Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1980 Bjarni Sveinsson og Ólafur SkaK- vík um borð i Ingu, en þeir sÍKruðu i keppninni í fyrrasumar. 5 bátar í sjóþeysu SJÓÞEYSAN eða sjórallið í kringum l^ndið hefst í dag og ræsir Hannes Hafstein, fram- kvæmdastjóri Slysavarnarfé- lags Islands, bátana klukkan 14, en lagt verður af stað úr víkinni framan við Útvarps- húsið við Skúlagötu. Fimm bátar taka þátt í þeysunni að þessu sinni, en það eru Félag farstöðvaeigenda, Snarfari og Dagblaðið, sem standa að keppninni. Fyrsti viðkomustaður bát- anna er Grindavík og er áætlað að bátarnir verði þar um klukkan 17. Þaðan verður hald- ið áfram til Vestmannaeyja og komið þangað í kvöld. Síðan verður haldið áfram hringinn í kringum landið með viðkomu á Höfn, Neskaupstað, Raufar- höfn, Grímsey og Akureyri, en þar fá keppendur tækifæri til hvíldar í um hálfan sólarhring. Síðan verður haldið áleiðis til Reykjavíkur og komið við á Siglufirði, ísafirði og Ólafsvík og til Reykjavíkur er áætlaður komutími bátanna klukkan 19 þann 13. júlí. Klængsel í Flóa: Eldur í verk- stæði og bílar skemmdust ELDUR kom upp í giimlu timbur- húsi á harnum KlænK.seli í Gaul- verjabæjarhreppi í fyrrinótt og skemmdust tveir bílar. sem voru í húsinu. Húsið er gamalt ibúðarhús en bóndinn á Klængseli hefur að undanförnu notað það sem verk- stæði. Ilann hafði verið að vinna að bílaviðgerðum fram á kvöld og hafði meðal annars verið að log- sjóða. Um nóttina vaknaði hann og varð litið út að húsinu og sá þá hvar eldur var laus i bíl inni í húsinu. Kallaði bóndinn á slökkviliðið á Selfossi, sem einnig sinnir ná- grannabyggðum og barst kallið til Selfoss klukkan 2.57 um nóttina. Slökkvistarfið gekk greiðlega, en talið er að annar bíllinn sé alveg ónýtur og hinn er mikið skemmdur. Eldurinn var einkum í öðrum bílnum en náði einnig að læsast, í þak hússins, sem er mikið skemmt. Engin slys er bifreið hentist á barnavagn Akureyri. 4. júií. ÁREKSTUR varð um klukkan 17 í dag á mótum Mýravegar og Þing- vallastrætis er tvær fólksbifreiðar rákust saman. Önnur bifreiðin hent- ist á barnavagn, en barnið sem í vagninum var sakaði ekki, en vagn- inn skemmdist hins vegar nokkuð. Bifreiðarnar skemmdust ekki, en annar bílstjórinn meiddist lítillega. —D.J. Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, forstjóri SH: Ríkisstjórnin gat komið í veg fyrir lokanir en gerði það ekki „ÞAÐ er rétt hjá sjávarútvegs- ráðherra, að fjárhagsstaða frysti- húsanna hefur nú í langan tima verið erfið vegna kostnaðarhækk- ana hér innanlands, á sama tima og ekki hafa orðið teljandi verð- hækkanir á mörkuðunum,“ sagði Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, for- stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna i samtali við Morgun- blaðið, er hann var spurður álits á viðtali við Steingrím Her- mannsson, sem hirtist í Tímanum i gær. „Þennan vanda hafa orð- hagir menn leyst á einfaldan hátt með því að búa til orðið „grát- kór“.