Morgunblaðið - 26.11.1980, Side 27

Morgunblaðið - 26.11.1980, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1980 27 Ingólfur Ágústsson Akranesi - Minning Fæddur 7. desember 1927 Dáinn 17. nóvember 1980 I dag kveðjum við elskulegan bróður og frænda. — Betri mann var vart hægt að hugsa sér. — Hann var hvers manns hugljúfi. Ungur að árum fluttist hann frá Hvammstanga suður á Akranes og átti hann þar heima til dauðadags. Þar kynntist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, Ólöfu Magnús- dóttur. Þau eignuðust þrjú börn, Ingibjörgu Jóhönnu, Magnús Fannar og Kristrúnu Höllu. Þau byggðu húsið Heiðarbraut 49, en fyrir nokkru fluttust þau í blokkina Skarðsbraut 3, enda öll börnin farin að heiman. Þau Lóa og Ingi voru þau sarjirýmdustu hjón sem ég hef þekkt — aldrei heyrði ég þau segja styggðaryrði hvort við annað þau Fæddur 8. júní 1929 Dáinn 3. nóvember 1980 Deyr fé, deyja frændr, deyr sjalfr it sama: en orAstirr deyr aldregi hveim, er sér góðan getr. Þessar hendingar úr Hávamál- um komu mér í hug morguninn sem ég frétti lát vinar míns, Geirs Jóns Asgeirssonar, er svo skyndi- lega var burt kvaddur úr þessum heimi. Við erum alltaf vanbúin siíkum tíðindum og svo var um mig að þessu sinni. Nokkrum dögum áður kvaddi hann mig hér heima og datt þá engum í hug, að þetta væri í síðasta sinn sem við sæjum hann. En huggun er að hver sem getur sér góðan orðstír, lifir í hugum okkar þótt hann deyi. Minningin um góðan dreng er ógleymanleg. Við eigum erfitt með að sætta okkur við, að fólk á besta aldri hverfi okkur um sinn, en við verðum að taka því eins og öðru sem að höndum ber, þannig er lífið. Geir var maður í hærra lagi, fríður sýnum, íturvaxinn og höfð- inglegur á að líta, svo að hann hvarf ekki í margmenni. Hann var kurteis í allri framkomu, gæddur fjölþættri greind og margfróður, ekki síst um ísland og náttúru þess, hafði enda ferðast vítt um hyggðir landsins sem óbyggðir. Atorkumaður mikill, harðgerður og ókvartsár, sem í engu mátti vamm sitt vita. Hann var höfðingi í lund, veitull á sínu heimili sem utan þess. Hafði gaman af smá- stríðni og átti þægilegt með að svara fyrir sig ef því var að skipta. — Þannig var Geir, og svo lifir hans minning í mínum huga og minna barna. Geir var mikill náttúruunnandi og hafði næman skilning á land- inu og gæðum þess. Jafnframt var hann í eðli sínu mikill veiðimaður, en var í því sem öðru drengur góður. ár sem ég var heimagangur á heimili þeirra. Börn þeirra eru vel gefið mynd- arfóik. Fjögur barnabörn þeirra voru sólargeislar í lífi þeirra. Elskulegan bróður og frænda kveðjum við klökkum huga og þökkum algóðum Guði fyrir að hafa átt hann að. Lauga og Rúnar Ingólfur Ágústsson, fæddur 7. desember 1927, dáinn 17. nóvem- ber 1980, á áttræðisafmæli móður sinnar, Ingibjargar Ingóifsdóttur. Faðir hans var Ágúst Halldórs- son, Sólmundarhöfða. Það var orðið áliðið dags, snjó- koma og friðsælt veður, er mér Minnisstæð er mér ein fyrsta ferðin, sem ég fór með honum á silungsveiðar. Síðla kvölds eftir erfiðan dag komum við að