Morgunblaðið - 30.04.1980, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1980
Þýzk flotadeild
til Indlandshafs
Kíl, 29. april. AP.
VESTUR-bÝZK flotadeild fór frá
Kil í dag áleiðis til Indlandshafs
þrátt fyrir viðvaranir Rússa, en
mun halda sík í burtu frá hættu-
svæðinu á Persaflóa að sðgn land-
varnaráðuneytisins í Bonn.
Flotadeildin er skipuð tundur-
spillunum „Lútjens" og „Bayern“ og
hjálparskipunum „Coburg" og
Spessart." Skipin koma við í Brest á
Atlantshafsströnd Frakklands og í
Toulon við Miðjarðarhaf, en fer
síðan um Súezskurð til Karachi,
Bombay, Colombo, Diego Garcia og
Mombasa.
Rétt fyrir brottförina sakaði sov-
ézka fréttastofan Novosti Vestur-
Þjóðverja um hermannskutilhneig-
ingar sem stofnuðu öllum heiminum
í hættu og sagði að Vestur-Þýzka-
land gæti orðið skotmark í hefndar-
aðgerðum úr austri ef til hernaðar-
árekstra kæmi.
Landvarnaráðuneytið í Bonn
ítrekaði, þrátt fyrir vísbendingar
frá Washington um hið gagnstæða,
að þýzka flotaæfingin stæði í engu
sambandi við innrás Rússa í Afgan-
istan. Tekið var fram að þessi æfing
fjarri heimaslóðum væri ein af
mörgum ferðum sem vestur-þýzk
herskip færu á hverju ári og út-
heimtu mikinn undirbúning.
Aherzla var á það lögð að ferðin
hefði verið skipulögð áður en Rússar
gerðu innrásina í Afganistan.
Þýzku skipin eru væntanleg aftur
til Kílar og Wilhelmshaven í ágúst-
byrjun.
Frelsisbátar
fóru á hliðina
Key West. 29. april. AP.
YFIRVÖLD á Florida lögðu í gær-
kvöldi hald á þrjú skip úr „frelsis-
flotanum" sem hefur flutt þúsundir
flóttamanna frá Kúbu og banda-
ríska strandgæzian fann að minnsta
kosti 26 litla báta á hvolfi í kjöifar
mikils fárviðris.
í einum bátnum voru tvö lík.
Yfirmaður strandgæzlunnar hafði
áður sagt að merkilegt mætti heita ef
enginn biði bana af áhöfnum bát-
anna.
Skipstjóri rækjubáts sem var gerð-
ur upptækur í Key West sagði að
hann hefði hagnazt um 170.000 doll-
ara um helgina þegar hann flutti 260
flóttamenn, þar á meðal konu sem ól
barn á leiðinni.
Þetta gerðist
1978 — Stjórn Bangladesh kunn-
gerir að 70,000 múhameðstrúar-
menn hafi flúið til landsins frá
Burma vegna ofsókna.
1977 — Endir bundinn á olíuleka á
norska svæðinu í Norðursjó eftir
fjórar misheppnaðar tilraunir.
1975 — Víetnamstríðinu lýkur með
falli Saigon.
1972 — Norður-Víetnamar um-
kringja Quang Tri og Suður-
Víetnamar flýja.
1970 — Nixon forseti kunngerir
aðgerðir í Kambódíu.
1966 — Johnson forseti kunngerir
vopnahlé í Dóminikanska lýðveld-
inu.
1948 — Samtök Ameríkuríkja
(OAS) stofnuð.
1945 — Adolf Hitler fremur
sjálfsmorð í Berlín.
1926 — Allsherjarverkfallið mikla í
Bretlandi hefst.
1919 — Japanir fá ívilnanir Þjóð-
verja í Shantung, Kína, og Þjóð-
verjar ganga af fundi á Versala-
ráðstefnunni.
1917 — Brezkt herlið sigrar Tyrki
við Abatt-el-Adheim, Mesopotamíu.
1881 — Frakkar gera innrás í
Túnis frá Alsír og taka Bizerta.
1824 — Setuliðið í Lissabon gerir
uppreisn gegn Jóhanni VI og viður-
kennir Dom Miguel, bróður hans —
Egyptar taka Krít.
