Morgunblaðið - 30.04.1980, Page 13
MORGUNBLÁÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1980
13
Áttræðisafmæli:
Þorgerður _
Þorgilsdóttir
Hún Þorgerður Þorgilsdóttir á
Rauðalæk 19, starfsmaður Alþing-
is, er orðin áttræð í dag, 30. apríl
1980. Þetta mega teljast ótrúleg
tíðindi, því að sannarlega ber hún
ekki þann aldur utan á sér, þessi
kvika og kraftmikla kona.
Þorgerður Þorgilsdóttir fæddist
hinn 30. apríl aldamótaárið 1900 á
Stekkatúni, einu fimm býla sem
þá voru á Svínafelli í Öræfum. Að
henni stóðu rótgrónir skaftfellskir
ættstofnar í báðar ættir. Faðir
hennar var Þorgils Guðmundsson
bóndi, ættaður af Síðu, dótturson-
ur séra Páls Pálssonar prófasts í
Hörgsdal, en við hann er kennd
hin þekkta Pálsætt. Móðir hennar
var Guðrún Sigurðardóttir frá
Svínafelli, öræfskrar ættar, af-
komandi Jóns Einarssonar, bónda
og hagleiksmanns á Skaftafelli.
Þorgils lést hinn 27. apríl árið
1900 frá Guðrúnu konu sinni og
fjórum börnum. Þremur dögum
síðar fæddi ekkjan unga fimmta
barnið, dótturina sem í dag er
áttræð.
Guðrún Sigurðardóttir gafst
ekki upp við andstreymi og erfið-
leika. Hún bjó áfram á Stekkatúni
með börnum sínum. Þau lærðu
fljótt að vinna og hjálpa til eins og
tíðkast hafði í þúsund ár á íslensk-
um alþýðuheimilum. En vorið 1910
kom annað áfall. Elsti sonurinn
Sigurður, stoð og stytta heimilis-
ins, lést af völdum sjúkdóms.
Guðrún ákvað skömmu síðar að
bregða búi og flytjast með börnin
fjögur sem eftir lifðu í annað
hérað.
Það var í fardögum vorið 1911
sem fjölskyldan reið vestur yfir
Skeiðarársand og kvaddi hina
fögru Öræfasveit með ljúfsárum
endurminningum. Ferð Guðrúnar
ásamt yngri börnunum tveimur,
Gunnari og Þorgerði, var heitið
alla leið vestur í Skaftártungu.
Eldri börnin tvö, Sigríður og Páll,
sem nú voru orðin stálpaðir ungl-
ingar fóru nokkru styttra. Þau
urðu eftir og tóku til starfa á
Núpsstað og Rauðabergi í Fljóts-
hverfi.
Guðrún og yngri börnin settust
að í Eystri-Ásum í Skaftártungu,
hjá Sveini Sveinssyni bónda þar
og fjölskyldu hans. Þeir Sveinn og
Þorgils Guðmundsson voru báðir
synir dætra séra Páls í Hörgsdal
og hjá föður Sveins, séra Sveini
Eiríkssyni á Sandfelli í Öræfum,
höfðu þau Guðrún og Þorgils
kynnst og bundist tryggðabönd-
um. Á Flögu í sömu sveit, Skaft-
ártungu bjó Sigríður, systir Sveins
í Eystri-Ásum. Það var í samráði
við þessa náfrændur barnanna
sinna sem Guðrún hafði tekið sig
upp og flust vestur yfir sandinn.
Frá báðum heimilunum stafaði
mikilli hlýju til ekkjunnar og
barna hennar. Var þeim Gunnari
og Þorgerði tekið eins og væru þau
tvö systkini til viðbótar í hópi
barna Sveins Sveinssonar í
Eystri-Ásum.
Þarna ólst Þorgerður Þorgils-
dóttir upp frá 11 til 15 ára aldurs.
Þau ár eru næm mótunarár per-
sónuleikans og oftast við þau
bundnar óbrotgjarnar endurminn-
ingar. Svo varð og hér.
Þá lá leið Þorgerðar vestur yfir
annan sand, vestur í Mýrdal þar
sem hún dvaldist og starfaði í
fjögur ár, til 19 ára aldurs, lengst
af á myndarheimilinu í Suður-Vík.
