Morgunblaðið - 14.08.1980, Side 40
Símmn
á afgreidslunni er
83033
3H«r0unbT«tiit>
Síminn á rítstjóm
og skrifstotu:
10100
|Hor0unbI«bit>
FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980
¥
Ný ströng ákvæði um hundaæði:
Miðað að útrým-
ingu hunda og katta á
ákveðnum svæðum
SAMKVÆMT nýrri reglugerð
landbúnaðarráðuneytisins sem
landlæknir og yfirdýralæknir
höfðu samvinnu um að semja eru
mjög ströng ákvæði ef hundaæði
kemur upp i landinu. t reglu-
gerðinni er miðað að að hundum
og köttum á ákveðnum svæðum
verði útrýmt, en samkvæmt upp-
lýsingum Guðjóns Magnússonar
Vísitalan:
Hækkar kaup
um 8-10%
1. september?
ALLAR líkur eru á að kaup
hækki um na-stu mánaðamót
um 8 til 10% vegna hækkunar
verðbótavisitölu. Kauplags-
nefnd hefur verið boðuð sam-
an til fundar í dag. þar sem
lagðir verða fram útreikn-
ingar Hagstofunnar á hækk-
un framfærsluvisitölunnar.
Samkvæmt spá Þjóðhags-
stofnunar var talið líklegt að
hækkun framfærsluvísitölu
frá maí til ágúst yrði vart
undir 10%. Hækkanir á vörum
munu þó hafa orðið heldur
meiri en gert var ráð fyrir í
þessari spá, en þar á móti
koma auknar niðurgreiðslur
ríkissjóðs á landbúnaðarvör-
um um mánaðamótin júlí—
ágúst. Ekki er talið að um
neinn frádrátt verði að þessu
sinni að ræða á verðbótavísi-
tölunni vegna viðskiptakjar-
anna, þar sem þau hafa að
undanförnu farið heldur batn-
andi. Hins vegar kemur til
frádráttur vegna launaliðs
bóndans í búvöruverði og
hækkunar á áfengi og tóbaki
og er sennilegt að þessi liður
nemi um 1,5%. Eru því líkur á
að verðbótavísitalan hækki
eins og fyrr sagði um milli 8 til
10%.
aðstoðarlandlæknis er hugmynd-
in að slík framkvæmd yrði með
svipuðu sniði og i sambandi við
baráttu gegn mæðiveiki.
Yrði þá reynt að girða af
ákveðin svæði ef smitun kæmi upp
milli dýra, en svæðið yrði ákveðið
eftir þvi hvar og hvernig smitunin
væri. Hugsanlega væri miðað við
hverfi, eða götur, en svæðið sem
hreinsa yrði gæti verið mun
stærra. Meðgöngutími á hundaæði
er nokkrir mánuðir og því getur
verið erfitt að draga mörk á
hættusvæði, en þessi nýju ákvæði
eru mun strangari en verið hefur,
enda hefur þessi hættulegi sjúk-
dómur breiðst mjög út um Evrópu
og þokast sífellt lengra norður á
bóginn. Vegna hundaæðis eru
ströng ákvæði um innflutning
hunda og katta, en hundaæði er til
staðar í dýrum í nær öllum
nágrannalöndum Islendinga.
Með eða á móti?
Ljósmynd Mbl. Kristinn.
Samkomulag BSRB og f jármálaráðherra:
Kauphækkanimar kosta
7—800 milljónir á árinu
KOSTNAÐUR rikissjóðs af kaup-
hækkunum samkomulagsins við
BSRB er áætlaður 7 til 800 milljón-
ir króna á þessu ári, eða í 5 mánuði,
en gildistimi samkomulagsins er
frá 1. ágúst til 31. ágúst á næsta
ári. Ragnar Arnalds, fjármálaráð-
herra, sagði i samtali við Mbl. i
gærkvöldi, að kostnaður ríkissjóðs
vegna annarra þátta samkomulags-
ins hefði enn ekki verið endanlega
áætlaður og þvi vildi hann ekki
nefna neina tölu f þvi samhandi.
Samkomulagið lá fyrir að morgni
þriðjudags eftir næturlangan
samningafund og fjölluðu stjórn
BSRB og aðalsamninganefnd um
Janúar - júní:
77% aukning í hús
gagnainnflutningi
INNFLUTNINGUR á hús
gögnum, húshlutum og inn-
réttingum jókst um 77% á
fyrstu 6 mánuðum þessa árs,
samkvæmt upplýsingum
Þórleifs Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra Landssam-
bands iðnaðarmanna.
Langmest er aukningin í
innflutningi á rúmum úr tré
eða um 166%. Inn voru flutt
rúm fyrir tæplega 160 millj-
ónir króna á fyrstu sex mán-
uðunum, en aðeins fyrir um
60 milljónir á sama tíma í
fyrra.
