Morgunblaðið - 26.11.1980, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1980
Gítartónleikar
Péturs í kvöld
PÉTUR Jónasson, unnur gítarleik-
ari, heldur tónleika í Bústaóa-
kirkju i kvöld, mióvikudaK, <>K
heíjast þcir kl. 20.30.
Pétur hóf gítarnám við Tónlistar-
skólann í Görðum níu ára að aldri og
var kennari hans Eyþór Þorláksson.
Vorið 1976 lauk hann einleikaraprófi
frá sama skóla og burtfararprófi ári
síðar.
Haustið 1978 hóf Pétur fram-
haldsnám við hinn þekkta gítarskóla
Estudio de Arte Guitarrístico í
Mexico-borg og var einkakennari
hans argentínski gítarleikarinn
Manuel López Ramos. Burtfarar-
prófi lauk hann í ágúst 1980.
Á efnisskránni eru verk eftir Luys
de Narvaéz, Manuel M. Ponce, Jo-
Fjalakötturinn:
Tvær aukasýningar í vik-
unni auk fastrar dagskrár
urinn, sem er sjónvarpsviðgerðar-
maður gengur til vinnu sinnar að
vanda og rifjar upp ýmis atvik úr lífi
þeirra hjóna. Myndin fjallar fyrst og
fremst um hversdagslíf venjulegs
fólks og lætur hetjur vinnunnar og
aðrar dramatískar persónur lönd og
leið.“
Sýningartímar Pjalakattarins eru
sem hér segir: Á fimmtudögum kl.
20.00, laugardögum kl. 13.00 og á
sunnudögum kl. 19.00 og 22.00. Auka-
sýningar eru á miðvikudögum kl.
21.00 og sunnudögum kl. 16.00.
Háskólabíó:
Sýnir „Hug-
vitsmanninn“
IIÁSKÓLABÍÓ hefur nú hafið
sýningar á franskri gamanmynd,
með einum vinsælasta gamanleik-
ar Frakklands, Louis de Funes.
í þessari mynd leikur Louis de
Funes iðjuhöld og borgarstjóra,
sem hefur meiri áhuga á að auka
framleiðsluna með nýjungum en
að hugsa um velferð borgaranna.
SEJIUM UPP
HATIÐAR-
SVIPINN
ítækatfó
Mýr lltur á stofuvegg, eöa skálann, setur nýjan svlp á hemnHö
EFNl: Hin vtöurkenda VTTRETEX pöstmáWng.
Glært lakk á tréverklö friskar paö upp
og vlöarttaö lakk gefur pvi nyjan svlp.
efni CUPRINOL cooowooo*poiYunettianeiakk
| í &«Íf . j| J
Kvikmyndaklúhhurinn Fjalakótt-
urinn mun í þossari viku sýna
myndina „Die Niblungen“ eftir
Fritz Lang á aukasýningum og
verða þar á miðvikudag. þ.e. i
kvöld. kl. 21.00 og á sunnudag kl.
16.00. A föstu dagskránni er mynd-
in „Krik“ (Gráturinn), sem er gerð í
Tékkóslóvakíu árið 1963 og er
lcikstýrð af Jaromil Jircs.
Á sýningarskrá segir m.a. um
myndina: „Gráturinn lýsir einum
degi í lífi ungra hjóna. Eiginkonan
fer snemma dags á fæðingardeildina
til þess að eignast barn, en eiginmað-
hann Sebastian Bach, William Walt-
on, Heitor Villa-Lobos og Isaac
Albéniz.
S/ippfé/agid Má/ningarverksmiöja Simi 33433
Eigendur Bókhlöðunnar, Eyjólfur Sigurðsson og Sjöfn Ólafsdótt-
ir, í hinum nýinnréttuðu húsakynnum, — Baðstofu Bókhlöðunn-
•jr. Ljósm. Emilia.
Baöstofa Bókhlöðunnar:
Rithöf undar kynna
gestum verk sín
FYRIR skömmu opnaði Bókhlaðan nýja verzlun í Markaðshúsinu
sem er bakhús við Laugaveg 39. I>ar hefur nú verið innréttaður
salur á efstu hæðinni þar sem er þægileg aðstaða fyrir 60—70
manns. Innréttingarnar þar minna um margt á haðstofu, enda
hefur salurinn hlotið hcitið Baðstofa Bókhlöðunnar.
í Baðstofunni munu fara fram
kynningar á nýjum bókum
þriðjudaga, fimmtudaga og laug-
ardaga. Rithöfundar koma í
heimsókn og kynna verk sín, auk
þess sem gestum gefst þá kostur
á að ræða við þá um verk þeirra.
Á þessum bókmenntakynningum
verða kaffiveitingar. Þó höfuð-
áherzla verði lögð á kynningu
íslenzkra bóka er einnig í ráði að
kynna erlenda höfunda, bæði
eldri og yngri. Þá er í ráði að
halda þarna námskeið í hand-
bókbandi síðar í vetur og einnig
verða fluttir fyrirlestrar um
íslenzka bókagerð.
Eigendur Bókhlöðunnar eru
Eyjólfur Sigurðsson og Sjöfn
Ólafsdóttir. Á síðasta ári flutti
Bókhlaðan af Skólavörðustíg að
Laugavegi 39. Fyrst eftir flutn-
ingana var verzlunin rekin á
fyrstu hæð hússins en síðan
opnuð ritfangaverzlun á annarri
hæð. Nýlega var svo opnuð stór
verzlun í Markaðshúsinu sem er
bakhús við Laugaveg 39. Þessi
verzlun er bókabúð í markaðs-
formi og eru þar þúsundir ís-
lenzkra bóka. Þar er sérstök
áherzla á að hafa bækur frá
fyrri árum auk þess að í báðum
verzlunum eru fáanlegar allar
nýjar bækur.