1803 — Bandaríkin kaupa Louisi-
ana og New Orleans af Frökkum.
1789 — Émbættistaka George
Washington, fyrsta forseta Banda-
ríkjanna.
1650 — Franskir uppreisnarmenn
semja við Spánverja.
1527 — Westminster-sáttmálinn
um bandalag Englendinga og
Frakka.
1524 — Chevalier Bayard felldur og
Frakkar hraktir frá Langbarða-
landi.
1506 — Englendingar og Hollend-
ingar semja um viðskipti, en Filip-
pus fríði neitar að staðfesta samn-
inginn.
Afmæli. J.L.David, franskur list-
málari (1748—1825) — Franz Le-
hár, ungverskt tónskáld (1870—
1948) — Júlíana Hollandsdrottning
(1909-).
Andlát. 1632 Tilly greifi, hermaður
— 1912 Wilbur Wright, flugmaður
— 1936 A.E. Housman, skáld.
Innlent. 1615 Konungsbréf gegn
Bob Graham, ríkisstjóri Florida,
lýsti yfir neyðarástandi í tveimur
héruðum sunnarlega í ríkinu og
kallaði út þjoðvarðliða til hjálpar um
3.500 flóttamönnum sem hafa komið
þangað undanfarna daga þrátt fyrir
viðvaranir yfirvalda. Graham lagði
fram 50.000 dollara af opinberu fé til
hjálpar flóttamönnum.
í logninu sem fylgdi fárviðrinu
lögðu margir bátar af stað frá
Florida í dag til Kúbu til að sækja
fleiri flóttamenn. í Havana var sagt
að rumlega 1.700 bátar væru í
Mariel-höfn og biðu þess að veður
lægði svo að hægt yrði að halda
flutningunum áfram. Útvarpið sagði
að engum bát hefði verið gert að fara
úr höfn meðan á fárviðrinu stóð.
Formaður sænska verkalýðssambandsins, Gunnar Nllsson (t.h.) kemur
ásamt varaformanni sambandsins, Lars Westerberg, til aðalstöðva
sambandsins i Stokkhóimi tii fundar með samninganefnd Iaunþega fyrir
fund sem talið var að gæti ráðið úrslitum á þriðjudagskvöld. Ef
samkomulag tekst ekki fyrir hádegi á miðvikudag verður sett verkbann á
800.000 verkamenn og búizt er við að verkfall 100.000 verkamanna í
viðbót hef jist 2. maí.
Haddad særðist
Tel Aviv, 29. aprll — AP.
SAAD Haddad, leiðtogi krist-
inna falangista i Líbanon, særð-
ist i dag þegar sprengja sprakk
skammt frá jeppa hans. Haddad
var ásamt nokkrum manna
sinna að elta palestfnska skæru-
liða, sem höfðu farið inn á
yfirráðasvæði hans. Allir sem í
jeppanum voru særðust en eng-
inn alvarlega. Haddad var
ásamt mönnum sfnum fluttur i
israelskri þyrlu til Haifa i
ísrael.
Jafntefli
í Mexíkó
Mexíkóborg, 29. apríl. AP.
PORTISCH og Spassky gerðu
jafntefli i 12. skákinni í einvígi
þeirra i dag. 13. skákin veröur
tefld á miðvikudag.
Portisch bauð jafntefli eftir 18.
leik og Spassky þáði boðið eftir
fimm mínútna umhugsun.
Báðir skákmennirnir hafa
fengið 5'A vinning. Sá hefði
sigrað sem fyrr hefði hlotið fimm
og hálfan vinning. Samkvæmt
leikreglum sigrar sá þeirra í
einvíginu sem næstur fær vinn-
ing.
Verkföllin í Svíþjóð
segja æ meira til sín
30. april
Frá fréttaritara Morgunblaðsins í Stokkhólmi. Sigrúnu Gísladóttur.
VERKFALL opinberra starfsmanna sem hefur staðið í fimm daga segir
meira til sín með hverjum deginum sem líður. Það eru ekki fleiri en 14.000
opinberir starfsmenn sem leggja niður vinnu en þeir hópar hafa verið
sérlega valdir og lama mikilvæga opinbera þjónustu.