“ „Eg vil taka fram, að ég tel, að þegar við fiskverðsákvörðunina í lok maí og þá sérstaklega á fundi fulltrúa frystihúsanna með for- sætisráðherra, þar sem viðstaddir voru iðnaðar- og menntamálaráð- herrar, auk forstjóra Þjóðhags- stofnunar, þá hafi þegar verið gerð grein fyrir þeim vanda, sem staðið var frammi fyrir. Auk þess lágu fyrir greinargóðar upplýs- ingar frá Þjóðhagsstofnun. Ef þá þegar hefði verið gripið til þeirra ráðstafana, sem nýlega hafa verið gerðar og þeirra, sem ennþá eru á umræðustigi, þá hefði mátt koma í veg fyrir flestar þær lokanir frystihúsa, sem nú koma til fram- kvæmda." Hvað um markaðsmál Færeyja? „Að því er varðar ummæli ráðherra í sambandi við mark- aðsmál Færeyja, virðist mér þar gæta .nokkurrar fljótaskriftar, enda takmarkað, hvað hægt er að kynna sér á stuttum fundi. Það er nánast óþarfi að taka fram, að við höfum selt verulegt magn af ufsa og nokkurt magn af karfa til Vestur-Evrópu undanfarið á hærra verði en í Bandaríkjunum, en eins og ráðherra tekur réttilega fram, þá er þessi markaður bæði takmarkaður og viðkvæmur. Mér hefur virzt, að markaðsstarfsemi Færeyinga í sölu á frystum fiski hafi verið í meginatriðum með svipuðum hætti og hér, þegar undan er skilið, eða tekið er tillit til landfræðilegrar legu annars vegar og þess friðar, sem ríkt hefur milli Breta og Færeyinga, sem hefur gefið Færeyingum óslitið tækifæri til að starfa að markaðsmálum í Bretlandi." Aðspurður um þær aðgerðir, sem Steingrímur Hermannsson tíundar í áðurnefndu viðtali, sagði Eyjólfur: „Steingrímur setur þetta fram eins og þessar ráðstafanir hafi þegar verið framkvæmdar. Þær hafa ekki verið framkvæmd- ar. Það er engin skuldbreyting ákveðin og enn hefur hækkun afurðalána ekki verið ákveðin. Því er ráðherra bara að gefa þetta í skyn. Hann hefur ekki enn fengið grænt ljós hjá Seðlabankanum," sagði Eyjólfur ísfeld og bætti við að nýleg sala til Sovétríkjanna hafi haft jákvæð áhrif. Taldi hann t.d. að Akureyrarfrystihúsin hefðu sagt upp talsvert miklu af starfsfólki sínu, ef þær sölur hefðu ekki komið til. Væri svo sennilega um fleiri frystihús. 99 Mjög' lítið FULLTRÚAR Flugleiða og flug- manna félagsins mættu á fundi hjá Steingrími Ilermannssyni í samgöngumálaráðuneytinu í gær og ræddu stöðuna í deilu aðil- anna. Síðan hófst sáttafundur eftir hádegi i gær og annar cr boðaður í dag kl. 2 hjá Gunnari G. Schram. Baldur Oddsson, formaður Ijoftleiðaflugmanna, sagði í sam- tali við Mbl. í gær, að fundurinn með Steingrími hefði verið gagn- — segja formenn flugmanna- félaganna legur, „andrúmsloftið hreinsaðist og það var ákveðið að halda sáttafund, en á honum skeði ekki mikið. Þó má segja að það sé tiltölulega lítið sem ber á milli og ég vona að það gangi saman á morgun á fundi eftir hádegi. Þetta voru vinsamlegar umræður ber á og það er nokkur tími til stefnu fyrir laugardaginn 12. júlí.“ Kristján Egilsson, formaður FÍA, sagði í samtali við Mbl. í gær, að laugardagsfundurinn legðist vel í sig. Hann kvaðst vona, að Flugleiðir létu af þeirri yfirlýsingu sinni að þeir hefðu gengið eins langt til móts við flugmenn og frekast væri unnt. Kristján kvað fundinn með Steingrími hafa verið gagnlegan, „en,“ sagði hann, „það er ekki spurningin um kostnað eins og málið stendur, heldur orðalag, og ég tel það illa farið, ef það gengur ekki saman." Sveinn Sæmundsson, blaðafull- trúi Flugleiða, sagði, að nú þegar væri verkfallsboðunin 12. júlí farin að valda skemmdum og kvað hann því bráðnauðsynlegt að af- lýsa verkfallinu, þar sem afpant- anir væru farnar að berast í verulegum mæli. Allar flugferðir Flugleiða í dag, bæði innanlands og utan, verða