Veturinn 1919-’20 var hún í
Reykjavík. Nú var svo komið að
nýtt hlutverk í lífinu kallaði,
hlutverk eiginkonu og móður.
Þorgerður Þorgilsdóttir giftist
árið 1920 Jóni Jónssyni frá Vík í
Mýrdal. Hann var af grónum
mýrdælskum ættum, sonur hjón-
anna Jóns Þorsteinssonar for-
manns og kaupmanns í Vík, og
Guðríðar Brynjólfsdóttur. Þau
ungu hjónin, Þorgerður og Jón,
Kökubasar og kaffi-
sala Svans á morgun
LUÐRASVEITIN Svanur er 50
ára á þessu ári. Ákveðið er að
minnast þessara tímamóta á ýmsa
vegu.
Tvær aukasýn-
ingar á
Stundarfriði
EKKERT íslenskt leikrit á stóra
sviði Þjóðleikhússins hefur fundið
annan eins hljómgrunn meðal
áhorfenda og STUNDARFRIÐUR
Guðmundar Steinssonar. Hafa
reyndar einungis tvær leiksýningar
á stóra sviðinu fengið meiri aðsókn
til þessa, en það eru Fiðlarinn á
þakinu og My Fair Lady. Ætlunin va:
að ljúka sýningum nú í apríl, rösku
ári eftir frumsýningu, en aðsóknin á
tvær síðustu sýningarnar varð slík
að húsið var fullt upp í rjáfur rétt
einu sinni. Þess vegna verða tvær
aukasýningar á þessum vinsæla leik,
sú fyrri sunnudaginn 4. maí og
verður það 75. sýningin, og sú síðari
laugardaginn 10. maí. Verða þetta
allra síðustu sýningarnar.
(Fréttatilkynning.)
í mars voru tónleikar í Háskóla-
bíói, sem sýndu vel hve sveitin
hefur á skipa mörgum efnilegum
tónlistarmönnum. Hljóðfæraleik-
arar lúðrasveitarinnar eru 55.
Innan sveitarinnar starfar 18
manna „Big band" sem leikið
hefur að undanförnu í Þórskaba-
rett í Þórskaffi, við mjög góðar
undirtektir.
í lok júní mun sveitin fara í
tónleikaför til Noregs, en þá för
verða félagarnir að kosta sjálfir.
1. maí verður efnt til kaffisölu
og kökubasars kl. 14—18 í æfinga-
húsnæði lúðrasveitarinnar að
Vonarstræti 1, til ágóða fyrir
utanförina.
Fólki gefst kostur á að hlýða á
leik lúðrasveitarinnar undir
stjórn Sæbjörns Jónssonar, við
kröfugönguna og síðar um daginn
fyrir utan Vonarstræti 1.
Við hvetjum fólk til að styrkja
þetta unga tónlistarfólk með því
að koma í æfingahúsnæðið Von-
arstræti 1 og fá sér kaffi.
(Fréttatilkynning).
settust að í Vík og bjuggu þar í 18
ár, til 1938. Þá fluttust þau til
Reykjavíkur. Þau áttu ekki skap
saman þegar til lengdar lét og
slitu samvistum skömmu eftir
1950.
Þeim Þorgerði og Jóni varð
fjögurra barna auðið. Börnin eru
Sigrún, vefnaðarlistakona og
kennari, Þorgrímur, málmsteypu-
maður, Hafsteinn, starfsmaður
Kassagerðar Reykjavíkur, og
Bryndís, símavörður í Alþingi.
Börn Þorgerðar eiga 13 börn og
þau barnabörn hennar eiga nú
þegar 14 börn. Þorgerður er nú, á
áttræðisafmæli sínu, ættmóðir
hóps sem telur 31 persónu.
Meðal margra starfa sem Þor-
gerður Þorgilsdóttir hefur lagt
stund á um ævina er húsmóður-
starfið að sönnu aðalstarfið. Því
hefur hún gegnt í sex áratugi. Hún
sá um heimili manns og barna.
