Morgunblaðið - 05.07.1980, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1980
v1tt> ~<f?
MORöíJKi-Í®
MtFINU \\ I
Konan min heldur að ég sé að
grafa fyrir sundlaug á baklóð-
inni!
Gjörðu svo vel — gakktu í
bæinn, cn þurrkaðu af fótunum!
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
COSPER
KONA! — Lilli virðist vera þyrstur!
Aðalfundur Landsambands veiðifélaga:
Fagnar fyrirhugaðri
kennslu í fiskirækt
Þegar illa Ken«ur í tvímenn-
inKskeppni þykir mon'iim rétt að
tcfla á ta pasta vað í sögnum og
reyna með því að ná til baka
xlötuðum stÍKum. Þetta heppnast
stundum ok spilið í da« er
einmitt slikt tilfelli.
Vestur uaí, allir utan hættu.
Norður
S. 9872
H. K842
T. ÁKG2
L. Á
Austur
S 103
H. ÁG753
T. 763
L. 964
Suður
S. ÁKDG4
H. D96
T. 4
L. KG83
I fjölmennri tvímenningskeppni
voru á mörgum borðum spilaðir 6
spaðar í suður. Út kom hjarta,
næsta hjarta trompað — einn
niður.
En á einu borðanna varð suður
sagnhafi í 6 gröndum. Vestur
spilaði út spaða, sem sagnhafi tók
heima og spilaði hjartasexi á
kónginn. Austur tók og skipti í
laufníu. Og stuttu seinna hafði
sagnhafi náð fram þessari stöðu.
Norður S. - H. 8 T. ÁKG2 L. -
Vestur Austur
S. - S. -
H. - H. G7
T. D1098 T. 763
L. D Suður S. 4 H. 9 T. 4 L. G8 L. -
Þegar suður spilaði síðasta
spaðanum lenti vestur í óttalegri
púkapressu. Léti hann laufdrottn-
inguna yrði gosinn hæsta spil og
lét hann því tígul. En með heppn-
aðri svíningu varð tígultvisturinn
þá seinna tólfti slagurinn.
Reyndar gat austur komið í veg
fyrir kastþrðngina með því að
spila tígli eftir hjartaásinn. En í
staðinn mátti þá vinna spilið með
svíningu í hjartanu, sem var jú
alltaf betri möguleiki.
FYRIR nokkru ,var aðalfundur
Landssamhands veiðifélaga hald-
inn i héraðsheimilinu á Egils-
stöðum. Fundinn sátu tæplega 50
fulltrúar frá milli 30 og 40 félög-
um. Fundurinn stóð í tvo daga. en
að loknum fundarstorfum síðari
daginn bauð veiðifélag Fljótsdals-
héraðs fundarmiinnum í skoðunar-
ferð að Lagarfljótsvirkjun. Þar var
skoðaður laxastigi sá. sem byggður
var í samhandi við virkjunina og
síðan voru þegnar veitingar Itaf-
magnsveitu Austurlands.
Á fundinum var flutt skýrsla
sambandsins á liðnu ári. Eitt aðal-
verkefni var útgáfa leiðbeininga-
bæklingsins um silungsveiðivötn á
suður- og vesturlandi. Heitir hann
„Vötn og Veiði“ og hefur verið vel
tekið. Var stjórninni falið að halda
þessu áfram og skal næsta hefti
fjalla um norðvestur hluta landsins.
Rædd voru mörg mál veiðiréttar-
eigenda, svo sem nauðsyn aukinna
rannsókna á fiskeldi og fiskrækt,
eflingu veiðieftirlits, mengunar-
varnir bætta nýtingu silungsveiði-
hlunninda.
Fagnað var ákvörðun um stofnun
útibús veiðimálastofnunarinnar á
Austurlandi og fyrirhugaðri
kennslu í fiskrækt á Hólum í
Hjaltadal.
Aðalmál fundarins voru þó varnir
gegn fisksjúkdómum og leiðir til að
hindra sem best að fleiri slíkir
berist til landsins. Nauðsyn var
talin á betri sótthreinsun á búnaði
veiðimanna sem til landsins koma.
Sérstaklega var bent á bílaferjuna
Smyril í þessu efni, einnig var talið
að óæskilegt væri að reisa eldis- og
kiakstöðvar við veiðiár, heldur
skyldi reynt að haga svo til að
afrennsli stöðvanna felli til sjávar.
Talið er að þetta dragi úr smit-
hættu. Fundurinn gerði ýmsar ál-
yktanir varðandi þessi efni og önnur
mál.
Sigurður Helgason, fisksjúk-
dómafræðingur flutti þarna fróðlegt
erindi um fisksjúkdóma, auk hans
voru Landbúnaðarráðherra og
Veiðimálastjóri gestir fundarins.
Stjórn sambandsins skipa nú:
Þorsteinn Þorsteinsson Skálpa-
Vestur
S. 65
H. 10
T. D10985
L. D10752
Misnotkun sjónvarps
á kosninganótt
Heiðraði Velvakandi!
Við greiðum afnotagjöld sjón-
varps og teljum okkur eiga fullan
rétt á því að það gjald ásamt
öðrum afnotagjöldum og auglýs-
ingagjöldum verði notað til að
reka íslenska sjónvarpið á heiðar-
legum grundvelli, sem upplýsinga-
og skemmtimiðil. Við teljum að
sjónvarpið hefi brugðist trúnaði
okkar og annarra þeirra sem
greiða afnotagjöld (og auglýs-
ingagjöld) er það skýtur inní
dagskrá myndum úr kvikmynd
Hrafns Gunnlaugssonar „Oðal
feðranna“, á kosninganótt forseta-
kjörs 1980, undir því yfirskini að
verið sé að leika tónlist úr kvik-
myndinni. Væntanlega þá á sama
grundvelli og önnur tónlist sem
flutt var milli atriða í kosninga-
dagskrá. Tónlistin sem slík var
ekki síðri en önnur tónlist sem
flutt var þessa nótt. Hins vegar
var tíma birtingar og vali mynda
sem fylgdu tónlistinni á þann veg
háttað, að okkur finnst liggja í
augum uppi að þarna var um
hreina auglýsingu að ræða. Það
getur varla verið nein tilviljun að
myndirnar úr „Oðal feðranna"
birtast á einum besta auglýsinga-
tíma sjónvarpsins er talning at-
kvæða fer fram í kosningum til
þjóðhöfðingja lýðveldisins — ein-
mitt þegar samnefnd kvikmynd er
sýnd í tveim kvikmyndahúsum
borgarinnar. í öðru lagi getur val
myndanna úr kvikmyndinni varla
stjórnast af tilviljun, svo áberandi
sem það miðaðist við æsingarsen-
ur. Þetta minnir mann á auglýs-
ingar kvikmyndahúsanna á
„geysidjörfum" myndum. Að
okkar áliti var um hreina auglýs-
ingu íslenska sjónvarpsins á mynd
Hrafns Gunnlaugssonar, Óðali
feðranna, að ræða. Auglýsingu
sem birt var á kostnað þeirra sem
greiða afnota- og auglýsingagjöld,
stöðum, formaður, Hinrik A. Þórð-
arson, Útverkum, ritari, Jóhann
Sæmundsson Ási, féhirðir, ásamt
Vigfúsi B. Jónssyni Laxamýri og
Sveini Jónssyni Egilsstöðum með-
stjórnendum. Halldór Jónsson Leys-
ingjastöðum baðst undan endur-
kosningu vegna heilsubrests. Voru
honum þökkuð meira en tveggja
áratuga störf í þágu sambandsins.