Morgunblaðið - 20.06.1980, Síða 5

Morgunblaðið - 20.06.1980, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ1980 5 „Hræöilegt að vita af barninu í vélinni44 Emma Pálsdóttir ásamt dóttur sinni, Hafdisi, i Eyjum i gær. Ljósmyndir Mbl. SÍKurueir. „ÞEGAR mér var sagt, að vélin ætti að nauðlenda í Keflavík, varð mér gjörsamlega orðfall — ég gat ekkert sagt, var alveg búin,“ sagði Emma Pálsdóttir, móðir Hafdísar Krist- jánsdóttur, sem er 11 ára gömul, en hún var meðal farþega í Fokker- flugvélinni, sem nauðlenti á Kefla- víkurflugvelli. „Það var hræðilegt að vita af barninu í vélinni. Hún var ein. Var að koma úr Vindáshlíð," sagði Emma. Hún frétti rétt um áttaleytið að vélin ætti að nauð- lenda. „Ég fór út á flugvöll um sexleytið til að taka á móti Hafdísi. Þá sá ég vélina og mér fannst skrítið hvað hún flaug hátt yfir. Ég spurðist fyrir hvað gerst hefði, en fátt var um svör. Ég fór heim og hringdi út á flugvöll. Þeir sögðu mér að hringja um sjöleytið. Ég hringdi þá, en var þá sagt að hringja um áttaleytið. Mér datt þá í hug að þeir væru að eyða eldsneyti. Ég hringdi síðan kl. 8 og var þá sagt, að vélin væri um það bil að nauðlenda. Mér varð ofsalega mikið um — en sem betur fer fór allt vel,“ sagði Emma. „Var hrædd um að dekkin færu ekki niður“ „Þetta var ekkert ofsalega skemmtilegt," sagði Hafdís Krist- jánsdóttir, 11 ára gömul, í viðtali við Mbl. í gær eftir að Fokker-vélin hafði nauðlent á Keflavíkurflugvelli. En hún lét sig samt hafa það að fara með vél síðar um kvöldið til Eyja. „Ég var ekkert ofsalega hrædd þegar við flugum þá — var jú hrædd um að dekkin færu ekki niður,“ sagði Haf- dís um ferðina síðar um kvöldið. En þá gekk allt eins og í sögu. Hvernig svafstu eftir að þú komst heim, dreymdi þig nauðlendinguna? „Ég svaf vel og dreymdi ekkert. Hins vegar finnst mér nú eins og þetta sé í draumi, en flugfreyjan var mjög góð við okkur.“ Ætlarðu að hætta að fljúga? „Nei, nei, ég ætla ekki að hætta að fljúga. Svona nokkuð gerist svo sjaldan," sagði Hafdís. „Hef aldrei lifað lengri klukkustund né erfiðari“ „Þegar mér var sagt um sjöleytið að vélin ætti að nauðlenda, fór allt úr skorðum hjá mér. Ég hef aldrei lifað lengri klukkustund né erfiðari og margt flaug um huga mér. Það var ólýsanleg stund þegar ég horfði á sínum tíma yfir eldsumbrotin í Eyjum — en það snart mig ekki eins og þetta. Þessu verður ekki með orðum lýst,“ sagði Jón Sighvatsson, faðir Ingibjargar, en hún var meðal farþega í Fokker-vélinni. „Það var guðs mildi að allt fór vel og ég vil skila sérstöku þakklæti til flugáhafnar vélarinnar. Það er greinilega lipurt og traust fólk. Annars á ég erfitt með að rifja þetta upp. Konan mín vinnur úti og var að heiman þegar þetta gerðist. Ég var þvi með drengina okkar tvo, 4 ára og hálfs annars árs gamla. Ég var ýmist í símanum eða að huga að þeim. Ég talaði við ættingja og eins var talsvert hringt í mig vegna vinnunnar — þá reyndi maður að vera eins eðlilegur og kostur var. Það var mikill selskapur