Morgunblaðið - 03.04.1980, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 03.04.1980, Qupperneq 15
94 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980 íkingar hafa þeir norrænu menn veriö nefndir, sem á ofanveröri áttundu öld tóku aö herja í austur og vestur, námu lönd á endimörk- um hins byggilega heims og voru boöberar nýrrar menningar. Þeir myrtu, rændu og skildu eftir sig sviöna jörö, en þeim veröur ekki lýst aö gagni meö því aö tína aöeins til glæpi þeirra og hryðju- verk. Hernaður hefur ævinlega kallaö fram þaö versta og lágkúru- legasta í mannlegu eöli. Til að gera sér skynsamlega hugmynd um víkingana þarf einnig aö skoöa hvernig þeir reyndust í friöi. Upphafi víkingaaldar hefur veriö líkt viö vorleysingar, — þau átök, sem veröa þegar náttúran rífur sig úr fjötrum íss og myrkurs og allt verður nýtt. Víkingaöldin var tímabil, sem ekki á sinn líka í sögu norrænna manna. Aldrei síðan hafa þeir boriö slíkan ægishjálm yfir aörar þjóöir. Saga víkinganna er saga manna, sem vildu út, — manna sem létu stjórnast af frum- hvötum, er á öllum tímum hafa leitt til framfara og ávinnings, — árás- argirni, ævintýraþrá og óeirö. Víkingaöldin var byltingartíö. Stórfengleg öfl leystust úr læðingi. Myrkuraldir voru aö baki. Nýr sjóndeildarhringur opnaöist. Ný menning hélt innreiö sína. Ný lönd bættust viö þá veröld, sem fyrir var. Víkingarnir voru börn síns tíma. Miklar sögur hafa farið af grimmd þeirra og níðingsskap, en slík framganga er ekkert einsdæmi, hvorki á víkingaöld né endranær. Veldi þeirra stóö í nærfellt þrjú hundruö ár, frá því á ofanverðri áttundu öld fram á miöja elleftu, og undirstaöa þessa stórveldis veröur aö teljast yfirburöahæfni víkinganna til sæfara. Um þessa menn eru til margvíslegar heimild- ir. Samtíöarheimildir eru norrænar rúnaristur og dróttkvæði svo og frásagnir manna, sem áttu um sárt aö binda eftir heimsóknir þeirra. Þá eru hetjusögur, einkum íslenzk rit frá þrettándu og fjórtándu öld, skrifaöar löngu eftir aö þessir atburðir áttu sér staö, af mönnum, sem sáu afrek þeirra í rómantísk- úm bjarma. Loks er að geta minja, sem fundizt hafa í heimkynnum víkinganna á Noröurlöndum og á slóöum þeirra víðsvegar. Helzta vopn víkinganna var skipiö, sá farkostur sem geröi þeim fært aö komast lengra en nokkrir Evrópumenn höföu áöur gert. Þeir fundu Ameríku, byggöu eyjar í Noröur-Atlantshafi þar sem engir aörir en einsetumenn höföu áöur komið, þeir opnuöu nýjar samgönguleiöir í austur, stofnuöu ríki í Kænugaröi og Hólmgaröi, komust til vegs og viröingar í Miklagaröi, þar sem þeir gengu á mála hjá keisaranum, lögöu undir sig mestallt England, Niðurlönd og Noröur-Frakkland og létu mjög að sér kveöa í löndunum við Miöjarö- arhaf. Lindisfarne Upphaf vikingaaldar hefur ort veriö rakiö til atburöar, sem átti sér staö hinn 8. júní 793 á eynni Lindisfarne fyrir strönd Norö- imbralands. Lindisfarne merkir „Helgey", en þar var á þessum tíma mikiö klaustur. Skráöar sam- tímaheimildir um árás víkinganna á Lindisfarne herma aö aldrei hafi þekkzt önnur eins grimmd. Víking- arnir gengu berserksgang, brytj- uöu miskunnarlaust niöur fjölda munka, — þá, sem þeir tóku ekki meö sér sem þræla — hirtu allt fémætt og jöfnuöu viö jöröu kirkj- una miklu á eynni. Hörmungasag- an vakti mikinn ugg meöal krist- inna manna, sem töldu þetta vera trúarofsóknir. Tveimur árum síöar var enn vegiö í sama knérunn. Víkingarnir komu enn til Lindis- farne og töldu þetta vera trúarof- sóknir. Tveimur árum síöar var enn v V ikingaþorpið i Heiöabæ á Suður-Jótlandi er einhver merkasta heimildin um lifnaöar- hætti víkinganna, en þar hafa hús verið úr timbri og leir. Lækur viröist hafa runniö um mitt þorpiö og stígar milli húsanna hafa veriö lagöir timburboröum. Svo heilleg- ar voru þær minjar, sem grafnar voru úr jöröu í Heiðabæ, aö unnt var aö reisa nákvæma eftirh'kingu af einu húsanna. Húsiö er tæpra fimm metra breitt og um tólf metrar aö lengd. Því er skipt í nokkrar vistarverur, en í einni þeirra er gríöarstór