Morgunblaðið - 27.03.1980, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1980
35
Sigurður Herlufsen:
Opið bréf til landlæknis
vegna fluorherferðar
Það sem fyrst og fremst knýr
mig til að ávarpa landlækni sér-
staklega, er sú viðleitni hans að
gera lítið úr okkur fluorandstæð-
ingum. Hann segir okkur vera
lítinn hóp ofsatrúarmanna og
í fangelsið
í fallhlíf
Sydney, 25. marz. AP.
KUNNÁTTA í fallhlífarstökki
kom fanga einum i Bathurst-
fangelsinu til góða í gær, er hann
þurfti að skila sér í fangelsið,
sem er í um 150 km fjarlægð frá
Sydney. Þegar hann sá fram á að
hann yrði of seinn að skila sér úr
helgarleyfinu, leigði hann sér
flugvél og fallhlíf, stökk út yfir
fangelsinu og sveif niður í fang-
elsisgarðinn við mikinn fögnuð
vistmanna.
Vinkona hans stökk einnig út í
fallhlíf, því hún var ábyrg fyrir
leyfi fangans og skyldug til að
skila honum í fangelsið. Lentu þau
í fangelsisgarðinum rétt áður en
leyfið rann út, en hefðu orðið of
sein með því að aka til fangelsis-
„náttúruverndarmanna" sem reki
magnaðan villuáróður.
Þessum staðhæfingum leyfi ég
mér að mótmæla harðlega. Þær
upplýsingar og rannsóknir sem
fluorandstæðingar byggja mál sitt
á, eru komnar frá hálærðum
háskólaborgurum og vísinda-
mönnum í hinum margvíslegustu
greinum.
Fjöldi bóka, um hættur fluor-
inngjafa, hafa verið ritaðar af
læknum og prófessorum. Ég leyfi
mér að nefna aðeins örfáar, til
staðfestu máli mínu:
1. Fluoridation and truth decay,
eftir Gladys Caldwell og Philip
E. Zanfagna M.D.
2. Scientists and Fluoridation
ásamt Dental and Medical As-
pects of Fluoridated Drinking
water, báðar eftir Prófessor í
efnafræði, Albert W. Burg-
stahler Ph.D., við háskólann í
Kansas.
3. Are We Safe? eftir John Polya
lögfræðing.
4. Increased Deate Rates in Chile
Associated with Artificial
Fluoridation of drinking Wat-
er, with. Implieations for Other
Countries, eftir Albert Schatz
Ph.D.
5. Fluoridation: The Great Dil-
emma eftir Dr. George L.
Waldbott ofnæmissérfræðing,
ásamt tveim prófessorum í
éfnafræði, Albert W. Burg-
stahler, og H. Lewis McKinney.
í framhaldi af þessari upptaln-
ingu, sem auðvitað er aðeins
brotabrot af því sem út hefur
verið gefið gegn fluorinngjöfúm,
vil ég nefna blað sem gefið er út í
Bandaríkjunum, og heitir Nation-
al Fluoridation News. Því ritstýra
3 ráðgefandi læknar, 4 ráðgefandi
tannlæknar, 3 ráðgefandi lögfræð-
ingar og að auki margir prófessor-
ar og vísindamenn í öðrum raun-
greinum.
Hættuleysi fluorblöndunar
drykkjarvatns er ekki visindalega
sannað, og enn er í fullu gildi
$100.000 verðlaun (um 40.000.000
ísl. kr.) til hvers manns sem getur
sannað slíkt. Þetta tilboð var
upphaflega gefið af Dr. Robert
J.H. Mick, sem þó hafði verið
trúaður á fluor, frá 1944 til 1948,
er hann snérist gegn honum, eftir
eigin rannsóknir. Undir þetta til-
boð Dr. Micks rita í dag 45
vísindamenn frá mörgum löndum.
