Morgunblaðið - 17.04.1980, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980
+
Systir okkar,
JOHANNA GUÐJÓNSDÓTTIR,
Grettisgötu 32,
andaöist í Borgarspítalanum 15. apríl.
Systkini hinnar látnu.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar og tengdafaöir,
GUNNAR KRISTJÁNSSON,
vélsmiöur,
Tryggvagötu 4, Selfossi,
(óöur Mýrargötu 10, Reykjavík,)
lést í Borgarspítalanum 15. apríl.
Elín Pólsdóttir,
börn og tengdabörn.
t
STEFÁN HALLDÓRSSON,
fró Tréstööum,
sem lézt 9. apríl veröur jarösettur frá Fossvogskirkju, föstudaginn
18. apríl kl. 3.
Elín Magnúsdóttir,
Halldór Kr. Stefónsson, Þóra G. Bragadóttír,
Jónína Magnúsdóttir,
og barnabörn.
+
Eiginkona mín, móðir, tengdamóöir og amma
ELÍNBORG EGGERTSDÓTTIR,
Vesturgötu 12 A, Keflavík,
veröur jarösungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 19. apríl kl.
14.30. Blóm afþökkuð.
Hjalti Sigurðsson,
börn, tengdabörn,
barnabörn og systkini hinnar lótnu.
+
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
JÚLÍA ÁRNADÓTTIR,
Ártúni 1,
Selfossi,
veröur jarðsungin laugardaginn 19. apríl. Minningarathöfn veröur í
Selfosskirkju kl. 1.30. Jarösett verður að Skaröi sama dag kl. 3.30.
Árni Halldórsson, Rosemary Halldórsson,
Sveínn Halldórsson, Gunnlaug Emilsdóttir,
Guöni Halldórsson, Lilja Guörún Pétursdóttir.
og barnabörn.
+
Þökkum innilega samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför
GRÓU BJARNADÓTTUR,
Þinghól.
Starfsfólki á deild 6 E Borgarspítalanum þökkum viö einstaka
umhyggju í veikindum hennar.
Árni Böövarsson, Ágústa Árnadóttir,
Ingólfur Böövarsson, Sigríöur Ottósdóttir,
Guðbjörg Böövarsdóttir, Ingvi Þorgeirsson,
Ragnar Böövarsson, Jenný Magnúsdóttir,
Bjarni Böövarsson, Kristín Tryggvadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartans þakkir færum viö öllum þeim er sýndu okkur samúö og
vinarhug viö andlát og útför dóttur okkar, móöur, systur og
mágkonu
SIGRÍÐAR ERLU JENSDÓTTUR,
Sogavegi 94.
Jens R. Pálsson,
Jens R. Kane,
Póll R. Jensson,
Fríögeröur Jensdóttir,
Anna B. Jensdóttir,
Kristín Eiríksdóttir,
Orri F. Indriöason,
Eiríkur B. Jensson,
Böövar Baldursson,
Stefón F. Gunnarsson.
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrir vara. Þannig verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi
á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal
einnig getið af marggefnu tilefni að frumort ljóð um
hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera velrituð og
með góðu línubili.
Guðrún Eyjólfs-
dóttir - Minning
Fædd 5. maí 1895.
Dáin 5. apríl 1980.
Sumt fólk er eins og heilar
þjóðfélagsstofnanir. Allir vita af
því, það er ávallt til reiðu og
flestir tengja það veruleikanum
eins og dagur kemur á eftir nótt.
Þannig finnst mér það hafa
verið með ömmusystur mína, Guð-
rúnu Eyjólfsdóttur eða Gunnu
frænku eins og ég heyrði hana
jafnan nefnda, sem í dag er kvödd
hinstu kveðju.
Ekki man ég eftir mér öðruvísi
en hún væri einhvers staðar ná-
læg. Hvort sem stóð til einhver
framkvæmd í fjölskyldunni,
prjóna átti peysu eða jafnvel bara
að fara niður í bæ, þá var komið
við hjá Gunnu frænku á Skeggja-
götunni og málin rædd. Alltaf
voru allir guðvelkomnir og alltaf
var heitt á könnunni hennar
Gunnu. Svo ekki sé minnst á alla
molana, sem rötuðu uppí munna
yngri borgaranna.
