Morgunblaðið - 17.10.1980, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.10.1980, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1980 Myndllst eftir VALTÝ PÉTURSSON Eitt af verkum Palle Nielsen Palle Niel- sen í Nor- ræna húsinu í anddyri Norræna hússins stendur nú yfir merkilef; sýninj;. Danskur grafík-meistari að nafni Palle Nielsen er þar á ferð ok því nota ég hugtakið grafík- meistari, að verkin lofa svo meistarann að jafnvel þeir, er ekkert til þekkja í grafík, hljóta að sannfærast um snilli þessa myndlistarmanns. Palle Nielsen er víðfrægur fyrir grafík sína, og er þá ekki eingöngu miðað við Norðurlönd. En á Norðurlöndum er grafík í hávegum höfð, og margir góðir eða réttara sagt afburðamenn leggja hönd á plóg- inn í þeim efnum. Það er því ekkert smáræði að komast þar á blað á þessu sviði, hvað þá að verða í fremsta flokki. En það er Palle Nielsen. A sýningu Palle Nielsen í Norræna húsinu eru 55 grafísk blöð. Eru það dúkristur, ætingar, steinristur, tréristur og stein- prent. Allar þessar aðferðir leika í höndum listamannsins, og maður hefur það fljótt á tilfinn- ingunni, að hann sé tæknimeist- ari, sem jafnvel beiti göldrum við vinnu sína. Þeir sem halda því fram, að grafík sé ekkert annað en prentverk, ættu að líta á þessi verk og kynnast því afli og þeirri mýkt, er Palle Nielsen gæðir verk sín, eftir því hvað hann er að fara í það og það skiptið. Ekki ætla ég mér út í þá sálma að tíunda þessi verk. Það er að mínum dómi ómögulegt, svo jöfn eru þau og vel úr garði gerð, tæknilega séð, og ef því atriði er sleppt, kemst maður í enn nánara samband við það, sem enginn kann að nefna, en til er með fólki, bæði skapandi og þiggjendum, því er við költum í dagsins önn: list. Ekki meir um það. Norræna húsið á miklar þakk- ir skilið fyrir að koma fram með úrvalssýningu sem þessa. Grafík hefur átt nokkuð erfitt upp- dráttar hér á landi, en ég sé ekki betur en nú sé svo komið, að fólk sé farið að taka við sér á þessu sviði. Það er því mjög áríðandi, að við fáum að sjá sem mest og sem fjölþættast úrval af þessari listgrein og einmitt slík sýning sem sú, er Palle Nielsen nú gefur okkur kost á, er góður liður í að gera grafík eftirtektarverða hér á landi. Við höfum að vísu séð nokkuð af grafík að undanförnu, og við eigum okkur einnig hóp af ungu fólki, er stundar þessa listgrein. Það er því óþarft að vera með áhyggjur, þetta er allt að skapast og ef til vill er ekki langt í það, að fleiri og fleiri fari að stunda þessa gömlu eðlu listgrein, er á sér svo glæsilega fortíð. Ég vil hvetja fólk til að sjá þau meiriháttar grafísku blöð, sem Palle Nielsen hefur sent okkur til að njóta. Hér eru fyrsta flokks verk á ferð, sem væri hlægilegt að fara öllu fleiri orðum um. Kærar þakkir fyrir þessa úr- valssýningu, þeim er að henni standa. Tæknibúnaður hf. gerir samning við Simrad: Framleiðir 2 þúsund olíumæla að verðmæti um 1 milljarð króna FYRIRTÆKIÐ Tæknibúnaður gerði fyrir nokkru samning við norska fyrirtækið Simrad um framleiðslu á 2 þúsund oliu- nýtnimælum næstu tvö árin. Eru mælar þessir ætlaðir í báta með allt að 300 hestafla vél og er áætlað verðmæti þessa samn- ings við Simrad 1,5—2 milljónir dollara eða sem nemur 800— Fyrirlestur um sykursýki NÁMSKEIÐS- og fræðslunefnd læknafélaganna efnir til fundar um sykursýki i Domus Medca laugardaginn 18. okt. n.k. kl. 13.30. Dr. A.G. Cudworth, yfirlæknir við St. Bartholomew’s Hospital Medical College í London, flytur fyrirlestur um nýlegar rannsóknir á eðli og erfðum sykursýki. Nokkrir íslenzkir læknar flytja einnig stutt yfirlitserindi um nýj- ungar í rannsóknum og meðferð sykursjúkra. (Fréttatilkynning). 