Morgunblaðið - 03.04.1980, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.04.1980, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980 90 Brezkur hermaður heldur á lýðveldisfána sem var tekinn af uppreisnarmönnum. Brezki landstjórinn, Wimborne lávarður, kannar lið sitt. Dublin, 1916 Maxweil hershöfðingri, yfirmaður brezka herliðsins, sem eyðilagði írskir fangar færðir í fangelsi. fyrir málstað Breta. raun væri gerð til að hlífa þeim. Brezkur liðsauki sótti til höfuð- borgarinnar frá Kingstown og varð fyrir miklu manntjóni þegar menn de Valera veittu honum fyrirsát. Þau tíðindi spurðust, að Bretar hefðu líflátið Sheehy Skeffington, vinsælan málsvara lítilmagnans. Hann hafði orðið vitni að því, að Bowen Colthurst höfuðsmaður myrti ungan mann með köldu blóði og hótað að kæra hann. Höfuðsmaðurinn leiddi hann fyrir aftökusveit og lét skjóta þrjá menn aðra „á flótta." Liðsaukanum frá Englandi var att fram, en mennirnir voru lítt þjálfaðir og gerðu lítinn grein- armun á óbreyttum borgurum og uppreisnarmönnum sem voru óeinkennisklæddir. Nýr yfirmaður kom frá Englandi, Sir John Max- well hershöfðingi, sem var nýkom- inn frá Egyptalandi og þekkti lítið til írlands. Hann sagði í yfiriýs- ingu: Ef nauðsynlegt reynist, mun ég ekki hika við að eyða öllum byggingum á öllum svæðum sem eru á valdi uppreisnarmanna." Hann hafði fengið fyrirmæli frá Asquith forsætísráðherra um að bæla niður uppreisnina sem fyrst, en hann tók ekki tillit til pól- itytra afleiðinga og átti mikinn þárt í að grafa undan stjórn Breta. Alian fimmtudag og föstudag sóttu Bretar stöðugt. Arásir voru gerðar á Boiand’s-mylluna og mennirnir í fátækrahverfinu voru neyddir til að hörfa. Stórskota- liðsárás var gerð á pósthúsið, eldur læsti sig um efstu hæðina og konur voru fluttar úr bygging- unni. Connolly særðist tvisvar og leyndi því félögum sínum, en þeir voru að niðuriotum komnir. Skot- færi uppreisnarmanna voru á þrotum, lið þeirra hafði riðlazt vegna alvarlegs mannfalls, mið- borg Dublin var í rústum, stór- skotalið hafði víða valdið eldsvoða og matur og jafnvel vatn var af skornum skammti. Flótti Síðdegis á föstudag flúðu Conn- olly, Pearse og félagar þeirra úr pósthúsinu, sem nú var næstum því alelda og var að falli komið. Connolly, sem hafði fengið mor- fínssprautur en haldið áfram að stjórna iiði sínu, var borinn út í sjúkrabörum. The O’Rahilly sleppti 13 brezkum gíslum úr haldi og féli fyrir vélbyssuskothríð þeg- ar hann stjórnaði flóttanum úr brennandi byggingunni. Tom Clarke krafðist þess að fara síðastur úr byggingunni. Bretar héldu áfram að skjóta á auða bygginguna. Bardagar héldu áfram umhverf- is Four Courts, gelt í vélbyssum og skothríð frá leyniskyttum heyrð- ist um alla borgina og O’Connell Street stóð í björtu báli. Lokaorr- usta var háð um King’s Street nálægt Four Courts, en það tók um 5.000 brezka hermenn búna brynvörðum vögnum og stórskota- liði 28 tíma að sækja rúmlega 150 metra vegalengd gegn um 200 uppreisnarmönnum. í þessum átökum drápu brezkir hermenn óbreytta borgara, sem földust í kjöllurum, með byssustingjum og skotvopnum. Meðan þessu fór fram komu leiðtogar uppreisnarmanna sér fyrir í nýjum aðalstöðvum í ný- lenduvöruverzlun í Moore Street, þar sem þeir voru algerlega ein- angraðir. Þar var haidinn fundur umhverfis rúm Connollys á laug- ardagsmorgun. Aðeins Tom Clarke viidi halda áfram bardög- um, en var ofurliði borinn. Klukk- an 2.30 gafst Patrick Pearse skil- yrðislaust upp fyrir W.H.M. Lowe hershöfðingja í Parnell Street og sendi uppgjafarfyrirmæli til ann- arra stöðva uppreisnarmanna í borginni. Um kl. 