Morgunblaðið - 14.08.1980, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980 7
r
„A hverfanda
hveli“
í nýjasta tölublaði
Þingmúla, blaði Sjálf-
staaðismanna á Fljóts-
dalshéraöi skrifar Sverrir
Hermannsson, þingmaö-
ur Austfirðinga leíðara,
þar sem fjallað er um
ástandiö ( stjórnarher-
búöunum og útlitið fram-
undan. Þar segir:
„Fólkið í landinu horfir
þrumu lostið á úrræða-
og aðgerðarleysi mann-
anna, sem tóku að sór í
ársbyrjun að stjórna
þessarí þjóð. Maður spyr
mann hvort ríkisstjórnin
muni ekki leggja upp
laupana innan tíöar. Hin
góðu áform, sem stjórnin
birti almenningi í upp-
hafi, hafa reynst orðin
tóm. Allt virðist á hverf-
anda hveli í stjórnarher-
búðunum og enginn veit
hvað til bragðs skuli taka.
Þetta eru sorglegar
staðreyndir sem engan
óraði fyrir að koma
myndu á daginn svo fljótt
sem raun ber vitni.
Eins og vant er um
vinstri stjórnir reynir
þessi að kenna ytri að-
steeðum um ófarnaðinn,
enda þótt uppákoman sá
að langmestu leyti
heimatilbúin. Að vísu er
við erfiðleika að etja á
mörkuöum okkar en
mörg dsami eru til um
miklu meiri vanda í þeim
efnum á umliðnum árum,
að ekki sé minnst á
markaðshrunið 1967—
1968. Núverandi ríkis-
stjórn mun reynast
skammgóður vermir að
kenna öðrum um ófarir
sínar. Það voru stjórnar-
herrarnir sjálfir sem settu
saman loforðaleik sinn,
sem kallaöur er stjórnar-
sáttmáli. Og það eru og
verða þeir sjálfir, sem
svíkja hann í stóru og
smáu svo ekki stendur
steinn yfir steini.
Hryggilegst fyrir sjálf-
stæöismenn er þó sú
staöreynd aö í bland við
þessi stjórnartröll skuli
vera að finna menn úr
þeirra röðum. Meira að
segja menn sem forystu
höfðu um stjórnarmynd-
unina og skeyttu ekki um
skömm ná heiður (trylltri
valdafýkn sinni. Það eru
dýr kaup að kaupa völd
við æru sinni. En svo
liggur hver sem hann
hefir lund til. Það er þó
a.m.k. Ijóst, aö glapræöi
þeirra mun ekki verða til
að kljúfa Sjálfstæðis-
flokkinn, sterkasta og ís-
lenskasta þjóömálaaflið,
en á þvf var fullkomin
hætta um hríð, enda er
það trú manna að Al-
þýðubandalagið hefði
aldrei farið i ríkisstjórn
nema fyrir vonina um að
Sjálfstæðisflokkurinn
sundraðist.1*
„Ekki til set-
unnar boöiö“
Síðan heldur Sverrir
áfram:
„En ekki er til setunnar
boöið eins og útlitið er
ógnarlegt. Þingmenn úr
borgaraflokkunum þrem-
ur, Sjálfstæóisflokki, Al-
þýðuflokki og Framsókn-
arflokki, verða þegar í
stað að hefja viöræður til
undirbúnings myndunar
nýrrar ríkisstjórnar. Lýð-
ræðissinnar í þeim flokk-
um verða að setja sár
það mark að einangra
kommúnista með öllu.
Landinu veröur ekki
stjórnað af ábyrgð og viti
með þeim öflum. Það er
mesta glapræói, sem
hent hefir í íslenskum
stjórnmálum að komm-
únistum skuli hafa verið
afhent slík völd í hendur
sem nú hefir orðið í sjálfri
landsstjórninni. Fyrsta
skrefið í einöngrun þess-
ara óþjóðhollu afla er að
lýðræðissinnar í Verka-
lýðshreyfingunni taki
höndum saman og víki
þeim frá völdum í Al-
þýöusambandi íslands á
hausti komanda. í fram-
haldi af því þarf svo aö
þjarma aö þessum póli-
tisku stigamönnum stig
af stigi.
Það hefir þegar verið
kannaö, að vilji er fyrir
hendi hjá borgaraflokk-
unum þremur að hefja
viöræður um vandamálin.
