Morgunblaðið - 05.10.1980, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980
7
Doddi litli datt i dý
og meiddi sík í fótnum.
Aidrei varð hann upp frá því
jafngóður í fótnum.
Þessi álappalega stagl-
stílsvísa hefur stundum
komið mér í hug undanfarna
daga, þegar ég hef heyrt eitt
og annað sem opinberir aðil-
ar hafa látið sér sæma að
senda frá sér. í veðurfregn-
um ríkisútvarpsins var
endurtekið, svo að ekki getur
hafa verið um mislestur að
ræða, að hiti færi hlýnandi.
Naumast ætti þess að vera
getandi, að hiti er hlýr. Hann
er auðvitað mismikill, hann
hækkar og lækkar, vex eða
minnkar. og veður fer ýmist
hlýnandi eða kólnandi. Frost
herðir, en það kólnar ekki,
hiti eykst, en hann hlýnar
ekki.
Þá heyrðist í útvarpinu
auglýsing þess efnis, að Slát-
urfélag Suðurlands vantaði
starfskraft til starfa við
skrifstofustörf. Ekki á þessi
blessaði maður (væntanlega
kona) að sitja auðum hönd-
um, eftir orðalaginu að
dæma.
Annars er það furðulegt
hve lengi menn ætla að
skirrast við að auglýsa eftir
starfsmönnum. Það er þó
afskaplega einfalt mál og
brýtur engin jafnréttislög og
ætti engan að meiða. Að
sjálfsögðu vilja öll fyrirtæki
fá menn með sem 'besta
starfskrafta. En kraftarnir
einir koma ekki í vinnu.
Mennirnir, sem yfir þeim
búa, þurfa að sækja vinnuna.
Ekki verður það flokkað
undir staglstíl, heldur óná-
kvæmt orðaval, þegar sagt
var í fréttaskýringu í útvarp-
inu: „Eyjarnar eru eitt af
deilumálum ríkjanna."
Að sjálfsögðu eru eyjarnar
ekki mál. Þær eru í þessu
dæmi deiluefni, og út af
þeim geta deilumál orðið. Ef
menn vilja forðast staglið,
mætti svo nefna þær þrætu-
epli og jafnvel bitbein til
tilbreytingar frá deilumál-
inu.
Allt er þetta þó hjóm og
hégómi hjá því, sem æðsta
menntastofnun landsins, Há-
skóli íslands, hefur nýlega
birt fyrir þjóðinni. Ég leyfi
mér að taka kafla úr
kennsluskrá hans, þar sem
fyrirsögnin er Sjálfvirkt
stjórnkerfi. Vitnað er til
þessa eftir blaðinu Degi á
Akureyri, og vona ég að vísu,
Háskólans vegna, að tilvitn-
unin sé röng. Hún verður þá
væntanlega leiðrétt, ef
stjórnendum skólans er annt
um sóma sinn. Klausan, sem
Dagur birti, var svo:
„Greining og hönnun
stjórnkerfa með línulegum
eða ólínulegum kerfiseining-
um, sem uppfylla ákveðnar
kröfur um svipult og stöðugt
viðbragð. Lýsing og skil-
greining á kerfishæfni, para-
metrisk bestun og bestun
kerfishæfni línulegra kerfa
með notkun kvaðratískra
gæðastuðla. Notkun lýsi-
fallaaðferðar við hönnun
ólínulegra kerfa, aðferðir
Liapunovs og Popovs.
Sýnitölukerfi og notkun
z-varpana við greiningu og
hönnun diskret kerfa."
Ég ætla að Háskóli íslands
eigi að vera höfuðvígi ís-
lenskrar tungu, og nú beini
ég þeim tilmælum til for-
ráðamanna skólans, að það,
sem hér er sett innan tilvitn-
unarmerkja, verði birt í
nýrri útgáfu á skiljanlegu
mannamáli, ef hægt er.
Veit ég vel að oft er erfitt
að finna nýjum fræðigrein-
um gott mál, en fyrr má nú
rota en dauðrota. Eða er
þetta kannski tilraun til þess
að gera einfalda hluti flókna,
svo að engir skilji aðrir en
þeir sem innvígðir eru
flækjukerfinu sjálfu? Ég
held, sem betur fer, að ís-
lenskur maður, sem þannig
skrifar eða talar, mælist
mjög svo einn við, eins og
sagt var í Sturlungu um
Þorvald Gissurarson í
Hruna, þegar enginn varð til
þess að svara honum á al-
þingi.
TALBOT H0RIZ0N 80 er einn vandaðasti og neyslugrennsti 5 manna fjölskyldubílinn
sem nú er á boðstólnum.
