Morgunblaðið - 14.08.1980, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980
39
Seytján milljónir
fóru í veisluhöld
NÚ NÝVERIÐ barst handknatt-
lciksdeild Vals loks uppgjör
veRna úrslitaleiksins i Evrópu-
keppni meistaraliða er fram fór
fyrr á árinu i Miinchen. t hlut
Vals komu tæplega eiiefu miiljón-
ir króna brúttó. Frá þeirri upp-
hæð dregst svo ýmiss kostnaður i
sambandi við Evrópukeppnina.
Alls komu til skiptanna tuttugu
og tvær milljónir til liðanna
beggja en samkvæmt uppgjöri
sem liggur fyrir fóru ekki minna
en seytján milljónir króna i ýmis
veisluhöld á vegum Alþjóða-
handknattleikssamhandsins sem
voru með ýmsa gesti á sinum
vegum i sambandi við úrslitaleik-
inn.
Þr
Jafntefli á
Selfossi
SELFOSS og Völsungur frá
Húsavík gerðu í gær jafntefli á
Seifossi, 0—0, í 2. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu. Leikurinn
var þokkalega leikinn og oft brá
fyrir laglegum samleiksköflum
hjá báðum liðum, en ekki var
mikið um góð færi. Selfyssingar
áttu þó tvö dauðafæri, sem þeim
tókst ekki að nýta og bezti maður
Völsunga Ómar Egilsson misnot-
aði vitaspyrnu, er hann skaut
þrumuskoti rétt yfir þverslána.
Þetta var mjög jafn leikur og
jafntefli réttlátustu úrslitin, leik-
Selfoss A ■ O
Fylkir U.U
menn beggja liða áttu þokka-
legan dag og spiluðu oft á tiðum
góða knattspyrnu, þó erfiðlega
gengi að binda endahnútinn á
sóknina. Bæði liðin eru neðarlega
i annarri deildinni og þvi er nú
hvert stig dýrmætt i baráttunni
um að halda áfram sæti i deiid-
inni næsta ár.
Sigurlás Þorleifsson skoraði þrennu á móti Breiðabliki i gærkvöldi, og
átti stórleik. Hér sést Sigurlás i baráttu við Helga Helgason, einn af
varnarmönnum Breiðabliks.
Hinn bráðefnilegi Helgi Bentsson, Breiðabliki. i baráttu við varnarmenn ÍBV.
r.
IBV
iBV BAR sigurorð af Breiða-
bliki, 3—2, i hörkugóðum og
skemmtilegum leik i 4-liða úrslit-
um bikarkeppni KSÍ sem fram
fór á Kópavogsvelli i gærkvöldi.
Var sigur ÍBV mjög sanngjarn.
Þeir voru betra liðið á vellinum,
og áttu mun hættulegri mark-
tækifæri en lið Breiðabliks. sem
reyndar lék mjög vel líka. Sér i
lagi var fyrri háífleikur liðanna
bráðskemmtilegur og staðan i
hálfleik var jöfn, 2—2. Siðari
hálfleikur var mun bragðdaufari
en engu að siður var i honum
mikil barátta og liðin léku góða
knattspyrnu.
Á INNANFÉLAGSMÓTI i frjáls*
um iþróttum i gær setti Oddur
Sigurðsson nýtt Islandsmet í 300
metra hlaupi, hljóp á 34 sekúnd-
um siéttum. Gamla metið átti
Hilmar Þorbjörnsson, 34,3 sek-
úndur. Annar i þessu hlaupi varð
Stefán Hallgrimsson, sem hljóp á
HELGA Halldórsdóttir KR, setti
í gær á innanfélagsmóti KR i
frjálsum iþróttum þrjú ný ís-
landsmet, hún hljóp fiO metra á
7,6 sek. en eldra metið átti Lára
Sveinsdóttir, 7,7 sek. 80 metra
hljóp Helga á 9,9 sek. og náði
þannig öðru metinu af Láru, sem
áður hafði hlaupið vegalengdina
á 10,1 sek. 1 200 metra grinda-
hlaupi varð timi Helgu 28,6, en
þar átti Ingunn Einarsdóttir
Þetta var því bikarleikur eins og
þeir gerast bestir og áhorfendur
skemmtu sér hið besta yfir góðum
tilþrifum leikmanna beggja liða.