leirofn, sem bendir til þess aö húsráöandi hafi haft af því atvinnu aö baka brauö. Langeldur er í stærsta herbergi hússins, en þaö hefur verið í senn svefnskáli, eldhús og vinnustofa. Meöfram veggjum eru pallar, sem hafa verið svefnstæði um nætur, en á daginn hefur ýmiss konar sýslan fariö þar fram. Þar stendur vefstóll einn mikill. Pottur hefur hangiö yfir langeldinum, sem bæði hefur vermt og lýst, en þessi híbýli eru gluggalaus. Mörg hús í Heiöa- bæ hafa veriö miklu stærri í sniöum, og hafa þau þá fremur veriö í líkingu viö bæinn aö Stöng í Þjórsárdal, sem enginn kotbragur hefur veriö á. Húsgögn víkinganna voru fá og fábrotin. Svefnstæöi þeirra hafa víöast verið upphækk- aöir, fastir pallar meöfram veggj- um. Borö og hillur hafa fundizt frá jjessum tíma, en engir skápar. Fatnaö og stáss hafa víkingarnir varöveitt í kistum, en tóvinna og vefnaður hafa verið á hverju heim- ili. Mest var unnið úr ull, — hör kynntust víkingarnir ekki fyrr en þeir fóru aö leggja leiö sína til Englands og írlands, en hördúkur var þá haföur í sjaldhafnarflíkur. Segl víkinganna voru úr ull, sömu- leiðis tjöld og mestallur fatnaöur. Af vefnaði frá víkingaöld hefur margt varöveitzt og er vitaö mál aö slík vinnubrögö hafa veriö víkinga- konum töm. Skrautvefnaöur hefur tíökazt talsvert, og hafa skrautofin og litrík bönd og bryddingar veriö mikið notuö, auk þess sem út- saumur hefur veriö í hávegum hafður. Sér til viöurværis hafa víking- arnir haft fjölbreytta fæöu. Eina sætmetiö, sem þeir þekktu var hunang, en þaö var nauðsynlegt er geröur var mjöður. Miklar sögur hafa fariö af drykkjulátum víkinganna, en helzti drykkur þeirra var mjööurinn, sem talinn er hafa veriö hóflega áfengur, þannig aö vart hafa þeir oröiö ölóöir af því aö kneifa. Sterkasti drykkurinn, sem þeir þekktu, var vín, sem gert var úr berjum og ávöxtum, en ætla má aö þaö hafi ekki veriö á borðum annarra en efnamanna. Uppistaðan í fæöu víkinganna var kjöt og fiskur, sem þeir kunnu aö geyma meö margvíslegu móti. Algengast var aö þurrka slíkan mat, en miklu varöaöi aö hann geymdist óskemmdur yfir haröan og langan vetur. Vitaö er aö á víkingaöld átu norrænir menn hrátt kjör og hráan fisk, en þeir hafa einnig gert mikiö af því aö glóðarsteikja mat. Korn og hafra notuöu þeir til grautargeröar og í bakstur, en vandkvæöi voru á aö geyma slíkt hráefni, einkum þaö sem menn tóku meö sér í sjóferöir. Til aö koma í veg fyrir aö korniö myglaöi í slíkum feröum var þaö þurrkaö viö glóö. Mjólkurmatur var mikilvægur í fæöunni, en úr mjólk hafa menn kunnað að búa til fjölbreyttan mat. Víkingar voru skartmenn miklir og bæöi karlar og konur bárust á í klæöaburöi eftir því sem efni leyföu. Djásn kvenna voru til marks um auðlegð þeirra, en meö því aö telja hringa þeirra og brjóstnálar mátti áætla nokkuö nákvæmlega efnahag fjölskyld- unnar. Þessir skartgripir voru margir úr gulli og silfri, þ.e.a.s. þeir sem voru í eigu efnafólks. Skart- gripir þeirra, sem minna áttu af jarðneskum verömætum, voru yfir- leitt úr bronzi, en bronzgripir voru Á víkingaöld höföu menn ekki síður þörf fyrir dægrastyttingu en nú á tímum, og vitaö er aö á þessum tíma voru til margs konar töfl og leik- ir, sem kröföust heila- brota. Myndin til hægri sýnir leikborö frá víkingaöld, og í horninu efst til vinstri er íslenzkur taflkóngur, skorinn úr hvalbeini. þó yfirleitt gylltir eöa tinhúöaöir. Helztu heimildir um búnaö manna á víkingaöld eru úr gröfum þeirra á Noröurlöndum, því aö þar sem þeir settust aö í öðrum löndum tóku þeir fljótlega upp búnaö heimamanna, til aö skera sig síöur úr og vekja andúö. Sundurgerð- armenn í klæöaburöi hafa víking- arnir ekki verið, og þaðan af síöur konur þeirra. Föt þeirra eru mjög einföld í sniöum og hafa verið mjög þjál og þægileg. Hnappar og krókar þekktust ekki, en flíkurnar voru teknar saman meö böndum eöa nælum. Konur víkinga klæddust venju- lega dragsíðum undirkjólum úr þunnu efni og höföu yfir nokkurs

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.