Morgunblaðið - 30.04.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1980
25
+ í septembermánuði síðastl. voru þessir Siamstvíburar aðskildir með skurðaðgerð. Þeir eru nú
þriggja og hálfs árs gamlir og eiga heima á Taiwan (Formósu). Um leið og læknarnir framkvæmdu
hina vandasomu skurðaðgerð, voru gervifætur „settir undir" litlu bræðurna, sem heita Chang
Chung-yi og Chang Chung-jen. — Tvíburarnir eru nú sem óðast að komast upp á lagið með að ganga.
— Myndin er einmitt tekin af þeim á gönguæfingu á hjúkrunarheimili. Þeir eru komnir af
spítalanum, en þar sögðu læknar að tviburarnir væru að öðru leyti rétt skapaðir og í alla staði eðlileg
börn.
félk í
fréttum
+ Kanadiskur læknir, dr. Robert Newton, sem er sérfræðingur í
plastskurðaðgerðum hefur skýrt frá því, en hann starfar í
Toronto, að hann hafi frá því i júlimánuði siðastl. gert um 30
plastskurðaðgerðir með leysigeisla, hafi hann beitt leysigeisla-
aðgerð gegn fæðingarblettum. Ýmist hafi hann eytt þeim eða þá
tekizt að lýsa fæðingarblettina. Þessi mynd birtist fyrir skömmu
i kanadiska stórblaðinu Globe and Mail er Newton læknir beitir
leysigeisiatæki sínu á andlit ungrar stúlku, Söndru Oswald, við
að fjariægja fæðingarblett.
+ Hér hittast glaðbeittir kollegar í fundarbyrjun utan
ríkisráðherrafundar Efnahagsbandalagsríkja, sem nýlega
var haldinn í Luxemburg. — Hlæjandi lengst til vinstri er
Carrington utanríkisráðherra Breta. Á móti honum, sá
sem heldur um hökuna, er utanríkisráðherra Frakka,
Jean Francois-Poncet, við hlið hans, lengst til hægri, er
utanríkisráðherra V-Þýzkalands, Hans Dietrich Gensch-
er. — Og fjórði ráðherrann á myndinni (annar frá v.) er
ráðherra í þýzku stjórninni.
+ Ashraf Pahlavi tvíburasystir
Iranskeisara vinnur nú að því að
koma út bók „Faces in a Mirror
(Andlit í spegli). í henni heldur
hún uppi vörn fyrir bróður sinn
og stjórnarhætti hans. Þar er og
gagnrýni á hendur ýmsum þeim,
sem hún telur hafa svikið bróð-
ur sinn, en meðal þeirra eru
Carter Bandaríkjaforseti og
Waldheim aðalritari Sameinuðu
þjóðanna. Hún býr nú í New
York borg í sömu íbúð og
snyrtifræðingurinn frægi Hel-
ena Rubinstein átti eitt sinn.
Keisarasystirin er nú sextug, og
er gift írönskum kaupsýslu-
manni (þriðja hjónabandið).
Þau hittast sjaldan, en hann er í
París. Hún á tvö börn á lífi úr
fyrri hjónaböndum sínum, 39
ára son og 29 ára dóttur. Son
sinn missti hún 34 ára gamlan í
fyrravetur í desember. Hann var
þá skotinn til bana á götu í
París. Fyrir nær 3 árum varð
hún sjálf fyrir árás á Miðjarö-
arhafsströnd Frakkiands, er
hún ók þar í bíl. Var skotið á bíl
hennar. Hún slapp ómeidd en
fylgdarkona hennar beið bana.
Hún tók þetta ritverk þeim
tökum að hún talaði efni þess
inn á segulband og vann að því í
heila sjö mánuði en afhenti
böndin síðan þeim sem ritstýra
eiga bókinni.
Ashraf prinsessa er nýlega
komin til New York, frá Egypta-
landi. Þangað fór hún til að
heimsækja tvíburabróður sinn.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 14., 17. og 20. tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1980, á Holtagerði 11 —
hluta —, þinglýstri eign Samúels Hreinssonar, fer
fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 7. maí 1980
kl. 10.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Buxur á alla aldurshópa
Þessi glæsilega bíll er til sýnis og sölu.
Nánari uppl. hjá sölumanni.
G/obus?
Lágmúla 5, Reykjavík.
Sími 81555.