Morgunblaðið - 26.11.1980, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1980
Sáttatillagan í flugmannadeilunni:
Flugmönnum boð-
ið upp á hlutastörf
3 ára aðlögunartími fyrir sam-
eiginlegan starfsaldurslista
EINS OG greint var frá í Morg-
unblaðinu i gær gerir sáttatil-
laga dr. Gunnars G. Schram
sáttasemjara í deilunni ráð fyrir
Vilja kvóta
á síldveið-
ar í reknet
MEÐAL tillagna. sem liggja fyrir
Fiskiþingi. má nefna samþykkt
Fiskideildarinnar í Vestmannacyj-
um. um að afla reknetabáta á
síldveiðum verði skipt á hvert
einstakt skip. Sunnlendingar hafa
einnig beint þeim tilmælum til
Fiskiþings að kannað verði hvort
ekki sé tímabært að setja kvóta á
síldveiðar í reknct. Slík kvóta-
skipting er á vciðum nótabáta og
mega loðnuskipin veiða 150 tonn.
en „hcfðhundin notaskip" 250
'tonn.
Endurráðningarbréf
flugfreyja send út
Endurráðningabréf flugfreyja
Flugleiða voru send út í gærkvöldi,
en uppsagnir flugliða Flugleiða
áttu að taka gildi 1. des. nk. Nær 70
flugfreyjur eru endurráðnar í fullu
starfi, en um 30 í hlutastörfum og
að auki er hópur flugfreyja í
að allir flugmenn hafi fullt
starfsoryggi i 10 mánuði frá 1.
des. nk. Atkvæðagreiðsla fer
fram um tillöguna, en ef ekki
næst samkomulag i starfsaldurs
listamálinu og endurráðningum
kann svo að fara að Flugleiðii
verði að segja upp allt að 18
flugmönnum.
í sáttatillögunni er gert ráð
fyrir 3 ára aðlögunartímabili ef til
uppsagna þarf að koma. Er þar
gert ráð fyrir því að fyrstu tvö
árin verði 50% uppsagna eftir því
á hvaða Jeiðum samdráttur kann
að verða og 50% eftir starfsaldri.
En á þriðja ári er gert ráð fyrir að
30% uppsagna sem kunna að
verða miðist við samdrátt á leið-
um sem flugmenn frá hvoru
tveggja flugmannafélaginu fljúga
á, en 70% eftir starfsaldri.
Gert er ráð fyrir þvi að upp-
sagnir og breytingar í þeim efnum
fari algjörlega eftir sameigin-
legum starfsaldurslista að þremur
árum liðnum, en þó skuldbinda
Flugleiðir sig til þess að endur-
ráða þá 6 flugmenn sem næst
standa á starfsaldurslista þótt
þeirra verði hugsanlega ekki þörf.
Þá býður sáttatillagan flug-
mönnum upp á hlutastörf og
einnig er boðið upp á atvinnumiðl-
un, þ.e. aðstoð við að útvega
flugmönnum atvinnu erlendis ef
verkefnaskortur er hér á landi.
Ef þessi tillaga verður ekki
samþykkt má gera ráð fyrir því að
barneignaleyfi og launalausu leyfi málið verði lagt fyrir gerðardóm
til vors. en slíkt er háð ákvörðun ráðherra.
Gunnar Guðmunds-
son skólastjóri látinn
SL. MÁNUDAG lézt í Borgarspít-
alanum í Reykjavík Gunnar Guð-
mundsson skólastjóri við Kársnes-
skóla í Kópavogi. Gunnar var
skipaður skólastjóri við Kársnes-
skóla 1. sept. 1957 en hafði þá
starfað sem kennari við barna-
skóla Kópavogs allt frá árinu
1946. Ilann var einn af þeim sem
forystu höfðu um uppbyggingu
skólamála í Kópavogi.
Gunnar Guðmundsson var fædd-
ur 9. okt. 1921 að Hrólfsskála á
Seltjarnarnesi. Foreldrar hans
voru Guðmundur Pétursson bóndi
þar og kona hans Elísabet Stefáns-
dóttir. Kennaraprófi lauk Gunnar
/1942, smíðakennaraprófi frá Hand-
íðaskólanum 1949. Þá sótti hann
kennaranámskeið í Askov 1951.
