Morgunblaðið - 17.04.1980, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980
Löngu striði lokið
Síðasta nýlenda
í Afríku fær
Breta
Salisbury, 16. apríl. AP
KARL Bretaprins kom til Rhódesiu í dag til að vera viðstaddur
þegar síðasta nýlenda Breta í Aíríku fær sjálfstæði.
Tuttugu og eitt fallbyssuskot var skotið honum til heiðurs,
herþotur flugu jfir höfði honum og innfæddar konur dönsuðu fyrir
framan hann. Aður hafði lögreglan slegið hring um flugvöllinn og
gert umfangsmiklar öryggisráðstafanir.
Móttökuathöfninni stjórnaði
skæruliðaleiðtoginn Robert Mug-
abe sem verður fyrsti forsætis-
ráðherra hins nýja ríkis er mun
kallast Zimbawe þegar það fær
sjálfstæði á miðnætti á morgun.
Meðal annars stórmennis sem
kom í dag til að vera við hátíða-
höldin voru Muhammed Zia
hershöfðingi, forseti Pakistans,
og Malcolm Fraser, forsætisráð-
herra Astralíu. Indira Gandhi,
forsætisráðherra Indlands, lagði
einnig af stað frá nýju Delhi til að
mæta við athöfnina.
Sovézk sendinefnd undir for-
ystu Sharaf R. Rashidov, auka-
fulltrúa í stjórnmálaráði komm-
únistaflokksins, kom til Salisbury
í gær. Seinna í dag var væntanleg
sendinefnd frá Bandaríkjunum
undir forsæti Averell Harriman.
Andrew Young, fyrrum sendi-
herra hjá SÞ, er einnig í nefnd-
inni. Alls er von á um 100
erlendum sendinefndum.
Beiskja stríðsins virðist óðum
að hverfa í kjölfar sáttfúsra
yfirlýsinga Mugabes sem aðhyll-
ist sósíalisma sem er að nokkru
leyti undir áhrifum frá marxisma.
Hann segir að sex milljónir
blökkumanna vilji að 250.000
hvítir landsmenn verði um kyrrt í
landinu og dafni þar. Hann hefur
einnig forðazt að koma á ríkis-
sósíalisma.
Brezki landstjórinn, Soames lá-
varður, hefur boðið Karli prins til
kvöldverðar og borðdama hans
verður 28 ára gömul ljóshærð
Rhódesíustúlka, Barbara Travers,
vinoka Soames-fjölskyldunnar.
Þessi „Öskubuska" Rhódesíu sagði
fréttamönnum að hún væri „ha-
mingjusamasta stúlkan í Rhó-
desíu".
Yiðræður teknar
upp um Gíbraltar
Gíbraltar. 16. apríl. AP.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Spán-
ar, Marcelino Oreja, skýrði utan-
rikisnefnd neðri deildar spænska
þingsins frá því i dag, að Spán-
verjar og Bretar hefðu í fyrsta
skipti orðið ásáttir um að hefja
samningaviðræður til þess að
- leysa Gíbraltar-deiluna.
Oreja sagði að í viðræðunum yrði
fjallað um allar hliðar deilunnar,
þar sem deiluaðilar hefðu ákveðið
að jafna allan ágreining sinn í
Gíbraltar-málinu.
Hann lauk lofsorði á utanríkis-
ráðherra Breta, Carrington lávarð,
sem hann ræddi við í Lissabon í
síðustu viku, fyrir að hafa „pól-
itískt hugrekki til þess að horfast í
augu við Gíbraltar-málið“. Hann
sagði að Carrington væri fyrsti
brezki utanríkisráðherrann, sem
viðurkenndi nauðsynina á lausn
málsins með samningaviðræðum.
Spánverjar rufu samgöngur og
fjarskipti við Gíbraltar, þar sem
25.000 manns búa, 1969, þegar
Bretar höfðu hundsað ályktun SÞ
frá því árið áður um að leggja bæri
niður nýlendustjórn í Gíþraltar.
Oreja sagði, að nú hefði verið
samþykkt að opna aftur sambandið
milli Gíbraltar og Spánar, en tók
fram að þar með væri ekki sagt að
ástandið færðist aftur í sama horf
og fyrir 1969 þegar spænskir verka-
menn hefðu tekið þátt í að auka
velsæld nýlendunnar án þess að fá
nokkur réttindi í staðinn eða að
búa í Gíbraltar.
Oreja sagði, að Spánarstjórn
ítrekaði þá afstöðu sína að nauðyn-
legt væri að stefna að því lokatak-
marki að Spánverjar næðu aftur
yfirráðum yfir nýlendunni. Hann
kvað Spánverja reiðubúna að við-
urkenna réttindi Gíbraltarbúa og
ábyrgjast lögmæta hagsmuni
þeirra, menningarlega sérstöðu og
Schmidt til Moskvu
________ '_______66
99
snemma 1 sumar
Garri Kasparov
Yngsti stór-
meistarinn
Moskvu, 16. aprfl. AP.