Gunna frænka var fædd að
Hvammi á Landi 5. maí 1895.
Dóttir hjónanna Guðbjargar Jóns-
dóttur frá Skarði á Landi og
Eyjólfs Guðmundssonar, hrepps-
nefndaroddvita í Hvammi.
Gunna ólst upp í foreldrahús-
um í stórum systkinahóp. Þau eru
í aldursröð: Guðríður, húsfreyja á
Selfossi; Guðjón, dó barn; Guð-
mundur, dó barn; Ágúst, bóndi og
kennari í Hvammi; Óskar, verka-
maður í Reykjavík; Margrét, dó
barn; Guðrún húsfreyja í
Reykjavík; Sæmundur, vinnu-
maður í Hvammi; Einar, kaup-
maður í Reykjavík, og Ármann,
kaupmaður í Reykjavík.
Einnig voru tveir uppeldisbræð-
ur, Guðni Árnason, verslunar-
stjóri í Reykjavík, og Sigurgeir
Guðjónsson, byggingameistari í
Reykjavík.
Þá dvöldu lengi á uppvaxtarár-
um í Hvammi Elín G. Illugadóttir,
húsfreyja á Syðri-Vatnahjáleigu í
A-Landeyjum, Katrín Sæmunds-
dóttir, húsfreyja í Austvaðsholti á
Landi, og Ragnheiður Pálsdóttir,
húsfreyja í Breiðdalsvík.
Af þessum stóra hóp lifa nú
Óskar í hárri elli á Landakoti,
Sigurgeir byggingameistari í
Reykjavík*. og Ragnheiður hús-
freyja í Breiðdalsvík.
Um þrítugt fluttist Gunna að
heiman og ræður sig í vist til
systur sinnar og mágs í Tryggva-
skála á Selfossi. Síðan fór hún til
Reykjavíkur og gerðist ráðskona
hjá bróður sínum Einari.
Árið 1934 gengur hún að eiga
Brynjólf Einarsson, bifreiðar-
stjóra hér í borg, frá Ölvisholti í
Holtum. Reistu þau sér hús að
Skeggjagötu 8 með systrum
Brynjólfs og bjuggu þar æ síðan.
Hjónaband þeirra var með fá-
dæmum hamingjuríkt, en Brynj-
ólfur lézt árið 1954, langt fyrir
aldur fram.
Að Gunnu stóð mikill frænd-
garður austanfjalls. Voru ættir
hennar mest í sýslunum, sem
Þjórsá skilur. Má þar nefna
Víkingslækjar- og Presta- Högna-
ætt í Rangárþingi og Reykja- og
Fjallsætt í Árnesþingi.
+
Eiginmaöur minn
GUNNAR J. EYLAND,
Espilundi 9,
Garöabæ,
lést þriðjudaginn 15. apríl.
Guölaug Gunnarsdóttir.
+
Systir okkar og fóstursystir,
ÁSTA KIRSTÍN SIGURDARDÓTTIR,
fró Merkistoini,
Vestmannaeyjum,
veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. apríl kl.
13.30.
Ingi Sigurösson,
Rósa Siguröardóttir,
Valgeir Guömundsson.
+
Viö þökkum hluttekningu og vinsemd við andlát og útför
ÞORVALDARJÓNSSONAR,
skósmiös, fró Hólmavík.
Benedikt Þorvaldsson,
Matthildur Guóbrandsdóttir,
Sigfríður Björnsdóttir,
Helgi Ingimundarson
og vandamenn.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
jaröarför
JÓNÍNU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Valdarási,
Víöidal.
Hulda Ragnarsdóttir, Guömundur Axelsson,
Axel Rúnar Guðmundsson.
Þarf ekki að fjölyrða það, að
margt skyldmennið átti leið til
Reykjavíkur. Stóð heimili Gunnu
og Brynjólfs jafnan öllum opið
með þeirri gestrisni og rausn sem
þeim var áskapað að heiman.
Nú við lát yndislegrar frænku
veit ég að víða er skarð fyrir skildi
og saknar margur öruggs hlés.
