Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1980
33
Landslag og náttúrufegurö er allsérstæö á Hornströndum. Þessi mynd, sem tekin er úr lofti, sýnir sérstæöa holu og hvos
viö brimsorfna klettaströndina. Nöfnin á þessum sérstæöu náttúrufyrirbrigöum eru Hvos og Dugghola.
Smátilfinning fyrir
líðan skipbrotsmanna
sérstaklega hjálpfúsir og liölegir.
Þeir sögöu ýmis konar hjálpar-
starfsemi viö innlend og erlend
skip stóran þátt í starfi þeirra, þó
auövitaö sé gæzla miöanna um-
hverfis landiö stærsti þátturinn.
Óöinn sneri áleiöis til Skutuls-
fjaröar, er gengiö haföi verið frá
bátunum inni í þyrluskýli. Viö
höföum í feröinni komizt í öll skýli
S.V.F.Í. á Hornströndum, aö skýl-
inu í Hrafnsfiröi undanskildu.
Sagöi Jósep aö þaö yröi heimsótt
síöar og væru feröir þangaö tíöar
aö sumrinu og ekkert vandamál aö
komast aö því.
Gönguleiðir
vinsælar
Á heimleiöinni sagöi Jósep, aö
mikiö starf heföi veriö unniö við
björgunarskýlin síöustu þrjú árin.
Þau heföu öll veriö máluö jafnt
utan sem innan og unniö aö
ýmsum endurbótum.
Friölandiö Hornstrandir afmark-
ast meö hugsaöri línu, dreginni frá
Hrafnfjaröarbjörgum yfir í Furu-
fjaröarbotn. Jósep sagöi, aö
áformaö væri aö byggja kamra í
öllum helztu áningarstööum í
sumar og væri fólk beðiö aö tjalda
í námunda viö þá. Þá væri einnig
ætlunin aö hreinsa rústir gömlu
síldarverksmiöjunnar á Stekkeyri
og gamals braggahverfis á
Straumnesfjalli. „Einnig mun ég
vinna í sumar viö áframhaldandi
vöröun gönguleiöa á fjallvegum. í
fyrrasumar voru allar gönguleiöir
frá Hesteyri varðaöar, einnig leiöin
úr Veiðileysufiröi aö Hornvík, frá
Hrafnsfirði í Bolungarvík og úr
Aöalvík í Fljótavík, og vonast ég til
aö geta lokið þessu í sumar.
Gönguleiöirnar eru vinsælar og
margir sækja til Hornstranda, ein-
göngu til aö ganga þessar leiöir,
enda náttúrufegurö óvíöa tilkomu-
meiri.
Óöinn lagöi viö ankeri utan viö
Hnífsdal undir morgun þriöjudag,
og varöskipsmenn fóru meö okkur
á gúmbáti til lands. Eru þeim og
Helga Hallvarössyni skipherra hér
færöar beztu kveðjur og þakklæti
fyrir skemmtilega og fróölega ferö,
og einnig Jósep og fjölskyldu
hans.
(í grwnum þesaum hsfur varið
•tuðzt við Hornsfrendingsbók Þir-
l*itm Bjarnasonar.)
íbúöarhúsin gömlu aö Horni í Hornvík. í húsinu á vinstri hönd bjuggu hjónin Jóna Jóhannsdóttir og Stígur Haraldsson þar
til upp úr 1940. Hvönn vex víöa á Hornströndum og ef myndin prentast vel má sjá aö hún er vel komin á veg fyrir framan
húsin.
Vinnings-
númer í happ-
drætti FEF
DREGIÐ hefur verið i happ-
drætti Fólans einstæðra foreldra
og komu vinninjtar á eftirtalin
númer:
1. AMC-pottasett 6256
2. Vöruúttekt frá Gráfeldi 7673
3. Vöruúttekt frá
Vörumarkaði 8411
4. Vikudvöl í Kerlingafj.
fyrir tvo 4646
5. Lampi frá
Pílurúllugardínum 6120
6. Útivistarferð fyrir tvo 9146
7. Grafikmynd eftir Rúnú 5133
8. Heimilistæki frá Jóni
Jóhannesson & Co. 738
9. Heimilistæki frá Jóni
Jóhannesson & Co. 3452
Vegna sumarleyfa í júlímánuði
á skrifstofu FEF verða vinningar
afhentir, þegar hún opnar á ný
þann 1. ágúst.
Hóta sprengju-
herferð
Madrid. 3. júli. AP.
AÐSKILNAÐARSINNAR Baska
hótuðu í dag áframhaldandi
sprengjuherferð á ferðamanna-
stöðum á Miðjarðarhafsströnd
Spánar. Sex sprengjur hafa
sprungið til þessa. Lögreglan í
Pamplona á N-Spáni sagðist í dag
hafa handtekið 18 manns, sem
sakaðir væru um að vera félagar í
Aðskilnaðarsamtökum Baska,
ETA.
Funda með
Anderson
London, 3. júlí. AP.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra, og Carrington, utanrík-
isráðherra, hafa samþykkt að eiga
fund með John Anderson, sem
keppir að forsetakjöri í Bandaríkj-
unum. Anderson hefur verið á
ferðalagi erlendis að undanförnu.
Breskir embættismenn báru til
baka fréttir frá Washington þess
efnis, að Carter Bandaríkjaforseti
hefði reynt að koma í veg fyrir
fundinn á bak við tjöldin.
Togaramenn
í nauð
London, 3. júlí. AP.
BRESKIR togaramenn, sem segja,
að togurunum hafi fækkað úr 500 í
100 á sl. fimm árum, fóru í dag
fram á 35 millj. punda neyðar-
hjálp til að bjarga atvinnugrein-
inni. Togaramenn segja, að of
mikið framboð á ódýrum fiski frá
niðurgreiddum sjávarútvegi ná-
grannalandanna sé ástæðan fyrir
hruni bresks fiskiðnaðar.
Vaxtalækkun
London 3. júlí. AP.
ENGLANDSBANKI lækkaði í dag
forvexti um eitt prósent og mega
þeir nú minnst vera 16%. í kjölfar
þessarar ákvörðunar lækkaði
pundið um hálft annað sent á
alþjóðagjaldeyrismarkaði. Vaxta-
lækkunin stafar einkum af erfið-
leikum breskra fyrirtækja, sem
hafa átt erfitt uppdráttar vegna
mikils vaxtakostnaðar.
*
Iranskeisara
elnar sóttin
Kaíró, 3. júli. AP.
ÍRANSKEISARI fyrrv. er enn
„fremur illa haldinn" var haft
eftir talsmanni hans í dag. Hann
sagði að keisarinn þjáðist einnig
af taugaveiki. Sl. mánudag gekkst
keisarinn undir uppskurð þar sem
fjarlægður var gröftur og vilsa úr
lungunum. Lyfjameðferð, sem
keisarinn hefur fengið vegna eitla-
krabbameins, hefur haft mjög
slæm áhrif á mótstöðuafl líkam-
ans.