Morgunblaðið - 05.10.1980, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 05.10.1980, Qupperneq 25
25 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980 i um ljóma á sviðið og fá mann jafnvel til að trúa því að hugsanir kvenna séu öðruvísi á litinn en karla. Og þá er efni myndarinnar: Vandamál hinna feitu. Af hverju hefur því böli ekki verið gerð skil fyrr á hvíta tjaldinu, það morar allt af myndum um drykkjusýki, eiturlyfjasýki en ekki um ÁTSÝKI sem er þó vandamál, slíkt að það nasar sjálfsímynd fólks og þar með þann grundvöll sem það byggir hamingju sína á. Und- irritaður þekkir að vísu ekki þetta vandamál frá því hann var tveggja ára, en af samtöl- um við fyrrum „átsjúka" skilst honum að ástand offit- unnar sé eigi ólíkt vímu drykkjusýkinnar, menn eru í matarrús, þá dreymir mat, þeir blekkja sjálfa sig og aðra með því að sleppa málsverði en lauma upp í sig smábitum þess á milli. Sem sagt, mag- inn á mönnum verður eins konar botniaus tunna sem öskrar á sífellda fyllingu og afleiðingin verður útblásinn fituvefur. Hjartað þrælar, fæturnir gefa sig, en ekki nóg með það: engin föt passa nema skikkjur eða sérsaum- aðar tunnubuxur og svo seggja menn að feitt fólk sé „afskaplega kátt“. í samfélagi þar sem menn kappkosta að falla inní og vera sætir stenst slíkt ekki, sérlega á þessi fullyrðing þó við um ungl- inga. Já, vandamál hinna feitu er sannarlega fyrir hendi, hins vegar er það ekki viðurkennt opinberlega og því ekkert hæli fyrir slíkt fólk hér. I Bandaríkjunum, þar sem menn eru næmari fyrir tækifærum lífsins, eru hins vegar ótal stofnanir þar sem bræða má aukakílóin gegn hæfilegu gjaldi. Mörgum finnst ef til vill svívirðilegt að græða á slíkum vandamálum, offitubræðslurnar eigi að falla undir ríkið rétt eins og áfengisútsölurnar, slík þjón- usta sé einn þáttur heilsu- gæslu. Sömu aðilum kann að finnast ósmekklegt af Anne Bancroft að hafa þetta vandamál að féþúfu á hvíta tjaldinu. Má vera; þó virðist mér af leik hennar í mynd- inni að hér liggji annað að baki: Örvæntingarfull tilraun konu á breytingarskeiði til að standa jafnfætis manni sín- um. Ekki gráta, Anne Ban- croft, þér tókst að standa jafnfætis viðfangsefninu. Þak Hf. auglýsir: Þak sumarhús Hefjiö tímanlega undirbúning fyrir næsta sumar og kaupiö ÞAK sumarhús nú í haust til uppsetningar næsta vor. Athugiö okkar hagkvæmu skilmála. Hringiö strax í dag og fáiö nánari upplýsingar. Heimasímar. Heiöar 72019, Gunnar 53931. ÞAK HF sími 53473 og kvikmyndahúsa ar, allt efni er sett inn í ákveðna formúlu. Þessi formúla virðist miðuð við einhvern óljósan með- almann, sem kannanir sýna að hefir áhuga á blöndu af átökum og ástríðum í hlutföllunum tveir á móti einum. Þannig er álitið að meðalmaðurinn, sem situr fyrir framan skjáinn, vilji sjá átök í hinum ytra heimi þar sem allir eru kaldir kallar, síðan (eftir auglýsingar) persónulegt líf að- alsöguhetjanna þar sem átökin halda áfram en menn drekkja þeim í faðmi misjafnlega skiln- ingsríkra eiginkvenna (viðhalda o.s.frv.) sem gjarnan gráta um leið og eiginmennirnir skýra frá hetjuverkum sínum eða niður- lægingu. Þessi formúla er kannske ekki jafn ljós í Helför- inni og myndaflokknum um Watergate og hjólaþættinum sem nú gengur í sjónvarpinu en hún er á vissan hátt til staðar. Andrúmsloftið í bresku eldhús- framhaldsþáttunum virtist ein- hvernveginn öðruvísi, ekki jafn skýr skipting milli hins innra og ytra veruleika, útlínur ekki jafn hvassar, allt gerist á vissan hátt á hinu persónulega plani sem á sinn hátt sýnir okkur þjóðfélagið í hnotskurn. Þannig var óhugn- aður nazismans með nokkuð öðrum blæ í Operation Day- break, þú fannst ekki til jafn hamslausrar reiði gagnvart óargadýrunum og þá þú upplifð- ir hina einlægu þjáningu leikar- anna sem léku fórnarlömb Hel- fararinnar. Þarna var veruleik- inn heilli, líkt og stæðir þú í leikhúsi með atburðina allt um kring en ekki alla í bútum sem eru klipptir til í samræmi við hinn „tölvuhannaða meðal- mann“. En slíkt er nú hægt að fyrirgefa, aðalatriðið er efnið, það minnir okkur á að vera á verði, því sagan sýnir okkur að í iðrum hvers samfélags leynast myrk öfl sem virðast helst koma upp á yfirborðið þar sem sam- söfnun valds hefir orðið með einum eða öðrum hætti. Slíkri samsöfnun virðist fylgja annar og öllu óhugnanlegri vágestur, hin myrku öfl sýnast sum sé þrá það helst að taka fram fyrir hendurnar á skaparanum, kom- ist þau til valda, þau vilja nefnilega betrumbæta sköpunar- verkið, jafnvel þó það kosti útrýmingu milljóna og koma þá gjarnan fram með hugmyndina um „nýjan mann“ — hinn hreina aría eða hinn nafnlausa rauða khmera svo við tökum dæmi. Hvað þá um „meðalmanninn" sem tölvurnar eru nú óðum að hanna veröldina fyrir. Er slíkur tilbúningur ekki enn einn angi samsöfnunar valds sem nú birt- ist í gegn um vélar? Hvað gerist þegar börn okkar verða farin að sitja 8 tíma á dag fyrir framan gervihnattasjónvarp, verður þá ekki loks draumurinn um hinn NÝJA MANN að veruleika, ein- stakling sem er alinn upp á forákvörðuðu efni sem með tíð og tíma mun FORÁKVARÐA líf hans? Þegar svo er komið, hefir draumurinn um 1000 ára ríkið ræst, máske lifir það lengur því ekki verður þá meir þörf á að skjóta menn eða brenna, nægir að benda þeim á að skipta um rás. Þetta er tinn dæmalausfBbDGE OMNI ’80 - litli lúxusbillinn frá Chrysler-verksmiðjunum i Ameriku, sem farið hefuf sigurför um löndin öll á undanförnum misserum. , í bilnum er t.d. 4 cyl. vélMp'úlega neyslugrönn, auk þess sjálfskipting ocHMtfusfrágangur í hólf og golf. Viö eigum eftir fáeina Omni 2dr. og 4dr. 80, á ótrúlega hagstæöu verði, þrátt fyrir gengissig og verðbólgu. Ekki geyma þangað til á morgun sem hægt er aö gera i dag - kaupa eina iúxuslausn i orkukreppu, DODGE OMNI. ÁRMÚLA 36, Símar 84366 - 84491

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.