Morgunblaðið - 26.11.1980, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1980
25
„Ósigurinn fyrir Búlgör-
um herðir bara piltana“
— sagði Ingi R. Jóhannsson liðsstjóri ólympiuliðsins
Valetta, Möltu, mánudag,
frá Margeiri Péturssyni:
Eftir annars áxæta byrjun á ól-
ympíuskákmótinu á Möltu varð
íslonska karlasveitin fyrir stóru
áfalli i fjórðu umferð mótsins sem
tefld var á sunnudaKÍnn. Sveitin
tapaði með miklum mun fyrir
BúlKörum. hlaut aðeins hálfan
vinning KOKn þremur ok hálfum
andstæðinganna. Þetta er einn
stærsti ósÍKur tslendinKa á ól-
ympiumótum frá upphafi ok þeKar
upp var staðið ok úrslitin Ijós voru
ÍslendinKarnir hér á Möltu sem
þrumu lostnir, því sveitinni hafði
veKnað mjöK vel í fyrstu umferðun-
um.
I fyrstu umferð vann sveitin mjög
öruggan sigur yfir Luxemborgurum,
3l6 — 'A. Helgi Ólafsson vann Haas,
Margeir Pétursson vann Specchio og
Jóhann Hjartarson vann Kirch, allt
mjög öruggir sigrar. Lengi vel
virtist sem Jóni L. Árnasyni tækist
að feta í fótspor hinna, en hann varð
um síðir að sætta sig við að taka
þráskák í tímahraki. Skynsamleg
ákvörðun hjá Jóni, því íslenska
sveitin hefur oft misst meira en
hálfan vinning niður á Luxemborg-
ara.
Meðlimir íslensku sveitarinnar
voru heidur kindarlegir á föstu-
dagsmorguninn þegar sendiboði
kom með þær fregnir að andstæð-
ingar okkar í annari umferð yrðu
engir aðrir en kunningjar okkar frá
Lerror 1978, Kínverjar. Eins og
okkur öllum er enn í fersku minni
tapaði íslenska sveitin 3—1 fyrir
þeim með heldur klaufalegum hætti
þá. Ekki var heldur nóg með það, því
nýliðinn í íslensku sveitinni, Jóhann
Hjartarson tapaði fyrir kínverska
þátttakandanum á unglingamóti á
Kjarvalsstöðum í haust og höfundur
þessa bréfs tapaði fyrir Kínverja í
fyrstu umferð á heimsmeistaramóti
unglinga í fyrra.
Við höfðum því allir harma að
hefna, enda voru Kínverjunum nú
ekki gefin nein grið. Helgi Ólafsson
gaf okkur hinum tóninn strax eftir
18 leiki, en þá gat andstæðingur
hans ekki forðað mannstapi. Kín-
verjinn sem hét Liu barðist þó lengi
áfram í töpuðu tafli, vafalaust
minnugur síðustu viðureignar þjóð-
anna.
Það vakti athygli hversu fljótur
Helgi var að leika, því Kínverjinn
lenti tvisvar í tímahraki strax í
fyrstu setu og féll á tíma í seinna
skiptið, á þriggja og hálfs tíma
mörkunum. Margeir vann Jinrong
fljótt, en Jóhann virtist eiga í vök að
verjast gegn Zunian. Hann náði þó
að jafna taflið og í tímahraki
gerðist Kínverjinn of bráður og
Jóhanni tókst að loka inni riddara
og vinna taflið. Jón L. tefldi við
þann Kínverjanna sem þekktastur
er, Jingxuan og var sú skák alltaf í
jafnvægi, Sem sagt 3*Á — 'k íslandi
í vil og ófaranna í Buenos Aires
grimmilega hefnt.
í þriðju umferð fór róðurinn
heldur að þygjast en þá mætti
sveitin Spánverjum, sem skörtuðu
þrem stórmeisturum. Ingi R. Jó-
hannsson stillti enn fram sömu
sveit: Bezt að nota strákana meðan
þeir eru í stuði, en meðalaldur
íslensku sveitarinnar í þremur
fyrstu umferðunum var 20 ár.
Þeir Helgi og Margeir sömdu
fljótlega jafntefli við þá Diez del
Corral og Pomar enda báðir með
svart og stöðurnar á hinum borðun-
um vænlegar. Svo fór líka að Jón L.
rótburstaði Bellon, en Jóhann
missti hvað eftir annað af öflugum
leikjum gegn Rivas og endaði með
að tapa taflinu. Niðurstaðan varð
því jafntefli 2—2, en það má segja
að eftir atvikum hefði sigur okkar
ekki verið ósanngjarn.
