Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1980 29 Um tíu þúsund manns munu nú þcjíar hafa skoðað sýninguna. KJARVALSSTAÐIR Yfirlitssýning á verkum Kristínar Jónsdóttur og Gerðar Helgadóttur NÚ HAFA um tíu þúsund manns skoðað yfirlitssýn- ingar á verkum Kristínar Jónsdóttur og Gerðar Helgadóttur að Kjarvals- stöðum. Sýningin var sett upp í tilefni Listahátíðar, en er jafnframt sumar- sýning Kjarvalsstaða og verður opin fram til 27. júlí n.k. Sýningin er opin alla daga frá kl. 14—22. í tilefni sýningarinnar gáfu Kjarvalsstaðir út litprentuð póstkort með verkum eftir báðar lista- konurnar, sem seld eru á svningunni. HÓTEL BORG . Flugkabarett í kvöld klukkan 22.00 verður leikritið Flugkabarett sýnt á Hótel Borg. Gestum verður gefinn kostur á snarli og léttvíni bæði fyrir og eftir sýningu, og á eftir er dans- leikur. Bæði er unnt að kaupa miða einungis á leiksýninguna, og svo með dansleik. A morgun verður svo eftirmiðdagssýning fyrir fjöl- skylduna og byrjar hún kl. 16.00, og er miðasala á Hótel Borg. Happdrætti Hjartaverndar: 25 vinningar að verðmæti 16,5 milljónir króna í ELLEFU ár hefur Hjartavernd rekið happdrætti til styrktar starfsemi sinni. Þessa dagana er að hefjast tólfta happdrættisárið. en dregið verður 12. september n.k. Að þessu sinni eru vinningar margir sem áður, alls 25 vinn- ingar að verðmæti 16,5 miiijónir króna. Stærsti vinningurinn er Ford Fairmont Ghia bifreið, fjögurra dyra, sjálfskipt, ljós að lit með vinyltoppi. Þá er Laneer 1600 Gl. bíll annar vinningurinn, en hann er einn vinsælasti bíllinn á markaðn- um núna og mikið seldur hér á landi. Auk þessara stóru vinninga eru 23 eitt hundrað þúsund króna vinningar, vöruúttekt eftir eigin vali. A undanförnum árum hefur happdrættið rennt drjúgum stoð- um undir rekstur Rannsóknar- stöðvar Hjartaverndar, en hún er leitar- og rannsóknarstöð sem leggur aðaláherslu á að finna hjarta- og æðasjúkdóma, áður en þeir eru komnir á hættulegt stig. Hjarta- og æðasjúkdómar eru mannskæðustu sjúkdómar með þjóðinni nú á dögum og er því mikil nauðsyn að finna rætur þeirra og byrjunareinkenni. í Rannsóknar- stöð Hjartaverndar hafa verið framkvæmdar um 55.000 einstakl- ingsskoðanir þau rúm 12 ár sem stöðin hefur starfað. Af fjárhags- ástæðum hefur mjög dregið úr starfsemi stöðvarinnar síðustu ár- in. Verðbólgan og rýrnun peninga hefur lamað fjárhag hennar. Öllum ber saman um að fyrirbyggjandi og verðandi aðgerðir séu nauðsyn- legar ef vinna á bug á hjarta- og æðasjúkdómum. Það er stefna Hjartaverndar. Forráðamenn Hjartaverndar heita á allan almenning að leggja starfsemi samtakanna lið með því að kaupa miða í happdrættinu og stuðla að sölu þeirra. Um leið eiga þeir von á góðum vinningi ef heppnin er með. Gott málefni á góðan stuðning skiiið. Fréttatilkynning. Ólafur Kristjánsson skipstjóri — Sjötugur TÓNLEIKAR Orgeltón- leikar í Dóm- kirkjunni Martin Hunger mun halda tón- leika í Dómkirkjunni á morgun klukkan sex. Hann mun halda uppteknum hætti í allt sumar. SELFOSS Sýningu Hans Christians- sen lýkur um helgina í safnhúsi Árnessýslu á Selfossi stendur yfir myndlistarsýning. Hans Christiansen sýnir þar 34 vatnslitamyndir og teikningar. Sýningunni lýkur á morgun, en hún er opin frá 14—22 í dag og á morgun. Breið á Skipaskaga er í raun einn af fáum stöðum á íslandi sem er undir sjávarmáli, svo það má segja um þann sem þessar kveðjur á að