Morgunblaðið - 17.04.1980, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR47. APRÍL 1980 15
Nefndarálit sjálfstæðismanna um skattamál — síðari hluti:
Ríkisstjórnin heldur öllum vinstri
stjórnar sköttum og bætir nýjum
álögum við næstum daglega
HÉR fer á eftir síðari hluti
ncfndarálits þess, sem fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins i fjárhags-
og viðskiptanefnd efri deildar
lögðu fram í fyrradag um skatta-
mál. Fyrri hluti þess birtist í
Morgunblaðinu í gær:
Skattahækkanir nú-
verandi ríkisstjórnar
Mörgum þótti nóg um gífur-
legar skattahækkanir vinstri
stjórnarinnar þá þrettán mánuði
sem hún sat að völdum frá hausti
1978. í kosningabaráttunni í vetur
var það eitt af grundvallarstefnu-
miðum Sjálfstæðisflokksins að af-
nema alla vinstristjórnarskattana
og leggja tekjuskattinn niður sem
almennan launaskatt.
Núverandi ríkisstjórn hefur far-
ið alveg öfuga leið. Hún viðheldur
öllum vinstristjórnarsköttunum
og bætir álögum á þjóðina næst-
um daglega. Hún ber ábyrgð á að
söluskatts- og vörugjaldshækkun-
in, sem ákveðin var í fyrrahaust,
leggur á þessu ári 15 milljörðum
króna meiri skattaálögur á al-
menning en í fyrra. Hún heimilar
sveitarfélögum að leggja á að
giska 4—5 milljarða aukaútsvar á
skattborgarana. Hún bætir 2—3
milljörðum við tekjuskatta ein-
staklinga ofan á hækkun vinstri
stjórnarinnar og leggur á nýtt
„orkujöfnunargjald" sem eykur
skattbyrðina um 6 milljarða.
Aukaskattreikningur hennar eftir
rúmlega tveggja mánaða setu lítur
því þannig út:
Millj. kr.
1. Hækkun á vörugjaldi og
söluskatti ................... 15 000
2. Hækkun útsvara ............. 4 500
3. Hækkun tekjuskatta ......... 2 500
4. „Orkujöfnunargjald ......... 6 000
Samtals 28 000
Við þetta mætti bæta áfram-
haldandi okurskattlagningu á
bensín, hækkun flugvallagjalds
o.fl., o.fl.
Núverandi ríkisstjórn ber því
ábyrgð á meira en helmingi þeirr-
ar auknu skattbyrði sem lagst
hefur á skattborgarana frá haust-
inu 1978. Á tveimur mánuðum
hefur hún slegið skattamet vinstri
stjórnar sem var 13 mánuði við
völd.
Skattastefna
Sjálfstæðisflokksins
Við fulltrúar þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins í fjárhags- og
viðskiptanefnd Ed. erum þessari
skattastefnu algerlega andvígir.
Fyrr í vetur fluttum við brtt. um
skattstiga ásamt fulltrúa Alþýðu-
flokksins í nefndinni. Þær tillögur
fólu í sér rúmlega 7 milljarða
króna skattalækkun og voru
áfangi á þeirri leið að afnema
tekjuskatt af almennum launa-
tekjum. Þeirri stefnu hefur verið
haldið fram af sjálfstæðis-
mönnum í áratugi og hefur hún nú
hlotið víða hljómgrunn, m.a. í
Alþýðuflokknum. Þessar tillögur
voru felldar í Ed. Við fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins í nefndinni
flytjum hér enn breytingartillögur
við þetta frumvarp, sem fela í sér
eftirfarandi meginstefnu:
1) Að álagning tekju- og eignar-
skatta sé sú sama eða sem
hliðstæðust og var 1978 eftir
þeim lögum sem sjálfstæðis-
menn báru þá ábyrgð á.
2) Að afturvirk aukning tekju- og
eignarskatta einstaklinga og
félaga, sem vinstri stjórnin
lagði á, sé afnumin, en þessir
skattar hafa verið lagðir á í
einu eða öðru formi síðan
haustið 1978 og felast í till. 1.
minni hl. fjárhags- og við-
skiptanefndar.
.KbnBl^u^ ansBmaboBÍ
3) Að tekjuskattar til ríkisins
lækki sem svarar hækkun á
útsvörum sem heimiluð var nú
fyrir skömmu.
Við undirritaðir fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í fjárhags- og
viðskiptanefnd teljum að allir
þingmenn, sem kosnir voru á
Alþingi af listum sjálfstæð-
ismanna, hafi skuldbundið sig til
að fylgja slíkri meginstefnu í
álagningu tekju- og eignarskatta,
enda lítum við svo á að hér sé um
lágmarksskref að ræða í þá átt að
afnema tekjuskatt á almennar
launatekjur.
Nánari grein fyrir breyt-
ingartillögum sjálf-
stæðismanna á þskj. 315
Lagt er til að tekjuskattsstigar
einstaklinga verði þannig:
25% af fyrstu 4 000 000 kr.
35% af næstu 4 000 000 kr.
45% af hærri tekjum en 8 000 000
kr.
Barnabætur verði sem hér segir:
Með fyrsta barni 150 000 kr.
Með hverju barni umfram eitt
215 000 kr. Fyrir börn yngri en 7
ára verði barnabæturnar 65 000
kr. hærri. Barnabætur með börn-
um einstæðra foreldra er lagt til
að verði 280 000 kr. með hverju
barni. Persónuafsláttur verði
525 000 kr. á einstakling.