Þetta er eini bíllinn i heiminum sem kjörinn hefur verið „Bíll ársins1, samtímis í Evrópu
og N-Ameríku af öllum gagnrýnendum helstu bílablaða heims.
TALBOT H0RIZ0N þolir íslenska vegi og veðráttu, enda hefur bíllinn ótrúlega fjöðrun og
stöðugleika á vegleysum Islands.
TALBOT H0RIZ0N er framhjóladrifinn fólksbíll, sem maður gæti ætlað að hafi verið sér-
hannaðúr fyrir Island.
TALBOT H0RIZ0N 80 kostar nú frá ca. kr. 7.2 millj. miðað við gengi 27.9.80 - aldeilis
ótrúlega lágt verð.
TALBOT H0RIZ0N er bíllinn sem veitir þér mestu ánægjuna í umferðinni. -
TALBOT H0RIZ0N er merkið sem þú getur treyst.
ö Ifökull hff.
N Ármúla 36. Simar 84366 - 84491
f V
Umboösmenn:
Sniðill hf. Óseyri 8. Akureyri. Sími 222S5
Bílasala Hinriks, Akranesi. Sími 1143
Friðrik Óskarsson. Vestmannaeyjum. Sími 1552 ■
Óskar Jónsson, Neskaupsstaö. Simi 7676
Ibúð óskast
Vil taka á leigu litla íbúð sem næst
Verslunarskólanum.
Finnbogi Björnsson.
Sími 92-7123.
Lærið vélritun
Ný námskeiö hefjast mánudaginn 6. október.
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heima-
vinna. Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl.
13.
Vélritunarskólinn
Suðurlandsbraut 20
Þýskunámskeið
Germaníu
Námskeiðin eru bæði fyrir byrjendur og þá
sem lengra eru komnir. Innritun veröur í 6.
kennslustofu Háskólans mánudaginn 6.
október kl. 20—21. Þar veröa allar nánari
upplýsingar gefnar um námstíma og kennslu-
tilhögun.
Stjórn Germaníu.
Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS
1. októmber 1980
Kaupgengi
pr. kr. 100.-
1968 1. flokkur 6.468,05
1968 2. flokkur 5.839,46
1969 1. flokkur 4.675,26
1970 1. flokkur 4.278,02
1970 2. flokkur 3.099,31
1971 1. flokkur 2.829,08
1972 1. flokkur 2.465,40
1972 2. flokkur 2.109,53
1973 1. flokkur A 1.576,51
1973 2. flokkur 1.452,49
1974 1. flokkur 1.002,54
1975 1. tlokkur 817,60
1975 2. flokkur 619,01
1976 1. flokkur 587,31
1976 2. flokkur 476,99
1977 1. flokkur 443,01
1977 2. flokkur 371,04
1978 1. flokkur 302,42
1978 2. flokkur 238,65
1979 1. flokkur 201,83
1979 2. flokkur 156,58
1980 1. flokkur 121,25
Innlausnarvarð
Seðlabankana
m.v. 1 ára Yfir-
tfmabil frá: gengi
25/1 ’80 4.711.25 37,3%
25/2 '80 4.455,83 31,1%
20/2 '80 3.303,02 41,5%
15/9 '80 3.878,48 10,3%
5/2 '80 2,163,32 43,3%
15/9 '80 2.565,68 10,3%
25/1 '80 1.758,15 40,2%
15/9 '80 1.914,22 10,2%
15/9 '80 1.431.15 10,2%
25/1 '80 1.042,73 39,3%
15/9 '80 910,11 10,2%
10/1'80 585,35 39,8%
Höfum seljendur aö eftirtöldum verðbréfum
VEÐSKULDA-
BRÉF:* 12%
1 ár 65
2 ár 54
3 ár 46
4 ár 40
5 ár 35
Sölugengi m.v. nafnvexti
14% 16% 18% 20% 38%
66 67 69 70 81
56 57 59 60 75
48 49 51 53 70
42 43 45 47 66
37 39 41 43 63
*) Miöaö er viö auöseljanlega fasteign.
HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF
RÍKISSJOÐS:
Sölugengi
pr. kr. 100.-
1972 1.490.49 (10% afföll)
1973 1.278.73 (10% afföll)
1973 1.114.32 (10% afföll)
■ 1974 966.97 (10% afföll)
1974 684.23 (10% afföll)
1974 684.23 (10% afföll)
• 1975 476.59 (10% afföll)
1976 461.55 (10% afföll)
1976 362.80 (10% afföll)
1977 343.12 (10% afföll)
MtaPCfTinCARpálAC ÍAAADf Hft
VERÐBRÉFAMARKAÐUR, LÆKJARGÖTU 12 R.
lónaöarbankahúsinu. Sími 2 05 80.
Opéé alla virka daga trá kl. 9.30—16.