Dóttursonur hen'nar, Sigurður Vil-
berg Sigurjónsson læknir, ólst upp
hjá henni. Hún heldur heimili
fyrir Hafstein son sinn, sem er
ókvæntur.
Mörg önnur störf hefur Þor-
gerður unnið. Hún var lengi vöku-
kona á sjúkrahúsum í Reykjavík.
Síðustu 12 árin hefur hún unnið á
Alþingi við fatagæslu. Hún hefur
haft mikla ánægju af þeim störf-
um og eignast marga kunningja.
Hún lætur þar senn af störfum af
sömu ástæðu og þessi afmælis-
grein er skrifuð.
Það er ekki auðvelt verk að lýsa
Þorgerði Þorgilsdóttur í stuttu
máli. Stafar þetta einfaldlega af
því að hún býr yfir svo mörgupi
eftirminnilegum eiginleikum. ifng
mun hún hafa verið lagleg stúlka
og myndarleg. Myndarskapur, ein-
stakur dugnaður, kjarkur og
sjálfsbjargarviðleitni hefur jafn-
an einkennt hana sterklega. Hún
er áhugasöm og lifandi í hugsun,
einhvern veginn síung í anda og
fylgist af bjartsýni með framför-
um manna í samgöngum og tækni.
Hefur hún ferðast talsvert á síðari
árum og skoðað heiminn, fór t.d.
hina frægu Baltikuför haustið
1966 sér til mikillar ánægju og
fróðleiks. Hún er viljasterk, skap-
mikil og marksækin. Tryggð er
henni í blóð borin og upplag gefin.
Ung lærði hún að sýna húsbænd-
um sínum trúskap og hollustu.
Frænd- og vinrækin er hún með
afbrigðum. Má þar minnast þess
hversu vel hún hugsaði um Sigríði,
systur sína, háaldraða mörg síð-
ustu æviárin en Sigríður lést í
ágúst 1978. Þorgerður er kven-
skörungur í gömlum og góðum
íslenskum stíl.
Enda þótt lífið hafi ekki alltaf
brosað blítt til Þorgerðar Þorgils-
dóttur hygg ég að segja megi að
hún hafi verið mikil gæfumann-
eskja. Hún hefur átt því láni að
fagna að njóta góðrar heilsu og
vera sterkbyggð andlega sem lík-
amlega. Hún á sér stóran og
myndarlegan hóp afkomenda og
fjölda tryggra vina og góðra kunn-
ingja. Hún hefur verið starfsöm
og haft ánægju af störfum sínum.
Hún skilur því eftir sig mörg spor.
Til þess er gott að hugsa þegar
litið er yfir farinn veg.
Þeir verða án vafa margir sem
vilja gleðjast með Þorgerði Þor-
gilsdóttur á áttræðisafmæli henn-
ar. Einn úr þeim hópi — sá sem
þetta skrifar — vill hér með óska
henni innilega til hamingju með
vegferðina til þessa og tímamótin
í dag og óska þess jafnframt að
hún megi enn og sem lengst lifa
hér meðal okkar jafn síung og
kvik og hún hefur verið fyrstu
áttatíu æviárin.
Andri ísaksson.
Þjónustuiienð
Vo)volB80
Þeir félagarnir Kristján
Tryggvason og Jón Sig-
hvatsson eru lagöir af staö í
þjónustuferö. Feröin felst í
skipulögöum heimsóknum til
umboösmanna og þjónustu-
verkstæöa Volvo um allt
land.
Þeir Kristján og Jón veröa
akandi á splúnkunýjum Volvo
345, beinskiptum. Er mein-
ingin aö þeir sýni nýja bílinn á
viökomustööum feröarinnar.
Á morgun, fimmtudaginn 1.
maí, veröa þeir félagar á ferö um
Austfiröi. Þeir sýna Volvo 345
fyrst á Djúpavogi kl. 11 — 12, viö
Kaupfélagið, síöan á Reyöarfiröi,
viö Kaupfélagiö, kl. 15—16.
Á Egilsstöðum sýna þeir bílinn kl.
18—19 viö Fell s.f., og einnig kl.
10—11 f.h. þann 2. maí.
VOLVO
VELTIR HF
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200