Morgunblaðið - 26.11.1980, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1980
HÖGNI HREKKVÍSI
Ast er...
... að klingja glös-
um við kertaljós.
Blekking eða þekking:
„Trúarbrögðin eru
dætur fáfræðinnar“
Finnur Lárusson og Haraldur
ólaísson skrifa:
„Hinn frægi heimspekingur Art-
hur Schopenhauer mælti þessi orð:
„Trúarbrögðin eru dætur fáfræðinn-
ar og munu ekki lengi lifa móður
sína.“ Sannleiksgildi þeirra hefur
mjög glögglega komið í ljós í
skrifum fáeinna verjenda úreltra
fornaldarskýringa á „sköpun" lífs-
ins og heimsins. Þráhyggjutal þessa
fólks er byggt á fákunnáttu, mis-
skilningi og gagnrýnislausri trú á
framangreindar skýringar.
Órökstutt þráhyggjutal
Þann 11. þ.m. skrifaði frú Sóley
Jónsdóttir grein sem átti að vera
svar við okkar frá 13. sama mán.
Það fer fyrir Sóleyju sem lækninum
Reyni og raunar öllu þessu fólki að
lesa það sem við höfum skrifað með
gleraugu þeirra á nefinu, sem sjá
aðeins það sem þeir vilja sjá og
reyna svo að hylja sig í „guðlegri
orðaþoku". Orðrétt segir hún: „Það
tilheyrir miklu fremur miðalda-
myrkri að trúa á þróun, ósannaða
kenningu, sem ekki hefur neinar
staðreyndir að styðjast við.“ Þetta
er glöggt dæmi um órökstutt þrá-
hyggjutal. Frú Sóley hefur ákveðið
með sjálfri sér að þróunarkenningin
standist ekki, og einu gildir um rök
sem benda til hins gagnstæða. Á
þau er hvorki hlustað né minnst.
Síðan segir hún lækna og fóstur-
fræðinga, sem hún nefnir þróunar-
sinna, setja fram falsaðar teikn-
ingar af fósturþroska mannsins, til
að halda í hina ósönnuðu kenningu
guðleysingjanna. Hinsvegar segir
hún mannsfóstrið strax bera full-
komna mannsmynd á fyrstu vikum
meðgöngunnar, þegar það er aðeins
óiögulegur frumukökkur. Gaman
væri að fá uppgefnar heimildir fyrir
þessu, eða hver skyldi skoðun lækn-
isins Reynis Valdimarssonar vera á
þessum meintu fölsunum starfs-
bræðra sinna?
Hver er nú í
miðaldamyrki?
í lok greinar sinnar ætlar hún sér
aldeilis að klykkja snilldarlega út og
segir: „Það er annars undarlegt
hvað sumir eru áfjáðir í að teija sig
af öpum komna." Hver er nú í
miðaldamyrkri og hver ekki? Þetta
er nefnilega hin hiálega skoðun
kirkjunnar, sem hún beitti sem
mest gegn Darwin og fylgjendum
hans á síðustu öld, til þess að ala á
þeirri trú áhangenda sinna að þeir
væru öðrum lífverum æðri, og gera
þannig þróunarkenninguna tor-
tryggilega í augum fávíss almúga.
Opinberar Sóley með þessu þekk-
ingarleysi sitt á þróunarkenning-
unni, því hún segir einmitt að apar
og menn séu komnir af sameigin-
Hvað var
í upphafi?
ófiúlkonum líf-
- ,r finnast hversrf
Af hverju er ekki ■
hægt að prófa þetta?
„Ríkur er reyk-
laus maður“
Heilbrigðisfulltrúi Almúga-
sports F.B. skrifar.
„Eg vil vekja athygli reyk-
ingafólks á átaki okkar skóla-
systkina í Fjölbrautaskólanum
Breiðholti. í dag ætlum við að
hætta hvers kyns tóbaksbrúki, í
eitt skipti fyrir öll. Þessi
lymskulegi skaðvaldur, tóbakið,
hefur rænt okkur heilsu og hýru
um langt árabil og ekki verður
lengur við það unað. Allt að tíu
þúsund krónum er hent í tób-
aksguðinn á viku og eina upp-
skeran er minni fjárráð og
tíðari heilsukvillar í kjölfar
aukinnar neyslu. Það er von að
einhver spyrji: Til hvers? Því er
ekki auðsvarað fyrir reyk-
ingarmann. Það gæti hrokkið
upp úr honum að gott væri að
reykja! En það er ekki rétt. Það
þykir engum gott að svæla í sig
óþverrann, það er tóbaksguðinn,
nikótínið, sem æpir á fórnir. En
innst inni þráir reykingamaður-
inn að losna undan þessu fargi.
Segja: „Hingað og ekki lengra."
Það er það sem við skólasystkin
í F.B. ætlum að segja og hvetj-
um aðra til að gera slíkt hið
sama. „Strompar allra staða
sameinist." Hugsið ykkur. Hjón
sem reykja einn pakka á dag
geta sparað sér 20.000 kr. á
hverri viku! Það gera 80.000 kr.
yfir mánuðinn. 80.000 kr. meiri
fjárráð í dýrasta mánuði ársins,
desember! Það fúlsar engin fjöl-
skylda við því, nærri vikulaun-
um verkamanns. Best væri ef
nokkrir gætu hætt saman og
styrkt hver annan því þetta er
erfitt. gn hvílíkur léttir þegar
tekist hefur að komast yfir
erfiðasta hjallann. „Spörum fé
og spörkum reyk!" Og verndum
með því bæði okkar heilsu og
annarra."
Hugvekja sem
allir ættu
að lesa
„Kona að norðan“ hringdi og
kvaðst vilja þakka Árna Þór
Árnasyni fyrir grein hans í Mbl.,
„Leiftursókn gegn verslun". Ég
var oft að því komin að skrifa þér,
Velvakandi, vegna ummæla Guð-
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓVEM
Árni Þór Árnason: Leiftursókn gep verzluniimi Kinn af alþíngismonnum ís- stjórn til að vinna að hagsmunum tíma hafa átt heima á teikniborð- 1 lendinga, Guðrún Helgadóttir, Reykvíkinga eða sem sérstakur inu og i óskhyggju manna. Verk- 1 sem jafnframt er borgarfulltrúi fulltrúi tiltekinnar dýrategund- efni, sem kommúnistar þykjast 1 Reykvikinga, hefur tviavar á »r? h,f,
rúnar Helgadóttur á Alþingi um
dánargjöf Sigurliða Kristjánsson-
ar og eiginkonu hans. En eflaust
hefði ég sagt eitthvað ljótt í hita
augnabliksins, sem ég hefði svo
séð eftir. Grein Vilhjálms er
hugvekja sem allir ættu að lesa.
Mér hefði fundist ástæða fyrir
þingmenn að labba út úr þingsaln-
um eftir þessa rótarlegu árás. Ég
hef aldrei náð upp í hugsanagang
Guðrúnar Helgadóttur. Ég hef
aldrei komið náiægt verslun og
hef lítið vit á málefnum hennar,
svo að það er ekki þess vegna sem
ég segi þetta. í hvert skipti sem ég
heyri þetta sjónarmið hjá Guð-
rúnu, undrast ég að hún skuli ekki
sjálf hafa farið út í verslun til að
græða. Hún hefði eflaust gefið
landsmönnum upp hreinskilnis-
legar tölur um það eftir á hvernig
hún hefði farið að því. Eflaust
hefur hún aldrei haft afgang af
sínum lágu launum til að fara út í
neinn rekstur, ekki lánstraust og
ekki þor. Eða er þetta kannski allt
öfund?