Morgunblaðið - 26.11.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.11.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1980 MIKLAR umræður spunnust á ASÍ-þingi í gær um drög að kjara- og atvinnumálaáiyktun þingsins. Frummælandi var Ás- mundur Stefánsson, íram- kvæmdastjóri ASÍ. og flutti hann ítarlega ræðu um þróun kjara- mála írá því er síðasta ASÍ-þing var haldið árið 1976. Þá var samþykkt að krafa ASÍ yrði 100 þúsund króna mánaðarlaun fyrir lægst iaunaða fólkið. Framreikn- aða kvað Ásmundur þessa kröfu nú vera, miðað við nóvemberverð- Iag, tæplega 447 þúsund krónur, en lægsta skráða kauptaxta kvað hann vera rúmlega 324 þúsund krónur. Þó minnti hann á að 100 þúsund krónu krafan hafi ekki náð fram að ganga i samningun- um 1977. Ásmundur Stefánsson rakti síð- an skerðingarákvæði laga og fjall- aði einkum um skerðingu Ólafs- laga, sem enn væru í gildi. Síðan sagði hann: „Eftir þá samninga, gerða verði gripið. Við erum því enn í óvissu um hverjar aðgerðírn- ar verða. En við hljótum að árétta að nauðsynlegt er að allar stjórn- valdsaðgerðir miði að því að treysta umsaminn kaupmátt. Við hljótum að ítreka aðvörun okkar til stjórnmálamannanna, skerðing kaupmáttar leysir ekki efnahags- vandann, hún er til þess eins fallin að valda óróa á vinnumarkaði og upplausn, sem er ekki stjórn efnahagsmála til góðs.“ Næstur talaði Björn Þórhalls- son og fjallaði um skattamál. Hann lýsti því, hvernig stjórnvöld hefðu þrengt alla skattfrádrætti, sjómannafrádrátt, frádrátt í sjúk- dómstilfellum og vaxtafrádrætti, sem hann kvað myndu koma tilfinnanlegast við fólk, einkum ungt fólk, sem væri að koma sér þaki yfir höfuðið í fyrsta sinn. Hámark vaxtafrádráttar væri nú 3 milljónir króna og hver maður sæi að það gæti ekki gengið, þegar ASÍ-þing ræddi kjaramálin: Tillaga um að skora á Alþiijgi að fella vísitöluskerðingarákvæði Olafslaga sem nú hafa verið gerðir, hafa umræður um hugsanlegar aðgerð- ir stjórnvalda færzt í aukana. Menn spyrja, ætlar ríkisstjórnin að láta verðbólguna fara í 70 til 80% eða ætlar hún að höggva á kaupið? Ég verð að segja eins og er að umræður stjórnmálamanna á undanförnum misserum hafa vakið mér meiri og méiri gremju. Fyrir okkur, sem stöndum utanvið og fylgjumst með umræðum þeirra í gegn um fjölmiðla er næstum eins og þeir sofi í þrjá mánuði, en vakni síðan upp með andfælum fyrir hvern verðbóta- útreikning og spyrji sjálfa sig í undrun: er það virkilega rétt, að kaupið eigi að fara að hækka um 10% ? Að þessi 10% kauphækkun sé afleiðing 11% verðhækkunar á meðan þeir sváfu virðist ekki komast inn i kollinn á þeim.“ Skömmu síðar í ræðu sinni sagði framkvæmdastjóri ASÍ: „Ég held það væri hollt fyrir stjórn- málamennina að reyna nú einu sinni að halda sér vakandi sam- fellt í 3 mánuði og huga að öðrum þáttum efnahagslífsins. Skoða það, hvað megi betur fara í fjármálum hins opinbera, hverju megi hagræða, hvar megi endur- skipuleggja fjárfestingar, hvernig megi lækka verð á innflutningi til landsins o.s.frv. Snúi þeir sér að þeim viðfangsefnum, er ég sann- færður um að ekki líður á löngu áður en draga fer úr verðbólg- unni.