Morgunblaðið - 14.08.1980, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980
Yfirlýsing Hellnamanna:
Gripið var til
þess eina úrræðis
sem tiltækt var
Morgunblaðinu barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
ibúum Ilellna á Snæfellsnesi:
Landssamband islenskra út-
vegsmanna hefur um 1 ‘k árs skeið
reynt að fá leyfi til byggingar 5
sumarbústaða í túni jarðarinnar
Skjaldartraðar að Hellnum á
Snæfellsnesi. íbúar á Hellnum
hafa mótmælt byggingu bústað-
anna á fyrirhuguðum stað í túni
jarðarinnar og telja sumarbú-
staðahverfi í miðju Hellnapláss-
inu óæskilegt auk þess sem stað-
setning húsanna á þessum stað í
túni Skjaldartraðar rýri mjög
búskaparaðstöðu ábúanda jarðar-
innar.
Byggingarfulltrúinn í Vestur-
landsumdæmi hefur ekki gefið út
byggingarleyfi fyrir þessum
sumarbústöðum enda skortir sam-
þykki opinberra umsagnaraðila
fyrir staðsetningunni.
Snemma í júlímánuði tilkynnti
byggingarfulltrúinn L.Í.Ú.
-mönnum að byggingarheimild
væri ekki fyrir hendi og gerði
kröfu um það að framkvæmdir
yrðu ekki hafnar á hinum um-
deilda stað fyrr en fullnægjandi
heimild lægi fyrir.
L.Í.Ú-menn höfðu þess fyrir-
mæli að engu og að morgni
þriðjudagsins 22. júlí kom vinnu-
flokkur til Hellna til þess að bora
fyrir og steypa undirstöður undir
bústaðina.
Byggingarfulltrúinn kom á
staðinn í þann mund sem vinnu-
flokkurinn var að ljúka undirbún-
ingi og borun átti að hefjast.
Krafðist byggingarfulltrúinn þess
að framkvæmdir yrðu þegar
stöðvaðar, en L.Í.Ú-menn sinntu
engu og hófu framkvæmdir þrátt
fyrir ólögmæti þeirra. Bygg-
ingarfulltrúinn hafði þá strax
samband við lögregluna í Stykkis-
hólmi og bað um aðstoð til stöðv-
unar þessara ólöglegu fram-
kvæmda. Hvað sem töfunum olli
er óljóst, en lögreglan kom ekki á
staðinn fyrr en rúmum sólarhring
síðar er vinnuflokkur L.Í.Ú-
manna var að ljúka framkvæmd-
um og yfirgefa staðinn.
Fólkið á Hellnum var mjög
uggandi yfir framgangi máls
þessa og sá fram á, að næsta skref
L.Í.Ú.-manna yrði að koma sumar-
bústöðunum fyrir í skyndingu á
undirstöðunum með ólögmætum
hætti án þess að nokkur fengi
spornað við yfirgangi þeirra.
Fimmtudaginn 24. júlí gripu
Hellnamenn til þess eina úrræðis
sem þeim var tiltækt til þess að
stöðva frekari ólögmætar fram-
kvæmdir þeirra L.Í.Ú.-manna sem
framkvæma átti með ósvífnum
hætti í skjóli fjármagns og yfir-
gangs.
íbúar á Hellnum hafa nú kallað
á þá aðila sem fengnir voru til
þess að rannsaka stöplahvarfið og
skýrt þeim frá öllum aðdraganda
og gangi málsins. Hafa íbúarnir
jafnframt lýst fullri ábyrgð á
hendur L.Í.Ú.-mönnum og hafa
þeir áskilið sér rétt til krafna á
hendur L.Í.Ú. vegna óþæginda og
kostnaðar sem íbúarnir hafa orðið
fyrir vegna yfirgangs þeirra.
Pétur Pétursson þulur:
Fjórar ófáanleg-
ar kótelettur
- er afrakstur BSRB samninganna
ALDREI fór það svo að ekki
kæmi að töðugjaldagillinu í tún-
fæti Ragnars. í gær stauluðust
svefndrukknir samningamenn
BSRB undan tjaldskörinni. Þar
höfðu þeir legið undir feldi
meðgöngutíma fílsins og ekki
látið á sér kræla fyrr en á
næturgöltrinu í fyrrinótti.
Hver er þá afraksturinn? Sem
svarar hálfu frosnu hægra læri
pr. kjaft með fjármarkinu sneitt
aftan vinstra, eða fjórar ófáan-
legar kótelettur. Sumir fá einn
félagsmálapakka af viðbrenndu
og möluðu Bragakaffi til að
skvetta uppá skuðruntuna eftir
réttarfrí.
Haraldur er ekki nærri eins
harðráður og hann var undir
Matthíasi og Kristján er bara
vinsamlegur eins og hann væri
að semja um að gefa eftir þrjú
prósentin, sællar minningar,
þegar hann tók í hendina á
Tómasi. Hann lýsir erfiðri stöðu
og segir eins griðkonan í Flóan-
um sem átti að lýsa skiptum
sinum við stórbóndann um leið
og hún lýsti faðerninu: Hann gaf
mér í nefið á undan og eftir, en
ekki bauð hann mér í staupinu.
