Morgunblaðið - 17.10.1980, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
230. tbl. 68. irg. FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBÉR 1980 Prentsmiðja Moreunblaðsins.
60 herskip gæta
Hormuzsunds
WashinKton. Toheran. Baghdad. 16. október. — AP.
ÍRANIR og írakar hertu í dag loftárásir sínar og gerðu
írakar m.a. loftárásir á olíubirgðageyma Teheran-
borgar. Stóðu þeir í ljósum logum í dag. íranskar
orrustuþotur gerðu um svipað leyti loftárásir á
Baghdad. þriðja daginn í röð.
Einnig gerðu írakar loftárásir á
tvær bækistöðvar íranska hersins
við Kermanshah. í tilkynningu
íraska hersins í dag sagði að 203
íranskir hermenn hefðu verið
drepnir og 20 teknir til fanga í
átökum síðustu 12 klukkustund-
irnar er verið hefði lokasprettur-
inn í áhlaupi íraka á Abadan og
Khorramshahr er nú væru full-
komlega á valdi þeirra. í tilkynn-
ingu er útvarpið í Teheran birti í
dag var því hins vegar lýst, að
árásarsveitir íraka hefðu verið
hraktar 20 kílómetra til baka frá
austur- og norðurjaðri Abadan.
Rajai forsætisráðherra írana
hélt í dag áleiðis til New York þar
sem hann tekur þátt í umræðum í
Oryggisráðinu um átök Irana og
Iraka og hefur það verið túlkað
sem stefnubreyting af hálfu Irana,
sem áður höfðu lýst því yfir, að
þeir semdu ekki um frið með
milligöngu SÞ eða annarra aðila,
vopnin yrðu látin skera úr í deilu
þeirra og Iraka.
Carter forseti lét í kvöld í ljós
áhuga á að hitta Rajai að máli og
reyna að knýja fram lausn gísla-
málsins, en sagðist þó ekki sjá
neina möguleika á að af fundum
Kjarnorku-
sprenging
Washington. 16. október. — AP.
KÍNVERJAR sprengdu í dag
kjarnorkusprengju, að sögn
handaríska orkuráðuneytisins,
og var styrkleiki sprengjunnar á
biiinu 200 kilótonn til eitt mega-
tonn. Sprengjan var sprengd
ofanjarðar á Lop Nor-tilrauna-
svæðinu i norðvesturhluta Kina.
Kínverjar sprengdu kjarnorku-
sprengju ofanjarðar fyrir tveim-
ur árum og skildi hún eftir sig
geislavirkt ryk í andrúmslofti
jarðar i nokkra mánuði.
þeirra yrði. Sjónvarpsstöð í Chi-
cago skýrði frá því í dag, að yfir
stæðu viðræður milli bandarískra
og íranskra yfirvalda um lausn
gíslamálsins. Væri lausnin fólgin í
því að Bandaríkjamenn létu Irön-
um í té varahluti í orrustuþotur
þeirra í skiptum fyrir gíslana, og
myndu bandarískar herflutninga-
vélar halda til Teheran með vara-
hlutina á föstudag. Þessum fregn-
um var um hæl vísað á bug í
bandaríska utanríkisráðuneytinu.
Bandaríkjamenn, Bretar,
Frakkar og Astralir hafa komið
upp flota a.m.k. 60 herskipa í
kyrrþey í nágrenni Hormuzsunds,
sem eru um helmingi fleiri skip en
Eiginkonan
limdi sig
við makann
Birmingham. 16. okt. — AP.
TRYGG og trú eiginkona
límdi sig við eiginmann sinn,
þegar hún var að heimsækja
hann i fangelsi i Birmingham
í dag og varð að flytja mann-
inn, konuna og vörð þann sem
var handjárnaður við fang-
ann á sjúkrahús til að skilja
þau að.
Konan notaði kröftugt
byggingarlím til þessara að-
gerða: Um þær mundir sem
hún var að þrýsta hönd manns
síns í kveðjuskyni að því er
vörðurinn hélt, limdist hún
blýföst við hann. Tók langan
tima að skilja hjónin að og að
þvi húnu var konan flutt heim
til sin og grét hún beizklega
að sögn AP, en hafði þá ekki
meira hyggingarlim til að
reyna bragðið aftur. Tekið er
fram að ekki verði sett fram
ákæra gegn henni.
Yfirmaöur pólska sjónvarpsins
tekinn fyrir fjárdrátt:
Háttsettir embættis-
menn með í spilinu?
Varsjó. 16. október. — AP.
PÓLSKTblað sagði í dag. að Maciej Szczepanski fyrrum
yfirmaður pólska sjónvarpsins, sem tekinn var fastur í
gær ok gefið að sök að hafa dregið sér fé úr sjóðum
stofnunarinnar. hefði alls ekki geta misnotað svo
aðstöðu sína nema háttsettir embættismenn hefðu
haldið yfir honum hlífiskildi.
Blaðið sagði, að færa ætti fyrir
rétt alla er hlut ættu að máli, en
þar væri hvorki um að ræða neina
smákarla, blindingja eða heyrn-
leysingja.
Sögusagnir hafa verið á
kreiki, að Szczepanski og aðstoð-
armaður hans verði ekki leiddir
fyrir rétt þar eð þeir myndu að
öllum líkindum ljóstra upp um
aðra háttsetta embættismenn
fyrir rétti.
