og nágrenni 5.0 0,4
béttbýli með áfengisútsölu 4,6 0,0
Þéttbýli án áfengisútsölu 2.1 0,0
Dreifbýli 2.3 0,6
Landið allt 4.1 0.3
Tafla 7 sýnir, hve mörg prósent
þeirra, sem neyta áfengis halda
áfram að drekka daginn eftir
mikla drykku, einnig skipt eftir
búsetu. Á þessari töflu kemur
einnig í ljós, að það eru hlutfalls-
lega fleiri karlar á svæðum, þar
sem áfengisútsala er, sem halda
áfram að drekka daginn eftir
mikla drykkju heldur en á þeim
svæðum, þar sem engin áfengis-
útsala er. Þessar tvær siðast
nefndu töflur benda eindregið til
þess að máli skipti, hvort áfengis-
útsala sé i næsta nágrenni eða
ekki.
Niðurstöður rannsókna í öðrum
löndum benda í sömu átt eins og
tilmæli Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar um fækkun dreifingar-
staða áfengis sýna.
Stofnaður
Klúbbur 25
SAMTÖK ungs fólks, sem
hefur hug á að bæta skemmt-
anahald og beita sér fyrir
ódýrum en áhugaverðum og
fjölbreyttum ferðalögum,
eru þessa dagana að hrinda
af stað klúbbstofnun í þessu
skyni, að því er segir í
fréttatilkynningu undirbún-
ingsnefndar klúbbsins. Sam-
tökin munu heita Klúbbur-25
og starfa í nánum tengslum
við Ferðaskrifstofuna Utsýn
og veitir hún félögum 25 ára
og yngri 25 þús. kr. afslátt í
ferðum sumarsins. Þá er
tekið fram að félagar muni
njóta hlunninda erlendis, t.d.
með lækkuðum aðgangseyri
á skemmtistöðum, afslætti í
verzlunum og veitinga-
stöðum og kynnisferðum
gegn framvísun skírteinis
síns. Þá mun klúbburinn
gangast fyrir sérstökum
ferðum, auk afsláttar í Út-
sýnarferðum, t.d. ferð til
Korsíku, um grísku eyjarnar
og leikhúsferð til Las Vegas,
New York, Hollywood.
Klúbbur-25 efnir n.k.
sunnudagskvöld til skemmt-
unar og kynningar á væntan-
legu starfi á Hótel Sögu.
Verður þar fram reiddur
veizluréttur, tízkusýningar,
skemmtiatriði mörg og fjöl-
breytt, bingó og hljómsveit og
diskótek.
Klúbbur 25 hefur skrif-
stofuaðstöðu í húsnæði Út-
sýnar og eru þar gefnar allar
upplýsingar. Félagar geta
einnig skráð sig í hann á
skemmtuninni á Sögu á
Sunnudagskvöldið.
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMOTA
Aðalstræti 6 sími 25810
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum
frá klukkan 14.00 til 16.00. Er þar tekið á móti hvers kyns
fyrirspurnum og ábendíngum og er öllum borgarbúum
boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa.
^ Laugardaginn 29. marz verður Ragnar Júlíusson til
h viðtals. Ragnar er í stjórn Borgarbókasafns, Fræösluráði,
Útgerðarráði, og Veiði- og fiskirætkarráði.
Xmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Cybernet
Frábært hljómtæki
á hagstæöu veröi
•.rtourro s'fwo w»«o
(
CRD 15 Hljómstúdío. 5 einingar í einni. Samanstend-
ur af formagnara — aðalmagnara — Hljóöblöndun-
arborði — útvarpi FM-MW-LW og segulbandi (Metal)
Electronisk takkastýring, 2x46 W DIN. 0.09% THD.
Aöskilnaður aöalmagnara og formagnara gefur
möguleika á aö nota 200W kraft magnara við þetta
tæki. Verö kr. 451.440.-
Benco,
Bolholti 4, símar 21945 — 84077.
Nýju ANDREWSæ gas- lofthitararnir
hafa leyst gömlu olíubrennarana
af hólmi!
AKDRfWS [J
Andrews G-250 lofthitarar eru ætlaðir til fljótlegrar upphitunar á
skipalestum, vinnustöðum; iðnaðarhúsnæði, byggingarstöðum,
vörugeymslum, íþróttahúsum og hvers konar stærri mannvirkjum.
Andrews G-250 lofthitarar eru mjög liprir viðfangs. Þeir mega
snúa hvernig sem vill, - upp, niður, til hliðar, hangandi eða stand-
andi. Andrews G-250 brennir Propane gasi og er því algjörlega
laus við þungt loft og mengun, sem yfirleitt fylgir annars konar
lofthiturum. Andrews G-250 lofthitarinn vegur aðeins 44 kg, en
hefur möguleika til hitunar á 64.500 cu. feta svæði, (1832 m3).
Andrews G-250 lofthitarar þurfa ekki neinn upphitunartíma. Þeir
eyða aðeins gasi þegar þeir eru raunverulega að hita upp. Auk
hitunar má nýta Andrews G-250 til loftræstingar á einfaldan hátt.
Skeljungsbúðin
Suðurtandsbraut 4
sini 38125
ÚRVALS HEIMILISTÆKI
FRAlMi
Frá KPS, Noregi bjóðum við úrvals heimilislæki á hagstæðu
verði:
Eldavélar 3ja og 4ra hellna, kæliskápa, frystiskápa, frysti og
kæliskápa, uppþvottavélar, frystikistur og gufugleypa.
Litir:
Svartur, hvítur, karrygulur, avocdogrænn og Inkarauður.
Komið og skoðið þessi glæsilegu tæki eöa skrifiö eftir
myndalista.
SENDUfl GEGN POSTKROFU
EF
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI 16995