Morgunblaðið - 30.04.1980, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1980
3
Uppsagnir í stórum stíl
í sælgætis- og kexiðnaði
Sala á innlendu sælgæti dróst saman um þriðjung í apríl
ur blasti því við. Mikið væri í
húfi og mætti í þvi sambandi
benda á að í sælgætisiðnaðinum
væru tæplega 300 heilsársstörf
en starfsmenn allmiklu fleiri.
Þegar við blasti að segja þyrfti
upp tugum starfsmanna í þess-
um iðnaði væri vissulega hætta
á ferðum.
MIKILL samdráttur hefur orðið í sölu á íslenzku sælgæti og kexi
að undanförnu vegna stórlega aukinnar samkeppni erlendis frá.
Eru yfirvofandi uppsagnir i stórum stíl hjá íslenzkum sælgætis- og
kexverksmiðjum að sögn Vals Valssonar framkvæmdastjóra
Félags íslenzkra iðnrekenda, en ekki liggja þó fyrir neinar tölur í
því sambandi.
Eins og fram hefur komið í
fréttum var innflutningur gef-
inn frjáls á sælgæti 1. apríl sl. og
á þeim mánuði sem síðan er
liðinn hafa komið á markaðinn
geysimargar tegundir af erlendu
sælgæti. Valur Valsson sagði að
þessi innflutningur hefði þegar
haft umtalsverð áhrif á sölu á
íslenzku sælgæti. Þannig hefðu
íslenzkar sælgætisverksmiðjur i
stórum dráttum afgreitt um
þriðjungi minna til smásölu-
verzlana í apríl en í sama
mánuði í fyrra. Innflutningur á
kexi var gefinn frjáls um sl.
áramót og hafði það svipuð áhrif
á innlendan kexiðnað. Valur
sagði að aukin erlend samkeppni
væri aðalástæðan en einnig
hefði þess aðeins orðið vart að
minni fjárráð fólks á undanförn-
um mánuðum hefðu haft í för
með sér minni sælgætissölu.
— Við vonum auðvitað að
íslenzku framleiðendurnir kom-
ist yfir erfiðleikana þegar nýja-
brumið verður farið af útlenda
sælgætinu og kexinu en sú hætta
er vissulega fyrir hendi að ein-
hver fyrirtæki lifi þetta ekki af,
sagði Valur. Hann bætti því við
að rökstuddur grunur væri um
að verð á sumum tegundum
erlenda sælgætisins væri óeðli-
lega lágt og það myndi ekki
standast til langframa, þ.e. að
fyrirtækin væru að kaupa sig
inn á markaðinn með óeðlilega
lágu kynningarverði. Væri nú
unnið að verðsamanburði hér og
í öðrum löndum.
Valur Valsson sagði að lokum
að þetta væri enn eitt dæmið um
þá auknu samkeppni, sem ís-
lenzkur framleiðsluiðnaður ætti
við að glíma. Hann ætti í
miklum erfiðleikum, því á sama
tíma og erlendur gjaldeyrir
hækkaði um t.d. 30% hækkaði
innlendur kostnaður um 60%.
Þennan mismun væri ekki hægt
að brúa nema að litlu leyti með
framleiðniaukningu og taprekst-
Öxulþunga-
takmarkanir
á flestum vegum
ÖXULÞUNGATAKM ARKANIR
eru nú á flestum vegum að sögn
Hjörleifs Ólafssor vegaeftir-
litsmanns, enda v aurbleyta.
Klaki hefur þó farið úr jörð á
stöku stað i hlýindunum að und-
anförnu og í gær var t.d. aflétt
takmörkunum á öxulþunga á
veginum milli Hafnar og Breið-
dalsvíkur.
Hjörleifur sagði að skemmdir á
vegum vegna aurbleytunnar hefðu
verið með minnsta móti í vor.
Gripið var í tæka tíð til öxul-
þungatakmarkana til þess að
fyrirbyggja skemmdir og er öxul-
þungi í flestum tilfellum miðaður
við 7 tonn.
hvílíkur munur
Ajax þvottaefni losar úr bletti og óhreinindi strax í forþvotti.
Það er sama hvort um er að ræða hvítan, mislitan eða mjög
viðkvæman þvott, sama hvaða hitastig er notað eða þvotta-
stilling. Með Ajax skilar árangurinn sér í tandurhreinum cíg
blettalausum þvotti. I
Ajax lágfre\Óandi
þvottaefni fyrir allan þvott
Ajax
skilar tandurhreinu