Morgunblaðið - 05.07.1980, Síða 44
Síminn
á afgreiðsiunnl er
83033
ItlovjjTmliTntiííi
Síminn á ritstjórn
og skrifstofu:
10100
LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1980
Landsvirkjun:
Stefnir í 2ja milljarða halla
„ÞESSI 55% ha kkun, sem stjórn
Landsvirkjunar hefur samþykkt
að sa kja um frá 1. ágúst ætti að
nægja til að jafna rekstrarhall-
ann.“ sagði Örn Marinósson,
skrifstofustjóri Landsvirkjunar í
samtali við Mbl. í gær og stað-
festi Örn, að að öllu óbreyttu
stefndi í nálægt tveggja milljarða
króna rekstrarhalla á árinu. Örn
sagði, að þær forsendur væru
fyrir hækkunarbeiðninni, að
verðbólgan yrði 45% og gengissig
35%.
Örn sagði, að Landsvirkjun hefði
sótt um 43% hækkun 1. febrúar, en
fengið 27 og 1. maí var sótt um 30%
hækkun og fengust 12%. Rekstrar-
halli fyrirtækisins á síðasta ári var
966 milljónir króna og 597 milljónir
árið 1978 og sagði Örn að þeim
halla hefði verið mætt með lántök-
um erlendis, sem hafa svo hækkað
vaxtabyrði fyrirtækisins „ og enda
að lokum í hærra rafmagnsverði
eins og allur þessi uppsafnaði "andi
fyrirtækisins.“
„Stærsti hluturinn í rekstrinum
er fjármagnskostnaður vegna
þeirra virkjana, sem í gangi eru,“
sagði Örn. Þessi hækkunarbeiðni nú
byggist eingöngu á rekstri fyrir-
tækisins, en framkvæmdir við
Hrauneyjafossvirkjun eru ekki inni
í dæminu.
Smyrilsungarnir sprelllifandi
Bræðurnir Magnús Guðni t.v. og Kristján með smyrilsungana, sem ekki var hugað líf sökum
smæðar, en eru nú sprelllifandi. Sjá „Sérkennilegur samsöngur" á bls. 3. Ljósm.rax.
Dagpeningar
hækkaðir í
ferðalögum
innanlands
FERÐAKOSTNAÐARNEFND hef-
ur hækkað dagpeninga vegna ferða
opinberra starfsmanna innanlands.
Eru þeir nú 8.600 krónur vegna
gistingar, og fæðiskostnaður 11.600
kr. miðað við sólarhringsferð, en
5.800kr. miðað við hálfs dags ferð.
Gistingin var áður reiknuð á
7.500 krónur og fæðið á sólarhring
10 þúsund krónur. f sumar er miðað
við verð á Edduhóteiunum, en þau
veita opinberum starfsmönnum í
erindum sinna stofnana 10% stað-
greiðsiuafslátt.
Kílómetragjald er enn óbreytt, en
búast má við. að það hækki mjög
fljótlega.
Elstu trén
merkt
Um þessar mundir er unn-
ið að því að merkja elstu
trén í borginni með sér-
stökum skiltum. Að þessu
sinni verða merkt tuttugu
tré, en þau eru flest stað-
sett í miðbænum. Elstu
trén í borginni eru í gamla
kirkjugarðinum, en það
eru silfurreynir og gljávíð-
ir, en þau eru 95 ára
gömul, frá árinu 1885. Á
þessari mynd er Hafliði
Jónsson, garðyrkjustjóri
borgarinnar, að setja
skilti við eitt tréð.
I.joMn. Mbl. Emilii
Samninganefnd BSRB hafnaði
„tillögu fjármálaráðherra“
Á FUNDI samninganrfndar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. þar sem
samþykkt var tillagan. scm frá var skýrt í Morgunblaðinu í gær, en hún
var borin fram af Kristjáni Thorlaeius. formanni BSRB, kom einnig fram
önnur tillaga um að BSRB gengi til samninga við ríkisvaldið þegar i stað.
eða „að stefnt verði að samningslokum í næstu viku“. Eftir nokkrar
umræður á fundinum var tillagan dregin til baka. þar sem hún hafði ekki
nægilegan hljómgrunn til þcss að hljóta samþykki. Tillögumaður var
Haukur Ilelgason, en hún var byggð á hugmyndum, sem Ragnar Arnalds
hafði hreyft við nokkra samninganefndarmenn BSRB i viðra'ðum þeirra í
milli.
Tillagan var um, að BSRB gengi
þegar í stað til samninga á grund-
velíi 8 atriða, sem tilgreindir voru í
tillögunni. Voru þau, að tilboð
fjármálaráðherra um grunnkaups-
hækkanir yrði tvöfaldað úr 6.000
krónum í 12.000 krónur, sem þýðir
0,74 til 3,96%. grunnkaupshækkun,
hæsta hlutfallið á lægstu launin, en
hið lægsta á þau hæstu og að
tilfærslum í neðstu launaflokkunum
yrði hraðað. Þá var tillaga um að
persónuuppbót í desember yrði mið-
uð við 7 ára starfsaldur í stað 10 ára
í samningunum frá 1977.