í Markaðshúsinu eru þúsundir islenzkra bóka á boðstólum.
Misjafnt verð
fyrir síldina i
Hirtshals í gær
ÞRÍIt islenzkir síldarbátar seldu
afla í Hirtshals i Danmörku i gær
og fengu mishátt verð fyrir
síldina. Kom fram í skeytum frá
síldarkaupendum að gæði síldar-
innar voru misjöfn hjá bátunum.
Langbeztu útkomuna fékk Pétur
Jónsson RE. Hann seldi 77,4 lestir
fyrir 38,6 milljónir króna, meðal-
verð 499 krónur fyrir kílóið. Súlan
EA seldi 128 lestir fyrir 48,8
milljónir króna, meðalverð 381
króna. Loks seldi Albert GK 101,7
lestir fyrir 35,7 milljónir, meðal-
verð 351 króna fyrir kílóið.
Landbúnaöarveröið:
Unnið að söfn-
un gagna og
útreikningum
NÝTT verð á landbúnaðarvörum
á að taka gildi hinn 1. desember
nk. og situr sexmannanefnd nú á
stöðugum fundum við konnun
gagna og útreikninga nýja verðs-
ins.
Að sögn Guðmundar Sigþórsson-
ar í landbúnaðarráðuneytinu hafa
gögn verið að berast, síðustu dag-
ana og eru útreikningar nú rétt að
hefjast, en sexmannanefnd var á
fundum um helgina. Eru í athugun
verðlagsáhrif vegna ýmis konar
verðhækkana síðustu 3 mánuði,
m.a. vegna hækkandi rekstrar-
kostnaðar og launa. Nýja verðið á
að taka gildi um mánaðamótin og
sagði Guðmundur stefnt að því að
ljúka útreikningum fyrir þann
tíma.
Fræðslufundur
um kristniboð
KRISTILEGT stúdentafélag efn-
ir til fræðslufundar á morgun,
fimmtudag, kl. 17:15 í stofu 201 í
Árnagarði. Fjallað verður um
efnið Byltingin i Eþíópiu —
kristniboð.
Kristniboðarnir Helgi Hró-
bjartsson og Jónas Þórisson, sem
báðir hafa um árabil starfað í
Eþíópíu, og eru nákunnugir að-
stæðum þar, flytja framsöguer-
indi. Að þeim loknum verða fyrir-
spurnir og umræður.
Samband veitinga- og gistihúsaeigenda:
Sérstök kjör fyrir
ferðamenn næsta sumar
AÐALFUNDUR Sambands veitinga- og gistihúsaeigcnda var haldinn
24. október siðastliðinn og var hann sérstaklega fjolmennur, að
likindum vegna þess vanda. sem steðjar að ferðaþjónustu á íslandi.
Litil sem engin aukning hefur orðið á heimsóknum erlendra
ferðamanna til landsins, vegna hækkandi ferðakostnaðar og minni
ráðstöfunartekna og búist er við áframhaldandi samdrætti á þessu
sviði. Umræður um lausnir á þessum vanda voru því efst á haugi.
í fréttatilkynningu frá samtök-
unum segir að þeirri stefnu hafi
verið fylgt hér á landi að reyna að
hafa jafnvægi milli utanlands-
ferða íslendinga og gjaldeyris-
tekna af erlendum ferðamönnum.
Þeir aðilar, sem að ferðamálum
standa, munu því snúa sér í
auknum mæli að innanlandsmark-
aðinum. Á sumri komanda munu
veitingahús innan Sambands veit-
inga- og gistihúsaeigenda hafa á
boðstólum sérstakan ferðamanna-
matseðil, einn eða fleiri rétti
daglega, og verður verði sérstak-
lega stillt í hóf og sama verð mun
gilda um allt land. Einnig munui
hótel úti á landsbyggðinni bjóða
gistingu á hálfvirði í júníbyrjun
og ágústlok.
Af öðrum málum á aðalfundin-
um bar hátt áhyggjur manna
vegna skattaálaga á veitinga-
rekstur. Auk venjulegra atvinnu-
lífsskatta og leyfisgjalda ber hann
skemmtanaskatt, menningar-
sjóðsgjöld, vínveitingaleyfisgjöld,
framlengingarleyfisgjöld, eftir-
litsgjöld, stefgjöld, lúxustolla og
vörugjöld. Auk þess ríkir mikil
óánægja með álagningu söluskatts
á veitingahús, en þeim er einum
gert að leggja á og innheimta
söluskatt af mat hérlendis.
Á fundinum kom fram að Hótel-
og veitingaskóli íslands er í mikl-
um kröggum. Skólinn hefur nú
enga aðstöðu fyrir verklega
kennslu og missir húsnæði fyrir
bóklega kennslu næsta vor.
Formaður Sambands veitinga-
og gistihúsaeigenda, Bjarni I.
Árnason, Brauðbæ, gaf ekki kost á
sér til endurkjörs en situr þó
áfram í stjórn. Nýr formaður var
kosinn Áslaug Alfreðsdóttir, Hót-
el Heklu. Auk hennar og Bjarna
eru í stjórn Einar Olgeirsson,
Hótel Sögu, Emil Guðmundsson,
Hótel Loftleiðum, Gunnar Karls-
son, Hótel KEA, Ólafur Laufdal,
Hollywood og Skúli Þorvaldsson,
Hótel Holti. Varamenn eru Arn-
þór Björnsson, Hótel Reynihlíð og
Steindór Ólafsson, Hótel Esju.
Framkvæmdastjóri sambandsins
er Hólmfríður Árnadóttir.