Morgunblaðið - 30.04.1980, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1980
• Pétur í miklum ham i gærkvöldi.
Pétur skaut
Feyenoordí
úrslitaleikinn
Bikarkeppni H.S.Í.
Úrslitaleikur KR
og Hauka í kvöld
Úrslitaleikurinn í bikarkeppni HSÍ fer fram i
Laugardalshöllinni í kvöld og hefst hann klukkan
20.00. Er hér að sjálfsögðu um aukaleikinn að
ræða.
Ekki þarf að minna á, að fyrri leik liðanna lauk
með jafntefli, annars hefði ekki þurft aukaleikinn.
Ástæða er til að ætla að stemmningin á leiknum
verði enn meiri heldur en verið hefði vegna hita í
mönnum. Hita vegna látanna að koma leiknum á,
en leikmenn Hauka mættu galvaskir til leiks á
sunnudagskvöldið og í stað þess að berja augum
fulla Laugardalshöll af áhorfendum blasti við
flokkur manna í borðtennis.
Rossi fyrir rétt
Krankl
skoraði
tvívegis
Austurrski markakónKur-
inn Ilan.s Krankl mátti vera
ánægður með framlag sitt er
lið hans Vienna sigraði
Rapid 4—0. en Krankl Iék
einmitt með Rapid áður en
hann fór á sínum tima til
Barcelona. Krankl skoraði
tvívegis gegn Rapid og var
potturinn og pannan í öllum
sóknarleik Vienna.
Kylfingar
skoða heims-
meistara
Golfvertíðin fer senn að
hefjast og hörðustu menn
eru jafnvel löngu byrjaðir
að berja kúluna. Margir
íslenskir kyifingar geta þó
ekki beðið eftir sumrinu þó
að vor sé komið og stór
hópur fer senn á vegum
Samvinnuferða til írlands
að berja bolta. Þessir kapp-
ar fá óvæntan „bónus“, þ.e.
a.s. þeim býðst að sjá lands-
leik í knattspyrnu milli
heimsmeistara Argentínu og
íra sem fram íer í Dyflinni
17. maí.
Þingeysk ein-
okun sem fyrr
Íslandsglíman 1980 fór
fram að þessu sinni að Laug-
um í bingeyjarsýslu. A
heimavclli tryggðu þeir Pét-
ur Ingvason og tvíburabróð-
ir hans Ingvi Ingvason sér
tvö fyrstu sætin. Þeir hefðu
sigrað hvar sem leikið hefði
verið, það er venjan, það
þarf ekkert að spyrja að
leikslokum á glimumótum
þar sem þeir hafa keppt,
aðeins hvor þeirra varð
fyrstur og hvor annar.
Það var Pétur sem krækti
i Grettisbeltið að þessu
sinni, en Ingvi bróðir varð
annar. Eyþór Pétursson
sveitungi þeirra Ingvasona
varð þriðji.
Á að banna
svæðisvörn?
Eitt af þvi sem stjórn KKÍ
hefur rætt um á fundum
sinum að undanförnu vekur
nokkra athygli. í stuttu máli
er verið að athuga hvort
ekki sé til einhver leið til
þess að koma i veg fyrir
notkun á svæðisvörninni,
„án þess að gengið sé á
almenn mannréttindi“ eins
og Stefán Ingólfsson for-
maður KKÍ sagði aðspurður
um mál þetta.
Þetta er athyglisvert mál.
þvi að svæðisvörnin hefur
fengið það orð á sig að
skemma körfuknattleik og
gera leiki hreinlega leiðin-
lega. Verður fróðlegt að sjá
hvaða tillögur koma
fram... - gg.
Golfmót í
Grafarholti
Fyrsta mótið sem fram fer
á Grafarholtsvelli fer fram
1. maí og er það einnar kylfu
keppni. Er mót þetta ein-
göngu fyrir félagsmenn.
Sundknatt-
leikur
Dómaranámskeið í
sundknattleik verður haldið
að Fríkirkjuvegi 11 5. maí
næstkomandi og hefst það
kl. 20.00. Námskeiðið stend-
ur öllum opið.
