Morgunblaðið - 20.06.1980, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ1980
19
Helga Bjarnadótt-
ir - Minningarorð
Fædd 17. apríl 1905.
Dáin 12. júni 1980.
Fimmtudaginn 12. júní sl. lést
af slysförum elskuleg tengdamóð-
ir mín. Mér er ljúft að minnast
hennar með nokkrum línum.
Helga var fædd á Hlemmiskeiði á
Skeiðum. Foreldrar hennar voru
sæmdarhjónin Bjarni Þorsteins-
son, bóndi á Hlemmiskeiði og
Ingveldur Jónsdóttir frá Vorsabæ
í sömu sveit. Helga ólst upp í
stórum systkinahópi. Systkinin
voru ellefu og Helga þeirra elst.
13. október 1928 giftist hún sveit-
unga sínum Gísla Ingimundarsyni
frá Andrésfjósum á Skeiðum,
verkstjóra hjá Reykjavíkurborg.
Þau hófu búskap sinn í Reykjavík
og bjuggu þar allan sinn búskap.
Gísli lést 5. maí 1976. Þau eignuð-
ust fjögur börn, Bjarna Gíslason,
málarameistara kvæntur undir-
ritaðri, Maríu Gísladóttur gift
Ólafi A. Ólafssyni málarameist-
ara, Trausta Gíslason, vélvirkja-
meistara nú kennara við Iðnskól-
ann á Selfossi kvæntur Sigríði
Svövu Gestsdóttur, Emil Gíslaspn,
húsasmíðameistara kvæntur Ás-
dísi Gunnarsdóttur. Ég kynntist
þessum elskulegu hjónum fyrir
réttum 30 árum er ég giftist elsta
syni þeirra hjóna.
Helgu hlotnaðist það að eignast
góðan lífsförunaut og fallegt
heimili. Hún var glæsileg kona,
myndarleg húsmóðir í öllum sín-
um verkum, gestrisni hennar og
veitingar annálað.
Tengdamóðir mín var mjög
söngeisk kona, hún hafði fallega
söngrödd og hafði gaman af að
syngja í góðra vina hópi. Allt
hennar fólk er mjög söngelskt og
hef ég aldrei heyrt samstilltari
systkinahóp syngja saman við
ýmis tækifæri innan fjölskyldunn-
ar.
Barnabörnin eru orðin 15 tals-
ins og barnabarnabörnin 7. Alltaf
var gott að koma á heimili tengda-
foreldra minna. Ég minnist sér-
staklega jóladagsins þar sem . öll
fjölskyldan kom saman og hefur
gjört öll þau ár frá því ég kynntist
þessum yndislegu hjónum, og hélt
Helga þessum hætti áfram eftir
að Gísli féll frá og því eiga börnin,
barnabörnin og barnabarnabörnin
fagrar minningar frá þessum
stundum.
Ég vil þakka sambýlisfólki
Helgu í Stóragerði 34 fyrr og nú
fyrir allan hlýhug til hennar sem
hún kunni vel að meta. Einnig vil
ég þakka samstarfsfólki hennar á
Landspítalanum fyrir gott sam-
starf. Á kveðjustund hrannast upp
minningar frá liðnum árum.
Helga á eftir að lifa áfram í huga
mínum sem og hugum okkar allra
sem hana þekktu.
Aðstandendum öllum votta ég
mína dýpstu samúð.
Blessuð sé minning hennar.
Erla Þorvaldsdóttir.
Fimmtudaginn 12. maí lést í
umferðarslysi, elskuleg amma mín
og nafna.
Hún var fædd árið 1905 og var
því nýorðin 75 ára er hún lést.
Amma var glæsileg kona og bar
aldur sinn mjög vel, hún var alltaf
svo vel tilhöfð og fylgdist vel með.
Það var alltaf gaman að tala við
ömmu, því hún var svo hreinskilin
í öllum svörum og sagði alltaf sína
meiningu. Ég minnist þess er ég
heimsótti hana stuttu eftir afmæl-
ið hve mikla ánægju hún hafði
haft af því að fara með börnum
sínum og tengdabörnum út að
borða, í upphlut og í möttlinum
sem hún hafði fengið í afmælis-
gjöf frá börnum og tengdabörnum,
sem hún bar með miklum glæsi-
leik.
Amma var mikil dugnaðarkona
og mikil húsmóðir og ber heimili
hennar vott um það.
Hún hafði alltaf mikla ánægju
af því að fá gesti og stóð þá ekki á
myndarskap hennar og gestrisni.
Hún var mikið gefin fyrir hann-
yrðir og eru til margar fallegar
hannyrðir eftir hana því aldrei sat
hún auðum höndum.
Ég og fjölskylda mín viljum
þakka elsku ömmu fyrir öll liðnu
árin.
Friður guðs blessi ömmu mína.
Helga Bjarnadóttir.
í dag verður gerð útför Helgu
Bjarnadóttur frá Hlemmiskeiði,
hún fórst í umferðaslysi 12. þ.m.
Helga var fædd á Hlemmiskeiði á
Skeiðum 17. apríl 1905, elst af
ellefu börnum þeirra hjóna Ing-
veldar Jónsdóttur frá Vorsabæ á
Skeiðum og Bjarna Þorsteinsson-
ar frá Reykjum í sömu sveit.