Pétur Pétursson þulur.
Togararnir með
5.400 tonnum meiri
afla en í fyrra
SAMVKÆMT bráðabirgðatölum
Fiskifélags íslands var þorskafli
landsmanna orðinn rétt tæplega
300 þúsund lestir um síðustu mán-
aðamót. Útlendingar, einkum Norð-
menn og Færeyingar, hafa veitt
nokkur þúsund tonn af þorski hér
við land i ár, þannig að heildar-
þorskaflinn er kominn yfir 300
þúsund tonn.
Afli togaranna hefur aukizt lítið
frá því sem var í fyrra, eða um 5.339
tonn og varð þorskafli togaranna um
12 þúsund lestum minni í júlí í ár
heldur en í fyrra. Bátaaflinn hefur
hins vegar aukizt í ár um tæplega
11.500 lestir.
Heildaraflinn fyrstu 7 mánuði
ársins var 857.711 lestir, en hins
vegar 973.852 lestir fyrstu 7 mánuð-
ina í fyrra. Munar þar langmestu um
loðnuaflann, sem er 130 þúsund
lestum minni í ár en í fyrra.
Botnfiskaflinn hefur aukizt í ár um
35 þúsund tonn. Minna hefur veiðzt
af kolmunna í ár heldur en í fyrra og
sömu sögu er að segja um hörpudisk.
Hins vegar er aukning í rækju- og
humarafla frá því sem var í fyrra.
Guðrún Gisladóttir, Eggert Ilauksson og Gunnar Rafn Guðmundsson i hlutverkum flækinganna i
skemmtigarðinum i leikriti Arrabals, Þríhjólinu, sem Alþýðuleikhúsið frumsýnir i kvöld i Lindarbæ.
Ljósm. Mbl. Kristinn.
Alþýðuleikhúsið frumsýnir „Þríhjólið'* eftir Arrabal:
Austurrísk, íslensk og
þýsk leikrit á döfinni
Fyrsta verkefni Alþýðuleik-
hússins á þessu leikári er leik-
ritið Þrihjólið eftir Fernando
Arrabal, en það verður frum-
sýnt i kvöld. fimmtud. kl. 20. í
fréttatilkynningu frá Alþýðu-
leikhúsinu segir:
Arrabal er fæddur i Spönsku-
Marokkó, en ólst upp í Madrid
hjá Jesúítamunkum.
Áhrifavald kaþólsku kirkjunn-
ar hefur oftlega orðið honum að
skotspæni i skáldverkum, rit-
gerðum og viðtölum. Hann lauk
lögfræðiprófi frá háskólanum i
Madrid. en lagði jafnframt
stund á stærðfræði og er sagður
snjall skákmaður, enda minna
sum verka hans á Ieikfléttur
skáklistarinnar. Að loknu lög-
fræðiprófi fluttist hann til
Frakklands, m.a. til að mót-
mæla því stjórnarfari. sem til
skamms tíma rikti á Spáni. Tók
hann þann kostinn að skrifa á
frönsku. Öll verk hans vitna um
sterka andúð á kúgun og
ofbeldi.
Á íslandi hafa verið sýnd eftir
Arrabal eftirtalin verk:
Skemmtiferð á vígvöllinn, Fandó
& Lís, Bílakirkjugarðurinn og
Steldu bara milljarði.
Leikritið Þríhjólið, sem hér er
sýnt í fyrsta sinn, var frumflutt
árið 1958. Þetta verk er gott
dæmi um það, hvernig Arrabal
skoðar og gagnrýnir hinar ólíku
eigindir manneskjunnar. Hetjur
Arrabals, sem birtast í nær
öllum leikritum hans, eru utan-
veltumennirnir, þeir sem lifa í
jaðri samfélagsins. Eins og oft
áður skýtur hér upp kollinum
flækingnum, sem við könnumst
við úr gömlu Chaplin kvikmynd-
unum, orðræða hans er í senn
barnalag og skáldlega innblásin.
Persónurnar eru fórnarlömb,
sjáendur, kvalarar, hinar barna-
legu sálir, sem standa meira og
minna skilningsvana gagnvart
lögum og reglum þjóðfélagsins.
Leikstjóri Þríhjólsins er Pétur
Einarsson, þýðingu gerði Ólafur
Haukur Símonarson, leikmynd
gerði Grétar Reynisson, lýsingu
annaðist Ólafur Örn Thor-
oddsen, leikendur eru Guðrún
Gísladóttir, Viðar Eggertsson,
Þröstur Guðbjartsson, Gunnar
Rafn Guðmundsson og Eggert
Þorleifsson.
Þrjár forsýningar hafa verið á
leikritinu fyrir fullu húsi.
