Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1980
Pyrsta. annaó og þriAja! Uppboðshaldarinn var i miklum ham. Á myndinni gefur
m.a. að líta ungfrú Útrás. fulltrúa Tizkuhallarinnar Tútti og ungírú verkakonu.
Viðstaddir skemmtu sér konunglega.
„Á nokkuð að selja þig mamma?"
„Á NOKKUÐ að selja þig,
mamma?“ spurði lítið barn, með
angistarhreim í röddinni, móður
sína á Bernhöftstorfunni í gær.
Það var ekki nema von að unginn
spyrði, því þarna á Torfunni var í
gangi heljarmikið uppboð á „kon-
um“ af öllum stærðum og gerð-
um. Hitt gæti svo kannski orðið
einhverjum umhugsunarefni
hvað barninu fannst það nær-
tækt, að móðir þess yrði sett á
uppboð, eins og hver annar varn-
ingur. En þarna gafst bæjar-
búum sem sagt einstakt tækifæri
til að bjóða í og festa sér konur á
vildarkjörum, án þeirra snún-
inga sem slíkt getur haft í för
með sér.
Ungum manni (sem ekki vildi
láta nafns síns getið) varð að orði,
að svona ætti þetta að véra á
hverjum föstudegi, yrði mikil hag-
raeðing að því að geta sparað sér
ballferðirnar og jafnvel verið
kominn með gripinn heim um
kvöldmatarleytið, beint í elda-
mennskuna. Var því að vonum
mikill handagangur í öskjunni
þegar byrjað var að bjóða í
„vöruna", sem ekið hafði verið á
uppboðsstað á heyvagni.
Fyrst var boðin upp hin „sígilda
húsmóðir", en það er, eins og
öllum er kunnugt, „módel sem
alltaf stendur fyrir sínu“. Kvaðst
uppboðshaldari, sem kynnti vöru
sína af engu minni sannfær-
ingarkrafti en margir starfsbræð-
ur hans, eiga eina svona heima og
hefði hún reynst vel, auk þess sem
þessi gerð hentaði sérlega vel til
sveita. Varð það líka úr, að bóndi
að austan hreppti hnossið, eftir
nokkuð þjark við reykvískt ung-
skáld. Sá böggull fylgdi reyndar
skammrifi, að húsmóðirin átti tvö
börn, en þeim fylgdu meðlög,
þannig að bóndinn ætti að geta
unað ánægður við sitt fyrir 15.
Konur
boðnar upp
á Toríunni
þús. krónur! Fulltrúar skemmti-
staðarins „Alblíðukjallarinn og
„Tízkuhallarinnar Túttí“ fóru á
heldur hærri prís, enda mátti fá
þá síðasttöldu endurnýjaða „ef
málningin flagnaði af“, eða hún
yrði „gripin ómáluð á almanna-
færi“.
Æstist nú leikurinn til muna og
buðu utanbæjarmenn kýrverð í
ungfrú „Útrás", enda gripurinn
föngulegur, en því var hafnað af
uppboðshaldara, á þeim forsend-
um að hér væri ekki um nein
vöruskipti að ræða, eða hvað?
Einna tregast gengu boðin í „iðn-
verkakonuna, afgreiðsludömuna
og frystihúsfrúna", en það varð úr,
að sami aðili keypti þær í kippu og
fylgdu þau hlunnindi kippunni, að
henni mætti skila til viðkomandi
verkakvennafélaga þegar hún
væri úr sér gengin. Fulltrúi
ónefndrar bílasölu hafði tvímæla-
laust vinninginn hvað eftirsókn
uppboðsgesta varðaði. Var það að
vonum því henni fylgdu varahlut-
ir, s.s. höggdeyfar sem endurnýja
má að vild. Gengu boðin ótt og títt
og jókst spenna viðstaddra eftir
því sem ofar dró. Var þessi
kostagripur að lokum sleginn á
eina milljón og fjórtán krónur.
Það var Rauðsokkahreyfingin
sem að þessu „uppboði" stóð og
vildu aðstandendur hennar að
sögn, vekja athygli á því hugarfari
sem ríkir meðal þeirra sem gera
sér útlit kvenna að féþúfu.
Endir uppákomu þessarar varð
á þá lund að er uppboðshaldari
hugðist bjóða upp síðasta „gripinn
á skrá“, fulltrúa R.S.H., reyndist
þar vera „vargur í véum“ eða
fulltrúi Rauðsokkahreyfingarinn-
ar. Leystist þá samkoman upp í
hugsjónalegum ágreiningi, en von-
andi hefur bóndinn sloppið austur
með húsmóðurina hagnýtu.
H.H.S.
1 ^
'JvffÍ AWy f* —" \ mfc. bk - í. * ■ - mJmJtA
Eins og sjá mú, var uppboðið vel auglýst. „Varningnum“ ekið á uppboðsstað.
Ríkisstjórnin:
Greinargerð varaverð-
lagsstjóra lögð fram
en ákvörðunum frestað
Á FUNDI ríkisstjórnarinnar á
fimmtudag var lögð fram greinar-
gerð frá varaverðlagsstjóra um
hækkanir. sem Verðlagsráð hafði
samþykkt á fundi sínum, en rlkis-
stjórnin hafnað. Sagði dr. Gunnar
Thoroddsen forsætisráðherra. að
nokkuð hefði verið rætt um grein-
argerðina. en málinu síðan frestað.
Yrði það aftur á dagskrá ríkis-
stjórnarinnar á þriðjudag þegar
Tómas Árnason viðskiptaráðherra
situr fundinn, en hann var ekki á
siðasta fundi.
Kvaðst forsætisráðherra ekki
geta sagt um hvort ríkisstjórnin
myndi breyta fyrri ákvörðunum
sínum varðandi hækkanirnar, málið
yrði rætt á næsta fundi ríkisstjórn-
arinnar.
Árni Árnason, framkvæmdastjóri
Verslunarráðs, kvaðst undrandi á
því að ríkisstjórnin skyldi ekki hafa
breytt fyrri ákvörðun sinni, eftir að
hafa kynnt sér greinargerðina.
Hann kvaðst hafa reiknað með að
hún gerði það, því fyrirtækin gætu
neyðst til að loka, fengju þau ekki
umbeðnar hækkanir, sem Verðlags-
ráð hafði samþykkt.
Ný barna-
fataverzl-
un opnar
ENDUR og hendur heitir ný
barnafataverzlun, sem er til húsa
í Miðbæjarmarkaðnum.
Hér er um að ræða verzlun með
alhliða fatnað fyrir börn á öllum
aldri. Fötin koma helzt frá Banda-
ríkjunum, Danmörku, Frakklandi
og Ítalíu. Sérstakt leikhorn er
fyrir börnin þar sem þau geta
leikið sér á meðan móðirin verzl-
ar. Verzlunin leggur áherzlu á að
hafa fjölbreytt vöruval og kynna
ýmislegt úr tízkuheimi barnanna.
Eigandi verzlunarinnar er Guðrún
V. Bjarnadóttir.