1100 milljónum íslenzkra króna. Mælarnir verða seldir á heimsmarkaði undir merki Sim- rad í svonefndri „Skipper- seríu“, en í nafni Tæknibúnaðar innanlands og síðar einnig er- lendis. Að sögn Árna Fannberg hjá Tæknibúnaði hefur fyrirtækið um nokkurt skeið framleitt eyðslu- reikna fyrir stærri skip og hafa þeir bæði verið seldir innanlands og erlendis, m.a. er einn slíkur í finnsku 14 þúsund rúmlesta tankskipi. Nýju mælarnir verða í raun einföldun á þessum stærri mælum, en algjörlega íslenzk framleiðsla. Þrír verkfræðingar vinna nú að gerð prufumælis, sem á að fara til prófunar hjá Simrad í Noregi í lok næsta mánaðar. Nýtnimælarnir gefa m.a. upp meðaleyðslu, notkun hverju sinni, reikna út olíumagn í tönkum og segja til um hversu lengi olíu- birgðir endast miðað við ákveðna notkun. Það er Öryrkjabandalagið, sem sjá mun um framleiðslu nýju mælanna eins og flestra annarra tækja, sem Tæknibúnaður fram- leiðir, en hins vegar eru tækin reynd hjá fyrirtækinu. Skipasmíðar fyrir Græn- höfðaeyjar hér á landi? VEIÐAR þeirra Islendinga, sem héldu fyrr á þessu ári til Græn- höfðaeyja til að aðstoða innfædda við fiskveiðar, munu hafa gengið brösótt til þessa. Aðstæður hafa verið erfiðar og bilun varð í Bjarti, 200 tonna skipinu, sem notað er við þessa þróunaraðstoð. íbúar Cabo Verde hyggjast hins vegar halda ótrauðir áfram í útgerðinni og hafa í hyggju að láta smíða mörg skip fyrir sig. Munu þeir m.a. ætla að leita tilboða hér á landi í skipasmíðarnar. Afhausun. Gunnar Sigurðsson í Seljatungu afhausar féð í slát- urhúsinu Höfn á Selfossi. IJósm. Sig. Sijcm. Tekið innan úr. Áætlað að slátrað verði 177.000 f jár SLÁTURTÍÐIN stendur nú sem hæst. Samkva>mt upplýsingum frá hændasamtökunum er áætlað að í ár verði slátrað 177.000 fjár. Á síðastliðnu ári var alls slátrað 198.000 fjár. Hjá Sláturfélagi Suðurlands var 64.000 fjár slátrað fyrstu þrjár vikur sláturtíðarinnar í 7 sláturhúsum félagsins. Meðalfallþung- inn var 14,29 kíló en var í fyrra 12,65 kíló. Fallþunginn skiptist þannig á sláturhúsin (fallþunginn í fyrra er innan sviga): Klaustur 14,66 kíló (12,05 kg), Vík 15,13 kg (12,65 kg), Djúpidalur 14,16 kg, Hella 13,65 kg (12,39 kg), Laug- arás 14,06 kg (12,44 kg), Selfoss 14,46 kg (13,02 kg) og Laxá 15,14 kg (13,45 kg). Að sögn Agnars Guðnasonar, blaðafulltrúa bændasamtak- anna, er búist við því að slátrun verði víðast lokið í lok október. Þess má einnig geta að lág- marksþungi á sviðnum haus með slátri er eitt kíló. Allt f é vænt og f allegt „SLÁTRUNIN hefur gengið mjög vel hjá okkur núna. Fé er allt mjög fallegt og vænt,“ sagði Sigursteinn Guðmundsson slát- urhússtjóri hjá Sláturhúsinu Höfn á Selfossi, í samtali við Mbl. fyrir helgi. „Við höfum þegar slátrað 5.900 fjár en áætlum að slátra um 10.000 í ár. Meðalfallþung- inn er rúm 14 kíló sem er rúmu kílói meira en á. sl. ári.“ Slátrun hófst hjá Höfn 19. september sl. en Sigursteinn sagði að síðustu bókanir hjá þeim væru 27. október. Á síðastliðnu ári var siátrað 13.400 fjár hjá Höfn, 3.400 færri en á sl. ári. „Það er töluvert margt sem veldur því að færra fé er slátrað í ár. Óvenju mikil slátrun í fyrra, mikil heyskapartíð í sumar og þessi nýi kvóti sem er verið að setja. Þetta og annað stuðlar að því að slátrun er minni í ár,“ sagði Sigursteinn að lokum. Baldvin Árnason yfirkjötmatsmaður athugar skrokkana. Einar Gislason frá Tjarnholtum við gærusöltunina hjá Höfn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.