Morgunblaðið - 14.08.1980, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980
VIÐSKIPTI - EFNAHAtíSMÁL' - ATHAFNALÍF
— umsjón Sighvatur Blöndahl
Minnkandi eftirspurn
eftir olíu frá OPEC
ónum tunna minni á dag,
en hún var á sl. ári.
Sérfræðingar búast við,
að eftirspurnin á hinum
almenna markaði í heimin-
um muni minnka úr 98.5
milljónum tunna á dag í
fyrra í 97.8 milljónir tunna
á dag að meðaltali á þessu
ári. Þetta er um 0.7%
minnkun milli ára, en milli
áranna 1978 og 1979 varð
aukning um 4.3%.
Tvær höfuðástæður þess-
arar minnkandi eftirspurn-
ar eru: Hinn mikli sam-
dráttur, sem átt hefur sér
stað í bandarísku efna-
hagslífi á undanförnum
mánuðum og er ekki fyrir
séð um hvenær tekur enda,
og svo minnkandi fram-
leiðsla í Evrópu og almenn-
ur doði í efnahagslífi vest-
rænna ríkja.
Sérfræðingar telja hins
vegar nokkuð víst, að þegar
efnahagsástandið í Banda-
ríkjunum og Vestur-
Evrópu skánar aftur,
sennilega á næsta ári, muni
eftirspurn eftir olíunni aft-
ur aukast og hefur þvi verið
spáð, að eftirspurnin á
næsta ári verði í kringum
100.3 tunnur á dag, eða
muni aukast um 2.57%
milli ára. Því er hins vegar
spáð, að þessi aukna eftir-
spurn muni ekki koma
fram hjá Opec-ríkjunum,
sem framleiða um þriðjung
allrar olíu í heiminum.
Lítum á Ameríkuflug von-
araugum í f ramtíðinni
Húsgagnainnflutningur
jókst um ríflega 77%
INNFLUTNINGUR á húsgögn
um, innréttingum og húshlutum
jókst gifurlega á fyrstu sex mán-
uðum þessa árs miðað við sama
timahil á sl. ári samkvæmt upp-
lýsingum Þórleifs Jónsonar,
framkvæmdastjóra Landsam-
bands iðnaðarmanna.
Verðmæti innflutningsins á
fyrstu sex mánuðunum var um 2.4
milljarðar króna á móti rúmlega
1.35 milljörðum sömu mánuði í
fyrra, eða um 77% aukning, reikn-
að á föstu meðalgengi Bandaríkja-
dollars, 352.93 krónur hver dollar.
Innflutningsaukningin var
langmest i rúmum úr tré, eða um
166%. Inn voru flutt rúm fyrir
tæplega 160 milljónir króna á
fyrstu sex mánuðum ársins, en á
Innflutningur
á rúmum úr tré
jókst um 166%
sama tíma í fyrra voru flutt inn
rúm fyrir tæplega 60 milljónir
króna.
Þá varð mikil aukning í inn-
flutningi á ýmiss konar stólum
eða stólhlutum, en inn voru fluttir
stólar og hlutar fyrir um 812
milljónir króna á móti um 382
milljónum króna árið áður. Aukn-
ingin milli ára þar er því um
112%.
Innflutningsaukningin var
einna minnst í ýmis konar inn-
réttingum, eða „aðeins" 24%.
Verðmæti innflutningsins var um
234 milljónir króna á móti 188
milljónum króna árið áður.
Þessi stóraukni innflutningur á
sér stað á sama tíma og innflytj-
endur verða að borga 25% inn-
borgunargjald á öll innflutt hús-
gögn, sem hugsað var til að
stemma stigu við innflutningnum
til styrktar innlendum húsgagna-
iðnaði. Því var Þórleifur spurður
hvernig á því stæði. — „Það er
ósköp einfalt svar til við þessu,
innborgunargjaldið hefur sáralítil
áhrif á þetta, því þegar það er á
annað borð komið inn í veltuna
skiptir það tiltölulega litlu máli,
það eru einfaldlega alltaf bundnir
miklir peningar í þessu milli
tímabila, þannig að þegar boltinn
er farinn að rúlla breytir þetta
litlu", sagði Þórleifur.
