Morgunblaðið - 17.04.1980, Page 19

Morgunblaðið - 17.04.1980, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980 19 Grétar Norðfjörð: Veist þú hvar barnið þitt er? Fjöldi foreldra veit lítið um hvað börn þeirra aðhafast þeg- ar þau eru fjarverandi frá heimilinu. Sem betur fer er þetta þó ekki alfarið. Hver kannast ekki við þegar barnið biður um leyfi að fá að dveljast á heimiii vinar eða vinkonu næturlangt. Þetta er tekið gott og gilt án þess að kanna það nánar. Er þetta ein algengasta leið barna og unglinga til þess að sleppa undan eftirliti for- eldra sinna. Um efni þetta væri hægt að rita langt mál. Notkun vímugjafa meðal ungl- inga er nú algengari en nokkru sinni fyrr. Ekki er óalgengt að börn og unglingar verði ofurölvi í ókunnugum húsakynnum án minnstu vitundar foreldra. Fjöldi barna og unglinga ganga um borg og baei, brjótast inn, rupla og vinna skemmdar- verk á eignum einstaklinga, borgar og bæja svo og ríkisins fyrir tugi, eða hundruð milljóna króna á ári. Foreldrar verða fyrst og fremst að gæta barna sinna, leiðbeina þeim inná rétta braut samkvæmt okkar þjóðskipulagi. Ef þau ráða ekki við börn sín er rétt að leita aðstoðar ábyrgra aðila í hverju einstöku tilfelli. Grétar Norðfjörð Byggðarlagsnefnd I, J.C. Vík í Reykjavík hefur sýnt sérstakan skilning á þessu vandamáli. Eru þær ágætu konur sem nefndina skipa að vinna að verkefninu „æskan og afbrotin". í leit að hugsanlegri lausn þessa vanda hafa þær leitað til unglinganna sjálfra ef þeir kynnu að vita hvar lausn þessa vanda liggur. Veit ég að allir sem hlut eiga að máli færa þeim bestu þakkir fyrir framlag þeirra. Á Snerru-lofti í Mosfellssveit stendur nú yfir sýning á 15 steinborðum eftir Martein Davíðsson. Eru þau gerð úr völdu íslenzku grjóti og í ýmsum stærðum og gerðum. Sýningin verður opin næsta hálfa mánuðinn á venjulegum verzlunartíma, en auk þess eftir pöntun fyrir hópa og má þá hafa samband við verzlunina. Félag ísl. bókaverzlana: Efnir til bamabóka- viku 17.—26. apríl FÉLAG íslenzkra bókaverzlana gengst í vikunni fyrir sérstakri barnabókaviku og er tilgangur hennar að kynna fullorðnum barnabækur og vekja athygli á þeim m.a. til sumargjafa og verður dagana 17.—26. apríl veittur 10% afsláttur á barnabók- um í bókaverzlunum landsins. Að sögn Guðmundar Si- gmundssonar hjá Bókabúð Braga, sem sæti á í undirbúningsnefnd barnabókavikunnar, er tilgangur- inn einnig að reyna að dreifa bóksölunni á aðra árstíma en rétt Þjóðhátíð- arnefnd BORGARRÁÐ hefur tilnefnt í þjóðhátíðarnefnd eftirtalda menn: Jón Karlsson, Hilmar Svavarsson, Þórunni Sigurðardóttur, Ómar Einarsson og Þórunni Gestsdótt- ur. fyrir jólin. Sagði hann að bóka- verzlunum og útgefendum væri oft legið á hálsi að halda ekki fram bókum sínum nema í desember þegar jólainnkaup stæðu yfir og ætti nú að gera tilraun til að flytja bóksölu yfir á aðra árstíma og hvetja fólk til að gefa bókum gaum þá. Hefði verið ákveðið að efna til slíkrar barnabókaviku og þær m.a. orðið fyrir valinu vegna þess að margir héldu i þann gamla sið að gefa sumargjöf og væri ætlunin að halda fram barnabók- um í því skyni, m.a. með því að veita 10% afslátt á öllum barnab- ókum. Sagði Guðmundur að bóka- verzlanir myndu gera sér far um að hafa sem mest úrval af barnab- ókum þessa daga og kynna þær með einhverjum hætti. Kvað hann bókaverzlanirnar hafa verið í sambandi við útgefendur og væri afslættinum skipt jafnt niður á verzlanir og útgefendur. Taldi hann ekki útilokað að til slíkrar barnabókaviku yrði efnt að nýju tækist hún vel að þessu sinni. BARNABÓKAVIKAN 17.