“ Undir lok ræðu sinnar sagði Ásmundur, að hann hefði ásamt Snorra Jónssyni, forseta sam- bandsins, átt fund með Gunnari Thoroddsen, forsætisráðherra nú fyrir helgina, þar sem þeir vildu grennslast fyrir um það hvað framundan væri af hálfu stjórn- valda á næstu vikum og mánuðum. Ásmundur sagði: „Á þeim fundi lögðum við áherzlu á það, að við teldum að stjórnvöld bæru ábyrgð á því að vel takist að tryggja þann kaupmátt, sem samningarnir gera ráð fyrir. Með yfirlýsingum sínum um ýmis félagsleg atriði stuðlaði ríkisstjórnin að lausn kjarasamn- inganna og innsiglaði þannig ábyrgð sína á þeim. — Forsætis- ráðherra sagði að innan ríkis- stjórnarinnar hefðu engar ákvarð- anir verið teknar. Ymsar leiðir séu í könnun, Þjóðhagsstofnun sé að vinna að útreikningi á ýmsum atriðum og útilokað sé fyrr en að þeim könnunum loknum að móta endanlega afstöðu til þess, hvernig skuli tekið á þeim verðbólguvanda, sem við er að glíma. Hann lagði áherzlu á, að ríkisstjórnin hyggð- ist hafa fullt samráð við verka- lýðssamtökin um til hvaða að- meðalíbúð ungra hjóna kostaði um 40 milljonir króna og venjulegast ættu menn ekki slíka sjóði, að þeir gætu keypt án lána. Ef á að minnka vaxtafrádráttinn — sagði Björn — verður að gera það stig af stigi en ekki í einu. Um 10% frádráttinn kvað hann aðeins um brúttóskattlagningu að ræða, sú regla væri kominn frá skatt- heimtumönnunum og beindist að- eins að því að ná sköttum sem hraðast úr vösum skattgreiðenda. Björn Þórhallsson brýndi fyrir þingheimi, að hann yrði ekki síður að gefa skattamálum gaum en verðbóta- og launamálum. Eftir framsögu þeirra Ásmund- ar og Björns hófust almennar umræður um kjara- og atvinnu- mál og tóku mjög margir til máls. Umræðan stóð frá hádegi og til fundarloka í gær klukkan 19. Inn í umræðurnar spunnust málefni fatlaðra og lamaðra og var tillaga um stuðning við þá afgreidd á þinginu, en Theodor A. Jónsson, formaður Sjálfsbjargar, lands- sambands fatlaðra hafði ávarpað þingið í gærmorgun. Kolbeinn Friðbjarnarson frá Siglufirði gerði málefni fatlaðra sérstaklega að umtalsefni og kvað málefni þeirra órjúfanlegan þátt kjaramálanna. Hvatti hann til nánara samstarfs ASI og samtaka fatlaðra. ASI yrði að gjörbreyta stefnu sinni og gjörðum gagnvart þessum þjóðfélagshópi. Hann flutti tillöguna, sem afgreidd var án þess að hún yrði send í nefnd. í sama streng tók Snorri Konráðs- son frá Félagi bifvélavirkja, sem flutti tillögu um að ASI skoraði á ríkisvaldið að afla fjár til styrktar fólki, sem orðið hefði fyrir áföllum vegna slysa, sjúkdóma, einstæð- ingsskapar, hjúskaparbrota og af-- brota. Styrkja þyrfti þetta fólk til sjálfsbjargar. Baldur Magnússon, Akranesi, kvað það hneyksli, ef ríkisstjórn- in, sem kallaði sig stjórn vinnandi stétta, myndi ekki láta uppi, hvað hún hefði í hyggju varðandi efna- hagsmál og Hjálmar Jónsson frá Málarafélagi Reykjavíkur hvatti til samstöðu ASÍ um ákvæðis- vinnukerfi byggingariðnaðar- manna, sem hann kvað gerða atlögu að og á 25 árum hefði þetta kerfi rýrt kjör manna um 40%. Kvað hann samstöðuleysi aðila innan ASÍ hafa valdið þessu. Jón Karlsson, Sauðárkróki, ræddi kjaramálaályktunina og kvað hana að sínu mati einum of hógværa, en nauðsynlegt væri að hún væri í takt við tímann. Hann benti á að fjárhag manna í þjóðfélaginu færi hrakandi og fjármálavandræði væru víða. Hann spurði, hvort ekki væri orðið tímabært að verkalýðshreyfingin færi að hafa meiri afskipti af þessu ástandi. Sífellt væri rætt um varnarsigur á varnarsigur ofan, sem skilaði fólki ekkert