Morgunblaðið - 17.10.1980, Side 31

Morgunblaðið - 17.10.1980, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1980 31 Stórkostlegt körf uknatt- leikslið á Hallarf jölunum En Valsmenn stóðu vel fyrir sínu JÚKÓslavneska meistaraliðió Cip- on frá Zagreb er ekkert miðl- unKslið. en það vissu menn svo sem fyrir. Liðið sigraði Val í fyrri leik liðanna í Evrópukeppni meistaraliða í körfuknattleik með 110 stigum gegn 79. Vals- menn stóðu vel fyrir sínu. en við algert ofurefli var að etja. „Ég er ánægður með sigurinn. en ekki leikinn sem siíkan.“ sagði Mirko Novosel, þjálfari Cipon eftir leik- inn. „Við getum leikið mun betur og ætlum að gera það annað kvöld. Ég var ekkert sérstaklega hress með sumt af þvi sem mínir menn sýndu. En ég iofa betri leik á morgun. Valsliðið barðist vel og bestir i liðinu fannst mér vera númer 5 (Ríkharður) og 15 (t>ór- ir),“ bætti Novosel við. Novosel taldi sem sé lið sitt ekki hafa leikið neitt sérstaklega vel. Ljóst er því að ekki eru gerðar eins miklar kröfur hér á Fróni, því áhorfendur í gær sáu Slavanna skora að vild sinni og leika alls kyns kúnstir. Ef þetta var ekki góður leikur hjá liðinu, þá væri merkilegt að sjá einn slíkan. Og svo annan lélegan. Var raunar merkilegt að sjá til liðsstjórans hjá Cipon. Út af öllu æsti hann sig, meira að segja er íslendingar höfðu betur í uppkasti í byrjun síðari hálfleiks. Var hann mjög brúnaþungur. Valsmenn hljóta að hafa fengið innilokunarkennd er þeir léku inn í vörn Cipon. Hver maðurinn þar við annan um og yfir 2 metrar á hæð. Virtust íslendingarnir æði Valur:Cipon 79:110 litlir við hlið risanna. Var engu likara er að Valsmenn væru að leika körfuknattleik inni í midjum laufskógi þar sem karfan var staðsett fyrir ofan efstu trjákrón- ur. En gegn þessu ofurefli sýndu Valsmenn oft stórgóða takta þó svo að margt mistækist sökum hæðarmismunarins. Valsmenn geta því vel við unað, þeir léku eins vel og hægt var að ætlast til af þeim. Ef litið er aðeins á gang leiks- ins, þá var jafnt upp í 4—4, en síðan náði Cipon góðri forystu. Valsmenn létu þó ekki deigan síga og börðust af kappi. Yfirleitt var þó helmingsmunur á liðunum í fyrri hálfleik og í leikhléi stóð 59—32. Þegar allt kemur til alls, endaði síðari hálfleikur því 51—47 fyrir Cipon. Það er stórgóð frammistaða hjá Val og liðinu til mikils sóma. Sýndu Valsmenn oft klærnar í síðari hálfleik og skor- uðu margar fallegar körfur. En auðvitað var sigri Cipon aldrei ógnað og eftir úrslitin í gærkvöldi má með nokkurri vissu segja að liðið hafi tryggt sér rétt til þátttöku í annarri umferð keppn- innar(l). Leikmenn Vals áttu mjög mis- jafnan leik og var helst óánægja með Bandaríkjamennina Ken Burrell og John Johnson. Burrell var hreinlega lélegur, Johnson þó mun skárri og sótti sig er á leið. Engu að síður var búist við meiru frá hans hendi. Bestir hjá Val voru annars Þórir Magnússon, sem oft hitti ótrúlega vel, Rík- harður Hrafnkelsson og Kristján Ágústsson. Var Kristján einkum sterkur síðari hluta leiksins. Torfi átti einnig mjög viðunandi leik. Hjá Cipon tekur því hins vegar varla að vera að tína einn út öðrum fremur. Allir leikmenn liðsins, vindlarnir meðtaldir, eru leikmenn í fremstu röð og eigi færri en sex leikmenn liðsins komust í tveggjá stafa tölur í stigaskori. Að öðrum ólöstuðum var leikmaður númar fimm, Aco Petrovic, þeirra hittnastur. STIG VALS: Kristján Ágústs- son, Ken Burrell og John Johnson 14 hver, Torfi Magnússon 13, Þórir Magnússon og Ríkharður Hrafn- kelsson 10 hvor, Jóhannes Magn- ússon og Gylfi Þorkelsson 2 hvor. STIG CIPON: Petrovic 29, Nakic 18, Paulicevic 16, Usic 16, Knego 11 og Cosic 10 stig. Aðrir skoruðu minna. -gg Einn hinna snjöllu Júgóslava skorar með skemmtilegum tilþrifum i leiknum í gærkvöldi. — Ljósm.MBL. KÖE. Tap i Skotlandi „ÞETTA var miklu betri leikur heldur en fyrri leikur liðanna heima. birði liðin léku nú mjög vel, en Skotarnir voru einfald- lega betri. þetta eru þrautþjálf- aðir strákar og leika mjög fast,“ sagði Lárus Loftsson unglinga- landsliðsþjálfari i knattspyrnu i gærkvöldi. en þá lék ísland siðari leik sinn gegn Skotum í undan- keppni Evrópukeppni landsliða. Skotar unnu fyrri leikinn 1—0 og unnu aftur í gær, 3—1. „Þeir skoruðu hálfgert klúð- ursmark strax á 10. mínútu og svo misstum við okkar besta mann út af vegna meiðsla, Ásbjörn Björnsson á 