-26. APRÍL: Oscar Clausen M hugstim viÓ sérstaklega til bantanna! 10 X afsláttur af öllum barnabókum! í Bamabókavikunni bjóðum við öll ifnum barnabókum í Barna- Foreldrar, leyfið börn- sér skemmtilegar bæk- afir í Barnabókavik- gerði jafnan tvö handrit — drög og hreinritun. Einnig skráði hann öll gögn Fangahjálpar sinnar mjög vandlega og skrifaði öll bréf hennar með eigin hendi. Hann hafði snotra rithönd, en var á síðari árum nokkuð skjálfhentur og þá aðallega fyrrt hluta dags að eigin sögn. Oscar vann heilshugar að sér- hverju verki, sem hann tók sér fyrir hendur, en hann var óspar á lof og þakklæti í garð þeirra mörgu ágætismanna er réttu honum hjálparhönd. Nefndi hann þá helst Bjarna Bene- diktsson ráðherra og Valdimar Stefánsson saksóknara, en vin- áttu þeirra mat hann mjög og andlát þeirra beggja liðlega sex- tugra urðu honum mikil áföll. En Oscar var alla tíð einlægur trúmaður, náði sér fljótt eftir ágjöf, sneri sér með auknum afköstum að verkefnunum og sætti sig við þau örlög, sem honum voru búin. Oscar Clausen hafði löngum samband við alþjóðasamtök fangahjálpa og sótti þing þeirra víðsvegar um heim allt fram á níræðisaldur. Vakti árangurinn af starfsemi hans hér á landi verðskuldaða athygli og aðdáun erlendis og um skeið mátti telja hann heimsmetshafa í að ná árangri við að byggja upp brota- menn og gera þá að nýtum þjóðfélagsþegnum. Þarflaust mun að óska þessum háaldraða mannvini góðrar heimkomu með því líferni hans og starf hefur eflaust tryggt honum ódauðleika. H.F. — Minningarorð Mannvinurinn og rithöfundur- inn Oscar Clausen, sem lést 9. apríl 93 ára að aldri, var það vel þekktur að ekki er ástæða til að tíunda æviatriði þessa athafna- sama manns hér, enda var þeim gerð góð skil í grein Sveins heit. Benediktssonar hér í blaðinu hinn 6. febrúar 1977, daginn áður en Oscar varð níræður. „Ég hef aldrei þurft að öfunda nokkurn mann“ sagði Oscar Clausen við Morgunblaðið í til- efni áttræðisafmælisins fyrir rúmum þrettán árum. Þessi um- mæli lýsa hugarfari Oscars heit- ins einstaklega vel. Hann var þannig gerður, a.m.k. síðustu rúma þrjá áratugina, eftir að hann lagði verslunarstörf á hill- una og helgaði sig algjörlega ritstörfum og fangahjálp, að hann gerði engar þær kröfur til lífsins að hann þyrfti neitt af öðrum að hafa eða öfundast út af velgengni annarra. Þessa áratugi voru lifnaðar- hættir hins nægjusama einsetu- manns mjög til fyrirmyndar og gengu nærri því fordæmi, sem séra Friðrik Friðriksson setti, en Oscar stundaði latínunám hjá honum aldamótaárið. Löngum setti hann svip á miðþorg Reykjavíkur meðan hann bjó í Vallarstræti og Bankastræti, mætti árla í morgunkaffi á Hótel Borg og eignaðist þar marga vini og stuðningsmenn í starfi, hélt sitt stúkuheit frá æskuárum án þess að vera ofsa- fenginn eða amast við venjum annarra, lifði mestmegnis á skyri og súrmjólk og nýtti af- raksturinn af ritstörfum sínum til að miðla öðrum, sem mætt höfðu mótlæti í lífinu. Oscar Clausen skrifaði um þrjá og hálfan tug bóka og vann að þeim á síðkvöldum ýmist heima hjá sér eða á Landsbóka- safninu meðan það var opið. Aldrei notaði hann ritvél, en

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.