Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1980 texti HEIMSÓKN í PORTÚGAL jóhanna kristjónsdóttir 3. grein Frá einum básanna, þar sem aöallega voru íþróttaskór og karlmannaskór. Séö yfir hluta sýningarbásanna í Kristalshöllinni. Að skoða skó í Kristalshöllinni í Oporto og slaka sér á sveitaball Eitt af mörgum erindum mínum í Oporto var að skoða mikla og veglega skósýningu, MOCAP-5 sem stóð þar yfir í þrjá daga í Kristalshöllinni, ágætri sýningarhöll og um áttatíu og fjögur fyrirtæki sýndu þar framleiðslu sína. Þar sá ég í bæklingi, að átta þeirra flytja inn skó til Islands. En þó svo að við kaupum töluvert af skóm frá Portúgal er það afar lítið brot af heildarskóinnflutningi okkar og er eitt af því, sem Portúgölum finnst, að við mættum gera í ríkara mæli á móti öllum saltfiskkaupunum, sem þeir eiga við okkur. Til skósýningar þessarar, sem er nú haldin tvisvar ár hvert og nú í fimmta sinn, streyma fjölmargir gestir erlendir sem innlendir. Fyrsta skósýningin var ósköp smá í sniðum, en hefur síðan orðið æ myndarlegri og voru menn á einu máli um, að þessi væri sú hin glæsilegasta. Þeir gestir sem til sýningarinnar koma eru vitanlega einkum þeir sem eru í skóbransanum og einnig voru nokkrir útlendir blaðamenn á sýningunni. Við komuna var hverjum gesti afhentur stór og þekkiiegur poki, sem reyndist fullur af fróðlegum upplýsingum um skóframleiðslu Portúgala, myndir af sýningarbásum og auðvitað hin ómissandi púrtvíns- flaska. Engin formleg athöfn var þegar sýningin hófst, en ýmsir framámenn borgarinnar komu á vettvang og aðstoðarviðskiptaráðherrann Armando Souse e Almeida hafði komið fljúgandi frá Lissabon. Þessi sýning er haldin fyrir frumkvæði Fundo de Fomento de Exportacao, en í forsvari Fundo í Oporto er Jose Barros, en fjöldi manns hafði auðvitað lagt hönd á plóginn við að koma upp sýningunni. Elza Neto starfsmaður Fundo í Oporto hafði yfirumsjón með framkvæmdinni og gekk hún um ganga með aðstoðarráðherranum og framámönnunum og sýndi þeim básana. Svo var haldin tízkusýning og sú var svo tvisvar dagana þrjá sem sýningin stóð yfir. Þetta var fjðrleg og litrík sýning og kenndi þar margra grasa. Annars fannst mér í fljótu bragði setja mestan svip á útvistarskór hvers konar, kvenskór, sem höfðu þau einkenni helzt að vera léttir og mildir bandaskór, ellegar lágar og þægilegar mokkasíur. Ég gekk þarna um öðru hverju þessa þrjá daga, horfði einu sinni á tízkusýninguna og skrafaði við hina ýmsu framleiðendur. Að vísu vantaði að þarna væri með eitt fyrirtæki sem ég veit að selur mikið af skóm til Islands, einkum barnaskóm það heitir JIP og hefur margsinnis unnið til viðurkenninga fyrir vandaða vöru. Hin fyrirtækin sem ég sá að höfðu ísland á blaði hjá sér voru MOGLI, ANDANTE-TRIO, FEC, MARINO, PORTISA CALSUPER, MELIOR, PILAR og FEMINA. öll þau fyrirtæki fengu einkunnina, góð gæði í bæklingi sem var gefin út í sambandi við sýninguna, innkaupaað- ilum til glöggvunar, og sum jafnvel að gæði væru stórgóð. Til að gefa nokkra hugmynd um hversu öflug skó-framleiðsla Portúgala er að verða, skal á það bent, að árið 1979 framleiddu þeir 14,3 milljón pör af skóm, að verðmæti sem svarar 57 milljörðum ísl. króna. Áætlað er að framleiðslan á fyrsta fjórðungi þessa árs hafi verið 4 milljón pör. Sé hugað að því, hvaða þjóðir kaupa mest af skótaui frá Portúgal reynast það vera Bretar með 21,3 prósent og síðan koma Sviar og