Sérstaklega hef ég verið beðinn
að geta þess, að móðir mín og
systur hennar þakka nú að leiðar-
lokum sinni kæru móðursystur
alla hjálpsemina, umhyggjuna og
góðmennskuna. Einnig langar þær
að þakka af hjarta nöfnu hennar,
Guðrúnu Guðmundsdóttur, sem
leigði hjá henni, allt sem hún
gerði fyrir frænku þeirra í veik-
indum hennar.
Snáðinn, sem stóð svo oft með
útrétta hönd á tröppunum á
Skeggjagötunni og fór glaður
heim, biður Gunnu frænku sinni
blessunar guðs og eilífan frið í
faðmi hans.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson.
í dag er til grafar borin Guðrún
Eyjólfsdóttir, ekkja Brynjólfs
Einarssonar leigubílstjóra. Hún
andaðist að morgni 5. apríl sl.
eftir rúmlega tveggja mánaða legu
á Landspítalanum.
Guðrún var fædd að Hvammi í
Landsveit 5. maí 1895 og var því
tæplega 85 ára gömul er hún lést.
Hún var dóttir lands-höfðingja-
hjónanna Guðbjargar Jónsdóttur
og Eyjólfs Guðmundssonar í
Hvammi. Systkinin í Hvammi
voru alls 10. Yngstur þeirra systk-
ina var Ármann Kristinn sem lést
19. des. 1972. Óskar lifir nú einn
eftir af þessum stóra systkina-
hópi, 89 ára að aldri. Einnig lifir
uppeldisbróðir þeirra, Sigurgeir
Guðjónsson húsasmíðameistari.
Guðrún ólst upp í foreldrahús-
um og var þar fram yfir þrítugt er
hún réðst til vinnu að Tryggvask-
ála á Selfossi.
Árið 1934 giftist Guðrún Brynj-
ólfi Einarssyni frá Ölversholti í
Holtum. Sama ár stofnuðu þau
heimili að Sjafnargötu 2 í
Reykjavík. Árin 1936—37 reistu
þau hús að Skeggjagötu 8 með
systrum Brynjólfs og áttu þar
heima æ síðan. Guðrún missti
mann sinn 1954 og bjó ein í íbúð
sinni eftir það, nema hvað hún
leigði hluta af henni einstakling-
um og nú síðast Guðrúnu Guð-
mundsdóttur frá Grundarfirði
sem hefur búið þar sl. 11—12 ár.
Voru þær nöfnur einkar samrýnd-
ar og áttu góðan félagsskap sam-
an. Kom sér oft vel fyrir Guðrúnu
sálugu að nafna hennar var hjálp-
söm og ósérhlífin, þegar hún
þurfti á aðstoð að halda í veikind-
um sínum síðustu mánuðina, og
ber sannarlega að þakka það. Hún
gekk ekki alltaf heil til skógar
síðustu árin, en flíkaði því ekki.
Guðrún hafði yndi af blómum
og voru oft falleg blóm í glugga í
stofunni hennar. Hún vann tals-
vert við hannyrðir og lét eftir sig
ýmsa fallega hluti heklaða eða
útsaumaða.
Guðrún var hjálpfús og fórnfús
kona. Hún fór marga ferðina í
bæinn fyrir sjúka eða aldraða vini
sína sem áttu erfitt með gang. í
mörg ár var Óskar bróðir hennar
algerlega á hennar vegum og
hjúkraði hún honum þar til fyrir
rúmu ári að hann fór á sjúkrahús,
nær alblindur.
Er við nú á kveðjustund minn-
umst Guðrúnar Eyjólfsdóttur,
Gunnu frænku, eins og við svo
mörg kölluðum hana, þá koma
ósjálfrátt upp í hugann þær
mörgu samverustundir sem við
fjölskyldan hér á Fjölnisvegi 4
áttum með henni á liðnum árum.
Okkur fannst alltaf einhvers kon-
ar hátíðisblær yfir öllu þegar
Gunna frænka kom í heimsókn.
Nú er okkur söknuður í huga
þegar þann góða gest ber ekki
framar að garði.
Við hinstu vegamót viljum við
hjónin þakka Gunnu frænku fyrir
allt gott á liðnum árum um leið og
við biðjum henni blessunar Guðs
handan við djúpið mikla sem
aðskilur líf og dauða.
Guðbjörg Ármannsdóttir.
Þórir S. Hersveinsson.