Mikill misbrestur varð á því á
sl. ári, að innborgunargjaldið væri
innheimt, en að sögn Þórleifs
hefur orðið þar mikil breyting á og
hefur það innheimzt að langmestu
leyti á þessu ári.
Síðan innflutningur á húsgögn-
um og innréttingum var gefinn
frjáls árið 1975 hefur hann aukist
í verðmæti um 509% til ársins
1978. Á sama tíma jókst heildar-
innflutningur landsmanna um
146% að verðmæti.
EFTIRSPURN eítir olíu
frá Opec-ríkjunum hefur
minnkað töluvert á undan-
förnum vikum og er eftir-
spurnin nú um 3—4 millj-
Innflutt húsgögn.
VIÐSKIPTI
Janúar-júní 1980:
Jumbóþota Cargolux, önnur væntanleg i október.
„ÞAÐ hefur gengið mjög þokka-
lega það sem af er, og við litum
það vonaraugum i framtíðinni,“
sagði Einar ólafsson, forstjóri
Cargolux i Luxemborg, er Mbl.
innti hann eftir þvi hvernig flug
félagsins til Bandarikjanna
gengi, en það hófst s.I. vor.
„Við erum með fast eina ferð í
viku á laugardögum og bætum
síðan við annarri ferð eftir atvik-
um hverju sinni,“ sagði Einar
ennfremur.
Aðspurður sagði Einar, að vörur
þær sem félagið flytti til Banda-
ríkjanna, færu að langmestu leyti
áfram til Mið- og Suður-Ameríku
en höfuðstöðvar Cargolux í Banda-
ríkjunum eru i Huston.
Þá kom það fram hjá Einari að
félagið hafi í vor fengið flugleyfi á
leiðinni Luxemborg til Kenýa og
hófust ferðir þangað í maí. Þær
liggja síðan niðri yfir hásumarið,
en verða teknar upp á nýjan leik í
haust og væntir félagið sín mikils
af því, — „annars erum við alltaf
að leyta að nýjum mörkuðum víðs
vegar um heiminn," sagði Einar.
Þá sagði Einar aðspurður, að
Cargolux i samvinnu við kínverskt
flugfélag, hefðu unnið að könnun á
— segir Einar
Ólafsson, for-
stjóri Cargolux
því hversu hagkvæmt það væri að
reka flugfélag á leiðinni, Hong
Kong til Luxemborgar annars veg-
ar og Hong Kong til Bandaríkjanna
hins vegar. Niðurstaðan hefði verið
sú, að slíkt flug gæti verið þokka-
lega hagkvæmt og því var send inn
beiðni um flugrekstrarleyfi á þess-
um ieiðum, — „síðan breyttist
dæmið þannig, að fjölmörg flugfé-
lög fóru að fljúga á þessari leið og
því afturkölluðum við flugrekstrar-
beiðnina," agði Einar, — ogóvíst er
hvort nokkuð verður úr því í
framtíðinni".
Aðspurður um breytingar á
flugflota félagsins sagði Einar, að
ekki stæðu fyrir dyrum aðrar
breytingar en þegar hefur verið
getið um, þ.e. félagið er að fá nýja
Einar ólafsson, forstjóri Cargolux.
Boeing 747, Jumbó-þotu, í október,
en það á eina fyrir. — „Júmbóþotan
okkar hefur reynzt alveg sérstak-
lega vel í rekstri og við lítum því
björtum augum, að fá aðra í
flotann. Við eigum fyrir til viðbót-
ar þrjár DC-8 þotur og leigjum
tvær til viðbótar, aðra af Flugleið-
um. Þegar við fáum nýju þotuna í
haust munum við væntanlega skila
leiguvélunum aftur,” sagði Einar
ennfremur.
Hvað með frekari stækkun flot-
ans? — „Ég sé ekki fram á frekari
stækkun flotans á næstu misser-
um, enda er flutningsgeta Júmbó-
• þotnanna mjög mikil. Nýja þotan
mun væntanlega fara eina til tvær
ferðir til Austurlanda í viku og
eina ferð til Lagos í Nígerú og
síðan endrum og eins til Bandarikj-
anna eftir efnum og ástæðum“,
sagði Einar ólafsson, forstjóri
Cargolux, að síðustu.