Morgunblaðið - 26.11.1980, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1980
29
fclk í
fréttum
Reagan plús sérfræðingar
+ Hér sést hvar verðandi forseti
Bandaríkjanna, Ronald Reagan,
heldur fund með ráðgjöfum sín-
um í efnahagsmálum í Los
Angeles. Sem kunnugt er hamr-
aði Reagan mjög á nauðsyn þess
að efnahagur landsins yrði
endurskoðaður og „ekki er ráð
nema í tíma sé tekið". Á þessari
mynd má greina ýmsa nafn-
kunna menn. Frá vinstri eru:
Jack Kemp, William Simon,
Walter Wriston, hinn frægi (og
umdeildi), Milton Friedman,
óþekktur, og formaður hópsins,
George Schultz. Lengst til hægri
er svo Reagan sjálfur. Þar virð-
ist vera glatt á hjalla og að menn
gangi bjartsýnir til verks. Good
luck, Ronnie.
í síðasta skipti
— í fyrir-
lestraferð
+ Þessi aldurhnigni maður var
nær daglegur viðburður í heims-
fréttunum, fyrr á árunum. — Nú
er hann orðin 86 ára gamall. — En
hér er hann að leggja upp í
ferðalag. — Þetta er Harold
McMillan fyrrum forsætisráð-
herra Breta. — Hann tók sér far
vestur um haf til New York og
Washington fyrir skömmu. —
Vestra mun hinn aldni stjórn-
málamaður halda tvo fyrirlestra
við Yale háskóla, sem hann kvaðst
kalla: Söguskeið á enda. — Út-
gönguleiðin. — Hann sagðist ekki
gera ráð fyrir því að fara fleiri
ferðir til Bandaríkjanna og kvaðst
m.a. hlakka til að hitta þar gamla
pólitíska vini. Myndin var tekin
við brottför hans á Heathrow-
flugvelli í London.
Rússneskt herfang
+ Afganskur frelsissveitarmaður hefur hér stillt sér upp bak við
sigtið á rússneskri vélbyssu, og sýnist hinn vígreifasti. Þessi
vélbyssa var tekin sem herfang á vígvöllum Afganistan, nærri
borginni Taghab. Myndina tók japanskur fréttaljósmyndari,
Hiromi Nagakura, í október síðastliðnum, en Nagakura þessi er
nýkominn þaðan eftir langa veru í Afganistan.
Kíkt á liðið
+ „Það sakar ekki að hressa upp
á baráctuþrekið," hefur Saddam
Hussein forseti íraks vafalaust
hugsað með sér er hann tók sér
ferð á hendur um nágrenni
Baghdad fyrir skömmu. Sem sjá
má af mynd þessari virtist koma
hans vekja almenna ánægjú
meðal hermannanna, en Hussein
er til hægri á myndinni.
„Heill í höfn“
— endurminningar
Björns á Sjónarhóli
ÚT ER komin bókin „Heill í höfn“,
sem hefur að geyma endurminn-
ingar Björns Eiríkssonar á Sjón-
arhóli í Hafnarfirði. Er þetta
önnur endurminningabók þessa
dugnaðarforks og er hún rituð af
Guðmundi Þórðarsyni. Fyrri bók-
ina skráði Guðmundur G. Hagalín
og lauk þeirri bók þegar Björn var
liðlega tvítugur.
í bókinni „Heill í höfn“ segir
Björn frá hálfri öld í ævi sinni.