í óstuði gegn Búlgörum
í fjórðu umferð átti sveitin síðan í
höggi við Búlgara, sem hafa nú sem
fyrr á að skipa sterkri og jafnri
sveit. Þeir áttu okkur grátt að
gjalda síðan í Buenos Aires, en þá
vann íslenska sveitin þá 3—1, sem
var bezti sigur okkar á því móti. Nú
tókst þeim eins og okkur gegn
Kínverjum að gjalda rauðan belg
fyrir gráan og úrslitin urðu einmitt
þau sömu og hjá okkur og Kínverj-
unum 3 M> — 'k, en nú var Island því
miður undir. Skemmst er frá því að
segja að allir íslensku þátttakend-
urnir voru sem heillum horfnir.
Friðrik Ólafsson tefldi nú sína
fyrstu skák á mótinu við Ermenkov.
Friðrik tefldi byrjunina á mjög
vafasaman hátt, enda fór svo að
Búlgarinn náði geysilega sterkri
sókn. Einhvers staðar hljóta honum
þó að hafa orðið á mistök, því
skyndilega stóð Friðrik uppi með
hrók og tvo létta menn fyrir drottn-
ingu. Þá var stórmeistarinn okkar
alveg að falla á tíma og missti af
sterkum leik. Eftir þetta tókst
Ermenkov að notfæra sér tíma-
þröng Friðriks, hann skákaði af
Þrír úr íslenzku sveitinni.
Talið frá vinstri Helgi
Ólafsson, Margeir Péturs-
son og Jóhann Hjartarson.
Myndin var tekin á helg-
arskákmóti í Vestmanna-
eyjum fyrir skömmu.
Ljósm. Mbl. SigurKeir.
hrók og vann taflið. Helgi átti unnið
gegn Tringov eftir að hafa teflt af
miklum krafti, en var of fljótur á
sér og fékk aðeins jafntefli. Jón L.
áttaði sig ekki á undiröldunni í skák
sinni við Popov og þrátt fyrir að
staða hans væri lengst af viðunandi,
fann hann aldrei reglulega góða
áætlun og í tímahraki missti hann
endanlega tökin. Margeir víxlaði
leikjum gegn Spassov í byrjuninni
og tapaði peði. Jafntefli virtist þó
lengst af nálægt, en Margeiri urðu á
mistök í vörninni rétt fyrir bið, sem
kostuðu hann skákina, því Búlgar-
arnir fundu einu vinningsleiðina í
biðstöðunni, en hún lá alls ekki í
augum uppi.
Sveitin hefur því verið heldur
ófarsæl í tveimur síðustu umferð-
um, en nú hefur hún hlotið níu og
hálfan vinning af 16 mögulegum,
sem er þó alls ekki slæmur árangur
í sjálfu sér.
Liðsstjóri sveitarinnar, Ingi R.
Jóhannsson, sem jafnframt er ann-
ar varamaður kvaðst mjög ánægður
með andann í sveitinni og taldi
hann vart hafa nokkurntíma verið
betri í þeim sex Ólympíumótum sem
hann hefur teflt í. „Ég er viss um að
okkur tekst að hrista af okkur
ófarirnar gegn Búlgörum. Þeir eru
geysilega sterkir og margir stór-
meistarar þeirra urðu að sitja
heima vegna þess að þeir komust
ekki í liðið. Okkar sveit er samstillt
og svona ósigrar herða bara pilt-
ana,“ sagði Ingi að lokum í samtali
við Mbl.
Stelpurnar standa
sig vonum framar
íslendingar eiga nú öðru sinni
fulltrúa í kvennakeppni ólympíu-
mótsins, þar höfðu íslensku stúlk-
urnar hlotið fimm og hálfan vinning
af tólf mögulegum eftir fjórar
umferðir, sem er ágætur árangur,
því margar af andstæðingum þeirra
eru marghertar og jafnvel atvinnu-
menn í greininni.
íslensku stúlkurnar fengu mjög
erfiða andstæðinga strax í fyrstu
umferð, en það var bandaríska
sveitin. Sigurlaug Friðþjófsdóttir
tapaði fremur fljótt á þriðja borði
fyrir Frenkel, en á hinum borðunum
fóru skákirnar í bið. Ólöf Þráins-
dóttir á öðru borði átti góða jafn-
teflismöguleika lengst af á móti
Haring, en í hróksendatafli kom
reynsla þeirrar bandarísku að góð-
um notum. Áslaug Kristinsdóttir
kom mjög á óvart með ágætri
frammistöðu sinni á fyrsta borði, en
þar átti hún í höggi við hina þekktu
skákkonu Díönu Saveride, sem var
mjög nálægt því að komast áfram í
áskorendamót kvenna í fyrra. Er
skákin fór í bið átti Áslaug öruggt
jafntefli, en eins og Ólöf lék hún af
sér í hróksendatafli. Ekki er hægt
að segja að þær íslensku skjálfi á
beinunum gegn hinum sterku and-
stæðingum sínum, því Áslaug tapaði
endataflinu fyrst og fremst vegna
þess að hún var að reyna að vinna
I annarri umferð gerði sveitin
VA—1'á jafntefli við Kolumbíu.