þegar síðari vélin kom. Strákarnir í ÍBV- liðinu komu með vélinni og höfðu með sér bikarinn sem þeir unnu fyrr um kvöldið, en við læddumst á brott með okkar hugsanir," sagði Jón. Fór að bera út Moggann í morgun „Ég var ekkert mjög hrædd þegar við fórum með síðari vélinni til Eyja InKÍbjorK fór að brra MorirunblaAið út i irær. — en ég varð fegin þegar dekkin fóru niður yfir Eyjum," sagði Ingibjörg Jónsdóttir, 10 ára gömul, dóttir Jóns Sighvatssonar. „Ég svaf vel í nótt og fór síðan í dag að bera út Moggann/ sagði Ingibjörg. „Ég varð fegin þegar við vorum lent og ég sá mömmu og pabba." Ætlarðu að fljúga aftur? „Já, það geri ég.“ Þú ætlar kannski að verða flugfreyja þegar þú verður stór? „Nei, ég hugsa að svo verði ekki,* svaraði Ingibjörg um hæl. Viö erum mmo Bonanza, Laugavegi 20. Karnabsr, Laugavegi 66. OKamabsr, Glsaibs. Karnabsr, Austuratrsti. Bakhúsið, Hafnarfirði. , Falaval, Kaflavík. bUðir Eyjabsr, Veatmannaeyjum. Lindin, Selfossi. Hornabsr, Hðfn Hornafirði. Austurbsr, Reyöarfirði. Ram, Húsavík. Cesar, Akureyri Álthóll, Siglufirði. Sparta, Sauöárkrðki. Eplið, ísafiröi. Þórshamar, Stykkiahólmi. Isbjörninn, Borgarnesi. Eplið, Akranesi. Verzl. Skógar, Egilsstööum. Yfirlýsing frá stjórnum læknaráða Borgar spítala, Landspítala og Landakotsspítala MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi yfirlýsing: Fyrir skömmu lýsti heilbrigð- ismálaráðherra, Svavar Gestsson, yfir vilja sínum til að halda „heilbrigðisþing" að hausti, þar sem m.a. yrði gerð úttekt á stöðu og þróun heilbrigðismála í land- inu. í því skyni, svo og til nokkurra annarra verkefna, skip- aði ráðherra tíu manna undirbún- ingsnefnd. Athygli vekur sérstak- lega, að í þessa nefnd var ekki skipaður neinn læknir frá sjúkra- húsunum í Reykjavík, né heldur fulltrúi frá læknadeild Háskóla íslands. Þarna hafa gleymzt þýð- ingarmiklar og reynslumiklar stofnanir. Formenn læknaráða spítalanna í Reykjavík hafa af því tilefni sent heilbrigðisráðherra eftirfarandi ályktun: Stjórnir læknaráða Borgarspít- ala, Landspítala og Landakots- spítala fagna ákvörðun heilbrigð- ismálaráðherra að halda þing um heilbrigðismál á næsta hausti og hyggja gott til þátttöku í því. Hinsvegar lýsa stjórnir lækna- ráðanna undrun sinni á því, að engir fulltrúar spítalalækna eða kennara læknadeildar eigi sæti í undirbúningsnefnd. Telja stjórnir læknaráðanna, að í þeim hópi megi finna hæfustu ráðgjafana um þróun heilbrigðisstofnana. Reykjavík, 12. júni 1980 Ásmundur Brekkan, Borgarspítala Sigurður S. Magnússon, Landspítala ólafur Örn Arnarson, Landakotsspítala Kosninga- útvarp á stuttbylgju RÍKISÚTVARPIÐ hefur ákveðið að dagskrá útvarpsins að kvöldi kosningadagsins 29. júní n.k. verði send út á stuttbylgju frá kl. 18.30 til kl. 13.00 hinn 30. júní, eða þar til talningu lýkur. Útvarpað verður á eftirtöldum bylgjulengdum: 13950 kHz eða 21,50 m. 12175 kHz eða 24,64 m. 9181 kHz eða 32,68 m. 7673 kHz eða 39,10 m.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.