Almennt yfirvinnubann er einnig í gildi ásamt banni við ráðningu nýs
starfsfólks. Atvinnurekendur hafa svarað með verkbanni sem útilokar í
dag 12.000 opinbera starfsmenn frá vinnu.
Spánverjum — 1594 Konungur
bannar viðskipti við Englendinga —
1873 Landshöfðingi stefnir Jóni
Ólafssyni — 1880 Póstskipið „Fön-
ix“ kemur með kistur Jóns Sigurðs-
sonar og konu hans til Reykjavíkur
— 1851 f. Indriði Einarsson — 1919
Erlendir togaramenn skjóta á
íslenzka sjómenn við Vestmanna-
eyjar — 1958 Brezkir fiskkaupmenn
krefjast herskipaverndar — 1968
Dómur í „smyglmálinu mikla“ —
1906 f. Þorvaldur Skúlason — 1908
f. Bjarni Benediktsson — 1898 f.
Loftur Bjarnason útgm.
Orð dagsins. Ekkert er annað hvort
gott eða slæmt, en hugsunin sker úr
um það — William Shakespeare,
enskur leikritahöfundur (1546—
1616).
Afleiðing þessa hefur orðið sú að
það er almenningur sem hefur orðið
verst úti:
Samgöngur hafa lamazt að mestu.
Allt flug liggur niðri. Fyrstu daga
verkfallsins var Kastrup-flugvöllur
bókstaflega kæfður en öllu flugi var
beint þangað. Eftir nokkra daga
neituðu Danir að afgreiða sænskar
flugvélar og nú lenda þær á Garde-
moun-flugvelli 50 km fyrir utan
Ósló, en óvíst er hve lengi þeir muni
afgreiða sænskar vélar.
Allar hafnir eru lokaðar nema
Hálsingborg, en það er eina opna
leiðin í S-Svíðþjóð. Mikið vandamál
og reiði hefur skapazt hjá bílstjór-
um flutningabíla sem bíða hundruð-
um saman við sænsku landamærin.
Ibúar stórborganna, og þá einkum
Stokkhólms, hafa orðið illa úti þar
eð neðanjarðarlestirnar, aðalsam-
gönguæðir fyrir hundruð þúsunda
manna til og frá vinnu, stöðvuðust
þegar á fyrsta degi verkfallsins.
Stokkhólmsbúar fóru ýmist hjól-
andi, gangandi og jafnvel á puttan-
um til vinnu. Aukin notkun einka-
bíla hefur og orsakað mikið umferð-
aröngþveiti í borginni.
í sjúkrahúsunum er að skapast
alvarlegt ástand, en þar er einungis
sinnt bráðatilfellum. Mörg dag-
heimili hafa orðið að loka og
skólarnir eiga í erfiðleikum með að
halda uppi fullri kennslu.
Vakið hefur gremju að lokað
hefur verið fyrir allar sendingar
sjónvarps nema fréttasendingu
tvisvar á dag. Aðeins ein af þremur
útvarpsstöðvum hefur fengið leyfi
til útsendinga.
Fæstir trúðu að kæmi til verk-
falla og enn færri gerðu sér í
hugarlund hvernig ástandið yrði, en
í Svíþjóð hafa ekki verið verkföll í
rúm 70 ár.
Mikið ber á milli. Ríkisstjórnin
neitar að blanda sér í samningana
meir en orðið er. Annan maí eru
boðuð enn fleiri verkföll og verk-
bönn þannig að ástandið getur átt
eftir að stórversna. Almennt er talið
að þar sem samningar tókust ekki í
síðustu viku sé ekki ástæða til
bjartsýni nú.
Nú á þriðjudagskvöld er beðið
eftir tilboði frá sáttanefnd en af
viðtölum við forystumenn launþega-
samtaka og atvinnurekenda má
ráða að þeir binda ekki miklar vonir
við að sættir takist.
Endurskoðun fjárlaga sýnir að
greiðsluhalli er enn meiri en gert
var ráð fyrir og ríkisstjórnin telur
að skera verði niður stórlega opin-
ber útgjöld.
í kvöld var einnig birt í sjónvarp-
inu skoðanakönnun SIFO og þar
kemur fram að aðeins 30% Svía eru
fylgjandi verkföllum.