PÉTUR Pétursson lék i gær-
kvöldi með Feyenoord á nýjan
leik eftir að hafa misst úr einn
leik vegna veikinda. Feyenoord
mætti þá nágrannaliðinu Spörtu
i undanúrslitum bikarkeppninn-
ar. Sparta hafði unnið fyrri
leikinn 1—0, en nú gersigraði
Feyenoord nágranna sína og Pét-
ur Pétursson var þar lykilmaður.
Pétur átti sannkallaðan stórleik
gegn Spörtu þar sem hann var allt
í öllu og skoraði tvívegis í 4—0
sigri liðsins og átti stóran þátt í
hinum mörkunum tveimur sem
Jan Peters skoraði. Feyenoord
sigraði Spörtu því samanlagt 4—1.
Feyenoord mætir Ajax í úrslit-
unum, en Ajax náði í gærkvöldi
jafntefli á útivelli gegn PSV Eind-
hoven og vann þannig samanlagt
Enska
knatt-
spyrnan
Nokkrir leikir fóru í gærkvöldi
fram í ensku knattspyrnunni.
Einnig í þeirri skosku og þar ber
helst að geta þess, að með því að
ná jafntefli skaust Aberdeen einu
stigi upp fyrir Celtic, en félögin
hafa nú leikið jafnmarga leiki.
Úrslit urðu annars þessi:
1. deild:
Coventry — Aston Villa 1—2
Sotuhampton — Bristol C. 5—2
2. deild:
Oldham — West Ham 0—0
Skotland, úrvaldeild:
Dundee Utd. — Aberdeen 1—1
Hibernian — St. Mirren 2—1
Þórsarar í kvennaflokki
tryggðu sér um helgina þátttöku-
rétt í 1. deild að ári. Þær unnu
stöllur sínar í Ármanni í auka-
leik sem liðin háðu um sa-tið í
deildinni 18—17. Þessi leikur fór
fram á Akureyri cn liðin höfðu
áður leikið í Reykjavík og þar
unnu Þórsarar einnig.
Leikurinn var ekki vel leikinn
og var mikil harka í honum allan
tímann og mikið um stimpingar,
og var fátt sem gladdi augað
verulega. Leikurinn var hins vegar
mjög spennandi og skildu leiðir
sjaldan með liðunum. Sigur Þórs-
ara var verðskuldaður.
3—2, vann heimaleikinn 2—1. PSV
sótti látlaust gegn Ajax og Paul
Posthuma kom liðinu yfir með
góðu marki í fyrri hálfleik. Ajax
gafst ekki upp, liðið kom meira
inn í leikinn er á leið og rétt fyrir
leikslok var það Dick Schoenaker
sem jafnaði fyrir Ajax og fleytti
liðinu í úrslitaleikinn. Úrslitaleik-
urinn fer fram 17. maí, en ekki
hefur enn verið ákveðið á hvaða
leikvelli.
Víkingur
lagði KR
Víkingur sigraði KR á Reykja-
víkurmótinu í knattspyrnu í gær-
kvöldi með 6 mörkum gegn 5.
Þarf vart að taka fram að um
bráðabana var að ræða. Staðan
eftir venjulegan leiktíma var
2—2, Sverrir Herbertsson skor-
aði bæði mörk KR, en þeir
Aðalsteinn Aðalsteinsson og
Ragnar Gíslason svöruðu fyrir
Víking. Staðan í hálfleik var
1-0 fyrir KR.
Heimsmet
#■ m r m m
i spjoti
Ruth Fuchs frá Austur Þýska-
landi setti í gærkvöldi nýtt og
glæsilegt heimsmet i spjótkasti,
er hún keppti á móti í Split í
Júgóslavíu. Varpaði hún spjótinu
69,96 metra, en gamla metið átti
hún sjálf, 69,52 metra.
Bestar í liði Þórs voru þær
Harpa Sigurðsdóttir og Magnea
Friðriksdóttir. Hjá Ármanni kvað
mest að Guðrúnu Steinþórsdóttur.