áfram í kjarabótum. Því taldi hann að breyta ætti um vinnu- brögð. Hér væri og sífellt klifað á því að ekkert atvinnuleysi væri og verðbólgan væri þar betri kostur, en hann kvaðst hafa séð nýlega ógnvekjandi tölur um landflótta, það er fjölda burtfluttra umfram aðflutta. Því væri spurning, hvort ekki væri verið að flytja atvinnu- leysi úr landi. Jón kvað undirbúningi kröfu- gerðar ASÍ hafa verið ábótavant við síðustu samninga, sérkröfur hafi komið allt of seint fram. Þá kvað hann gagnrýnivert, hvernig VSÍ hefði ávallt tekizt að hafa frumkvæði í öllu er laut að samningsgerðinni, einkum er varðaði fréttir í fjölmiðlum. Þá kvað hann ASI einnig eiga að gera sig meir gildandi á skattamála- sviðinu. Jóhanna Sigurðardóttir ræddi um kaupgreiðslur og hvatti til þess að sú miðstjórn, sem kjörin yrði, léti fara fram könnun á raunverulegum yfirborgunum í hinum ýmsu greinum. Þá talaði Guðmundur Sæmundsson, fulltrúi Einingar á Akureyri, og kvað ekki við launafólk að sakast, það bæri ekki ábyrgð á verðbólgunni. Þar kvað hann við vinnuveitendur og ríkisstjórn að sakast. Nauðsynlegt væri að verkalýðshreyfingin skipti um stefnu, ynni að afnámi Ólafs- laga og hafnaði öllum tillögum um afnám eða skerðingu verðbóta á laun. Þá kvað hann nauðsynlegt að stemma stigu við of mikilli vinnu, hafna ætti láglaunastefnu, en hækka öll laun, en láglaun þó mest. Hann kvað atvinnurekend- um hafa tekizt að fresta samn- ingsgerð um 10 mánuði. Slík vinnubrögð gæti almennt launa: fólk ekki sætt sig við og ætti ASÍ að gera kröfu um afturvirkni samninga, svo að ekki væri það markmið í sjálfu sér að tefja samningsgerð. Guðmundur Sæmundsson hvatti til þess að ASÍ léti neytendamál meira til sín taka og hann gagn- rýndi miðstýringuna, sem gert hefði samflotið í kjarasamningun- um dauðadæmt. Hann kvað sömu menn sitja í ríkisstjórn og í forystu stjórnmálaflokkanna og þeir misnotuðu verkalýðshreyf- inguna. Þetta hefði í för með sér stéttasamvinnustefnu, sem haml- aði upplýsingastreymi út til hins almenna launþega. Hann kvað því brýnt að barizt yrði fyrir auknu lýðræði innan hreyfingarinnar og kvað það myndu færa mönnum bætt kjör. Hann kvað drögin að kjaramálaályktuninni svo slöpp, að þau nánast rynnu út af papp- írnum. Menn stæðu nú talsvert langt frá því að ná kaupmætti sólstöðusamninganna og í kom- andi samningum ættu menn að einbeita sér að afnámi Ólafslaga og keppa að betra vísitölukerfi. Hann gerði allviðamiklar tillögur um breytingar á kjaramálaálykt- uninni. Magnús Geirsson, formaður Rafiðnaðarsambands íslands gagnrýndi miðstýringu kjara- samninga og kvað of lítið hafa verið rætt um mótun atvinnu- stefnu. Hann fjallaði um atvinnu- leysisbætur og ræddi um loforð stjórnvalda í þeim efnum. Ólafur Emilsson, formaður Hins íslenzka prentarafélags gagnrýndi einnig samflotið og miðstýringu kjara- samninga og kvað félög sem staðið hefðu utan ASÍ hafa náð betri samningum. Hann spurði, hvort ASI hefði þá haldið uppi rangri launastefnu, launasamningar hafi verið gerðir í hálfgerðum feluleik og lýsti þeirri skoðun sinni að hvert félag ætti að semja við sinn vinnuveitanda. Karvel Pálmason tók næstur til máls og kvað verkalýðshreyfing- una hafa orðið undir í baráttunni um kaupmáttinn frá sólstöðu- samningunum 1977. Ríkisvaldið hafi ekki undanfarin ár verið hliðhollt