Svína- vatni og ákváðum að renna. Ég var klaufi, byrjandi, og kastaði stutt. Sagði hann þá við mig: „Drag þú, ég skal kasta." Silungur var óður og fengum við á skömm- um tíma í rökkrinu mjög góða veiði. Um 20 ára skeið kom hann hingað á hverju hausti til rjúpna- veiða, og ætíð sama dag, 14. október. Margar ferðir fór ég með honum og alltaf mér til óbland- innar ánægju. Þótt veiðin gengi misjafnlega voru ferðir og sam- ræður ógleymanlegar. Geir Jón var fæddur í Reykjavík 8. júní 1929, sonur Önnu Geirs- dóttur frá Múla í Biskupstungum, af Bergsætt, og Ásgeirs L. Jóns- sonar vatnsvirkjaráðunauts, Ás- geirssonar alþingismanns frá Þingeyrum. Að honum stóðu því sterkir stofnar í báðar ættir. Móður sína missti hann er hann var á fjórða ári og dvaldi hann eftir það öðrum þræði hér í Holti hjá föðursystur sinni, Fannýju Jónsdóttur, og manni hennar, Jó- hanni Guðmundssyni. Ásgeir faðir hans kvæntist í annað sinn og nú Ágústu Vigfúsdóttur frá Flögu í Skaftártungu, skörungskonu. Hjá þessu fólki ólst Geir upp, á sumrum fyrir norðan, á veturna fyrir sunnan. Eftir fermingu stundaði hann nám við Menntaskólann á Akur- eyri og lauk þaðan gagnfræða- prófi. Lengri varð skólagangan ekki, enda erfið fátækum nem- anda, en námsgáfur skorti eigi. Á unglingsárum vann hann með föður sínum við landmælingar víða um land og kynntist þá landi og þjóð. Hefur það efalaust orðið honum góður skóli. í mörg ár vann Geir hjá Olíuverslun íslands (BP), fyrst sem bílstjóri, síðar sem verkstjóri. Þaðan lá leiðin til Breiðholts hf., þar sem hann var verkstjóri við steypustöð um ára- barst sú frétt að hann Ingi væri dáinn, maður á besta aldri, en oft skipast veður í lofti. Þegar ég af litlum mætti skrifa minningargrein um þennan trygga og góða vin, og starfsfé- laga, verður mér fyrst á að minnast þeirra stunda sem við bil. Einnig annaðist hann verk- stjórn hjá Ármannsfelli hf. um skeið. Fyrr á árum stundaði Geir ökukennslu sem aukastarf og nú síðustu mánuðina var hún aðal- starfið. Árið 1952 kvæntist Geir eftirlif- andi konu sinni, Ástu Guðmunds- dóttur frá Kambi í Flóa, mann- kostakonu af Víkingslækjarætt, sem skapaði þeim jafnan fagurt heimili. Eignalaus byrjuðu þau hjón búskap í leiguíbúð en keyptu síðan íbúð að Kleppsvegi 34 þar sem þau bjuggu í mörg ár. Fyrir fáum árum reistu þau svo fagurt hús að Vesturvangi 42 í Hafnar- firði. Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið og þau eru: Anna, fædd 19. nóvember 1951, stúdent í læknadeild Háskóla íslands; Sig- urbjörg, fædd 29. apríl 1953, hjúkrunarkona og búfræðingur; Guðmundur Ásgeir, fæddur 13. september 1956, framreiðslumað- ur á Hótel Sögu; og Helga, fædd 5. mars 1964, en hún lauk 9. bekk frá Kvennaskólanum í Reykjavík sl. vor. Geir var jarðsettur frá Foss- vogskapellu miðvikudaginn 12. nóvember að viðstöddu fjölmenni. Um leið og ég votta konu hans og börnum samúð mína og minnar fjölskyldu, óska ég þeim allrar blessunar á ókomnum árum. Guðmundur B. Þorsteinsson áttum saman sem starfsmenn hjá H.B. & Co. Ingi var einn af þessum einstöku