Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JULI 1980
43
i
Meistaramótið í frjálsum:
Helga með met og tveir
yfir 70 metra í spjóti
MEISTARAMÓT íslands í frjáls-
um íþróttum hófst á Laugardals-
vellinum I gærkvöldi.
Nokkur góð afrek voru unnin
eins og vænta mátti. en flatn-
eskja var þó nokkur. Helga Hall-
dórsdóttir setti met í 100 metra
grindahlaupi, hljóp á 14,56 sek-
úndum. Þá köstuðu bæði Sigurð-
ur Einarsson og Einar Vil-
hjálmsson spjótinu yfir 70 metra.
og gerist slíkt ekki á hverjum
degi á frjálsíþróttamótum á ís-
landi. En það var kannski Ágúst
Ásgeirsson. sem kom mest á
óvart. Hann hætti að æfa á
síðasta vetri, en byrjaði síðan á
nýjan leik fyrir mánuði síðan.
Hann keppti nú i 800 metra
hlaupi og sigraði örugglega. „Ég
ætlaði bara að sjá hvar ég stæði,“
sagði Ágúst eftir hlaupið (fyrir
hlaupið einnig).
Við skulum renna yfir hverja
grein fyrir sig og kanna úrslitin.
Þess skal þó fyrst getið, að þetta
var aðeins hluti mótsins, því
verður framhaldið í dag. Oddur
Sigurðsson sigraði í 200 metra
hlaupi, en fékk mikla og harða
keppni frá Sigurði Sigurðssyni,
sem var aðeins nokkrum sekúndu-
brotum á eftir Oddi. Tími Odds
var 21,44 sekúndur, en tími Sig-
urðar var 21,68 sek. Þriðji varð
Þorvaldur Þórsson, en hann hljóp
á 22,61 sek.
Oddur var einnig í sigursveit, er
KA sigraði í 4x100 metra boð-
hlaupi. Tími KA-sveitarinnar var
43,4 sekúndur. Sveit Ármanns
varð önnur á 44,43 sek.
Hreinn Halldórsson sigraði í
kúluvarpi og Óskar Jakobsson
varð annar, en hvorugur náði að
varpa kúlunni yfir 20 metra.
Sigurkast Hreins var 19,63 metr-
ar, en besta kast Óskars var 19,56
metrar. Guðni varð þriðji með
17,28 metra kast.
í spjótkastinu köstuðu tveir yfir
70 metra, eins og áður sagði.
Sigurður Einarsson sigraði,
kastaði spjótinu 74,00 metra.
Lengsta kast Einars Vilhjálms-
sonar var 73,18 metrar.
Knattspyrnukappinn Jón
Oddsson sigraði í langstökki,
stökk 7,14 metra og Friðrik Þór
Óskarsson varð annar með 6,98
metra stökk.
Ef við snúum okkur aftur að
hlaupunum, þá sigraði Helga
Halldórsdóttir í 110 metra grinda-
hlaupi. Hljóp hún á 14,56 sekúnd-
um, sem er met. Önnur varð
Kristbjörg Helgadóttir, sem hljóp
á 16,24 sek. Þriðja varð Valdís
Hallgrímsdóttir, sem hljóp á 16,25
sek. Helga sigraði einnig í 200
metra hlaupi, hljóp á 24,96 sek-
úndum. Önnur varð Oddný Árna-
dóttir, hljóp á 25,58 sekúndum.
Kristín Halldórsdóttir varð þriðja
á 26,35 sek.
Ágúst Ásgeirsson sigraði óvænt
í 800 metra hlaupinu. Tími hans
var 1:56,2 mín. Annar varð Guð-
mundur Sigurðsson, hann fékk
tímann 1:57,3. Þriðji varð Steindór
Tryggvason, hljóp á 1:58,3. Sigurð-
ur Sigurðsson sigraði í 5000 metra
hlaupinu, tími hans var 16:00,2.
