Morgunblaðið - 20.06.1980, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.06.1980, Blaðsíða 32
Síminn á ritstjóm og skrifstofu: 10100 Síminn á afgreiðsiunni er 83033 21t«r]}unbUi&i& FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1980 Lífeyrissjóður verslunarmanna: Hæstu lán 15 milliónir kr. LÍFEYRISSJÓÐUR verslunar- manna breytti um síóustu mán- aóamót lánareKlum sinum «k verða lán sjóftsins framvegis verðtryggð miðað við vísitólu byKKÍnRarkostnaðar o>? með 2% vöxtum. Lánstíminn verður 10 til 25 ár að vali lántakanda. Láns- fjárhæð fer, að sojjn ólafs Gúst- afssonar, liiKÍra'ðinK.s lifeyris- sjtíðsins, eftir því hvað viðkom- andi hefur Kreitt lenjfi til sjóðs- ins, en lájcmarkstími til að eiffa rétt á láni eru 3 ár. Eftir þessa hreytinjcu á .sjóðsfélajfi, sem jíreitt hefur í sjóðinn frá upphafi eða frá árinu 1956, og hefur aldrei tekið lán úr sjóðnum. nú rétt á láni að upphæð 15,8 milljónir króna. Hámarkslán til þessa sjóðsfélaga hefði sam- kvæmt eldri lánareglum verið 6 milljónir kr. ojc var helminjcur þess verðtryjfjfður. Ólafur sagði, að eftir þessa breytingu yrði lánsfjárhæð í hverju tilviki reiknuð út miðað við hvern ársfjórðung, sem sjóðsfélagi hefur greitt til sjóðsins. Þannig væri lánsfjárhæðin 360 þús. kr. fyrir hvern ársfjórðung, sem greitt hefur verið til sjóðsins fyrstu 5 árin, 180 þús. fyrir hvern ársfjórðung frá 5 árum til 10 ára Fljót og Ólafsfjörður: Allt að 80% af einstökum túnum kalið Ba'. 19. júnf. VÍÐA í Skagafirði er ágætt útlit með grassprettu, sérstaklega í innhéraðinu og væri á nokkrum stöðum byrjaður sláttur, ef ekki hefði rignt töluvert undanfarna daga. Áður voru þurrkar og tafði það fyrir góðri sprettu. Sömu sögu er þó ekki að segja alls staðar, því að í Fljótum og í framdölum er mikið um kal, bæði á túnum og í afréttum. í Stíflu í Fljótum og í Ólafsfirði eru til tún, þar sem áætlað er að 80% af einstökum túnum sé kalið. Björn. og 90 þús. fyrir hvern ársfjórðung umfram 10 ár. Þá hefur að sögn Ólafs verið gerð sú breyting á lánareglum lífeyrissjóðsins, að hafi viðkom- andi sjóðsfélagi tekið lán áður, skal það lán reiknað upp miðað við hækkun byggingavísitölu frá töku þess, og er sú upphæð dregin frá lánsfjárhæð. Nefndi Ólafur sem dæmi sjóðsfélaga, sem hefði tekið 100 þús. kr. lán árið 1960 og annað 150 þús. kr. lán 1965. Þessi lán væru nú eftir umreikning metin til 10,5 milljóna kr. og ætti sjóðsfélaginn því nú rétt á láni að upphæð nær 5,3 milljónum króna. Fimm ár verða að líða milli lána úr sjóðnum. Þingforsetar, fulltrúar þingflokkanna og skrifstofustjóri Alþingis við upphaf fundar í Alþingishúsinu í gærmorgun. Frá vinstri: Páll Pétursson. Ólafur Ragnar Grímsson. Jón Ilelgason. Jóhanna Sigurðardóttir, Þorvaldur Garðar Kristjánsson. Sverrir Hermannsson, Helgi Seljan og Friðjón Sigurðsson. Ljósm. Mhl. Kristján. Þingforsetar höfnuðu til- mælum ríkisstiórnarinnar — en þingfararkaupsnefnd féllst á tilmæli forsetanna um frestun málsins til hausts FORSETAR Alþingis neituðu í gær að fallast á tilmæli ríkis- stjórnarinnar um að hnekkja ákvörðun þingfararkaupsnefndar. en hins vegar mæltust þeir til þess við nefndina. að bókun hennar kæmi ekki til framkvæmda svo að næsta reglulegu Alþingi gefist kostur á að fjalla um málið. Þingfararkaupsnefnd samþykkti tilmæli forsetanna. sem tóku fram, að þeir álitu nefndina hafa farið að lögum i málinu. Þingforsetar fólu einnig skrifstofustjóra Al- þingis að undirhúa endurskoðun á lögum og reglum um kaup og kjör þingmanna og þá sérstaklega með athugun á því með hverjum hætti Alþingi getur falið öðrum aðila ákvörðunarvaldið. Forsetar Alþingis komu saman til fundar í fyrrakvöld og tóku þá ákvörðun að lýsa því yfir, að þingfar- arkaupsnefnd hefði farið að lögum, en að þeir mæltu hins vegar með því við nefndina að bókun hennar kæmi ekki til framkvæmda svo Alþingi gæti fjallað um málið. Þessari ákvörðun undu ráðherrar illa og sátu þingforsetar á fundi lengi dags í gær undir þrýstingi frá ríkisstjórninni um að taka af skarið og fella ákvörðun þingfararkaupsnefndar úr gildi. Þessi þrýstingur kom m.a. fram í símtölum