Ung að árum giftist hún sveit-
unga sínum, Gísla Ingimundar-
syni frá Andrésfjósum. Þau
bjuggu allan sinn búskap í
Reykjavík. Gísli andaðist árið
1976.
Helga og Gísli eignuðust fjögur
börn, þau eru: Bjarni málara-
meistari giftur Erlu Þorvaldsdótt-
ur, þau eiga 3 börn, María, gift
Ólafi A. Ölafssyni málarameist-
ara þau eiga 5 börn, Trausti
vélvirkjameistari, giftur Svövu
Gestsdóttur, þau eiga 3 börn og
Emil trésmíðameistari giftur Ás-
dísi Gunnarsdóttur og eiga þau 4
börn. Allt er þetta traust og gott
fólk. Hinn stóri hópur barna
hennar og barnabarna hefur mik-
ið misst við fráfall hennar, svo
mikil var umhyggja hennar fyrir
þeim öllum.
Með Helgu og systkinum hennar
var alltaf náið samband og sem
elsta barn í stórum systkina hóp,
hefur komið snemma í hennar
hlut að veita þeim yngri liðsinni
og skjól.
Löng samleið hlýtur að skilja
eftir margháttaðar minningar.
Eftir nær 40 ára náin kynni hefi
ég aðeins bjartar minningar um
þessa ágætu mágkonu mína. Það
verður ávalt svo að í stórum hóp
samferðafólks á hvaða sviði þjóð-
lífsins sem um er skyggnst verða
einstaklingarnir mismunandi eft-
irminnilegir. Þegar stórar stundir
áttu sér stað innan okkar fjöl-
skyldna, var Helga ávallt hinn
eftirminnilegi persónuleiki.
Hin bjarta og heiða rödd þess-
arar glaðværu alvörukonu hljóm-
ar ekki lengur, en minning ástvina
og fjölmargra vina lifir um sanna
sómakonu.
Einar Ögmundsson.
Kveðja írá samstarfskon-
um.
Ein úr samstarfshópnum Helga
Bjarnadóttir er í dag kvödd hinstu
kveðju, okkur datt síst af öllu í
hug að skilnaðarstundin væri
komin, en enginn má sköpum
renna og hér hefur dauðinn sigrað
með svo skjótum hætti.
Þegar leiðir skiljast i bili er
okkur þakklæti efst í huga, þakk-
læti fyrir margra ára gott sam-
starf. Helga var ötul í starfi og
aðlaðandi í allri umgengni jafnt
þótt oft væri erill og í mörg horn
að líta í senn. Við munum ekki
eftir því að hún hafi nokkurn tíma
skipt skapi, þessir góðu eiginleikar
Helgu sem hún var gædd í svo
ríkum mæli komu fram í geðprýði
og samviskusemi.
Helga var glæsileg kona þétt á
velli og létt í lund, þannig minn-
umst við hennar og óskum henni
guðsblessunar í nýjum heimkynn-
um. Við vottum börnum hennar og
öðru venslafólki innilega samúð.
Sænskir flugumferðar-
stjórar ráðast til IAL
Stokkhólmur. 18. júni. AP.
10 SÆNSKIR flugumforða-
stjórar, sem störfuðu á Arl-
anda-flugvelli í Svíþjóð, hafa
tekið tilhoði um vel launað
starf í Mið-Austurlöndum.
Ráðning þeirra kemur í
kjölfarið á ráðningu 16
danskra flugumferðarstjóra til
sama heimshluta. en sænskir
flugumferðarstjórar hafa lengi
verið óánægðir með kjör sín.
í tilboðinu felst frítt húsnæði,
66 daga orlof og um 12 millj. ísl.
króna árslaun, skattfrjáls. Mis-
sir starfsmannanna gæti trufl-
að eðlilegar flugsamgöngur
SAS, en flugumferðarstjórarnir
10 svara til 1571 af heildar-
fjölda þeirra hjá félaginu.
KOMATSU
KOMATSU vinnuvélar fara sigurför um Evrópu.
Nú þegar eru í notkun 7 KOMATSU jarðýtur á íslandi.
Getum ávallt útvegað með skömmum fyrirvara jarðýtur frá höfuðstöðvum
KOMATSU í Evrópu á ótrúlega hagstæðu verði. Meðal annars:
Komatsu D155A með örygyishúsi (ROPS) U-laga
tönn og stillanlegum risaspenniripper. Heildar-
þyngd W.5 tonn, 320 hestöfl.
Komatsu D85A með öryggishúsi (ROPS) U-laga
tönn með vökvaskekkingu og þrigyja tanna
ripper. Heildarþyngd 28 tonn, 220 hestöfl.
Komatsu D65A með öryggishúsi (ROPS) tönn með
vökvaskekkinyu oy þriygja tanna rippper. Heild-
arþyngd 19 tonn, 1\0 hestöfl
KOMATSU sameinar japanskt hugvit og vandvirkni
Þess vegna segja eigendur Komatsu vinnuvéla í Evrópu:
Komatsu endist betur og kostar minna í rekstri, en svipaöar vélar.
KOMATSU á íslandi
BÍLABORG HF
Véladeild Smiöshöföa 23. Sími: 81299