SOVÉZKUR námsmaður, Garri
Kasparov tryggði sér á þriðjudag
stórmeistaratitil i skák sam-
kvæmt frétt frá Tass.
Er hann yngsti stórmeistari
heimsins en hann varð 17 ára á
sunnudaginn. Kasparov náði
áfanganum á skákmóti í Baku í
Armeníu, en hann er talinn líkleg-
ur sigurvegari í mótinu. Kasparov
er talinn einn efnilegasti skák-
maður heimsins í dag.
Gegn ÓL
Bonn. 16. apríl. AP.
HELMUT Schmidt kanslari skor-
aði í dag á ólympíulið Vestur-
bjóðverja að sýna samstöðu með
handarískum íþróttamönnum
sem samþykktu að taka ekki þátt
í Moskvu-leikunum.
Hann sagði í boði með vetraról-
ympíukeppændum að leikarnir gætu
aðeins farið fram á friðartímum.
„Það er komið undir Rússum að
breyta ástandinu þannig að allir
íþróttamenn geti keppt," sagði
hann.
Bonn, 16. april. AP.
HELMUT Schmidt kanslari fer
sennilega i fyrirhugaða heim-
sókn sína til Moskvu í sumar að
sögn stjórnartalsmanns i dag.
Ferðinni hafði verið frestað
vegna kala i sambúð austurs og
vesturs.
Klaus Bölling, aðaltalsmaður
stjórnarinnar, sagði að sendi-
herra Rússa, Vladimir Semyonov,
hefði spurt Vestur-Þjóðverja
fyrir nokkrum dogum hvort
kanslaranum hentaði að koma til
Moskvu í sumar. Samkvæmt
heimildinni fer kanslarinn
snemma i júni. En staðgengill
Böllings, Armin Grunewald,
sagði seinna að engin dagsetning
hefði verið ákveðin, þótt heim-
sóknin yrði sennilega farin
„snemma í sumar“.
Þar með gæti Schmidt gefið
Carter forseta og öðrum vestræn-
um stjórnarleiðtogum, sem sitja
leiðtogafund um efnahagsmál
22.-23. júní í Feneyjum, skýrslu
um heimsóknina.
Grunewald sagði að heimsóknin
yrði farin „innan ramma sam-
skipta austurs og vesturs" og dag-
setning yrði aðeins ákveðin að
höfðu samráði við bandamenn
Vestur-Þjóðverja, þar á meðal
Bandaríkjamenn. Áður hafði verið
tilkynnt að Schmidt hefði rætt í
síma við Carter og Valery Giscard
d’Estaing Frakklandsforseta und-
anfarna daga og ekki er ólíklegt að
heimsóknina hafi borið á góma.
Þetta verður liklega fyrsta
Moskvu-heimsókn vestræns stjórn-
arleiðtoga eftir innrás Rússa í
Afganistan. Leonid Brezhnev for-
seti bauð Schmidt í heimsóknina
þegar hann var í Bonn í maí 1978
og gert var ráð fyrir að Schmidt
færi skömmu eftir síðustu áramót
en innrásin breytti því. Austur-
þýzki kommúnistaleiðtoginn Erich
Honecker aflýsti jafnframt fyrir-
huguðum fundi með Schmidt.
Heimsóknin mun draga úr erfið-
leikum sem kanslarinn á við að
stríða í flokki sósíaldemókrata á
kosningaári. Herbert Wehner og
aðrir áhrifamiklir flokksleiðtogar
vilja viðhalda sambandi við Rússa
af ótta við að slökunarstefnan og
bætt sambúð við Austur-Þjóðverja
komist í hættu. En Bandaríkja-
menn, kristilegir og frjálsir demó-
kratar hvetja til aukinnar sam-
stöðu Vesturlanda í Afganistan-
málinu.
Kanslarinn getur bent á heim-
sóknina til marks um áhuga sinn á
Armstrong
heiðraður
New Orleans. 16.apríl. AP.
BORGARYFIRVÖLD í New Or-
leans hafa opnað almennings-
garð sem er helgaður jazz-tónlist
og minningu færasta trompett-
blásara hennar, Louis heitins
Armstrong við hliðina á hinu
gamla Congo-torgi þar sem dans
þrælanna sáði fræjum jazzins.
Ekkja Armstrongs, Lucille, af-
hjúpaði bronsstyttu af Armstrong
þar sem hann heldur á trompett
og vasaklút og brosir kankvíslega.
A eftir var haldinn sjö tíma „jam
session", þar sem fram komu
meðal annarra Count Basie, Dave
Brubeck, Lionel Hampton, A1 Hirt
og Allen Toussaint.
Við tekur tveggja vikna jazz-
hátíð.
lífsvenjur. Það eina sem Spánverj-
ar gætu ekki, væri að viðurkenna
að þeir hefðu rétt til að afsala
fullveldi Gíbraltar sem þeir ættu
ekki.
Bretar hafa iðulega sagt að
deiluna sé ekki hægt að leysa án
þess að taka tillit til óska Gíbralt-
arbúa sjálfra. Bretar tóku Gíbralt-
ar herskildi 1704 og Spánverjar
afsöluðu sér höfðanum níu árum
síðar um Utrecht-samningnum.
