Morgunblaðið - 05.07.1980, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1980
Spennandi ný bandarísk .hrollvekja"
— um afturgöngur og dulartulla
atburöi.
Adrienne Barbeau
Janet Leígh
Hal Holbrook
Leikstjóri: John Carpenter
— íslenskur taxti —
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Hækkað varð.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
sýnd í Háskólabíói og
Laugarásbíói kl. 5, 7 og
9.
Bönnuö innan 12 ára.
AUGI.ÝSINGASÍMINN ER:
22410
2Margn«tliI«tiib
C3>
Lóöaúthlutun
Bæjarstjóri Garöabæjar auglýsir 5 lóöir lausar til
umsóknar í Hnoðraholti.
Umsóknum skal skila á skrifstofu bæjarins fyrir
14. júlí nk.
Athugiö: endurnýja þarf eldri umsóknir.
Bæjarstjóri
LÁNASJÓÐUR
ÍSLENSKRA
NÁMSMANNA
Umsóknarfrestur
námslána
Umsóknarfrestur um haustlán veturinn 1980—81, er
til 15. júlí nk.
Áætlað er aö afgreiösla lánanna hefjist:
Fyrir námsmenn erlendis 1. okt. 1980.
Fyrir námsmenn á íslandi 1. nóv. 1980.
Umsóknareyöublöö fást á skrifstofu sjóösins aö
Laugavegi 77, afgreiöslutími er frá 1—4 e.h. Sími
25011- Reykjavík, 3.7. 1980.
Lánasjóöur ísl. námsmanna.
Eggert H. Kjartansson:
beinist að jarðvarma
Hugurinn
Amsterdam. 23. mai.
„Á PETROTECH 80“ vörusýn-
ingu sem haldin var í R.A.I.,
stærstu sýningarhöll Amsterdam,
var til sýnis flest það sem viðkem-
ur olíu og gasvinnslu í heiminum í
dag. í heimi þar sem verð þessara
afurða stígur jafnt og þétt má
búast við breyttum vinnslu- og
nýtingaraðferðum árlega. Mark-
mið sýningarinnar var því fyrst og
fremst að kynna þær og opna þeim
leið inn á markað. Hagkvæmnis-
sjónarmið og aukin þjónusta
verða æ mikilvægari þættir þess-
ara iðnaðargreina sem annarra.
Viðhald þeirra tækja, sem notuð
eru, eykst jafnt og þétt vegna þess
kostnaðar sem fylgir endurnýjun,
því voru efni sem áður voru talin
of dýr til notkunar og önnur ný
svo sem einangrunarefni, jafnt til
þess að bera á og leggja yfir fleti,
töluverður þáttur sýningarinnar.
Samvinna milli fyrirtækja hef-
ur aukist vegna harðnandi sam-
keppni því samdráttur hefur orðið
í fjárfestingu þeirra þátta sem
snerta olíu og gasiðnað. Almennt
álitu menn að verið væri að bíða
þess að vinnsla annarra orkugjafa
svo sem sólar, jarðvarma og vinda
kæmist á hagkvæmnisstig. Fyrir-
tæki sem framleiða hluti fyrir
kjarnorkuver voru fyrirferðarlítil
þarna, enda alvarlega skiptar
skoðanir um kjarnorkuna sem
framtíðarlausn mannkyns á orku-
kreppu.
Það sem einna helst vakti at-
hygli mína var, hvað aðrar þjóðir
hafa hugsað sér í því að nýta
jarðvarma og það sem unnið hefur
verið að í þeim málum á þeirra
vegum. Jafnvel þó svo að þjóð eins
og Hollendingar þurfi að bora
hvorki meir né minna en 2 til 3 km
niður til þess að fá upp 60 til 90°C
heitt vatn, hafa þeir þegar kostað
miklu í rannsóknir á því sviði.
Hugmynd þeirra er að leiða vatn í
pípum niður á þetta dýpi og fá það
síðan upp aftur með áðurnefndu
hitastigi. Þessi aðferð sem ekki er
ósvipuð þeirri aðferð sem notuð er
í Vestmannaeyjum við húshitun er
enn dýr samanborið við gas, en er
álitin borga sig fljotlega hækki
olíu- og gasverð með svipuðum
hraða og nú er, næstu árin. Þessi
dýri möguleiki á orku hefur aftur
kallað á framfarir framleiðslu
krana, mæla og annars þess sem
lýtur að flutningi heita vatnsins
frá holu þess staðar sem nýta á
orkuna. Hollendingar eru þó ekki
allir jafn bjartsýnir á að þetta
dugi og því hafa þeir tekið aftur í
notkun hluti sem á tímabili voru
álitnir heyra sögunni til, þ.e.
vindmillurnar. Þær verða nu æ
mikilvægari við að dæla vatni þar
sem áður voru notaðar gasdrifnar
dælur.
Það yrði of langt mál að telja
hér allt upp sem og gera því skil
að marki. Menn voru almennt
ánægðir með sýninguna að henni
lokinni, jafnvel þó svo þeir treystu
sér ekki til þess að standa í
spádómum um framtíðina.
E.H.K.