Áslaug tapaði á fyrsta borði fyrir
Guggenberger, sem er alþjóðlegur
meistari kvenna, Ólöf gerði jafntefli
og Sigurlaug vann.
I þriðju umferð vann sveitin síðan
sinn fyrsta sigur á mótinu. Það var
gegn belgísku stúlkunum. Þær Ás-
laug og Sigurlaug gerðu jafntefli, en
Ólöf vann sína skák.
Enn vann sveitin sigur í fjórðu
umferð, nú gegn Sviss. Nú kom
varamaðurinn, Birna Nordahl inn.
Birna átti lengst af tapað tafl, en
tókst um síðir að koma hálfum
punkti í höfn, með þrautseigri vörn.
Áslaug gerði einnig jafntefli, en
Sigurlaug vann.
Aðstæður á Möltu
eru ekki til fyrirmyndar
Fjölmargar kvartanir bárust til
framkvæmdaraðila mótsins fyrstu
dagana svo og til Alþjóðaskáksam-
bandsins. Matarskammturinn sem
látinn var keppendum í té var bæði
lítill og kosturinn lélegur, auk þess
sem menn þurftu fyrir hverja mál-
tíð að bíða lengi í biðröð.
Þá voru margar sveitir óánægðar
með hýbýli sín, en keppendum er
komið fyrir í kuldalegum íbúðum,t
um 25 mínútna akstur frá staðnum
þar sem teflt er og borðað. Sumir
keppenda fengu jafnvel íbúðir án
allrar hreinlætisaðstöðu og hvergi
er sími, sem gerir allan fréttaflutn-
ing frá mótinu mjög erfiðan. Marg-
ar sveitir vildu að vonum ekki una
þessu, t.d. þær ungversku og sov-
ézku, sem talið er að muni berjast
um efsta sætið í báðum flokkum.
Mikið hefur mætt á Friðriki
Ólafssyni, forseta Alþjóðaskáksam-
bandsins vegna þessa og stóð hann í
löngum og ströngum fundum með
mótshöldurum og framámönnum
ferðamála á Möltu. Lofuðu þeir að
lokum að auka matarskammtinn og
reyna að stytta biðraðirnar með
aukinni þjónustu.
íslenska deildin á Möltu þarf ekki
að kvarta yfir þrengslum, því hún
býr nú í tveimur þriggja herbergja
íbúðum og einni tveggja herbergja,
maturinn hefur aftur á móti ekki
verið til að hrópa húrra fyrir, enda
fóru keppendur á veitingastað fyrir
aðra og þriðju umferðina, eftir að
hafa reynt fæðið á skákstaðnum
fyrir fyrstu umferð. Eftir að móts-
haldararnir höfðu lofað öllu fögru
reyndum við síðan matinn þar aftur
fyrir fjórðu umferðina, en eftir að
líða tók á taflið þann dag kvörtuðu
sumir íslensku keppendanna um
magaverk. Athygli okkar vakti
einnig hversu fáir borða á skák-
staðnum, t.d. sást engin af öflugri
sveitunum þar, er við komum þar
fyrir fjórðu umferðina. Fyrst um
sinn mun því sveitin borða staðgóða
máltíð fyrir skákina, en láta sér
nægja snarlið á skákstaðnum á
kvöldin.
m.p.
FINLUX verksmiöjurnar hafa um árabil
verið I forystu með framleiðslu á litsjón-
varpstækjum og nú hefur þeim tekist
fyrstir allra að framleiða litsjónvarp sem
ekki eyóir meiri straum en venjuleg Ijósa-
pera, sem einnig þýðir, lengri endingu
tækisins.
FINLUX litsjónvarpstækin eru öll með
sjálfvirkum stöövaleitara (Automatic Search
Tuning). sem aðeins er I dýrari gerðum ann-
arra tegunda. Sjálfvirkur stöðvaleitari er
ekki eingöngu til að leita uppi stöðvar,
heldur einnig til að halda útsendingu í
bestu stillingu .
FINLUX litjónvarpstækin eru þau einu á
markaönum, þar sem fjarstýringin er
fáanleg við þau seinna.
*%&!>**»
VERO STADGR.VERÐ STRAUMTAKA
20" 799.500,- - 759.500,- 40 — 55 w.
22" 869.000,- - 825.000,- 40 — 55 w.
26" 999.000,- - 949.000,- 70 — 85 w.
BORGARTÚNI 18
REYKJAVÍK SlMI 27099
SJÓNVARPSBÚÐIN
PRISMA