Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1980 Staða íslands í vályndri veröld Staða íslands í sameiginlegu varnarkerfi vestrænna þjóða verður mikilvægari með hverju árinu sem líður. Og á tímum eins og nú, þegar spennan á alþjóðavettvangi magnast í kjölfar hernaðaraðgerða Sovétmanna í Afganistan, gera menn sér betur grein fyrir gildi landa eins og íslands, sem eru á hernaðarlegum skurð- punkti. Frá pólitískum sjónarhóli er samstaða þjóða mikilvægari nú en áður. Sálrænar afíeiðingar sundurlyndis hefðu í för með sér, að ekki yrði um að ræða nægilegt pólitískt þrek til að beita hernaðarmættinum, ef nauðsyn krefði. En eins og málum er nú háttað er hrein fásinna og barnaskapur að ímynda sér annað en það sé matið á hernaðarlegum og pólitískum styrkleika. sem ræð^ur úrslitum um friöarhorfur. Og frá bæjar- dyrum vestrænna þjóða hljóta menn að líta yfir völlinn með kvíðboga. Á leiðtogafundinum í Feneyjum. Jimmy Carter og Helmut Schmidt heilsast að Valery Giscard d’Estaing viðstöddum. Friður á spjótsoddum Sovétmenn hafa yfirburði í venjulegum herafla langt umfram það, sem nauðsynlegt er til að verja yfirráðasvæði þeirra. I Evr- ópu hafa þeir auk þess komið fyrir eldflaugum með kjarnorku- sprengjum — SS-20 flauginni — sem ná frá skotpöllum innan sovésku landamæranna til skot- marka í öllum evrópsku Atlants- hafsbandalagsríkjunum þar á meðal íslandi. Miðað við þau áform, sem nú eru á döfinni, verður það ekki fyrr en á árinu 1983, sem Atlantshafsbandalagið hefur komið sér upp varnarkerfi gegn þessum eldflaugum. Aðgerð- ir Bandaríkjamanna til að endur- bæta langdrægt- kjarnorkueld- flaugakerfi sitt benda til þess, að þeir efist um stöðu sína gagnvart Sovétmönnum á þessu sviði, sem á ensku er nefnt „the central bal- ance“ milli risaveldanna og héF verður nefnt miðkerfið. En sam- kvæmt viðurkenndri hernaðar- kenningu nútímans er jafnvægi í miðkerfinu, eða ógnarjafnvægið svonefnda, lykillinn að því, hvort með óflugum viðbúnaði sé unnt að koma í veg fyrir styrjöld', þ.e; kjarnorkuvopnin langdrægu hafi fyrirbyggjandi áhuga og fæli frá átökum (deterrence-kenningin). Á höfunum hafa Vesturlönd enn smávægilega yfirburði yfir Sov- étríkin. . Spennan í Mið-Austurlöndum og óvissan um raunveruleg áform Sovétmanna í Afganistan og íran veldur því, að Bandaríkin og bandamenn þeirra hafa talið nauðsynlegt að grípa til gagn- ráðstafana. Vestrænum leiðtogum er ljóst, að á einum degi geta Sovétmenn farið landveg að Persaflóa með öflugan herafla og þar með lagt undir sig mikilvæg- ustu oliulindir Vesturlanda. Verði skrúfað fyrir þær mundi grund- völlurinn undir efnahagsstarfsemi Vestur-Evrópu og Japans bresta en Bandaríkin gætu siglt áfram á annarri vélinni eða ef til vill rúmlega það. Tími sovéskra tækifæra Við þessar aðstæður svarar meirihluti Vestur-Þjóðverja í skoðanakönnun, að hann telji Sov- étríkin mesta herveldi í veröld- inni. Og hvarvetna tala menn nú orðið um næstu stórátök í sífellt meiri smáatriðum. Á ráðstefnu, sem haldin var á vegum Atlants- hafsherstjórnar Atlantshafs- bandalagsins í Annapolis í Banda- ríkjunum fyrir skömmu sagði Raymond Aron, hinn þekkti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.