Gunnar starfaði sem kennari í
Norðfjarðarskólahverfi 1943—44,
við barnaskólann í Stykkishólmi
1944 —46 og í Kópavogi frá 1946.
Hann var skipaður skólastjóri við
Kársnesskóla 1957, eins og áður
segir og gegndi því starfi til
dauðadags.
Gunnar Guðmundsson
skólastjóri
Gunnar Guðmundsson kvæntist
3. ágúst 1952 Rannveigu Sigríði
Sigurðardóttur bónda Vogi, Mýrar-
sýslr Einarssonar og konu hans
Guðrúnar Árnadóttur.
Mild ásýnd
Veturs koriungs
Þjóðhagsstofnun:
70% verðbólga 1981
Kaupmáttarrýrnun upp í 5—6%
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN hefur
sent ríkisstjórninni áætlun um
þróun launa, kaupmáttar og
verðlags á næsta ári miðað við
óbreytta efnahagsstefnu og með
tilliti til nýgerðra kjarasamn-
inga. Samkvæmt henni verður
verðbólgan um 70% á næsta ári,
laun hækka um 60% og kaup-
máttarrýrnun verður því 5—6%.
Miðað er í spánni við það, að
gengi krónunnar verði lækkað á
móti kostnaðarhækkunum út-
flutningsatvinnuveganna og að
erlendur gjaldeyrir hækki þá um
55—60% milli áranna 1980 og ’81,
sem jafngildir 34—35% gengis-
lækkun krónunnar.
Ólafur Davíðsson, forstöðumað-
ur Þjóðhagsstofnunar, staðfesti í
samtali við Mbl. í gær, að stofnun-
in hefði nýlega sent ríkisstjórn-
inni spá með þessum tölum. „Þetta
var svona vinnugagn til ríkis-
stjórnarinnar. Fyrsti liðurinn í
athugun á ýmsum þáttum efna-
hagslífsins," sagði Ölafur. Hann
kvaðst hins vegar ekki vilja fara
frekar út í þessi efni.
Meðaltalskaupmáttur 1978
6,8 stigum hærri en í ár
YFIRLITI yfir þróun kauptaxta
og kaupmáttar var dreift á ASÍ-
þingi i gær. Þar kemur fram, að
kaupmáttur kauptaxta verka-
mannakaups er áætlaður nú í
nóvembermánuði 9,8 stigum
lægri en hann var i júnimánuði
1978 eftir að mai-lög rikisstjórn-
ar Geirs Hallgrimssonar höfðu
tekið gildi. Miðað við ætlun fyrir
desembermánuð nú, þ.e. þegar
verðbótavisitala hefur komið á
kaupið, er kaupmátturinn enn
3,8 stigum lægri en í júni 1978.
Meðaltalskaupmáttur ársins
1978 var 6,8 stigum hærri en
hann er í ár.
Af yfirliti, sem greinargerðinni
fylgir, sést, að kaupmátturinn er
allmiklu stöðugri þann tíma, sem
Geirs-lög gilda, en við setningu
Ólafslaganna fer að síga á ógæfu-
hliðina. I maímánuði 1978 er
kaupmátturinn 103,7 stig og í
októbermánuði nú, fyrir kjara-
samningana sem nýgerðir eru, var
hann áætlaður 104 stig eða aðeins
0,3 stigum hærri, en þegar verka-
lýðshreyfingin biés til baráttu við
ríkisstjórnina 1978. Kaupmáttur-
inn í apríl 1978 var 3 stigum hærri
en hann var í apríl 1980.
I þessum samanburði verður að
geta þess, að verðbólgan var á
árinu 1978 ólíkt minni, en hún er
nú, hækkaði frá 1. nóvember 1977
til jafnlengdar 1978 um 46,9%, en
frá 1. nóvember 1979 til jafnlengd-
ar í ár hækkaði hún um 50,9% og
hafði þá verið greidd niður um
allmörg stig með kjöti og útsölu-
smjöri, en hækkun vísitölunnar án
áhrifa þessara niðurgreiðslna var
þá 58,2%.