Sovétmenn hafa á svæðinu. Carter
forseti sagði á kosningaferðalagi í
New Jersey í dag, að Bandaríkja-
menn myndu taka til hverra
þeirra ráða er nauðsynleg væru
talin til að halda olíuflutninga-
leiðum um sundið opnum. Banda-
ríkjamenn hafa af þessum sökum
átt viðræður við ýmis ríki um
„tæknilegar" leiðir til að halda
sundinu opnu. í Pentagon ríkir sú
trú að sjóherinn bandaríski sé
einfær um að tryggja öryggi
olíuflutningaleiða um sundið, en
bandarísk yfirvöld hafa kosið að
koma upp sameiginlegum flota
vinveittra ríkja til að vera til taks
við sundið.
Biblían og
Karl Marx
Zagrch. 16. október. — AP.
JÚGÓSLAVNESKIR bókaþjóf-
ar seilast helzt eftir Biblíunni
eða Kommúnistaávarpi Karls
Marx, samkvæmt skoðana-
könnun júgóslavneska blaðsins
Vjesnik í dag. Könnunin var
gerð meðal hóksala í Zagreb.
í næstu sætum á vinsælda-
lista bókaþjófanna eru bækur
með leiðbeiningum í kynferð-
ismálum, sérstaklega mynda-
bækur, og hið klassíska rit
gríska heimspekingsins Plató,
„Ríkið“.
Særður írani situr á rústum húss fjölskyldu sinnar er
varð fyrir barðinu á loftárásum íraka á borgina Dezful
á mánudag. í loftárásinni fórust f jórir úr fjölskyldunni,
þ.á m. átta ára gömul systir hans. Símamynd AP.
Þrír bjóða sig fram
við formannskjörið
London. 16. október. — AP.
PETER Shore fyrrum umhverf-
i.smálaráðherra og núverandi
talsmaður brezka Verkamanna-
flokksins í utanrikismálum. til-
kynnti i dag þátttöku sína i
slagnum um formcnnsku i
flokknum. en í kjölfar afsagnar
James Callaghans flokksleiðtoga
í gær ákváðu tveir fyrrum ráð-
herrar flokksins. Denis Healy og
John Silkin. að vera í framhoði
er þingmenn flokksins kjósa
nýjan formann í byrjun na'sta
mánaðar, líklegast 4. nóvember.
Talið cr líklegt að fleiri eigi eftir
að gefa kost á sér við for-
mannskjörið. þar á mcðal Micha-
el FiKit og Anthony Wedgewood
Benn. fyrrum orkuráðherra og
helzti talsmaður vinstri arms
flokksins.
Shore sagði í dag, er hann
tilkynnti þátttöku sína, að tak-
mark sitt yrði að sameina Verka-
mannaflokkinn og efla traust
hans og stefnu meðal brezks
almennings. Möguleikar Shore hjá
veðmöngurum eru ekki miklir.
Þeir telja að Healy sé langlíkleg-
astur til að verða kosinn næsti
flokksformaður. Shore er að vísu í
öðru sæti hjá þeim, þá Foot, Silkin
og loks Benn. Frestur til þátttöku
rennur út 29. október.
Benn sagði í dag, að hver sá sem
næði kjöri í nóvember yrði aðeins
bráðabirgðaformaður, því búast
mætti við því að nýtt formanns-
kjör færi fram á næsta ári, jafnvel
næsta vor. Sérstakur fundur
flokksins hefur verið boðaður í
janúarlok til að vinna að breyttu
fyrirkomulagi á formannskjörinu.
I nýja fyrirkomulaginu fá verka-
lýðsleiðtogar og flokksleiðtogar í
hverju héraði hlutdeild í kjörinu,
en hingað til hafa aðeins þing-
menn flokksins kjörið flokksfor-
manninn. Með nýja fyrirkomulag-
inu styrkist vinstri armur flokks-
ins við formannskjörið.
Karmal fagn-
að í Moskvu
Moskvu. 16. oktobcr. — AP.
BABRAK Karmal. forseta Afganistan. var tekið með mikilli viðhöfn
er hann kom í opinbera heimsókn til Moskvu í dag. en það er í fyrsta
skipti sem hann kemur til Moskvu frá því að hann komst til valda
eftir innrás Rússa í Afganistan í desember.
Leonid Brezhnev forseti faðm-
aði Karmal og fylgdarlið hans
þéttingsfast að sér á Vnukovo-
flugvelli og hundruðir afganskra
námsmanna og sovézkra borgara
hylltu komumenn með lófataki og
fánaveifingum. í fylgdarliði
Karmals var Mohammed Dost
utanríkisráðherra og háttsettir
menn í her landsins, en ásamt
Brezhnev tóku á móti Afgönunum
þeir Andrei Gromyko utanríkis-
ráðherra, Nikolai Tikhonov vara-
forsætisráðherra og Youri V.
Andropov yfirmaður sovézku
leyniþjónustunnar, KGB.
Diplómatar í Nýju Dehlí töldu í
dag, að meðal umræðuefnis á
fundum Brezhnevs og Karmals
yrðu breytingar er væru fyrirhug-
aðar á stjórn Karmals í þeim
tilgangi að auka stjórninni vin-
sældir heima fyrir. Sovézkir fjöl-
miðlar gerðu mikið úr heimsókn-
inni siðustu daga og í dag voru
þeir fullir af greinum og fréttum
um mikilvægi heimsóknarinnar.