forsætisráðherra og fjár- málaráðherra, en sá síðarnefndi var í gær staddur í Helsingfors í Finn- landi- A þessum fundi í gær sam- þykktu þingforsetarnir hins vegar að láta endurskoða lög og reglur um laun þingmanna. Þegar þingforsetar höfðu gengið frá samþykkt sinni, höfðu þeir sam- band við þingfararkaupsnefndar- menn, sem allir samþykktu tilmæli forsetanna. Formaður nefndarinnar var á sjó, sem fyrr segir, þrír nefndarmanna, Eiður Guðnason rit- ari, Guðmundur Karlsson og Þórar- inn Sigurjónsson, voru á ferðalagi um Snæfellsnes á vegum fjárveit- inganefndar, Stefán Valgeirsson var staddur á Akureyri og í Matthías Bjarnason náðist á Bíldudal. „Ég er mjög ánægður með þessa lausn málsins," var allt, sem Jón Helgason, forseti Sameinaðs Alþing- is vildi segja í gær, er þingfarar- kaupsnefnd hafði fallizt á tilmæli forsetanna um frestun málsins til hausts. SjA sumtól við l.arrtnr Siuurósson. Svcrri llrrmannsson ok IIcIku Scljan bls. 12 Tillögur ASÍ á sáttafundi í gær: Gerir tillögu um 40 launaflokka með 2 V2 % stígandi á milli Á FUNDI með sáttanefnd í gær- morgun lagði viðræðunefnd Al- þýðusambands tslands fram tillög- ur um flokkaskipan sem svar við tillögum Vinnuveitcndasambands tslands um nýtt sameiginlegt Hokkakerfi. Næsti sáttafundur var boðaður næstkomandi þriðjudag Egill Vilhjálmsson hf.: Kaupir Fíatumboðið Davíð Sigurðsson hf. EGILL Vilhjálmsson hf. og eig- endur þess hafa keypt öll hluta- bréf fyrirtækisins Davið Sigurðs- son hf., en það fyrirtæki hefur haft einkaumboð fyrir Fiatbif- reiðar hér á landi. Hafa nýju eigendurnir þegar yfirtekið rekst- ur fyrirtækisins. en beðið er eftir samþykki Fiatverksmiðjanna á Ítalíu og i Póllandi vegna yfir- töku hinna nýju eigenda á bif- reiðaumboðunum. Fara menn frá Agli Vilhjálmssyni hf. utan í næstu viku til viðræðna við for- svarsmenn verksmiðjanna um það mál. Georg Tryggvason, fram- kvæmdastjóri hjá Agli Vilhjálms- syni, sagði í gærkvöldi, að ekki væri enn afráðið, hvernig rekstri Fíatumboðsins yrði háttað í fram- tíðinni, en fyrst um sinn yrði það rekið undir nafninu Davíð Sigurðs- son hf. Líkur væru þó á, að fyrirtækin tvö yrðu sameinuð, hvað snerti rekstur. Með í kaupun- um fylgir húsnæði, sem Davíð Sigurðsson hf. hefur verið að byggja að Smiðjuvegi 4 í Kópavogi, en þegar er búið að taka 'á af húsnæðinu í notkun. Georg sagði, að ef fyrirtækin yrðu sameinuð, væri ósennilegt að Fíatumboðið yrði flutt í núverandi húsnæði Egils Vilhjálmssonar hf. við Laugaveg, heldur mætti gera ráð fyrir að starfsemi Egils Vil- hjálmssonar hf. yrði frekar flutt á Smiðjuveginn, þar sem þrOngt væri orðið um starfsemina við Laugaveg. Davíð Sigurðsson forstjóri, sem um árabil hefur rekið Fíatumboð- ið, hefur nú dregið sig með öllu út úr rekstri fyrirtækisins og jafn- framt munu Þórður Júliusson, sem verið hefur honum til aðstoðar við framkvæmdastjórn fyrirtækisins, og Garðar Sigurðsson innkaupa- stjóri, bróðir Davíðs, hætta störf- um hjá fyrirtækinu. klukkan 09. Tillögur samninga- nefndar ASÍ eru i raun ekki krafa um kauphækkun, heldur kerfis- breytingu. Viðmiðunartala launa- stigans er 280 þúsund króna mán- aðarlaun, sem i skalanum eru lægstu laun verkamanns. Hins vegar er launataflan, sem ASÍ gerir tillögu um með ákveðinni stígandi. Fast hlutfallslegt bil milli flokka er 2'k%. Flokkarnir eru númeraðir frá 1 og upp í 40. 11. flokkur er byrjunarlaun verka- manns, 280 þúsund krónur, en launa- flokkar 1 til 10 eru unglingakaup. Hæstu raunverulegu laun eru sam- kvæmt 35. flokki, sem eru 506.400 krónur á mánuði. Flokkarnir frá 36 og upp í efsta flokk 40 eru óraun- verulegir, þar sem engar tillögur eru um niðurröðun starfa í þá. 40. flokkur ber launatöluna 573.000 krónur, en 1. flokkur ber launatöl- una 217.400 krónur. Viðmiðunarkaup byggingamanna er í tillögunum sett við 14. launa- flokk, sem ber launin 301.500 krónur. Tillögurnar eru hins vegar einskorð- aðar við Verkamannasamband ís- lands, Landssamband iðnverkafólks, Samband byggingamanna, Málm- og skipasmiðasamband íslands og Landssamband íslenzkra verzlun- armanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.