Hollendingar
sýna „Dauða
prinsessu“
Amsterdam. 16. apríl. AP.
HOLLENSKA sjónvarpið sýndi í
dag „Dauða prinsessu“ á bezta
tíma þrátt fyrir mótmæli frá
stjórn Saudi Arabiu sem sagði að
myndin væri móðgun við islam.
Khaled konungur bað Andries
van Agt forsætisráðherra að koma
í veg fyrir sýninguna, en stjórn
sjónvarpsins samþykkti aðeins
nokkrum klukkustundum áður en
sýningin átti að hefjast að leyfa
hana með 19 atkvæðum gegn 7.
Van Agt, sem er í Jakarta,
kvaðst harma sýningu myndarinn-
ar en sagði að samkvæmt hollenzk-
um lögum hefði stjórn landsins
ekki völd til að taka fram fyrir
hendurnar á sjónvarpi og útvarpi.
áframhaldi slökunarstefnu á sama
tíma og stjórnin hafi til athugunar
efnahagslegar refsiaðgerðir gegn
írönum og styðji þá stefnu að hætt
verði við þátttöku í Ólympíuleikun-
um í Moskvu.
Þetta gerðist
1979 * Fyrstu kosningar um
meirihlutastjórn blökkumanna í
Rhódesíu.
1977 — Kona Yitzhak Rabin,
forsætisráðherra ísraels, sektuð
fyrir brot á gjaldeyrislögum.
1975 — Kommúnistar taka
Phnom Penh og borgarastríði lýk-
ur í Kambódíu.
1971 — Egyptaland, Sýrland og
Líbýa undirrita samning um sam-
einingu.
1969 — Sirhan B. Sirhan dæmdur
fyrir morðið á Robert Kennedy
öldungadeildarþingmanni — Al-
exander Dubcek vikið úr stöðu
aðalritara kommúnistaflokks
Tékkóslóvakíu.
1%3 — Egyptaland, Sýrland og
Irak samþykkja að sameinast.
1961 — „Svínaflóa-innrásin" í
Kúbu fer út um þúfur.
1945 — Kunngert að Japanir hafi
misst rúmlega 200 flugvélar á
einum degi í sjálfsmorðsárásum í
orrustunni um Okinawa.
1941 — Uppgjöf Júgóslava fyrir
Þjóðverjum.
1897 — Tyrkir segja Grikkjum
stríð á hendur.
1895 — Kínverjar og Japanir
viðurkenna sjálfstæði Kóreu með
Shimonoseki-sáttmálanum —
Kínverjar opna sjö nýjar hafnir og
láta af hendi Formósu, Port Arth-
ur og Liao Tung-skaga við Japani.
Æfingar
Napoli, 16. apríl. AP.
LIÐSAFLI frá níu NATO ríkjum
tekur þátt i æfingum bandalags-
ins í næsta mánuði í Austur- og
Mið-Miðjarðarhafi („Dawn Pat-
rol 80“).
Harold E. Dhear aðmíráll, yfir-
maður liðsafla NATO í Suður-
Evrópu, sagði að þessar árlegu
æfingar ættu að sýna getu NATO
til að koma í veg fyrir árás á
suðurvængnum.
Hann sagði að æfingarnar hefðu
verið ákveðnar löngu fyrir síðustu
atburði í íran og Afganistan og
tímasetning þeirra stæði í engu
sambandi við þá atburði.
17. april
1839 — Lýðveldi stofnað í Guate-
mala.
1521 — Marteinn Lúther bann-
færður á Worms-þinginu.
1492 — Ferdinand af Spáni sam-
þykkir að standa straum af kostn-
aði við landafundaferð Kristófers
Kólumbusar.
Afmæli — Henry Vaughan, enskt
skáld (1622-1695) - J. Pierpont
Morgan, bandarískur fjármála-
maður (1837—1913) — Nikita
Krúsjeff, sovézkur stjórnmálaleið-
togi (1894-1971).
Andlát — 1711 Jósef keisari I —
1790 Benjamin Franklin, stjórn-
málaleiðtogi.
Innlent — 1298 d. Árni bp Þor-
láksson (Staða-Árni) — 1793 Ólaf-
ur Stephensen leysir Skúla fógeta
frá embætti — 1923 Magnús
Jónsson fjármálaráðherra biðst
lausnar — 1939 Þjóðstjórnin
mynduð — 1944 Forsetaúrskurður
um fánadaga — 1961 Ákveðið að
kalla saman danák-íslenzka sér-
fræðinganefnd til að gera hand-
ritaskrá — 1969 Aflatogarinn
„Sigurður" kemur úr 100. veiðiför
— 1971 „Sigurfara" hvolfir í inn-
siglingunni í Hornarfjarðarós og
átta fórust — 1966 d. Júlíana
Sveinsdóttir listmálari.
Orð dagsins — Maðurinn er í
sjálfu sér ekki innrættur — Thom-
as Paine (1737—1790).