fá, að hann hafi andað að sér sjávarseltunni um leið og hann drakk móðurmjólkina, enda oft að bragða á seltunni í öll þau ár er hann barðist við ránardætur. Þau voru ekki háreist húsin á Akranesi upp úr aldamótum er fólk bjó í, en þá bjuggu oftast tvær fjölskyldur í þeim og svo var einnig um litla húsið á Breiðinni sem þau hjón Ragnheiður Finns- dóttir og Kristján Guðmundsson bjuggu í með sín 10 börn. Var Ólafur 7. í röðinni, en hann er fæddur 5. júlí 1910. Það var glaður systkinahópur sem ólst upp á Breiðinni. Þessar glöðu æsku- stundir entust alltof stuttan tíma, því þessum stóra systkinahóp var ætlað annað hlutverk, en fá að njóta sinna foreldra og æskunnar, er Ólafur var 9 ára gamall deyr móðir hans og aðeins tveimur árum síðar faðir hans. Ólafur fór suður til Reykjavíkur og tók bróðir hans Kristinn á móti honum, en hann var þá kvæntur og búinn að stofna heimili þar. Fátt var um kveðjur er frá Akranesi var farið og virtust vinirnir vera horfnir, en Ólafur átti sér draum sem síðar rættist. Fljótlega varð að fara að vinna fyrir sér, lá þá sveitin næst við, en þar kunni sveinninn ekki við sig, of mikið salt var í blóðinu og á sjóinn skyldi haldið. 15 ára gamall fór hann hjálparkokkur á togar- ann Austra sem gerður var út frá Viðey, þá þótti það staða í þessu þjóðfélagi að vera hjálparkokkur á togara og í svona stöðu reyndu menn að halda og vinna sig upp og það gerði Ólafur, af sjónum fór hann ekki í rúm 30 ár nema um tveggja vetra skeið er hann stund- aði nám í Stýrimannaskólanum, þar er horft var til þess að komast í hólinn. Fyrsta skipið er hann tók að sér að stjórna var Freyja RE. svo kallaður línuveiðari, var það árið 1946, frá þeim tíma var hann svo til óslitið skipstjóri þar til hann hættir sjómennsku um 1960. Lengi var hann með nýsköpunartogara en einmitt á þeim tíma, kom hann GALLERÍ DJÚPIÐ Fyrsta einkasýning Val- disar Óskarsdóttur í Gallerí Djúpinu stendur yfir ljósmyndasýning Valdísar Óskarsdóttur. Á sýningunni eru 20 ljós- myndir, og er þetta fyrsta einkasýning Valdísar. Sýningin stendur til 16. júlí og er opin daglega frá 11—23. Myndirnar eru allar til sölu. til síns heimabæjar Akraness. Með fullmargar hendur á lofti sem buðu hann velkominn, þetta var stór stund fyrir Ólaf og langþráð- ur draumur rættist. Þá er Ólafur hætti á sjónum hélt hann ótrauður áfram við grundvallar atvinnuveginn. Endurmenntaði hann sig í fisk- vinnslu og kælitækni og tók að sér að byggja upp fiskeftirlitið, svo að hráefnið yrðí fullkomnara er að landi bærist. Þetta frumherja starf var bæði mjög vanþakklátt og erfitt, en með lipurð, ktinnáttu og stjórnsemi komst Ólafur svo frá þessu starfi að enn þann dag í dag býr eftirlitið að verkum hans. Það má segja um hann sem og marga aðra, að hann hefur ekki haft hátt yfir verkum sínum, þau hafa verið unnin í hljóði og árangurinn verið þau laun, er hann vildi helst þiggja, gleðin yfir árangri í starfi. 14. nóv. 1931 kvæntist Olafur konu sinni Ólafíu Hermannsdótt- ur og eiga þau eina dóttur Láru, á hún þrjú börn, afa sínum til mikils yndis. Kæri vinur ég veit að þú verður ekki hrifinn af því, að ævi þín skuli tíunduð svona í blaði, en það er einfaldlega ekki hægt að ná til þín, svo kær kveðja fylgir með þessum linum ogósk um hamingju til handa þér og þínum. Afmælisbarnið er að heiman. Kristmundur Sörlason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.