verkalýðshreyfingunni, en hann kvað launþega líka geta kennt sjálfum sér um. Óeining hafi verið innan ASI og menn hefðu ekki verið nægilega sam- stiga í viðræðum, samráðsleysið við hinn óbreytta félaga hafi verið algjört, þótt ítrekað hafi verið undan því kvartað í 43ja manna nefnd ASI. Ákveðið hafi verið að kalla saman formannaráðstefnu ASÍ, en það hafi ekki verið gert. Hann minnti forystuna á að ekk- ert væri hægt að gera, nema því aðeins að félagsmenn stæðu með forystunni. Þá ræddi Karvel um skattalækkanir, sem hann kvað hafa verið eina af meginkröfum samtakanna, en ríkisvaldið hafi neitað að hlusta á hana. Hann kvað skattalækkanir á lágtekjur meira virði en krónutöluhækkanir launa í 70 til 80% verðbólgu og slíka kaupmáttaraukningu ætti ríkisstjórn erfiðara með að taka til baka með gengsissigi. Krafa hefði verið gerð um jöfnun lífeyr- is, á hana hafi ekki verið hlustað, heldur hafi stjórnvöld heimilað lífeyrissjóðum að verja eigin fjár- magni til aukinnar verðtryggingar lífeyris. Hins vegar hafi ríkis stjórnin samið við BSRB um aukið misrétti í þessum málum. Þetta mál kvað Karvel eitt hið mesta, sem um væri unnt að fjalla á þinginu. Á sama tíma og ríkið hafnar kröfum ASÍ, ákveður það að verka skattpeningum félaga ASI til aukinna réttinda opin- berra starfsmanna — sagði Karv- el. Karvel kvað ekki hægt að ljúka þessu þingi, án þess að ríkisstjórn- in gerði grein fyrir fyrirætlunum sínum í efnahagsmálum. Samráði hefði ríkisstjórnin heitið og það væri lögbundið í Ólafslögum. Hann spurði, hvaða stofnun væri eðlilegri til að fjalla um aðgerðir stjórnvalda en ASÍ-þing. Hann kvað ríkisstjórnina vart geta und- an því vikizt að gera grein fyrir þessum málum á þinginu. Þá talaði Óskar Vigfússon, for- seti Sjómannasambands íslands. Hann skýrði frá því að borizt hefði í gær skeyti frá 46 togurum, þar sem skorað væri á ráðherra að efna heit frá 1978 um að sjómenn fengju 3 frídaga um jólin og að ráðherra setti þegar í stað reglu- gerð um þetta. Kvað hann það eðlilega kröfu, að sjómenn gætu fengið að dveljast hjá fjölskyldum sínum um jól. Þá lýsti Óskar samningaviðræðum sjómanna, sem enn hafa ekki gert samninga sína og kvað útvegsmenn hafa lagt fram kröfur um skerðingu gild- andi kjarasamninga í 18 liðum. Hrafnkell A. Jónsson, Eskifirði kvaðst vera óánægður með mið- stýringu kjarasamninga. Hann kvaðst hafa verið einn þeirra, sem hefðu samþykkt Ólafslög, þar sem hann hafi talið ríkisstjórnina vinsamlegt ríkisvald. Kvaðst hann hafa orðið sér til skammar fyrir það, nú vildi hann að Ólafslög yrðu felld úr gildi. Hann kvaðst styðja kröfuna um að ríkisstjórnin gerði hreint fyrir sínum dyrum og kvaðst ekki myndu hlíta því ef „hundsbæturnar", sem menn hefðu fengið í kjarasamningunum yrðu teknar af. Kvað hann eðlilegt að fulltrúi ríkisstjórnarinnar kæmi á ASI-þing og gerði grein fyrir fyrirætlunum ríkisstjórnar- innar. Guðmundur J. Hallvarðsson, fulltrúi Dagsbrún^r kvaðst vera meðflutningsmaður að breyting- artillögunum, er Guðmundur Sæmundsson hefði mælt fyrir. Hann kvartaði undan því að stjórn þingsins hefði ekki séð sér fært að fjölfalda breytingartillögur, sem fulltrúar flyttu og því yrði þeim ekki dreift á fundinum. Þetta kvað hann brjóta í bága við lög og benti á að ASÍ hefði sjálft brotið lög,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.