Morgunblaðið - 05.10.1980, Síða 1

Morgunblaðið - 05.10.1980, Síða 1
68 SIÐUR 220. tbl. 68. árg. SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Kosningar í V-Þýskalandi Ronn, 4. okt. — AP. VESTUR-ÞJÓÐVERJAR munu ganga að kjörborðinu i dag i almennum þingkosningum. Eink- um er tekist á um þá tvo menn sem ber hæst i vestur-þýskum stjórnmálum. þá Helmut Schmidt leiðtoga jafnaðarmanna og nú- verandi kanslara. og Franz Josef Strauss, kanslaraefni kristilegra demókrata. Kosningabaráttan þykir að þessu sinni hafa verið fremur lágkúruleg og einkennst af per- sónulegu skítkasti. Flestir spá því að stjórn jafnaðarmanna og frjálsra demókrata haldi velli. Eistland: 2000 skóla- nemendur krefjast þjóðfrelsis Stokkhólmi. 4. okt. — AP. HAFT var eftir heimildum meðal eistneskra flóttamanna i Sviþjóð i dag. að um 2000 skólanemendur hefðu farið i mótmælagöngu i Tallin, höfuðborg Eistlands. og krafist frelsis fyrir þjóð sina og að allir Rússar hypjuðu sig á brott úr landinu. Árásir úr lof ti á báða bóga Nemendurnir, sem voru á aldr- inum 15—18 ára, báru borða í fánalitum Eistlendinga, bláu, svörtu og hvítu, og tvisvar sl. miðvikudag og föstudag, reyndu þeir að komast að stjórnarskrif- stofunum í miðborg Tallins, en lögreglan girti svæðið af, að því er heimildirnar sögðu. Um 150 ungl- ingar voru handteknir og margir voru barðir í átökum við her- og öryggislögregluna. Eistland var innlimað í Sovét- ríkin árið 1944 ásamt öðrum Eystrasaltsríkjum og er talið, að nú séu Rússar orðnir um hálf milljón af 1,4 milljónum manna, sem í landinu búa. Havfhdad. 4. október. — AP. ÍRANSKAR flugvélar gerðu loftárás á Baghdad, höfuðborg íraks, i morgun að sögn sjónar- votta. Þoka lá yfir borginni og heyrðust sprengingahvellir í suður- og vesturhluta borgarinn- ar, en ekki fóru fregnir af eyðileggingu. Skotið var stanz- laust af loftvarnabyssum að flugvélunum í tiu minútur. Var þetta fyrsta loftárás trana á Baghdad frá þvi á þriðjudag er þeir gerðu árás á kjarnorkuver við borgina. Skömmu áður höfðu íraskar flugvélar gert loftárásir á bæina Tabriz, Dezful, Khorramshahr, Abadan, Masjed-e-Soleyman, Khorrambad og Sahneh, og sagði í tilkynningu íranska hersins, „að margir varnarlausir borgarar hefðu fallið í árásunum". Borg- irnar sem írakar gerðu árásir á eru á 800 km löngu belti. Að öðru leyti sögðust báðir aðilar hafa yfirhöndina í átökum landanna. írakar sögðust enn halda borginni Khorramshar og „öðrum frelsuðum svæðum" í Khuzistanhéraði. íranir sögðust hins vegar „hafa algjöra yfir- burði á öllum vígstöðvum" og að herflugvélar sendu ekki aðeins sprengjur niður yfir írak, heldur einnig áróðurspésa. í dögun voru 15 manns leiddir fyrir aftökusveitir byltingar- dómstóls í borginni Susangerd og teknir af lífi. Þeim var gefið að sök að hafa njósnað fyrir íraka. Striðsglæpamaöur svipti sig lifi Sao Paulo. 4. okt. — AP. STRÍÐSGLÆPAMAÐURINN Gustav Franz Wagner svipti sig lífi sl. föstudag á búgarði sinum í Sao Paulo-fylki i Braziliu. Þessar fréttir eru hafðar eftir lögfræðingi hans. Wagner hafði verið ákærður í fjórum löndum fyrir að hafa átt þátt í að myrða 150.000 Gyðinga í útrýmingarbúðun- um í Sobibor í Póllandi á árunum 1942 og ’43. Hæsti- réttur Brazilíu hafði þó hafn- að framsalskröfu landanna, Vestur-Þýskalands, Póllands, Austurríks og ísraels. Wagn- er, sem var fyrrv. SS-foringi, kom til Brazilíu 1950 en árið 1978 komst austurríski nas- istaveiðarinn Simon Wiesen- thal á snoðir um verustað hans. Wiesenthal þekkti Wagner á blaðaljósmynd, sem tekin var í veislu, sem var haldin í Rio de Janeiro á fæðingardegi Adolfs Hitlers. Steve McQueen berst hetjulegri baráttu Los AnReles, 4. okt. — AP. TALSMAÐUR leikarans Steve McQueen, sem er haldinn sjáldgæfu krabbameini, sem læknar telja ólæknandi, sagði i gær, að hann væri heldur á batavegi. McQueen dvelst á sjúkrahúsi í Mexikó og fær þar mjög óvenjulega læknismeðferð, sem einkum er fólgin i öðru mataræði og breyttum lifsvenjum. Steve McQueen, sem er öllum kvikmyndaunnendum vel kunn- ur, stendur nú á fimmtugu og hefur lifað lengur en læknar hans höfðu búist við. Læknis- meðferðin sem hann fær nú er mjög strangt mataræði, fjör- efnagjöf, fasta og heilbrigðir lífshættir, bæði fyrir líkama og sál. Krabbameinið, sem Mc- Queen er haldinn, kallast meso- thelioma og vex í slímhimnu milli iungna og brjóstkassa. Dr. Dani- el Simmons, sem er lungnasér- fræðingur.sagði, að óhjákvæmi- legt væri að krabbameinið breiddist út um allan líkamann. „Þetta er ólæknandi sjúkdóm- ur,“ sagði hann. Talsmaður McQueen sagði, að hann hefði haldið sjúkdóminum leyndum í sex mánuði til að hlífa fjölskyldu sinni og „til að halda reisn minni ... þar sem ég hélt að ég væri dauðvona," eins og haft var eftir Steve McQueen.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.