Ólympíuskákmótið:
Sigur blasti við
yfir Mongólíu
fSLAND telfdi við Mongólíu I 5. umferð Ólympíuskákmótsins á Möltu,
scm tefld var i gær. og stefndi í íslen/.kan sigur, að sögn Margeirs
Péturssonar. Jón L. Árnason og Ingi R. Jóhannsson liðsstjóri, sem tefldi
sina fyrstu skák, unnu, Helgi Ólafsson tapaði en Jóhann Iljartarson var
að tefla biðskák þegar síðast fréttist og var útlit fyrir jafntefli í skákinni.
Stefán M. Gunnarsson bankastjóri Alþýðubankans á ASI-þingi:
Erf iðleikar og örvænting
of tíðir gestir í bankanum
„Erfiðleikarnir og örvænt-
ingin eru nú orðnir of tíðir
gestir á biðstofu bankans,“
sagði Stefán M. Gunnarsson,
hankastjóri Alþýðubankans í
ávarpi, sem hann flutti 34.
þingi Alþýðusambands íslands
i gærmorgun. Stefán sagði
þetta er hann ræddi um þá
vaxtabyrði, sem nú væri orðin
hjá fólki almennt i þjóðfélag-
inu.
Stefán M. Gunnarsson banka-
stjóri sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að mun meira
væri um þetta nú hin síðari
misseri „og maður verður alltaf
meira og meira var við þetta.
Með þessu var ég að vekja
athygli á þessum vaxtamálum,
sem ég tel mjög varhugaverð,
sérstaklega gagnvart láglauna-
fólki.“
Stefán kvað þessi mál myndu
koma í vaxandi þunga á fólk, í
sambandi við takmarkanir
skattyfirvalda á vaxtafrádrætti.
Helgi Ólafsson átti í höggi við
Mjagmasuren á fyrsta borði. Helgi
náði góðri stöðu eftir byrjunina, en í
miðtafli varð honum á gróf óná-
kvæmni, honum sást' yfir mót-
spilsmöguleika mongólans og í einu
vetfangi breyttist hartnær unnin
staða í tapaða.
Á öðru borði hafði Jón L. Árnason
svart. Honum tókst að hagnýta sér
mistök andstæðingsins í byrjuninni
og vann örugglega, þó eftir nokkrar
sviptingar.
Jóhann Hjartarson tefldi nú í
fyrsta sinn á 3. borði. Hann hafði
lengst af betri stöðu, en í endatafli
sást honum yfir einfalda leikfléttu
og tapaði peði.
En þegar tekið var til við taflið að
nýju jukusf jafnteflislíkurnar og
staðan var þessi síðast þegar blaðið
hafði fregnir af skákinni. Hvítur
(Jóhann): Kc4, Rc3. Svartur: Ke3, f7,
g5.
Ingi R. Jóhannsson tefldi sína
fyrstu skák í mótinu og sína fyrstu
kappskák í langan tíma. Ingi virtist
fá erfiða stöðu eftir byrjunina en í
miðtaflinu tókst honum að snúa á
andstæðing sinn, sem hét Lhagva og
vinna taflið.
íslenzku kvennasveitinni vegnaði
illa í fimmtu umferð. Þá er Ólöf
Þráinsdóttir og Sigurlaug Friðþjófs-
dóttir töpuðu fyrir sænsku stúlkun-
um Aatolainen og Nyberg. Áslaug
Þráinsdóttir stendur eitthvað ver í
biðskák sinni við Borisovu-Örnstein,
sem er alþjóðlegur meistari kvenna,
en Áslaug ætti þó að hafa dágóða
jafnteflismöguleika.
Ungverjar eru efstir með 15VS
vinning. Þeir kepptu við Bandaríkin
og hlutu 2 vinninga gegn einum og
eiga unna biðskák. Svíar koma
næstir með 14V4 vinning. Rússar
koma þarnæstir en þeir gerðu jafn-
tefli við Búlgara 2:2 .
Sjá nánar á bls. 25.