Heildarverðmæti inn-
fluttra húsgagna fyrstu sex
mánuði ársins er um 2,4
milljarðar króna, en var á
síðasta ári rúmlega 1,35
milljarðar króna.
Sjá nánar Viðskipti
bls. 28- 29.
samkomulagið siðar um daginn.
Þar var ákveðið að kynna málið i
félögunum og koma aftur saman á
þriðjudaginn til að taka ákvörðun
um, hvort samninginn eigi að gera
eða ekki. Kristján Thorlacius sagði,
að á þessum fundi hefðu ekki komið
fram neinar raddir um að gripa til
verkfallsvopnsins, en hins vegar
hefðu ekki allir fundarmenn tekið
til máls.
Samkvæmt samkomulaginu
hækka 15 neðri launaflokkar BSRB
um 14.000 krónur, sem Kristján
Thorlacius sagði vera kauphækkun á
bilinu 2,85 til 4,63%. Á næstu flokka
koma 10.000 króna hækkun og 6.000
króna hækkun og fer kauphækkunin
þar niður í 1,1%, en engar hækkanir
koma á efstu þrep 19. og 20.
launaflokks né á efri flokka. Hins
vegar er samkomulag um að þeir
verði samræmdir flokkum BHM og
komi mismunur BSRB-mönnum í
óhag til leiðréttingar í þremur jöfn-
um áföngum; 1. desember n.k., og 1.
marz og 1. júní á næsta ári. Þá felast
í samkomulaginu reglulegar flokka-
tilfærslur í 10 fyrstu launaflokkun-
um og sagði Kristján Thorlacius, að
með þeim yrðu kauphækkanir við-
komandi starfsmanna á bilinu 7 til
8%.
Ákveði stjórn og samninganefnd
BSRB á þriðjudaginn_ að ganga til
þessara samninga verða þeir undir-
ritaðir með fyrirvara um samþykki
félaga í allsherjaratkvæðagreiðslu,
en verði samkomuiaginu hafnað er
sáttanefnd skylt að leggja fram
sáttatillögu, sem verður að fara fyrir
allsherjaratkvæðagreiðslu. Aðeins
að henni lokinni og sáttatillögunni
felldri getur BSRB boðað til verk-
falls. Sérkjarasamningar eru í hönd-
um einstakra félaga og er frestur til
þeirra mánuður frá gerð aðalkjara-
samnings, en um sérsamninga gildir
ekki verkfallsréttur og ganga þeir til
úrskurðar kjaranefndar, ef sam-
komulag næst ekki innan framan-
greinds frests.
Sjá nánar á miðopnu og bls.
22, 26 og 27.
Kovalenko veitt
landvistarleyfi
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur tilkynnt útlendingaeftir-
litinu að dómsmálaráðherra
hafi faliizt á að veita sovézka
sjómanninum Victor Kovalenko
landvistarleyfi á íslandi.
Sé þetta ákveðið með hliðsjón
af alþjóðasamningi um stöðu
flóttamanna frá árinu 1951 og
viðauka frá árinu 1968. Ennfrem-
ur er vísað til laga um eftirlit
með útlendingum.
Kovalenko verður veitt dval-
arleyfi fyrst um sinn til þriggja
mánaða.
,Samningana í gildi“:
Vantar 24—25% til að
ná kaupmættinum 1977
„ÞAÐ vantar mjög mikið á. að
við náum með þessum samning-
um þeim kaupmætti, sem var
eftir sólstöðusamningana
1977,“ sagði Björn Arnórsson,
hagfra-ðingur BSRB, þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í
dag um samningsdrög þau, sem
lögð hafa verið fram hjá BSRB
og kynnt eru i blaðinu i dag.
Eins og kunnugt er var það
aðalkrafa BSRB að samning-
arnir frá 1977 væru settir í
gildi.
„Við launin, sem eru í dag,
þurfum við 24—25% hækkun til
að ná þeim kaupmætti, sem var
eftir samningana 1977. Allir eru
sammála um að þessi mismunur
er mikill, en ég vil leggja áherzlu
á, að það er töluvert mikið af
öðrum hlutum í samningsdrög-
unum og í raun meira, en ég
bjóst við í byrjun."
Hellnar:
Játa að hafa
brotið und-
irstöðurnar
SJÖ karlmenn á Hellnum á Snæ-
fellsnesi hafa viðurkennt við yfir-
heyrslur hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins að hafa hinn 24. júlí sl.
brotið niður undirstöður sumar-
húsa, sem LIU hyggst reisa þar á
staðnum.
í fréttatilkynningu, sem Morg-
unblaðinu hefur borizt frá íbúum
Hellna, segir að þetta hafi verið
eina úrræði þeirra til að stöðva
framkvæmdirnar, sem þeir telja
ólöglegar.
Sjá fréttatilkynningu íbúa
Hellna á bls. 22.