Það var mikill hraði í fyrri
hálfleiknum og bæði liðin náðu að
skapa sér góðar sóknir. Á 21.
mínútu á Sigurlás þrumuskot úr
aukaspyrnu en Guðmundur ver í
horn. Ömar tekur hornspyrnuna
og gefur vel fyrir markið. Þar
skallar Sveinn yfir á Sigurlás sem
bætti um betur og skallaði kröft-
uglega í markið. Blikarnir jafna
svo metin á 25. mínútu. Sigurður
Grétarsson tók þá aukaspyrnu af
um 33 metra færi, þrumuskot
35,6 sek. og setti þar með ÚÍA
met í greininni.
Gamla kempan Valbjörn Þor-
láksson gerði sér einnig lítið
fyrir og setti heimsmet í öldunga-
flokki er hann hljóp 200 metra
grindahlaup á 26,3 sekúndum.
eldra metið, 30,6 sek. Eftir þetta
metaregn hljóp Ilelga svo 300
metra og munaði aðeins 0,3
sekúndum að henni tækist að
jafna íslandsmetið i þeirri grein.
sem er 40,6 sek. Önnur í þessu
hlaupi varð Elín Viðarsdóttir á
47 sekúndum. sem er ágætur
árangur. en þessi unga og efni-
lega frjálsiþróttastúlka keppti
þarna í fyrsta sinn.
hans fór í varnarvegg ÍBV og
breytti boltinn um stefnu og fór í
bláhorn marksins, en Páll mark-
vörður var kominn í gagnstætt
horn og kom engum vörnum við.
IBV nær svo aftur forystu í
leiknum á 38. mínútu er Snorri
Rútsson gaf góða sendingu inn á
Sigurlás sem komst í gegn og
skoraði af öryggi framhjá Guð-
mundi markverði. Lið Breiðabliks
sýndi síður en svo uppgjöf. Leik-
menn börðust af miklum krafti og
á 44. mínútu er Sigurður Grétars-
son aftur á ferðinni og jafnar
metin, 2—2, eftir að hafa fengið
góða sendingu frá Ingólfi inn í
vítateiginn. Þannig var staðan í
hálfleik.
Leikmenn ÍBV léku af miklum
krafti í síðari hálfleiknum og var
greinilegt að þeir ætluðu að selja
sig dýrt. Þeir sóttu án afláts. Það
kom samt í hlut UBK að eiga
fyrsta dauðafærið í síðari hálfleik.
Ingólfur komst inn í sendingu
varnarmanns IBV sem ætluð var
markverði og komst einn inn að
markteig en brást bogalistin í
sannkölluðu draumafæri og skaut
beint í fætur Páls Pálmasonar,
markvarðar ÍBV.
Á 65. mínútu er mikil pressa á
mark UBK og þá munaði ekki
miklu að boltinn hafnaði í netinu
er skot Sigurlásar hrökk af varn-
armanni ÚBK í stöngina og út og
þar náði Sigurlás boltanum aftur
og skaut framhjá.
Sigurmark leiksins kom á 81.
mínútu. Vörn UBK leit af Sigur-
lási og það var ekki að sökum að
spyrja, hann fékk góða sendingu
frá Ómari og braust í gegn og
skoraði. Glæsileg þrenna Sigurlás-
ar og ÍBV komst í úrslitaleikinn í
bikarkeppninni. Sigurlás var jafn-
framt besti maðurinn í jöfnu og
vel leikandi liði ÍBV sem barðist
kröftuglega og uppskar eins og
það sáði.
Lið Breiðabliks átti góðan leik.
Bestu menn liðsins voru Sigurður
Grétarsson og Einar Þórhallsson.
Liðið náði oft mjög góðum sam-
leiksköflum og gerði mikinn usla í
vörn ÍBV.
- ÞR
Oddur setti
met í 300 m
Helga setti þrjú
ný Islandsmet
Undanúrslit bikarkeppni K.S.Í.
F.H. - FRAIVI
á Kapplakrikavelli í kvöld kl. 19.00
Komiö og hvetjiö ykkar menn til sigurs