Morgunblaðið - 17.10.1980, Page 14

Morgunblaðið - 17.10.1980, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1980 Esquivel neitar samstarfi við hryðjuverkamenn Huenos Aires. 16. okt. — AP. ARGENTÍNUMAÐURINN Adolfo Perez Esquivel, sem fékk friðar- verðlaun Nóbels á dögunum neitaði því harðlega i dag að hann hefði aðstoðað skæruliða og hryðjuverkamenn i Argentinu, eins ok á hann hafði verið borið. Hann bauðst til að koma til viðræðna við Videla forseta Argentínu og ræða mannréttindamál. I>að var stjórn Videla sem hafði skýrt frá því að Esquivel hefði verið látinn sitja í fanKelsi i fjórtán mánuði án þess að ákærur væru bornar fram á hendur honum, ve»?na þess að hann hefði hjálpað vinstri sinnuðum hryðjuverkamönnum með því að berjast fyrir því að pólitiskir fangar væru leystir úr haldi. I orðsendingu Esquivels sagði að hann hefði aldrei verið í sambandi við skæruliða eða hryðjuverkamenn og hann hefði margsinnis gagnrýnt harðlega at- lögur slíkra aðila á óbreytta borg- ara og embættismenn. Ríkis- stjórnin sé að reyna að réttlæta sínar eigin gjörðir með því að bera hann sökum sem eigi sér enga stoð. Esquivel | Sumir versla dýrt - aörir versla hjá okkur Okkar verö eru ekki tilboð heldur árangur af hagstæðum innkaupum Fyllið frystikistuna með góðum kaupum Nýtt. Nautahakk 1. fl. 3.480.— (5.642.— leyft verð) •kg. (8.233.— leyft verð) Nautagúllas 6.850.- 10 stk. l.fl. Hamborgarar Kletrakjúklingar 3.580. 3.480, (348.— pr.stk.) pr-kg. (4.950.— leyft verð) ■ ■" Unghænur 1.950.— (2.580.- leyft verð). 1.980.— (2.670.— leyft verð) Ný lifur Miðausturlönd: Engir fundir í Wash- ington fyrir áramót Washington. 16. okt. — AP. ÓNAFNGREINDAR en áreiðan- legar heimildir Bandaríkja- stjórnar töldu í kvöld ólíklegt að nokkrar frekari Miðaustur- landaviðræður verði fyrir lok ársins með meðalgöngu Banda- rikjanna. enda þótt handarískir embættismenn álíti að nokkuð hafi miðað i viðneðum milli Egypta og ísraela varðandi sjálfsstjórnarmál Palestínu. Þessar hinar sömu heimildir segja að ýms atriði sem hafi verið Þrándur í Götu fimm ára áætlun- ar varðandi Vesturbakkann og Gazasvæðið, hafi skýrzt nokkuð, en hins vegar séu Israelar enn einkar tregir til að ganga eins langt í mörgum atriðum og Egypt- um og Bandaríkjamönnum þykir nauðsynlegt. Segja embættismenn að mörgu þurfi að koma á hreint áður en formlegur fundur gæti orðið með þeim Carter Banda- ríkjaforseta, Begin forsætisráð- herra ísraels og Sadat, forseta Egyptalands og því sé ekki senni- legt að af fundum verði fyrr en á nýju ári. Joseph Burg, sem er aðalfulltrúi Israela í samningaviðræðum ríkj- anna tveggja vildi þó í dag ekki útiloka að fundur yrði, en sagði að svo margt væri óleyst að honum fyndist það ekki sennilegt. í sama streng tók Hosni Mobarak, aðstoð- arforseti Egyptalands. Járnbrautarteinarnir tala sinu máli um, hversu voldugur jarðskjáift- inn var í Alsír. 3 kippir í A1 Asnam A1 Asnam. Alsir. 16. okt. — AP. ÞRÍR snarpir jarðskjálftakippir skóku A1 Asnam-svæðið í Alsír snemma á fimmtudag, sex dögum eftir að borgin var nánast lögð i rúst og talið að um tíu þúsund hafi látið lífið. Opinberar heimildir segja að sex þúsund lík hafi þegar verið grafin upp. Kippirnir i dag ollu ekki frekara manntjóni að því er talið er. Björgunarsveitir vinna myrkranna á milli við hjálparstörf. Ottast er að pestir komi upp á svæðinu og hafa yfirvöld nú fyrirskipað að öllum hundum og köttum skuli umsvifalaust fyrirkomið. Talsmenn björgunarsveitanna að ekki sé enn nægilega mikið af segja að enn muni ástandið vera þyrlum og hjálpargögnum til að ömurlegt í ýmsum smáþorpum á koma nauðstöddum til hjálpar jarðskjálftasvæðinu, vegna þess þar. Þetta gerðist 17. okt. 1977 — Vestur-Þjóðverjar taka flugvél Lufthansa með áhlaupi og bjarga 86 gíslum úr hðndum hryðjuverkamanna í Mogadishu. 1976 — Ekkja Maos sökuð um að hafa flýtt fyrir dauða hans. 1975 — Hassan II sækir með mar- okkönsku herliði inn í Spænsku Sahara. 1968 — Tilkynnt að ekkja Kenn- edys hafi gifzt Onassis. 1945 — Perón hrifsar völdin í Argentínu og verður einvaldur. 1937 — Óeirðir í Súdetahéruðun- um (Tékkóslóvakíu. 1933 — Albert Einstein kemur til Bandaríkjanna og fær hæli. 1931 — A1 Capone fær 11 ára dóm fyrir skattsvik. 1927 — Fyrsta stjórn norska Verkamannaflokksins mynduð. 1913 — Serbar ráðast inn í Alb- aníu. 1912 — Tyrkir segja Búlgörum og Serbum stríð á hendur. 1899 — Búar sigraðir við Glencœ, Suður-Afríku. 1854 — Bretar og Frakkar hefja umsátrið um Sevastopol á Krím. 1813 — Rínarsamband Napoleons Bonaparte leyst upp. 1797 — Friður Frakka og Austur- ríkismanna í Campio Fornio — Napoleon skipaður yfirmaður hers til innrásar í England. 1777 — Brezki hershöfðinginn John Burgoyne gefst upp fyrir Bandarkjamönnum í Saratoga. 1748 — Frakkar leysa Pondi- cherry, Indlandi, úr umsátri Eng- lendinga. 1662 — Karl II selur Frökkum Dunkirk. Almæli. John Wilkes, enskur stjórnmálaieiðtogi (1729—1797) — Arthur Miller, bandarískur leik- ritahöfundur (1915---) — Rita Hayworth, handarísk leikkona (1918---). Andlát. 1586 Sir Philip Sidney, hermaður og rithöfundur — 1849 Fréderic Chopin, tónskáld. Innlent. c. 1270 d. Steinvör Sig- hvatsdóttir á Keldum — 1755 Kötiugos — 1922 Eldhræringar í Dyngjufjðllum — 1940 Sjö Pets- amofarar kyrrsettir í Reykjavík — 1961 Gígurinn „Hrekkur" gýs f öskju. Orð dagsins. Peningaskortur er undirrót alis ills — George Bem- ard Shaw, írskur ieikritahöfundur (1856-1960).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.