Morgunblaðið - 05.10.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980
Tíðir fundir
með bókagerð-
armönnum
SÁTTAFUNDURINN í kjaradeilu
bokaKeröarmanna <>g Félags prent-
iðnaöarins, sem hófst í fyrrakvöld
klukkan 18 stóð fram yfir miðnætti
í fyrrinótt. Annar fundur var
boðaður klukkan 16 í gær.
Aðilar héldu áfram viðræðum um
4. kafla samningsins frá 1977, sem
fjallar um nýja tækni i prentverki.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun enn nokkuð í land, að
menn nái samkomulagi, en á meðan
bíða kjarasamningar aðila vinnu-
markaðarins, ASÍ og VSÍ. í þeirri
deilu hefur ekki verið boðaður fund-
ur.
Þrjár sölur ytra
ÍSAFJARÐARTOGARINN Guð-
björg scldi 163.6 tonn í Cuxhaven 1
gær og i fyrradag fengust 98,3
milljónir króna fyrir aflann. eða
601 króna að meðaltali fyrir kíló.
Þá seldi Guðfinna Steinsdóttir 51,4
tonn í Fleetwood fyrir 37,8 milljónir
í fyrradag, meðalverð 737 krónur. I
gær seldi Kristinn ÓF 31,5 tonn í
Hull fyrir 19,3 milljónir, meðalverð
614 krónur.
Smygl fannst
í Skeiðsfossi
TOLLVERÐIR fundu á fimmtudag
383 flöskur af smygluðu áfengi um
borð í Skeiðsfossi er skipið lá við
bryggju a Hofsósi. Var það faiið i
loftstokk i vélarrúmi og skutþró.
Áfengið var af ýmsum tegundum,
romm, whisky, vodka og mest af
spíritus. Matsveinn og vélstjóri hafa
viðurkennt að eiga smyglið. Skeiðs-
foss kom til Rifshafnar í aðfararnótt
þriðjudags frá ýmsum Miðjarðar-
hafslöndum og var Hofsós önnur
höfn þess hérlendis.
Á flóamarkaði Dýraverndunarfélags Íslands fæst allt milli himins
og jarðar — og verðið er hagstætt. Þarna er verið að máta föt.
Flóamarkaður SDÍ flyt-
ur að Hafnarstræti 17
FLÓAMARKAÐUR Sambands dýraverndunarfélaga fslands, sem
undanfarin tvö ár hefur verið starfræktur að Laufásvegi 1, er nú
fluttur í nýtt og stærra húsnæði að Hafnarstræti 17, kjallara.
Eigendur húsnæðisins að Hafnarstræti 17 lána það SDI. Þurfti
einungis að koma húsnæðinu i nothæft ástand og hefur hópur fólks
úr dýraverndunarsamtökunum unnið á kvöldin og um helgar i
þrjár vikur við að hreinsa húsnæðið og mála.
Á blaðamannafundi, sem
stjórn SDI efndi til í tilefni af
opnun hins nýja húsnæðis flóa-
markaðarins, kom fram, að vör-
urnar á flóamarkaðinum eru
gjafir frá velunnurum SDÍ
Skipta gefendur hundruðum og
koma margir aftur og aftur.
Vöruúrvalið þarna er fjölbreytt,
— húsgögn, skrautmunir, bæk-
ur, verkfæri, eldhúsáhöld, fatn-
aður o.fl.
Af starfsemi á vegum SDÍ má
nefna umfangsmikið trúnaðar-
mannakerfi. Trúnaðarmenn eru
um allt land og eru þeir rúmlega
130, en þeim verður fjölgað á
þessu hausti. Eru þeir mikilvæg-
ur hlekkur í baráttunni fyrir
aukinni dýravernd hér á iandi.
Einnig má nefna útgáfu Dýra-
verndarans. Ritið flytur fjöi-
breytt efni um dýr og dýravernd
og hefur það nú komið út óslitið
Þessi fegurðardís var að máta hatta á flóamarkaði Dýraverndunar-
félags íslands er Morgunblaðsmenn áttu leið þar um. Ljósm. ói.k.m.
í 66 ár. Náið samstarf er einnig
milli SDÍ og Hjálparstöðvar
dýra, sem rekin er í Dýraspítala
Watsons, Víðidal.
Stjórn SDÍ vildi nota þetta
tækifæri til að koma á framfæri
þakklæti til allra sem lagt hafa
fram vinnu við þetta nýja hús-
næði. Einnig þakkar hún eigend-
um hússins fyrir ómetanlegan
stuðning og einnig þeim fjöl-
mörgu sem gefið hafa á flóa-
markaðinn.
Flóamarkaðurinn verður
opinn í Hafnarstræti 17 alla
virka daga frá kl. 14—18. Gjöf-
um er veitt móttaka á sama
tíma.
■:.■■■■'
ét fáðt minniiígfivkort
^júkrunartyámíiis txl2>mx>va
Hjúkrunarheimili aldraðra:
Safinast 40-50
milljónir kr.?
VÍÐTÆKRI söfnun vegna
byggingu hjúkrunarheimilis
fyrir aldraða í Kópavogi er
haldið áfram þar í bæ í dag,
en hófst í gær.
Stefnt er að því að heimilið
verði fokhelt fyrir næstu ára-
mót, en til þess að svo verði,
er nauðsynlegt að þessi söfn-
unarherferð gangi að óskum.
Sjálfboðaliðar munu ganga
með söfnunarbauka í hús og er
stefnt að því að safna 10
þúsund krónum á hvern bauk,
en það myndi þýða 40—50
milljónir króna með frjálsum
framlögum til lokaátaksins, en
skóflustunga að byggingunni
var tekin 26. janúar sl.