mönnum, sem alltaf var mættur fyrstur á vinnustað. Stundvísi og heiðarleiki voru hon- um í blóð borin. Þegar hundruð og þúsundir tonna af fiski fara í gegn um frystihús, þarf margs að gæta, mörg handtök og mörg vandamál að leysa. Minnist ég þessara samverustunda þegar við lögðum á ráðin og ræddum um móttöku og vinnslu á hinum ýmsu fisktegund- um. Alltaf var jafn gott fyrir okkur verkstjórana að ræða við Inga um þessa hluti sem aðra. Ingi var glaðvær og mikill grínisti, enda oft spaugað og spjailað á loftinu góða. Ingi var sérstaklega reglusamur í allri umgengni, og einstakur í meðferð véla og völundur við smíðar, hvort sem það var timbur, járn eða ál sem hann var að vinna við. Enda brennandi áhugi fyrir öllu sem hann tók sér fyrir hendur og átti fáa sína líka í viðhaldi á vélum og tækjum, sem hann vann við. Ingi var oft að sinna hnífum og öðru slíku á loftinu og þangað komu ungir sem aldnir til að spjalla við Inga. Hlýtt viðmót og kærleikur var það sem einkenndi Inga og laðað- ist fólk að honum, ekki síst það fólk sem minna mátti sín. Ingi var fæddur á Gauksmýri í Vestur-Húnavatnssýslu, þaðan fluttist hann á Hvammstanga og seinna á Sólmundarhöfða og var þar í foreldrahúsum ásamt stórum systkinahópi, en þau voru 6 systk- inin. 17. apríl 1953 gekk Ingólfur að eiga eftirlifandi eiginkonu sína, Ólöfu Magnúsdóttur. Eignuðust þau þrjú börn: Ingibjörgu Jó- hönnu, Magnús Fannar og Krist- rúnu Höllu. Ingi var mjög skilningsríkur og góður heimilisfaðir og vann heim- ili sínu og fjölskyldu allt sem hann gat. Og með samstilltu átaki og dugnaði byggðu þau hjónin sér fallegt hús að Heiðarbraut 49. Þau sköpuðu sér gott og hamingjuríkt heimili. En þegar veikindin fóru að þjaka hann, keyptu þau sér ibúð í blokk að Skarðsbraut 3. Ég vil þakka Inga fyrir alla þá vináttu og tryggð, sem hann sýndi mér alla tíð. Ég og fjölskylda mín vottum Lóu og börnunum og öðrum ætt- ingjum hans innilega samúð okkar og biðjum algóðan Guð að styrkja ykkur. Guð blessi minningu hans. Ólafur Tr. Elíasson SÍKfí Hitamælar SQyffÐaiuigjiLDir Vesturgötu 16, sími 13280. Okkur vantar duglegar stúlkur og stráka Hringiðj í síma 35408 Miöbær: Laufásvegur frá 2—57. Þingholtsstræti. Laugavegur frá 1—33. Úthverfi: Logaland Ljósaland Minning: ^ Geir Jón Ásgeirsson ís le: nzl kl t orðtal ía sal 2. fn bindi eftir Halldór Halldórsson. Önnur útgáfa aukin. Í.SLENZK PjÓDFRÆf)! orðtakaSAFN l H Sjí HAÍi íslenzkt orðtakasafn er samiö og búið til prentunar af einum fremsta málvísindamanni þjóöarinnar, dr. Halldóri Halldórssyni prófessor. í ritinu er að finna meginhluta íslenzkra orötaka, frá gömlum tíma og nýjum, og er ferill þeirra rakinn til upprunalegrar merkingar. íslenzkt orötakasafn er ómissandi uppsláttarrit náms- mönnum, kennurum og öörum, sem leita þekkingar á tungu sinni, og jafnframt brunnur skemmtunar hverjum þeim, sem skyggnast vill aö tjaldabaki daglegs máls í ræðu og riti. Almenna bókafélagid Austurstræti 18 — Sími 25544 Skemmuvegi 36, Kóp. sími 73055.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.