Steinar Friðgeirsson, ungur og
upprennandi langhlaupari varð
Ágúst Ásgeirsson kom mjög á
óvart og sigraði i 800 metra
hlaupi.
annar á 16:35,2. Þriðji varð Einar
Sigurðsson á 17:27,4.
I 400 metra grindahlaupi sigraði
Aðalsteinn Bernharðsson, en hann
fékk tímann 59,36 sekúndur. Ann-
ar varð Trausti Sveinbjörnsson á
60,86 sekúndum. Keppendur voru
aðeins tveir.
Unnar Vilhjálmsson sigraði í
hástökki karla, vippaði sér yfir
2,01 metra. Stefán Friðleifsson
varð annar, stökk 1,98 metra.
Loks eru það kastgreinar
kvenna. Dýrfinna Torfadóttir
sigraði í spjótkasti kvenna,
kastaði 42,60 metra. Keppnin var
hörð, önnur varð Iris Grönfeldt
með 41,18 metra kast. María
Guðnadóttir varð þriðja með 40,12
metra. í kúluvarpinu sigraði Guð-
rún Ingólfsdóttir, hún varpaði
kúlunni 13,10 metra. Önnur varð
Helga Unnarsdóttir með 11,43
metra kast. Þriðja varð síðan íris
Grönfeldt með 10,74 metra. gg.
Islendingar voru
ósannfærandi
gegn Grænlandi
ÍSLENDINGAR sigruðu Græn-
lendinga 4 — 1 í landsleik í knatt-
spyrnu sem fram fór á Húsavik í
gærkvöldi. Staðan í hálfleik var
4—0 fyrir ísland. Af hálfu ís-
lenska liðsins var leikurinn
fjarri því að vera vel leikinn og
mestu athyglina vakti léttur og
friskandi leikur grænlensku leik-
mannanna. Ef íslendingar hefðu
ekki skorað þrjú mörk á 3
mínútna kafla í lok fyrri hálf-
leiks, er aldrei að vita hvernig
Goolagong
sigraði
ÁSTRALSKA konan Yvonne
Goolagong sigraði í einliðaleik
kvenna á Wimbledonkeppninni í
tennis. en hún mætti Chris Evert
Lloyd í úrslitaleik i gær. Vann
Goolagong fyrstu lotuna mjög
örugglega 6—1. Næsta hrina var
jöfn og spennandi, en þá sigraði
Goolagong 7—6.
Minningarmót
í golfi á
Akureyri
MINNINGARMÓT um Ingimund
Magnússon fer fram á Akureyri í
dag. Leiknar verða 36 holur.
Verðlaun til mótsins verða gefin
af ættingjum Ingimars.
Akraprjónsmót
í golfi í dag
AKRAPRJÓNSMÓTIÐ í golfi fer
fram í dag og hefst kl. 10. Þetta
• opið mót fyrir konur. Glæsileg
Island
Grænland
4:1
Brðlaun verða
srða 18 holur.
veitt. Leiknar
farið hefði, því Grænlendingar
voru tvímælalaust hetra liðið í
siöari hálfleik og það lið sem átti
hættulegri tækifæri.
íslendingarnir voru yfirleitt
heldur meira með knöttinn, en
þeim tókst ekki að skora fyrr en á
25. mínútu leiksins, en þá skoraði
Marteinn Geirsson með þrumu-
skoti af stuttu færi. Á 38. mínútu
rofnaði varnarmúr Grænlendinga
öðru sinni og Páll Ólafsson skor-
aði með skalla eftir að grænlenska
markverðinum hafði orðið á mis-
tök. Á sömu mínútunni fékk Lárus
knöttinn 30 metra úti á vellinum.
Sá hann hvar grænlenski mark-
vörðurinn stóð of framarlega og
lét því skot ríða af. Hafnaði
knötturinn sekúndubroti síðar í
netinu, 3—0. Guðmundur Steins-
son skoraði fjórða markið af
stuttu færi á 40. mínútunni og
þannig stóð í hálfleik.
