Morgunblaðið - 30.04.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.04.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1980 15 Rithöfundalaun: Olíkar stefnur Það er segin saga, að óánægjualda brýst út í hvert sinn, sem úthlutað er úr sjóðum rithöfunda og annarra lista- manna. En oftast láta menn þar við sitja og allt er í sama horfi til næsta árs. Snemma á ráðherratíð Vil- hjálms Hjálmarssonar skipaði hann nefnd, sem átti að kanna starfskjör listamanna og gera tillögur um það, með hvaða hætti best væri að standa að þessum styrkjamálum. Sú nefnd mun ekki hafa gert neitt. Hún skilaði aldrei áliti. Rithöfundar hafa skipst í tvo hópa. Sá fyrri — og líklega fjölmennari — vill hafa styrk- ina hærri, og þá handa færri höfundum, og skipta nokkuð um menn í betri sætunum, hinn — og í þeim flokki er undirritaður mjög eindregið — vill skipta meginhluta þess fjár, sem til fellur á ári hverju, til nokkuð margra, svo að þeir geti að jafnaði unnið að ritstörfum, ásamt öðrum aðalstörfum. Þau laun falli árvisst til viður- kenndra rithöfunda. En hluta af launasjóði verði ár hvert varið í jafna lausastyrki handa byrj- endum. Ég tel að listalaunafyrir- komulaginu eigi að gjörbreyta. Heiðurslaunanafnið að falla burt, en allstór hópur roskinna manna úr öllum listgreinum, sem nú eru í hæstu launaflokk- unum eigi að halda sínu áfram á meðan þeir lifa. En þetta fyrirkomulag falli niður, er þeir falla frá, er það varða. Yngri Jón úr Vör listamennirnir, sem nú hafa ekki fest sig í sessi á þessum launavettvangi, eiga svo að fá laun eða önnur fríðindi úr svokölluðum starfslaunasjóðum sinnar listgreinar. En þá þarf að stofna. Ég vil endurtaka það sem ég hef áður sagt: Aðalsjóður rit- höfunda á að fá nokkurt fé úr þeim listasjóði, sem nú er við lýði, þá bókasafnspeningana, þegar búið er að greiða afnota- gjöld til einstakra bókahöfunda, sinn hluta úr starfslaunasjóði listamanna og loks úr þeim sjóði, sem oft er kenndur við söluskatt. Þá er ótalin árleg úthlutun frá Ríkisútvarpinu. Allt er þetta fé, sem rithöfund- ar hafa unnið fyrir og hafa í áratugi átt vaxtalaust inni hjá því opinbera. Þetta gæti orðið þokkalegur sjóður. Safnast þeg- ar saman kemur. Möguleikar til misnotkunar minnka, ef aðeins er úthlutað einu sinni á ári. Þá fá síður sömu mennirnir bestu bitana úr hverjum potti ár eftir ár. En það þarf auðvitað að setja um þetta skynsamlegar úthlutunarreglur. En það er fleira en launamál, sem rithöfundar þurfa að láta sig varða. Höfundalög, sem samþykkt hafa verið á Alþingi, eru af flestum hundsuð, vegna samtaka- og hirðuleysis rithöf- unda. Þá nefni ég kynningu ,á bókmenntúm í skólum og meðal almennings. Þetta er nú í mol- um. Viðskipti Ríkisútvarpsins og sjónvarpsins eru handa- hófskennd, hið síðarnefnda sama sem lokað rithöfundum, nema helst þeim sem semja leikrit. — Og eftir hvaða reglum eru bækur keyptar til bóka- safna? Eru t.d. ljóðabækur þar algjörar hornrekur, en þýddar stórglæpasögur og þýddir reyf- arar í heiðurssæti? Jón úr Vör. Ingibjörg Þorbergs: „Svari hver fyrir sig í morgunpósti útvarpsins í dag var rætt við Njörð P. Njarðvík, formann Rithöfunda- sambands íslands, í tilefni und- irskriftalista frá óánægðum rit- höfundum vegna úthlutunar í Launasjóði þeirra. Lokaorð formannsins voru þessi: — „Eru til þeir höfundar í Rithöfundasambandinu, sem hafa meiri áhuga á sjóðum heldur en ritstörfum?" Þá bætti morgunpóstmaður við: — „Og svari hver fyrir sig.