Vestur-Þjóðverjar með 13,1 prósent. Frakkar kaupa 10,5 prósent, og efstir Norður- landaþjóða á eftir Svíum eru Norðmenn með 8,4 prósent. ísiand nær því að vísu að komast á blað en ekki meira en svo: 0,3 prósent árið 1979 eða samtals 33.990 pör skóa. Skóframleiðslunni í landinu hefur stórfleygt fram síðustu ár bæði hvað varðar magn og gæði og má hikstalaust fullyrða að Portúgalar séu komnir í fremstu röð hvað þessa framleiðslugrein snertir, alténd það sem bezt gerist þar. Þar til á allra síðustu árum hafa flestar verksmiðjurnar verið heldur smáar og afkastageta takmörkuð, en hlúð hefur verið að þessari iðngrein með þeim árangri sem m.a. varð séður á MOCAP-5. Þegar ég var í Oporto síðast, minnist ég þess, að ég heimsótti örlítið fyrirtæki sem heitir AJAX og það rifjaðist einnig upp fyrir mér, að einn eigandinn Sancho Gomes da Silva sagði mér þá frá stórhuga fyrirætlun- um þeirra bræðranna sem verksmiðjuna áttu um að byggja nýtt hús. Væru þeir búnir að fá land, en óvíst hvenær þeir réðust í framkvæmdir eða hvort þeir treystust til þess. Eg leitaði því að gamni mínu upp sýningarbás þessa fyrirtækis og þar er reyndar da Silva fyrir og það verða fagnaðarfundir. Hann býður mér samstundis það sama síðdegi að koma til Fiáes og sjá: hann er nefnilega búinn að byggja. Hann lét ekki sitja við orðin tóm og kom og sótti mig og Luisu Agapito, sem er fulltrúi á viðskiptaskrifstofu Portúgala í Osló og við brunuðum í góðviðri dagsins til Fiáes sem er svo sem hálftíma keyrsla frá Oporto. Þar hafði heldur betur skipt um. Björt og myndarleg verksmiðja, þar sem virtist fyrir öllu hugsað, ekki sízt þörfum starfsmanna, stóð á fögrum stað í útjaðri Fiáes. Bróðir da Silva, Manuel kom með okkur og við gengum um og skoðuðum og mér fannst hreint ótrúlegt að sjá þetta, því að mér voru í minni þröng og rangalaleg húsakynnin sem ég hafði vitjað rúmlega þremur árum áður. Ajax er fjölskyldufyrirtæki í orðsins fyllsta skilningi. Faðir þeirra hóf reksturinn á sínum tíma og fjórir af sex bræðrum koma við sögu hans nú. Þeirra hugsjón er sú helzt og bezt að framleiðslan sé vönduð og vegleg og starfsfólkinu líði vel og þeir voru greinilega öllum stundum sjálfir að atast í þessu. Framleiðslugeta Ajax er nú um eitt þúsund pör á dag og þeir framleiða einvörðungu kvenskó, flytja aðallega út til Hollands, Noregs og Danmerkur, auk þess sem fer á innanlands- markaðinn. í handbók sýningarinnar fengu þeir vitnis- burðinn góð/mikil gæði. Da Silva gerði það raunar ekki endasleppt við okkur Luisu, á leiðinni til Oporto aftur um kvöldið, bauð hann okkur í gómsætan málsverð á notalegum veitingastað, sem ég man nú reyndar ekki í bili hvað heitir. Annað kvöld skósýningarinnar hélt undirbúnings- nefnd MOCAP-5 öllum þátttakendum og hinum ótal mörgu innlendu og erlendu gestum sem til sýningarinn- ar höfðu komið, samkvæmi eða „sveitaball" í Quinta da Paradela, skammt fyrir utan Oporto. Þar voru bornir fram aðskiljanlegir og dæmigerðir portúgalskir réttir með stuttu millibili allt kvöldið, vínið flaut í stríðum straumum, sýndir voru skemmtilegir og litfagrir þjóðdansar og loks var slegið upp almennu dansiballi fram eftir nóttu þar sem menn stigu dans af mikilli innlifun. Hinu er ekki að neita, að daginn eftir voru ýmsir menn í Kristalshöllinni framlægri, bæði sýnendur og gestir. En hvað nú um það. Þetta hafði verið góð veizla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.