Forystan í Framsóknar-
flokknum er aö visu ekki
enn farin að átta sig á
aöstæðum, en þó er i
þeim hópi þegar aö finna
undantekningar.
Að hlaupa til og efna til
nýrra kosninga er ekkert
ráð. Alþingi veröur að
axla ábyrgðina og lýð-
ræðissinnar aö taka
höndum saman. Nýir
menn meö ný viöhorf
sem vióhafa ný og kjark-
mikil vinnubrögó munu
koma til skjalanna. Þjóð-
in er vissulega viðbúin aö
Ijá þeim liðsinni sitt. Það
er ekki lengur til setunn-
ar boðið.“
VALSMENN
lesið þetta
Valsstuöarar efna til hópferðar á hagstæöu veröi á leik
Vals og ÍBV n.k. laugardag, ef næg þátttaka fæst.
Flogið veröur meö
Flugleiöum kl. 12.30 og
til baka strax aö leik
loknum.
Allir velkomnir, skrán-
ing í síma 26622 hjá
Flugleiðum innanlands-
flugi fyrir hádegi á
föstudag.
Stuömenn Vals.
PERMA
- DRI
utanhússlímmálning —14 ára ending og reynsla.
Málning hinna vandlátu
Sig. Pálsson, byggm., Kambsv. 32, S-34472.
J
Júlímánuður:
minni bátarnir á handfæraveið-
um.
Innilegt þakklæti til allra, er glöddu mig á
áttræöisafmæli mínu, meö heimsóknum, gjöfum,
blómum og skeytum.
Sérstaklega þakka ég tengdadætrum.
Guö blessi ykkur öll.
Ágúst Benediktsson frá Hvalsá.
Minni af li í öllum
verstöðvum vestra
AFLI var góður á Vestfjarða-
miðum í júlí, en sjósókn var háð
takmörkunum. bæði vegna þorsk-
veiðibanns hjá togurunum og
lokun margra frystihúsa vegna
sumarleyfa. Á tmabilinu 1. júli til
15. ágúst voru toKurum aðeins
heimilar þorskveiðar í 10 daga.
Notuðu flestir togararnir þessa
heimild i byrjun mánaðarins, en
stunduðu veiðar á öðrum fiskteg-
undum eða lágu i höfn eftir það.
Stærri bátarnir voru á grálúðu-
veiðum við Kolbeinsey, en flestir
í júlí voru gerð út 134 (160) skip
til botnfiskveiða frá Vestfjörðum,
110 (130) stunduðu veiðar með
handfæri, 8 (10) réru með línu, 13
(14) með botnvörpu, 2 (6) með
dragnót og 1 með net.
Heildarbotnfiskaflinn í mánuð-
inum var nú 6.754 lestir, en var
11.292 lestir á sama tíma í fyrra.
Er aflinn minni í öllum verstöðv-
unum í fjórðungnum. Ársaflinn er
nú orðinn 61.486 lestir, en var
59.859 lestir í lok júlímánaðar í
fyrra, segir í frétt frá skrifstofu
Fiskifélags íslands á ísafirði.
Af alhug þakka ég vinum og vandamönnum gjafir
og heillaskeyti á 70 ára afmæli mínu.
Sérstakar þakkir fá tengdadætur og synir fyrir að
gera mér daginn ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Jórunn Helgadóttir, Görðum.
Útgerðar-
menn
Viljum kaupa heila
skipsfarma af góöum
ísuðum fiski, þaö
sem eftir er ársins.
P/F BACALAO
Þórshöfn, Færeyjum,
sími 11360 og 12226 (Færeyjum).
Útsala
Kjólar frá kr. 12.000 — Trimmgallar frá kr. 12.000 —
Dömupeysur frá kr. 2.000 — Úrval af ódýrum
skóiapeysum — Mussur frá kr. 8.000 —
Nýtt og fjölbreytt úrval af jakkapeysum og vestum.
Verksmiðjusalan Brautarholti 22,
inngangur frá Nóatúni.
Utsoiustaöir Karnabær Laugavegi 66 Karnabær Giæsibæ
Eplió Akranesi — Epliö Isafiröi — Alfholl Siglufirdi
Cesar Akureyri — Hornabær Hornafirói — Eyjabær Vestmannaeyjum
LITASJONVORP
22” — 26”
Sænsk hönnun ★
Sænsk ending ★
Bestu kaupin! ★
ILAUGAVEG 66 SIMI 25999