Þetta þýðir. 7.2 milljörðum kr.
lægri tekjuskatta einstaklinga
heldur en breytingartillaga 1.
minni hl. fjárhags- og viðskipta-
nefndar gerir ráð fyrir. Hækkun
fyrsta skattþrepsins léttir 5 000
millj. kr. tekjuskattsbyrði af
gjaldendum umfram tillögur 1.
minni hl. nefndarinnar og síðasta
skattþrepið 2 200 millj. kr.
Skattalækkun einstaklinga yrði
skv. þessum tillögum 12% og
hjóna 17%, en meðaltalslækkunin
yrði 16,4%.
Eftir að heimild var samþ. um
10% álag á útsvar eru tekjur, sem
skattlagðar eru í efsta skattþrepi,
skv. till. 1. minni hl. fjárhags- og
viðskiptanefndar, þ.e.a.s. 50%,
skattlagðar þannig að af hverjum
100 kr. fara 64.80 til ríkis og
sveitarfélaga.
Þessi háa skattprósenta sund-
urliðast þannig:
Tekjuskattur með álagi
til byggingarsjóðs ...........50.-5%
Útsvar ........................12.1%
Kirkjugarðsgjald .............. 0.2%
Sj úkratryggingagj............. 2.0%
64.8%
Með slíkri skattlagningu er
stórlega verið að draga úr fram-
taki almennings, og það getur
varla verið hugmynd þeirra sem
ráða skattstefnunni. Skárra er að
afla fjár í ríkissjóð með neyslu-
sköttum, að svo miklu leyti sem
þörf er á, heldur en tekjusköttum
sem keyra svo úr hófi. Því er lagt
til í till. okkar að efsta skattþrepið
verði ekki hærra en 45%, þótt
æskilegt sé að jafnarskattur sam-
tals fari ekki yfir 50% af tekjum.
Um eignarskatta er gerð sú
tillaga, að þeir verði eins og 1978
að því er varðar einstaklinga. Sem
fyrsti áfangi í lagfæringu eignar-
skatts félaga er lagt til að hann
verði frádráttarbær fcá tekju-
skatti. Vegna breytinga á árs-
uppgjöri félaga má búast við
verulegri hækkun eignarskatta
þeirra, og hlýtur að koma til
athugunar að breyta þessari
skattheimtu, þar sem hún mun
nánast óþekkt annars staðar «n
hér á landi og er því til þess fallin
að draga úr samkeppnishæfni
íslenskra atvinnuvega (sjá bréf
frá Verslunarráði íslands, þskj. 3);
Þær breytingar, sem hér eru
lagðar til um lækkun tekjuskatta
félaga og eignarskatta einstakl-
inga, má áætla að dragi úr tekjum
ríkissjóðs um 2 500 millj. kr.
Heildartekjutap ríkissjóðs vegna
þessara breytingartillagna er því
um 9 700 millj. kr.
Þegar haft er í huga, að meiri
tekjuhækkun almennings milli
ára gæti fært ríkissjóði 2—3
milljarða upp í þessa lækkun, ætti
að vera unnt að finna leiðir til
þess að skera niður útgjöld um
6—7 milljarða króna til þess að
þoka skattheimtunni í framan-
greinda réttlætisátt. Við undirrit-
aðir erum reiðubúnir til samstarfs
um slíkan niðurskurð, enda teljum
við útilokað að leysa fjárhags-
vanda ríkissjóðs með skattahækk-
un ofan á skattahækkun oft á ári,
eins og gerst hefur undanfarin ár.
Aukasending ★ Aukasending
Vegna gífurlegrar eftirspurnar höfum við fengið 75
bíla aukasendingu af hinum glæsilega og vandaða
Polonez til afgreiðslu í næsta mánuði.
PDLDNEZ
Ekkert venjulega
glæsilegur vagn
á ótrúlega
hagstæöu verði.
☆ 5 dyra ☆ 4 gíra alsamhæfur ☆
Fallega taubólstruð sæti ☆ Teppa-
lagður ☆ Rafmagnsrúðusprautur og
þurrkur framan og aftan ☆ Snúnings-
hraðamælir ☆ Klukka ☆ Olíuþrýsti-,
þensín- og vatnshitamælar ☆ Aövör-
unarljós fyrir handbremsur og innsog
o.fl. ☆ Diskabremsur á öllum hjólum ☆
Tvöfalt bremsukerfi ☆ Bremsujafnari
☆ 1500 cc vél 83 ha sa ☆ Rafmagns-
kælivifta ☆ Yfirfalkskútur ☆ Tveggja
hraða miðstöð og gott loftræstikerfi ☆
Halogen-þokuljós ☆ Bakljós ☆ Höfuð-
púöar ☆ Rúllu-öryggisbelti ☆
Viö viljum minna
öryrkjaleyfishafa á
aö hafa samband
viö okkur sem
fyrst.
POLDNEZ
hefur góöa aksturs-
eiginleika, léttur i stýri
og liggur vel á slæm-
um vegum.
Sýningarbíll á staðnum
— Komið, skoðið og gerið góð kaup.
Vinsamega staðfestið pantanir.
FlAT EINKAUMBOO Á ISLANOI
DAVÍÐ SIGURÐSSON hf.
SlÐUMÚLA 35. SÍMI 85855.
.umnu^i Ou magmbnðlBi 10
'inrf i.
» f ni'j