Fargjaldalækkun British Airways:
„Ekki bein áhrif á Bret
landsflug Flugleiða44
Rikisstjórnin:
Þriðjungur alira nýbygginga árið
1983 verði verkamannabústaðir
„LÆKKUN fargjalda hjá Brit-
ish Airways hefur ekki beint
áhrif á okkar ferðir um Bret-
land, þar sem þessi leið milli
Glasgow og London hefur ekki
verið mikið notuð síðan við
fækkuðum ferðum," sagði
Sveinn Sæmundsson blaða-
fulltrúi Flugleiða í samtali við
Mbl. ' gær. Flugleiðir fljúga nú
eina 'irð á viku um Glasgow til
Kaupmannahafnar í stað
þriggja áður og eina ferð um
Glasgow til London.
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA,
Svavar Gestsson hefur gefið út
reglugerðir um framkvæmd laga
um Húsnæðismáiastofnun rikis-
ins frá síðasta vetri. Reglugerð-
irnar eru tvær. annars vegar um
Byggingarsjóð verkamanna og
félagslegar íbúðir, og hins vegar
um lánveitingar Byggingarsjóðs
ríkisins. Með þessum regiugerð-
um verður verulegur hluti al-
mennra lána fluttur yfir til
Byggingarsjóðs verkamanna, en
rikisstjórnin stefnir að þvi að
hefja byggingar á 1500 ibúðum í
verkamannabústöðum á næstu
þremur árum; að árið 1983 verði
1/3 alira nýbygginga hériendis
verkamannabústaðir.
Á blm.fundi félagsmálaráð-
herra, kom fram, að ríkis-
sjóður verður fyrir verulegri út-
gjaldaaukningu í kjölfar reglu-
gerðanna, en Svavar Gestsson vék
sér undan að svara hve mikil sú
aukning yrði. Ennfremur færðist
Sigurður E. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Húsnæðismála-
stofnunar, undan, að svara spurn-
ingu Mbl., hvað hann héldi að
framlag ríkissjóðs til Húsnæðis-
málastofnunar þyrfti að vera mik-
ið, svo markmiði laganna væri
náð. — Ég reikna fastlega með
því, að stjórnvöld sjái Húsnæð-
ismálastofnun fyrir nægu rekstr-
arfé, sagði hann aðeins. — Það
verður gert, sagði þá Svavar
Gestsson, en hann kvaðst ekki
„kunna við“ að nefna tölur úr
óbirtum fjárlögum.
Helztu nýmæli í þessum nýju
reglugerðum eru eftirfarandi:
Megináherzla lögð á byggingu
verkamannabústaða, Byggingar-
sjóði verkamanna skal tryggður
„verulegur tekjustofn" samkv. 37
grein laganna um Húsnæðismála-
stofnun ríkisins jafnframt sem
hlutdeild sveitarfélaga í bygg-
ingarkostnaði verkamanna-
bústaða lækkar úr 25—30% í 10%
en nú er heimilt að lána allt að
90% byggingarkostnaðar úr bygg-
ingarsjóði verkamanna. I reglu-
STOFNAÐ hefur verið félag til
umfjöllunar og fræðslu um höf-
undaréttarmál. Félagið hyggst
starfa með svipuðum hætti og
hliðstæð félög í nágrannalöndun-
um. Stjórn þess skipa þessir menn:
Sigurður R. Pétursson hrl, for-
maður, Þór Vilhjálmsson hrd.,
varaformaður, Björn Bjarman
hrd., ritari, og Ragnar Aðal-
steinsson hrl., gjaldkeri.
Markmið félagsins er að efla
þekkingu á höfundarrétti og þróun
þeirrar greinar lögvisinda með er-
indafiutningi, umræðum o.fl. Einn-
í GREIN í Morgunblaðinu þ. 4.
þ.m. sem fjallar um skipulag
Grjótaþorps, er vitnað í umsögn
undirritaðs, og gætir þar nokk-
urrar ónákvæmni. Af þeim sökum
óskast eftirfarandi athugasemd
birt:
Á árunum 1967—70 gerðum við
Hörður Ágústsson athugun á göml-
um húsum í Reykjavík með tilliti
til varðveislu þeirra. Athugunin,
sem var gerð að frumkvæði borg-
gerðunum eru gerðar breytingar á
skipan stjórna verkamanna-
bústaða, og ítarleg ákvæði eru um
hvernig endursölur verkamanna-
bústaða skuli fara fram.
ig að leita eftir tengslum við
hliðstæð samtök í öðrum löndum
svo og við alþjóðastofnanir á sviði
höfundarréttar. Höfundarréttar-
mál eru nú ofarlega á baugi víða um
lönd vegna tækniframfara á sviði
fjölföldunar og fjölmiðlunar hug-
verka. Þá fer fram víðtæk umræðu
um réttarfar og refsingu vegna
höfundarréttabrota, t.d. er nýlega
fallinn tíraamótadómur í Svíþjóð,
þar sem í fyrsta sinn var dæmd
fangelsisrefsing út af höfundarrétt-
arbroti vegna heimildarlausrar út-
gáfu verka á snældum.
(fréttatilkynning).
arráðs Reykjavíkur, skyldi unnin
með hliðsjón af ákvörðun þágild-
andi aðalskipulags um landnotkun
og legu umferðaræða. Ef miðað er
við upphaflegar forsendur, standa
niðurstöður okkar óhaggaðar.
Álitsgerð okkar um Grjótaþorp frá
þessum árum hefur okkur hins
vegar ekki gefizt kostur að endur-
skoða vegna breyttra forsenda.
Með þökk fyrir birtinguna.
Þorsteinn Gunnarsson.
Höfundaréttarfélag
íslands stofnað
Athugasemd frá Þor-
steini Gunnarssyni