Dómarar voru þeir Einar Sveins-
son og Helgi Gunnarsson og át.tu
þeir mjög slæman dag sem setti
svip sinn á leikinn.
Mork Þórs: Ilarpa SijfurOsdóttir 10 (9v).
Maunea FriAriksdóttir 2. Freydis Ilalldórs-
dóttir 2. i>órunn SÍKurAsdóttir 2. Valdls
llailKrímsdóttir 1 cik öuAnv BerKVÍnsdóttir
Mórk Armanns: BuArún SÍKþórsdóttir 7
(2v). Erla Sverrisdóttir 6 (fiv). Katrin
Axelsdóttir 2. Svava Jónsdóttir 1 ok GuAný
GuAjónsdóttir 1.
PAOLO Rossi, ítalski landsliðs-
miðherjinn í knattspyrnu, hefur
verið ákærður fyrir mútuþægni og
fleira ótilhlýðilegt varðandi
knattspyrnuleiki á þessu keppn-
istímabili. Ásamt Rossi var 37
öðrum, þar af 32 knattspyrnu-
Það gekk á ýmsu á ársþingi
KKÍ sem haldið var um helgina
og höfðu margir beðið þingsins
með eftirvæntingu vegna þeirra
deilumála sem upp komu í körfu-
knattleiknum í vetur. Þingið stóð
yfir bæði á laugardag og sunnu-
dag „og ekki veitti af“ eins og
Stefán Ingólfsson formaður KKI
orðaði það i viðtali i gær. Fram-
haldsþing verður í haust. þar sem
ekki tókst að gera út um öll mál
um hclgina.
Ymsar breytingar voru gerðar í
reglugerðum eins og vænta mátti
og má þar fyrst nefna að engin
NÝVERIÐ lauk skólamótum
Körfuknattleikssambandsins.
Keppt var i þremur flokkum.
I yngri flokki grunnskóla, 12
og 13 ára, sigraði Langholtsskól-
inn í Reykjavík.
í eldri flokki grunnskóla, 14
og 15 ára, sigraði Grunnskóli
Njarðvíkur á hagstæðri skorun,
þó Grunnskóli Sauðárkróks, sem
lenti í öðru sæti og Hagaskóli
sem hafnaði i þriðja sæti hlytu
mönnum, gert að mæta fyrir rétt
af sömu sökum. Réttarhöldin fara
fram fljótlega. ítölum liggur á að
breiða yfir hneykslismál þetta
sem allra fyrst vegna úrslitanna í
Evrópukeppni landsliða, en loka-
keppnin fer fram á Ítalíu í júlí.
félagaskipti mega fara fram eftir
15. febrúar ár hvert og gildir það
bæði fyrir íslenska og erlenda
leikmenn. Þá má geta þess, að
erlendir leikmenn teljast nú lög-
legir með félögum sínum um leið
og keppnisleyfi hefur verið gefið
út af KKÍ. Sama gildir um íslend-
inga sem skipta um félag áður en
keppnistímabilið hefst, en eftir að
það er hafið verða íslendingar
ekki löglegir með nýjum liðum
fyrr en mánuði eftir að félaga-
skipti fóru fram. Þá var títtnefnd-
um agareglum gerbreytt og gert
að hluta af dómskerfi KKÍ. 88-
jafn mörg stig.
í keppni framhaldsskóla sigraði
Flensborgarskóli í Hafnarfirði í
úrslitakeppni. Menntaskólinn í
Reykjavík og Menntaksólinn við
Sund komust einnig í úrslita-
keppnina.
Keppt var um þrjá farandbik-
ara, sem Mjólkursamsalan í
Reykjavík gaf.
35 skólalið með nálægt 300
keppendum tóku þátt í mótunum.
Lið Flensborgarskóla sem sigraði i keppni framhaldsskólanna.
Þór áfram í 1. deild
Agareglunum
var gerbreytt
35 skólalið tóku
þátt í körfuknatt-
leikskeppni skólanna
j