“ Skal ég fúslega verða við þeirri ósk og svara í stuttu máli fyrir mig, þar sem nafn mitt er á hinum margumrædda lista. Ég er í fastri vinnu hjá Ríkisútvarpinu, sem ég hef stundað í nær 34 ár. Ég hef ekki aðstöðu til að semja í vinnutím- anum. Eftir hinn langa átt stunda vinnudag (lengst vinnuvika á Norðurlöndum) e svo iðulega mörg önnur störl, sem þarf að sinna. Því er oft lítill tími til ritstarfa eða ann- arar skapandi listköllunar. Þau sjö leikrit, framhaldssög- ur fyrir börn, ljóð, lög o.fl., sem ég hef samið, eru því samin á þeim tíma, sem á að heita frítími, svo sem þessum fasta sumarleyfismánuði o.s.frv. Þess vegna svara ég: — Já, vissulega hef ég áhuga á sjóð- um, vegna þess að ég hef áhuga á ritstörfum. Sjóðurinn gæti veitt mér tíma til að skrifa. Því verða sjóður og ritstörf ein sameiginleg heild í mínum huga. Ingibjörg Þorbergs Þótt ég teljist fremur til nýliða innan samtaka RSÍ sótti ég um ritlaun í fyrra til þess að geta tekið mér frí frá störfum til að sinna ákveðnu verkefni. Ég fékk neitun þá. Endurnýjaði ég svo umsókn mína í ár og fékk aftur neitun. Því bíður það verkefni og þeirri hugmynd hefur mér ekki ennþá gefist tími til að festa á blað og vinna úr. Ef til vill verður tíminn farinn að eyða þeirri hugmynd svo, að ég verð að láta hana mást út, eins og reyndar oft áður. Ég vil ákveðið taka fram, að persónulega er ég ekki á móti neinum þeirra listamanna er ritlaunin hlutu, og tel ég þá vera launanna fyllilega verðir. Hitt er svo annað mál, að það eru einnig margir aðrir, og vissulega hefur úthlutunar- nefndinni verið mikill vandi á höndum. Líti maður á nöfnin í tveim hæstu flokkunum í fyrra og nú, vaknar sú spurning hvort hægri menn séu svona miklu lakari rithöfundar en þeir vinstri ... Mín skoðun er sú, að réttlæti eigi að ráða en ekki pólitískar skoðanir. Einhvern veginn virð- ist það þó vera svo, að ýmsir séu alltaf og alls staðar í náðinni, en aðrir útilokaðir frá öllu. Hvaða listamaður vildi ekki geta hlýtt sinni köllun og helgað sig listinni eingöngu? — Verið atvinnulistamaður ... Aldirnar kveða svo upp dóm- inn: Hvað er gott og hvað er slæmt. — Hvað er list og hvað er ekki list. Með vinsemd og virðingu. Ingibjörg Þorbergs. Orðsending til Ingimars Erlends Sigurðssonar í Morgunblaði 29. apríl læt- urðu frá þér fara, innanum annað bull, dálítil ummæli sem snerta mig. Þú segir þar um Launasjóð rithöfunda: „í efstu flokkunum bæði í fyrra og í ár eru einvörðungu rithöfundar sem eru utan í eða innan í einum ákveðnum stjórnmála- flokki, þ.e. Alþýðubandalaginu.“ Ég er einn þessara rithöfunda og vildi mega gera við þetta stutta athugasemd. Stjórn- málaskoðanir mínar eru nokkuð sem þú ættir að láta í friði. Þær eru ekki á þínu valdi fremur en þær eru á valdi Alþýðubanda- lags, Framsóknar, Ihalds eða Krata. Þetta eru nefnilega rnínar skoðanir. Upphlaup faglegra og mór- alskra vanmetagemlinga undir forystu fáeinna lífsþreyttra fas- ista sem nú þola það ekki lengur að starfsaðstaða listamanna fari eftir neinu öðru en pólitísk- um lit, það upphlaup mun dæma sig sjálft. Og það verður með ámátlegri sjálfslýsingum sem komið hafa frá íslenskum höfundum. Nær væri ykkur