Neita að hafa skotið
á íranska herflugvél
Teheran, 29. april. AP.
ÍRANIR héldu því fram í dag, að tvær bandarískar orrustuþotur af
flugvélamóðurskipi hefðu hafið skothríð á iranska gæzluflugvél yfir
Omansundi. Þar með sögðu þeir að í fyrsta skipti hefði komið til
hernaðarárekstra milli Bandaríkjamanna og írans síðan handarisku
gíslarnir voru teknir fyrir tæpum sex mánuðum. Bandaríska
landvarnaráðuneytið neitaði því, að nokkur skothrið hefði átt sér
stað.
Ráðuneytið sagði, að tvær F-14
flugvélar frá flugvélaskipinu Nim-
itz hefðu stöðvað íranska C-130
flugvél nálægt Hormuz-sundi og
fylgt írönsku flugvélinni aftur inn
í íranska lofthelgi. Sagt var, að
íranska flugvélin hefði flogið í
innan við 80 km fjarlægð frá
Nimitz og F-14 flugvélum verið
skipað að athuga málið.
íranska fréttastofan Pars haföi
eftir íranska herráðinu, að banda-
rísku flugvélarnar hefur hafið
skothríð á írönsku flugvélina, en
fjórar íranskar þotur verið sendar
á vettvang og þær hefðu „hrundið
árásinni." Haft er eftir hernum,
að bandarísku flugvélarnar hafi
breytt um stefnu þegar þotur
írana fylgdu gæzluflugvélinni aft-
ur til írans.
Teheran-útvarpið sagði, að
íranska herráðið hefði sagt að
heraflinn yrði að vera viðbúinn
auknum aðgerðum bandaríska
hersins í kjölfar tilraunarinnar til
að bjarga gíslunum.
TILRÆÐI
Jafnframt var gerð tilraun til að
ráða Sadegh Ghotbsadeh utan-
ríkisráðherra af dögum í Kuwait í
dag, en hann sakaði ekki. Lögregla
fann tvo bíla, sem voru notaðir í
árásinni, og sagði að þeir hefðu
verið fullir af vopnum og sprengi-
efni. Einn öryggisvörður Kuwait-
manna særðist lítilsháttar, tveir
grunsamlegir menn voru hand-
teknir og flugvelli og landamær-
um landsins var lokað.
íranska fréttastofan segir, að
annar bíllinn hafi fundizt utan við
sendiráð Iraks í Kuwait og farþeg-
arnir hafi flúið inn í sendiráðið.
írakar hafa sakað írani um tvær
nýlegar tilraunir til að ráða
írakska ráðherra af dögum í
Bagdad. Ghotbzadeh var á leið til
fundar við emírinn í Kuwait þegar
árásin var gerð.
Ghotbzadeh er á ferð um Mið-
austurlönd til að reyna að bæta
sambúð írans við Arabaríki. Blöð
hafa sagt, að Kuwait muni draga
taum íraka í deilum þeirra og
írana ef þær snúast upp í styrjöld.
STÓRSÓKN
Iransher hefur uppi viðbúnað til
undirbúnings stórsókn gegn upp-
reisnarmönnum Kúrda í Sannan-
daj. Borgarbúum var sagt í dag að
yfirgefa heimili sín og fara til
setuliðsins svo að stjórnarher-
menn, sem hafa tekið sér stöðu
víðs vegar í borginni, gætu barizt
við uppreisnarmenn Kúrda.
LÍKFLUTNINGUR
Umdeildur kirkjuleiðtogi,
grísk-kaþólski biskupinn Hilarion
Capudji, kom til Teheran í dag til
að taka í sína vörzlu lík banda-
rísku hermannanna, sem féllu í
tilrauninni til að bjarga gíslunum.
Capudji sagði, að hann mundi
fara með líkin til annars lands,
sem hann nefndi ekki, og afhenda
þau Rauða krossinum, sem síðan
mundi afhenda þau aðstandendum
hinna föllnu. Hann sagði, að hann
stæði í engu sambandi við Banda-
ríkin.
Bani-Sadr forseti hefur sagt, að
líkin verði afhent fulltrúum páfa,
Rauða krossinum og ríkisstjórn
Sviss.