*
Aðalfundur Læknafélags Islands:
Alger andstaða við stofnun embætt-
is deildarstjóra geðheilbrigðis-
mála við heilbrigðismálaráðuneytið
AÐALFUNDUR Læknafélags ís-
lands var haldinn á Húsavík dagana
13. og 14. júní sl. Helztu mál
fundarins voru „Rekstur og stjórn-
un heilsugæzlustöðva”. framsögu-
maður Kristófer Þorleifsson, læknir
í Ólafsvík. og endurskoðun lækna-
laga, sem Ólafur Ólafsson. land-
læknir, hafði framsogu um.
Fundurinn samþykkti margar
ályktanir. m.a. ályktun. þar sem
enn á ný er vakin athygli á vanda-
málum sjúks aldraðs fólks og talið,
að skortur á hjúkrunar- og dag-
deildum fyrir aldraða sé eitt brýn-
asta úrlausnarefnið í heilbrigðis-
þjónustunni.
Fundurinn fagnaði því samstarfi,
sem tekist hefur milli lækna,
atvinnurekenda og launþega um
vottorðamál, og var stjórn L.í. falið
að vinna að því, í samráði við
áðurnefnda aðila, að læknisvottorð
til atvinnurekenda leggist niður, sé
um að ræða fjarvistir í 3 daga eða
skemur. Samskonar ályktun var gerð
um fjarvistarvottorð fyrir skólafólk
vegna skammtíma veikinda.
Um leið og heilbrigðisráðherra var
þakkað frumkvæði hans í undirbún-
ingi að mótun nýrrar heildarstefnu í
heilbrigðismálum Islendinga, lýsti
fundurinn furðu sinni á því, að ekki
var leitað til samtaka lækna um
tilnefningu í vinnuhóp þann, sem
m.a. skal vinna að udnirbúningi
heilbrigðisþings á hausti komanda.
Samþykkt var ályktun um, að ekki
megi dragast lengur að koma á fót
framhaldsmenntun lækna á íslandi;
einnig að hraða yrði endurskoðun
reglugerðar um veitingu lækninga-
og sérfræðileyfa.
Samþykkt var að beina því til
heilbrigðisráðherra, að héraðsskylda
ungra lækna verði afnumin nú þegar,
og taldi fundurinn, að leysa þyrfti
læknaskort dreifbýlisins með öðrum
hætti en skylduvinnu lækna.
Á fundinum var lögð fram skrá um
sérgreinaval íslenzkra lækna, þar
sem fram kemur, aö nú munu a.m.k.
164 íslenzkir læknar stunda fram-
haldsnám erlendis, auk þess sem
rúmlega 40 læknar, sem lokið hafa
sérfræðinámi, eru þar búsettir.
Einnig lýsti fundurinn yfir algerri
andstöðu við hugmyndir nokkurra
alþingismanna um stofnun embættis
deildarstjóra geðheilbrigðismála við
heilbrigðismálaráðuneytið. Telur
fundurinn, að deildaskipting ráðu-
neytisins eftir sérgreinum læknis-
fræðinnar, sem hér virðist vísir að, sé
afleitur kostur og muni enn frekar en
orðið er ýta undir sundrung og
meting, sem stundum virðist ríkja á
milli hinna ýmsu hagsmunahópa
sjúklinga og heilbrigðisstétta.
Læknafélag Norðausturlands sá
um allan undirbúning fundarins, sem
haldinn var á hótelinu á Húsavík, en
jafnframt var minnst 10 ára afmælis
heilsugæzlustöðvarinnar á Húsavík.
Stjórn Læknafélags íslands skipa
nú: Þorvaldur Veigar Guðmundsson,
formaður, Guðmundur Oddsson,
varaformaður, Viðar Hjartarson, rit-
ari, Eyjólfur Þ. Haraldsson, gjald-
keri og Kristófer Þorleifsson, með-
stjórnandi. Fræmkvæmdastjóri fé-
lagsins er Páll Þórðarson, lögfræð-
ingur.
Fréttatilkynning frá
Læknafélagi Islands.
Skipulags-
kenning
lenínismans
ÚT ER KOMINN bæklingurinn
„Skipulagskenning lenínismans"
eftir Ernest Mandel, og er hann
hinn fyrsti í fyrirhugaðri ritröð
Fylkingarinnar um hina ýmsu
þætti marxismans og sósíalískrar
baráttu.
Ritið er 60 bls. að stærð og
unnið hjá offsetfjölritun Birkis.
Hotel Borg
Flugkabarett
Júlí leikhúsið sýnir
Flugkabarett.
3. sýning laugar-
dagskvöld kl. 22.
Fjölskyldusýning
sunnudag kl. 16.
Miöasala í gesta-
móttöku alla daga.
Dansleikur
á eftir frá kl. 23 í
kvöld til kl. 3.00.
Bob Dylan nýja
breiöskífan
Saved, kynnt sér-
staklega. Fjöl-
breitt tónlist.
20 ára aldurstakmark. Spariklæðnaður.
Hótelherbergi á besta staö í borginni.
Kvöldveröur frá kl. 19.00.
Hótel Borg, sími 11440.