raunar að hætta nú að gera fólki upp skoðanir til að hafa af því viðurværið og hugsa frekar um eitthvað sem þið skiljið betur — Þorgeir Þorgeirsson til dæmis peninga. Á 25 ára starfsferli hefi ég fengið 25 mánaða laun úr Launasjóði rithöfunda. Þetta fé hefi ég fengið undanfarin þrjú ár. Út- gefin verk mín á þeim tíma munu hafa fært ríkissjóði um 65 mánaða laun í söluskattinum einum. Þetta tel ég æskileg samskipti og fæ ekki skilið hvernig það ætti að stefna lýðræðinu í landinu útí fen og ógöngur — einsog þið segið — þó slíku mætti halda eitthvað áfram. Það væri semsé jafn óhag- kvæmt fyrir mig og ríkissjóð ef þessari samvinnu yrði nú hætt fyrir tilmæli einhverra póli- tískra uppskafninga og vit- firrtra talentleysingja í opin- beru taugakasti. Séu einhverjir í barlómskór ykkar sem boðið geta ríkiskass- anum uppá jafn hagkvæm við- skipti væri ykkur nær að efna til slíks fremur en reisa kröfur um það að ríkissjóður skaði sig stórlega til þess eins að kasta mér útí örbirgð vegna einhverra skoðana sem ykkur þóknast að gera mér upp. Semsé: Hugsið og talið um eitthvað sem þið skiljið. Þá verðið þið betri manneskjur. Þorgeir Þorgeirsson. Endurbætur á afísingar- búnaði jarð- stöðvarinnar AÐ undanförnu hefur staðið yfir athugun á afísingarbún- aði loftnetsins á jarðstöðinni Skyggni. Tilefni þessara at- hugana var, að nokkrar hita- mottur loftnetsins brunnu, og ákvað því framleiðandi loft- netsins að auka kröfur þær sem settar höfðu verið fram áður af hans hálfu um ein- angrun þessa búnaðar. Verktaki hóf aðgerðir á staðnum til að auka einangr- unargildið með álímingu ein- angrunarbands að eigin vali án samráðs við byggingar- nefnd jarðstöðvarinnar. Bygg- ingarnefnd stöðvaði verkið á þeim forsendum að kanna þyrfti hvort upphafleg ein- angrun væri gölluð og hvort aðferð sú sem verktaki beitti væri haldbær. Hafa síðan verið gerðar athuganir á einangrunarefn- inu og jafnframt kannað hvort hægt væri að endurbæta gerð hitamottanna. Komið hefur í ljós að afhendingartími end- urbættra hitamotta er slíkur að opnun jarðstöðvarinnar mundi frestast fram á vetr- armánuði, ef ákveðið væri að skipta þeim út. Er það mat póst- og síma- málastjóra og nefndarinnar að samþykkja verði tillögur framleiðanda um endurbætur gegn ítarlegri og framlengdri ábyrgð á afísingarbúnaðinum, enda sé tryggt að verkið við þessar endurbætur hafi ekki í för með sér skemmdir á loft- netinu. Verktaka hefur samkvæmt framansögðu verið falið að halda verkinu tafarlaust áfram og að tímasetja jafn- framt síðustu verkin við stöð- ina með það í huga að hægt verði að opna hana sem fyrst. (Fréttatilkynning). Þormóöur rammi: Greiddi 1100 millj. i vinnulaun Siglufirði 29. apríl. FYRIRTÆKIO Þormóður rammi greiddi Siglfirðingum 1100 milljónir i vinnulaun í fyrra. Má af þessu sjá hversu þarft fyrirtækið er okkur Sigl- firðingum. — m.j. Landssamband iönverkafólks: Látil framleiðni ekki verkafólki að kenna 4. þing Landssambands iðn- verkafólks haldið í Reykjavík 25.-26. apríl 1980 mótmælir harð- lega að íslensku verkafólki sé kennt um litla framleiðni og telur að þar sé fyrst og fremst um að kenna skipulagsleysi, gömlum og úreltum vélum, lélegu hráefni og skilningsleysi atvinnurekenda á aðbúnaðarmálum verkafólks á vinnustöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.