Þá gerði Haukur Helgason einnig
að skilyrði, að yfirvinnustuðull yrði
hækkaður úr 1% og til samræmis
við þann stuðul, sem gilti á almenn-
um vinnumarkaði, sem mun vera
um 1,06. „Þak“ verði ekki á vísitölu-
bótum og samræming eigi sér stað
við launastiga BHM. Tal manna á
samninganefndarfundi BSRB mót-
aðist hins vegar af því, að því
takmarki yrði náð í áföngum, en
ekki í einni svipan, en BSRB-menn
óttast mjög þá þróun, sem verið
hefur undanfarin ár, að BHM taki
til sín alla hálaunamenn í opinbera
geiranum, en BSRB endi sem lág-
launasamtök.
Þá var krafa um það að reglan á
mögulegum starfslokum við 60 ár sé
þrengd og að þau atriði félagslegs
eðlis, sem samkomulag hefur náðst
um milli fjármálaráðherra og BSRB
fylgi þessu samkomulagi. Þá var
gert ráð fyrir að samningstíminn
yrði til 1. júlí 1981.
Eins og áður sagði, náði þessi
tillaga ekki nægilega miklum
hljómgrunni á fundinum og dró þá
Haukur tillöguna til baka. Það kom
fram á fundinum, að tillagan var
þannig til orðin að nokkrir nefnd-
armenn í samninganefnd BSRB
höfðu rætt við fjármálaráðherra,
Ragnar Arnalds, og hann hefði
„slakað" í þá hugmyndum í þá veru,
sem tillagan var byggð á.
Meðal þeirra efstu
NOKKRIR íslenzkir skákmenn
taka þessa dagana þátt í fjölmcnnu
skákmóti í Bandaríkjunum. World
Open. í fyrra varð Ilaukur Angan-
týsson í efsta sæti á mótinu og
Ingvar Ásmundsson árið á undan.
Að þessu sinni hefur sömulciðis
gengið ágætlcga hjá landanum og
eru þeir meðal efstu manna.
Sævar Bjarnason er með 3'/2
vinning, eftir 4 umferðir í opna
flokknum. Jóhann Hjartarson er
með 3 vinninga, en hann tapaði í gær
fyrir bandaríska stórmeistaranum
Lein. Margeir Pétursson er einnig
með 3 vinninga, hann tapaði fyrir
Seiravan, bandarískum stórmeist-
ara, á fimmtudag. Tíu stórmeistarar
taka þátt í mótinu og eru Dzind-
indhasvili frá ísrael og Seiravan
efstir með 4 vinninga.
Þörungavinnslan:
Öllum
sagt upp
störfum
ÖLLU starfsfólki Þörunga-
vinnslunnar að Reykhólum i
A-Barð., hefur verið sagt upp
störfum frá og með 1. október
nk., en það eru 20 manns. — Að
sögn Vilhjálms Lúðvíkssonar,
stjórnarformanns fyrirtækisins,
eru þessar uppsagnir tilkomnar
vegna mikillar óvissu um efnis-
öflun til fiskþurrkunar á kom-
andi vetri.
Vilhjálmur sagði, að ekki yrði
ljóst fyrr en kolmunnaveiðar
hæfust að gagni, hvort hægt yrði
að halda framleiðslunni áfram og
þá hversu marga starfsmenn
væri hægt að endurráða, en
starfsmenn verksmiðjunnar í dag
eru 20, eins og áður sagði.
Þangvinnsla verksmiðjunnar
hefur dregist mjög saman á þessu
ári, sé miðað við sama tíma í
fyrra, og því hefur verið farið
mun meira inn á fiskþurrkun. Á
síðasta ári framleiddi verksmiðj-
an um 4000 tonn af þangi, en á
þessu ári verður framleiðslan
aðeins um 2000 tonn. Stafar þetta
af versnandi markaðsástandi
fyrir vöruna. Að sögn Vilhjálms,
er hins vegar góður markaður
fyrir þurrkaðan fisk, raunar mun
stærri markaður heldur en hægt
væri að nýta miðað við afkasta-
getu verksmiðjunnar.
Að síðustu kom það fram hjá
Vilhjálmi, að þrátt fyrir óvissu-
ástandið, byggist hann ekki við
því, að verksmiðjan þyrfti að
hætta allri starfsemi, heldur væri
þetta spurning um, hversu mikill
samdrátturinn yrði, en ákveðið
hefði verið að láta jafnt yfir alla
ganga og endurráða síðan eftir
þörfum.