Síðari hálfleikurinn var bara
vitleysa hjá íslenska liðinu, en
grænlenska liðið sýndi hins vegar
tilþrif, t.d. komust hinir eldsnöggu
framherjar liðsins fimm sinnum
einir inn fyrir vörn íslenska liðs-
ins. Alltaf tókst þó að bægja
hættunni frá. Grænland skoraði
engu að síður verðskuldað mark,
það gerði besti maður vallarins,
Kristofer Ludvigsen úr víta
spyrnu, eftir að íslenskur varnar*
maður hafði handleikið knöttinn
innan teigs. Það má því kannski
segja, að Island hafi sloppið vel og
unnið stærri sigur en efni stóðu
til. Einu mennirnir í íslenska
liðinu sem eitthvað sýndu, voru
þeir Lárus Guðmundsson og
Trausti Haraldsson. Aðrir fóru
sér rólega.
bb./gg.
Óskar var nokkuð frá sínu besta í Helga Halldórsdóttir setti met í
kúluvarpinu. gærkvöldi.
Júlíus vann bronsverðlaun
í lyftingum á OL-leikunum
ÍSLENSKU keppendurnir sem
taka þátt í ólympíleikunum i
Arnheim hafa staðið sig með
mikilli prýði. Edda Bergmann
varð í 7. sæti í 100 m skriðsundi
af 14 keppendum. Fékk hún
timann 2.13,31. Hörður Arndal
varð 7. i úrslitasundinu í 100 m
skriðsundi á 1.27.17.
Guðmundur Gíslason varð 7. af
19 keppendum í spjótkasti.
kastaði 35,60 metra. Og Jónas
óskarsson hlaut bronsverðlaun í
75 kg flokki í lyftingum, lyfti 100
kg. lslensku keppendurnir hafa
því unnið til tveggja verðlauna á
leikunum. Er það góð og glæsileg
byrjun. en þetta er í fyrsta skipti.
sem flokkur frá íslandi tekur
þátt í Ólympíuleikum fatlaðra.
þr.
Teitur skoraði tvö
er Öster sigraði Malmö
TEITUR Þórðarson var heidur
betur i sviðsljósinu í sænsku
knattspyrnunni í gærkvöldi. er
lið hans öster, sigraði Malmö FF
4—0. Með sigri sinum náði Öster
þriggja stiga forystu i sænsku
deildarkeppninni.
Teitur gerði sér lítið fyrir og
skoraði tvívegis, þriðja og fjórða
mark Öster. Átti Teitur stórkost-
legan leik, og höfðu sænsk blöð á
orði, að grátlegt væri, að ekki væri
hægt að nota Teit í sænska
landsliðið. T.d. sagði Dagens Ny-
heter, að Teitur myndi vera sjálf-
sagður í sænska liðið, væri hann
Svíi.
Á sama tíma gekk allt á aftur-
fótunum hjá Þorsteini Ólafssyni
og félögum hans hjá Gautaborg.
Tapaði liðið 2—5 fyrir Hamm-
arby. Gautaborg komst engu að
síður í 2—0, en missti síðan öll tök
á leiknum. Þorsteinn átti ekki
einn af sínum betri dögum og átti
sök á a.m.k. einu marki ef ekki
fleirum.
Árni Stefánsson og félagar hans
hjá Landskrona léku ekki í fyrra-
kvöld.
Sigrar Borg í
fimmta skipti
UM IIELGINA fer fram úrslita-
leikurinn í Wimhledon-tennis-
keppninni. Björn Borg leikur til
úrslita á móti John McEnroc frá
Bandarikjunum. Enroe sigraði
landa sinn Connors i gærdag
nokkuð örugglega. Nú er beðið í
milli evtirvæntingu eftir þvi
hvort að Borg takist að sigra í 5
skiptið í röð í keppni þessari. í
þau fimm skipti sem Borg og
Enroe hafa leikið saman hefur
Borg sigrað þrisvar en Enroe
tvívegis. Allir eru á eitt sáttir um
að keppni þeirra verður mjög
tvísýn og hörð.
V.