30. mínútu. Strax þar á eftir skoruðu þeir annað mark sitt og stóð 2—0 í hálfleik. Við minnkuðum muninn á 55. mínútu með fallegu marki Hermanns Björnssonar úr Fram, en þeir innsigluðu sigur sinn með hörku- marki á 80. mínútu. Trausti Ómarsson varð einnig að hverfa af leikvelli illa meiddur," bætti Lár- Valur - Cibona í kvöld VALUR og Cibona frá Zagreb, leika siðari leik sinn i Evrópu- keppni meistaraliða í körfuknatt- leik í kvöld. Fer leikurinn fram i Laugardalshöli og hefst hann klukkan 20.00. Má fastlega búast við þvi að róðurinn verði þungur fyrir Vaismenn í kvöld, ekki síður en I gærkvöldi, enda júgó- slavneska liðið mjög sterkt. us við. Leikurinn í gærkvöldi fór fram á Celtic Park, leikvelli Glas- gow Celtic. — gg Ráða Valsmenn Tékka sem þjálfara? ÞÓ AÐ stutt sé liðið síðan knattspyrnutimabilið hætti eru knattspyrnudeildir hinna ýmsu félaga þegar farnar að huga að þjálfara- málum sinum. KA á Akur- eyri hefur þegar endurráðið þjálfara sinn frá í íyrra eins og skýrt hefur verið frá, og Breiðablik mun vera á hött- um eftir Ilólmbert Friðjóns- syni fyrrum þjálfara Fram, þá eru flest önnur félög að athuga sinn gang. Ljóst er að Volker Hoffer- bert er þjálfari Val síðast- liðið keppnistímabil verður ekki með Val áfram. Það mun Noröurlandamótiö í handknattleik: Tveir nýlióar í sterku liði laugardaginn leikur liðið tvo Ieiki, gegn Dönum í Elverum og gegn Færeyjum í Flisa. Loks mætir ísland Noregi í Kongsvinger á sunnudaginn. ____ _ ___ —gg Staðan í 1. deild VEGNA Norðurlandameistara- mótsins i handknattleik verður nú smáhlé gert á íslandsmótinu i handknattleik, og næsti leikur fer ekki fram fyrr en í lok mánaðarins. Eftir siðustu tvo leiki, Valur — Ilaukar 28—19 og FH — KR 21—27, er staðan í 1. „ÉG VEIT í rauninni ekkert um getu islenska landsliðsins í dag. Áð öðru leyti tel ég að við eigum jafn mikla möguleika á þvi að vinna þetta mót og hvert hinna liðanna. Ég hef sagt það áður og endurtek nú, að leikið verður tii sigurs i hverjum leik hvernig svo sem til kann að takast,“ sagði Hilmar Björnsson, landsliðsþjáif- ari i handknattleik, en i gær stafa af því hversu seint hann kemst til landsins næsta vor. Knattspyrnudeild Vals hefur því verið að leita sér að þjálfara víða að, og hefur nú augastað á tékkn- eskum þjálfara sem hefur verið meðal annars fyrrver- andi landsliðsþjálfari Finn- lands og getið sér gott orð sem slíkur. Hafa Valsmenn sett sig í samband við við- komandi þjálfara og málin verið krufin bréflega. Óvíst er hvað kemur út úr þeim viðræðum en nokkuð ljóst er að báðir aðilar hafa mikinn áhuga. — UR- tilkynnti hann iandsliðshópinn sem mætir til leiks á Norður- landamótinu í næstu viku. Hóp- inn skipa eftirtaldir leikmenn: Markverðir verða Olafur Bene- diktsson Val, Kristján Sigmunds- son Víkingi og Pétur Hjálmarsson KR. Aðrir leikmenn verða Stein- dór Gunnarsson Val, Björgvin Björgvinsson Fram, Ólafur H. Jónsson Þrótti, Bjarni Guð- mundsson Val, Ólafur Jónsson Víkingi, Gunnar Lúðvíksson Val, Alfreð Gíslason KR, Þorbergur Aðalsteinsson Víkingi, Viggó Sig- urðsson Bayer Leverkusen, Sig- urður Sveinsson Þrótti, Þorbjörn Guðmundsson Val og Páll Ólafs- son Þrótti. Tveir nýliðar eru í hópnum, Pétur markvörður Hjálmarsson og Páll Ólafsson. Báðir hafa staðið sig sérlega vel í haust og eiga sæti sín skilið. Ólafur Jónsson úr Vík- ingi verður enn um sinn fyrirliði liðsins. Nokkur nöfn eru þarna fjarverandi sem mörgum finnst áreiðanlega eiga þarna heima. Má nefna Axel Axelsson, Gunnar Ein- arsson og Pál Björgvinsson. Þeir tveir fyrrnefndu hafa ekki séð sér fært að vera með í undirbúningi liðsins vegna þjálfunaranna. Páll treystir sér hins vegar ekki vegna annarra anna. Fyrsti leikur íslands á mótinu verður gegn Svíum í Elverum á fimmtudaginn. Á föstudaginn mætir liðið Finnum í Hamar. Á deild nú þessi: Víkingur Þróttur KR Valur FH Fylkir Haukar Fram 3 1 0 69-60 3 0 0 68-56 2 1 1 75-76 2 0 2 82-64 2 0 2 81-91 1 0 2 1 0 3 0 0 4 58-68 78-84 78-90 0 Markahæstu leikmenn 1. deild- ar eru: Kristján Arason FH, 37 mörk þar af 20 úr vítaköstum. Axel Axelsson Fram, 33 mörk þar af 16 úr vítaköstum. Sigurður Sveinsson, Þrótti, 29 þar af 6 úr vítaköstum. SEINNI LEIKUR snillinganna frá CIBONA gegn VAL fer fram í Höllinni í kvöld kl. 20. KOMIÐ OG SJAIÐ SUPER STJORNURNAR VALUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.