Fluortöflur eru heldur ekki
hættulausar, reyndar svo vara-
samar, að árið 1976 dó barn í
Austurríki, eftir að hafa gleypt of
margar fluortöflur (Fluoridation
News des. 1977). Hlédrægni ís-
lenzkra lækna, þeirra sem hafa
athugasemdir gagnvart fluor-
inngjöfum, virðist mega rekja til
hinna sterku tengsla sem skapast
meðal fagfélaga í fámennu landi.
Þær upplýsingar sem við fluor-
andstæðingar höfum komið á
framfæri, eru allar með tölu frá
læknum og vísindamönnum, þar
sem vandamálið hefur komist í
brennidepil umræðu og athugana.
Það er komin tími til að íslenzkir
læknar, og reyndar allir ráðandi
menn á Islandi, fari að kynna sér
af alvöru, þau rök fluorandstæð-
inga sem fyrir hendi eru. Geri þeir
það, mun okkar rómaða íslenzka
bergvatn aldrei verða fluorbland-
að.
arcodan lof tnetskerf i ■
arcodan loftnetskerfi ■
llt efni til loftnetsuppsetninga
AUGLYSINGASTOFA
MYNDAMÓTA
Adalstræti 6 simi 25810
hvort sem er fyrir:
— Einbýlishús — Raöhús — Stór sambýlishús —
— Kaplakerfi fyrir heil íbúðahverfi eða bæí.
Loftnet TV—FM—AM Loftnetsfestingar Kaplar Filter
Deilibox— Magnarar— Tengidósir— Loftnetsplöggar.
Getum innan skamms útvegað íslenska útgáfu af vöru og verðlistum yfir
efnisúrval okkar. — Hringið eða heimsaakið okkur til nánari upplýsinga.
Aðstoðum við val efnis fyrir hvert einstakt kerfi — Kerfisuppbygging, sem
byggð er á áratuga reynslu loftnetssérfræðinga Arcodan.
Danska fyrirtækið Arcodan er stærsti aðili Norðurlanda í framleiðslu og
uppsetningum á loftnetskerfum. Þeir hafa meðal annars leyst baö verkefni aö
tengja 25.000 notendur við sama loftnetið og þá að sjálfsögðu með möguleika
á að tengjast sameiginlegu myndsegulbandi og FM-músik-útsendingum.
Dönsk lög um loftnetskerfi eru þau ströngustu í heiminum í dag, og að
sjálfsögðu fullnægir Arcodan þeim gæðakröfum í einu og öllu.
Kjörorö okkar er „Gæöin fyrir öllu“.
heimilistæki hf
S/ETÚNI8.SÍMI 24000.
The GLOBE STUDY CENTRE
For ENGLISH
EXETER á suðurströnd Englands
Gefðu enskunni
færi á að festast
Nýttu sumariö til
enskunáms í Englandi
4ra—8 vikna námskeið fyrir ungmenni 14—21 árs.
Brottfarardagar 5. júlí og 2. ágúst.
★ 14 klst. kennsluvika.
★ Dvöl á enskum heimilum.
★ (Fullt fæöi og húsnæði).
★ Skemmti- og kynnisferðir.
★ íslenskur fararstjóri.
Allar nánari uppl. um tilhögun og verö veitir Böðvar
Friðriksson, í síma 30170, milli kl. 18 og 21.
Verksmiðjusala
Buxur á alla aldurshópa
Herrabuxur úr flaueli, kakí og denim.
Dömubuxur úr flaueli, flannel og kakí.
Unglingabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Barnabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Sumarjakkar á börn og karlmenn.
Gerið góö kaup í úrvalsvöru.
Opið virka daga kl. 10—18. Föstudaga kl. 10—19.
Laugardaga kl. 9—12.
Skipholti 7.
Sími 28720.
Garðar Ólafsson
Ursmiður Lækjartorgi
H#fur þú «óó nýju Quartx úrfn?
Eitt m««ta úrval l«nd«ins.