„Mig verkjar í auga-
brúnirnar af því að
ég geng í buxum“
Þessi setning er hluti af skoð-
anaskiptum, sem fram fóru á
sviðinu í Lindarbæ, er blm.
fylgdist með æfingu á Þríhjólinu
í gærdag og ræddi í leiðinni við
Ólaf Hauk Símonarson, þýðanda
verksins.
Ráðnir leikhússtjórar
Þeir Ólafur og Lárus Ýmir
Óskarsson munu taka við störf-
um sem leikhússtjórar hjá Al-
þýðuleikhúsinu í ' haust, en
hingað til hefur enginn gegnt því
hlutverki formlega. Að sögn
Ólafs er ráðning leikhússtjóra
liður í því að gera starfsemina
skipulegri. „En hingað til hefur
hið daglega amstur, sem fylgir
leikhúsrekstri, s.s. fjármál og
annað, hvílt á herðum leikara og
annars starfsfólks. Allsherjar-
fundur, sem haldinn er hálf-
smánaðarlega, mun þó áfram
hafa úrslitavald um öll stefnu-
markandi mál. Nú starfa um 50
manns í tengslum við Alþýðu-
leikhúsið og segja má að upp-
byggingin hjá okkur sé ekki
ósvipuð því sem er hjá Leikfélagi
Reykjavíkur, að allsherjarfund-
um undanskildum og svo auðvit-
að því, að við höfum ekki efni á
að borga okkar fólki á við
atvinnuleikhúsin.
Næstu verkefni
„Æfingar eru nú að hefjast á
þýsku unglingaleikriti í þýðingu
Jórunnar Sigurðardóttur, Tóm-
asar Ahrens og Ingibjargar
Briem. Leikritið hefur enn ekki
hlotið nafn á íslensku, en það
hefur vakið mikla athygli og
verið umdeilt þar sem það hefur
verið sýnt, í Þýskalandi og ann-
arsstaðar," sagði Ólafur. „Það
fjallar um kynlífið vítt og breytt,
en sérstaklega í tengslum við
unglinga, þegar þeir vakna til
vitundar um það að þeir eru
kynverur. Frumsýning verður
væntanlega eftir 6—8 vikur.
Þetta leikrit er komið frá
Gribs-leikhúsinu í V-Berlín, en
það sérhæfir sig í sýningum
fyrir unglinga. Gribs-leikhúsið
hefur starfað í Berlín í 20 ár og
nýtur mikillar viðurkenningar á
sínu sviði, en Tómas Ahrens,
einn af þýðendum leikritsins,
var þar fastur starfsmaður um
árabil.
Önnur verkefni eru leikrit
eftir þýska kvikmyndagerðar-
manninn Fassbinder, Frelsið í
Bremen, sem Hallmar Sigurðs-
son setur upp, og síðar verk eftir
austurriska höfundinn Kroetz,
sem Bríet Héðinsdóttir mun
setja upp. Vinnutitillinn á því
verki er Draugalestin.
íslenskt leikrit
„Nú og síðan vonumst við til
að geta sett upp a.m.k. eitt
íslenskt leikrit," sagði Ólafur.
„Við erum með tvö í huga, annað
nýtt, hitt eldra, en hvorugt hefur
verið sýnt áður. Þetta er nú á
umræðustigi ennþá, en annars
ræðst allt af gangi mála, þ.e.
hvað kemur í kassann. Með jafn
litlum opinberum styrkjum og
um er að ræða hjá okkur,
verðum við bara að skrimta frá
degi til dags.
„Þríhjólið;
lýrískt og
fallegt verk“
Það fyrsta, sem athygli vekur
þegar komið er inn í salinn í
Lindarbæ, er að salurinn er
nýttur á nokkuð annan hátt en
verið hefur. Nú er sviðið á
gólfinu, en áhorfendur sitja upp
til veggja, sitt hvoru megin við
leiksviðið. Ólafur sagði þó að
sætanýtingin væri sú sama og
áður, þ.e. 120 manns, en Þríhjól-
ið verður væntanlega fært upp á
fleiri stöðum en í Lindarbæ, því
áætlaðar eru sýningar á því í
skólum, auk þess sem verkið
hefur verið pantað út á land.
„Hvað forsýningar, eins og
voru á Þríhjólinu, varðar," sagði
Ólafur, „þá höfum við hugsað
okkur að hafa forsýningar á
leikritum framvegis, til að
kanna viðbrögð áhorfenda og
eiga þá kost á því að lagfæra það
sem í ljós kemur að betur mætti
fara.“ Aðspurður um verkið
sagði Ólafur: „Þetta er fallegt og
ljóðrænt verk og persónulega
finnst mér þetta mjög falleg
sýning hjá Pétri Einarssyni."
Þríhjólið verður, eins og áður
segir, frumsýnt í kvöld, fimmtu-
dag kl. 20.30, en næstu sýningar
verða laugardag og sunnudag á
sama tíma.
hhs.