9 um kvöldið var uppreisninni lokið, þótt leyni- skyttur létu enn að sér kveða á húsaþökum þar sem þær höfðu ekki heyrt um uppgjöfina. Bretar höfðu misst 130 menn fallna, en uppreisnarmenn 56. AIls féilu og særðust um 3.000, þar af margir óbreyttir borgarar. Stór hluti Dublin var í rústum og eignatjón mikið. Háðsyrði Háðsyrði dundu á uppreisnar- mönnum þegar þeir voru færðir í fangelsi og þeir fengu ekki samúð fyrr en aftökur hófust. Bretar áttu í baráttu upp á líf og dauða við Þjóðverja og voru ákveðnir í að sýna enga miskunn. Ekki leið á löngu þar til 3.500 höfðu verið handteknir, margfalt fleiri en tóku þátt í uppreisninni. Sumir voru látnir lausir án þess að vera ákærðir og margir voru fluttir tii Engiands. De Valera, Markiewicz greifafrú, próf. MacNeill og fleiri voru dæmdir í ævilangt fangeisi (de Valera var bandarískur þegn og slapp við dauðadóm). Aftökurnar hófust 3. maí þegar Tom Clarke, Patrick Pearse og Thomas MacDonagh voru skotnir. Joseph Plunkett, sem var ör- kumla, William Daly, Wiiliam Pearse, 18 ára bróðir Patricks, og Michael O’Harrahan voru líflátnir daginn eftir. John MacBride maj- ór var tekinn af lífi 5. maí og röðin kom að Eamon Kent, Michael Mallin, Cornelius Colbert og Sean Heuston 8. maí. Thomas Kent var líflátinn 9. maí og loks kom röðin að Sean MacDermott og James Connolly, hinum særða, 12. maí. Connolly var borinn á aftöku- staðinn á sjúkrabörum og settur í stól fyrír framan aftökusveit, þar sem hann gat ekki staðið. Meðaumkun, aðdáun og jafnvel þakklæti kom í stað háðsins áður og seinna fylgdi reiði í kjölfarið. Páskauppreisnin hafði að vísu farið út um þúfur, en djúpt og óbrúanlegt bil myndaðist milli þjóðarinnar og stjórnarinnar. George Bernard Shaw sagði í „Daily News„: „Mín skoðun er sú, að mennirnir, sem voru skotnir með köldu blóði, hafi verið stríðsfangar eftir handtöku þeirra eða uppgjöf." Kaþólski biskupinn í Limerick fordæmdi dauðadómana og í Neðri málstofunni var hrópað „Morð“. „Manchester Guardian" sagði, að aftökurnar væru „að verða níðingsverk" og hjálparsjóð- ur var stofnaður í Bandaríkjun- um, þar sem mikil reiði greip um sig. Mótmæli bárust einnig frá samveldislöndunum óg írskir her- menn í skotgröfunum höfðu í hótunum um uppreisn. Þjóðin sameinuð Reiðin dvínaði ekki þótt Asq- uith forsætisráðherra reyndi að verja aðgerðirnar og færi í heim- sókn tii írlands og hún dvínaði heidur ekki þegar hann gerði sér grein fyrir því að mistök hefðu átt sér stað og rak Maxwell. Svo alvarleg voru mistökin, að þau kostuðu Breta yfirráðin yfir írlandi. írar höfðu litið á upp- reísnina sem táknræn mótmæli ungra skálda og menntamanna og uppreisnin hefði farið út um þúfur ef Bretár hefðu látið við það sítja að umkringja uppreisnarmennina. Ef Bretar hefðu aðeins handtekið uppreisnarmennina hefðu þeir enga samúð fengið, en aftökurnar æstu íra gegn stjórninni. Þegar Bretar komust að því að þeir væru að sameina þjóðina gegn sér slepptu þeir mörgum úr fangelsi og þeir hófust strax handa um að skipuleggja nýjan lýðveldisher, sem að þessu sinni naut stuðnings þjóðarinnar. Kosn- ingar fóru fram 1918 og Sinn Fein varð sigurvegari. Baráttan harðn- aði og vorið 1919 hófst uppreisn, sem lauk með friðarsamningi 1921, en í apríl 1922 hófst borgara- styrjöld, sem lauk með sigri lýð- veldissinna í apríl 1923. írar fengu að ráða málum sínum sjálfir. Páskauppreisnin, sem á sínum tíma virtist sjálfsmorð og naut lítillar hyili, náði tilgangi sínum að lokum, þótt fáa óraði fyrir því að draumurinn um sjálfstæði gæti rætzt á svo skömmum tíma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.