samkvæmt áætlun. Niðursuðuverksmiðjan QRA: Hættir að selja fiskbollur í bili Eldur í eldhúsi Ljósm. RAX SLÖKKVILIÐIÐ var í gærkvöldi kvatt að fjölbýlishúsinu númer 72 við Kleppsveg. en ckki rcyndist um mikinn eldsvoða að ra'ða. Kviknað hafði í leppum á hellu á eldavél og mikinn reyk lagði um íhúðina frá þeim og potti á eldavélinni. — VIÐ HÖFUM ekki enn tekið endanlega ákvörðun í þessu máli, en í bili seljum við ekki frá okkur fiskbollur eða fiskbúðing meöan við fáum ekki samþykkta hækk- un, en við gerum okkur vonir um að hækkun verði leyfð mjög fljótlega, sagði Magnús Tryggva- son hjá Niðursuðuverksmiðjunni ORA í samtali við Mbl. — Ríkisstjórnin hefur heimilað hækkun á fiski, dósum, mjólk og launum og höfum við að undan- förnu framleitt á hærra verði, en við fáum ekki að hækka sjálfir. Það er því ekkert vit í að selja frá sér meðan svo er og framleiðum við því á lager í bili. Hins vegar Steypustöðvarnar tapa 1—1,5 milljón á dag með- an hækkun er ekki leyfð — Steypustöðvarnar tvær í Reykjavík tapa einni til einni og hálfri miiljón á dag og ég veit ekki hvað verður hægt að gera, ef við fáum ekki hækkun. Ríkisstjórnin fcllst ekki á 10% hækkun. en henni láðist að samþykkja 9% hækkun til okkar í staðinn og fengum við þvi enga hækkun núna, sagði Halldór Jónsson framkvæmda- stjóri Steypustöðvarinnar. — Það hafa verið það miklar tilkostnaðarhækkanir að und- anförnu að dæmið gengur ekki lengur upp og það er ljóst, að alvarlegir tímar eru framund- an og sumir tala jafnvel um að kreppa sé orðin staðreynd. Stef- án Bjarnason hjá Möl og sandi á Akureyri sagði að í 60% verðbólgu mætti ekki líða mjög langt milli hækkana og nú væri eríitt um rekstrarfé þegar bankarnir væru að loka. — Það þykir ekki langur greiðslufrest- ur 1 — 2 mánuðir, en við getum ekki boðið viðskiptamönnum annað, þvi bankar taka ckki lengri vixla og þröngt er orðið um öll lán. Eg vil ekki vera mjög svartsýnn. en loftið lævi blandið, sagði Stefán. er Talsmenn steypustöðvanna voru sammála um, að nokkuð minni steypusala hefði verið síðustu viku og líklega væri nokkur samdráttur. Þó væri erfitt um það að segja, góð tíð hefði haft í för með sér jafnari sölu meirihluta ársins, nú stæðu yfir sumarfrí, en hugsanlegt væri, að þar sem þröngt væri á lánamarkaði hefðu einhverjir hætt við fyrirhugaðar bygg- ingar. má benda á, að nú eru fluttar inn fiskbollur frá Noregi, en þær eru dýrari, jafnvel þótt við fengjum nokkra hækkun samþykkta, sagði Magnús Tryggvason ennfremur. Danska og grænlenzka tii skiptis ÞAÐ VAR í nógu að snúast hjá grænlenzka útvarpsmanninum Jörgen Chemnitz á Húsavík í gærkvöldi. Ilann lýsti þar lands- leik Islendinga og Grænlendinga í knattspyrnu og lét sér ekki nægja síðari hálfleik viðureign- arinnar, heldur lýsti hann öllum leiknum og bætti síðan 15 minút- um við til að ræða við keppendur. Allt þetta var i beinni útsend- ingu og voru gerðar breytingar á dagskrá útvarpsins í Nuuk til að koma þessari lýsingu að. Chemn- itz talaði tveimur tungum í út- varpslýsingunni og skipti á milli grænlenzku og dönsku með jöfnu millihili. Þá má einnig geta þess, að landsleik Færeyinga og Græn- lendinga var lýst af frétta- mönnum frá báðum löndum, en sá leikur fór fram á Sauðárkróki á miðvikudag. 'O INNLENT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.