Björn .hefur lifað á tímum tveggja
heimsstyrjalda, hann barðist við
spönsku veikina úti í Englandi
árið 1918, ók sínum fyrsta bíl á
öðrum tug aldarinnar, var skip-
stjóri og tók þátt í togaraútgerð á
Draumur undir
hauststjörnum
Ný ljóðabók eftir
Guðmund Frímann
í EFTIRMÁLA bókarinnar, sem
ber yfirskriftina Að síðustu segir
Guðmundur m.a.: „í þessu kveri er
örugglega síðustu ljóð mín, enda
þótt margt bendi til þess að eg geti
orðið allra karla elstur. í undir-
titli kversins nefni eg ljóðin
mennsk. Þau eru öll mannleg í
þessa orðs hefðbundna skilningi. í
kverinu eru engin æratobbakvæði;
þar verða engin kvæði lesin aftur-
ábak; þar verður enga spéspeki að
finna, vona eg. Og eg vona líka, að
lesendur kversins, ef einhverj'ir
verða, meti kvæðin svo sem þau
verðskulda, enda þótt engar
hundakúnstir séu viðhafðar við
gerð þeirra."
„Um þýðingarnar er þetta að
segja: 011 eru ljóðin þýdd úr
norðurlandamálunum þrem og
ensku, þó nokkur þeirra séu frum-
OUDMUNDU» *»6R0ARS0M
HEILL I HÖFN
þriðja áratugnum og var bílstjóri
á eigin leigubíl frá 1932 til 1971.
Guðmundur Frímann
kveðin á öðrum þjóðtungum."
Guðmundur hefur fyrir löngu
tekið sér sæti á skáldabekk sem
eitt virtasta ljóðskáld okkar ís-
lendinga og hlýtur því hver bók
sem frá honum kemur að teljast
til viðburða.
Fréttatilkynning
Mannlíf í mótun
Fyrra bindi ævi-
minninga Sæmundar
G. Jóhannessonar frá
Sjónarhæð, sem
hann hefur sjálfur
skráð
í LEIÐARAORÐUM þessa bindis
segir Sæmundur svo:- „Reynt hef
ég að rita söguna þannig, að
nútíma kynslóðin, sem þekkir ekki
af eigin reynslu, hvernig lífið til
sveita var áður, geti eitthvað
fræðst um það. Breytst höfðu lítið
búskaparhættir og heyvinnutæki
frá landnámsöld, að minnsta kosti
í megindráttum. Þessu reyni ég að
lýsa, gef einhverja hugmynd um
þessi atriði, er samfléttuð eru
sögu vorri, sem byggjum Island."
Pétur Pétursson, félagsfræðing-
ur í Lundi í Svíþjóð, ritar inngang
að þessu fyrra bindi ævisögu
Sæmundar og segir svo í lokin:
„Viðhorf Sæmundar til eigin
lífssögu, sem ég hef reynt að gera
grein fyrir í fáum orðum, gti
það að verkum, að óhætt er
segja, að hún sé meistar;.
skrifuð. Hún er merkilega lar j
slepju yfirhylminga og óskhy
sem einkennir svo margar æ
ur, sem seljast á íslenskum 6
markaði."
Fréttatilkynning
„Húsið á slétt-
unni“ í isl. þýðingu
BÓKAÚTGÁFAN Setberg hefur
sent frá sér barna- og unglingabók-
ina „Húsið á sléttunni", en höfund-
ur er Laura Ingalls Wilder. Sam-
nefndar kvikmyndir sem sýndar
eru í íslenska sjónvarpinu eru
byggðar á þessum bókum.
„Þetta er önnur bókin í bóka-
flokknum „Lárubækurnar", en í
fyrrahaust gaf Setberg út fyrstu
bókina „Húsið í Stóru-Skógum",
sem strax hlaut frábærar viðtökur
hér á landi," segir í tilkynningu frá
útgefenda.
„Láru-bækurnar“ má hiklaust
flokka undir sígildar barnabók-
menntir, enda hafa þær verið þýdd-
ar á fjölmörg tungumál og verið
endurútgefnar hvað eftir annað.“
Bókin er 204 blaðsíður í þýðingu
Herborgar Friðjónsdóttur, en ljóðin
í bókinni þýddi Böðvar Guðmunds-
son. Bókin er prýdd 90 teikningum
eftir ameríska listamanninn Garth
Williams.